Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2001, Blaðsíða 22
34 MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2001 DV íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Merkir Islendingar_______________ 90 ára__________________________________ Brynhildur Jónasdóttir, Hólavegl 3, Sauöárkróki. 85 ára__________________________________ Helga Sigurjónsdóttir, Snorrabraut 56, Reykjavík. Þórður Vaidemarsson, Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Þorvaldur Erlendsson, Skagfirðingabraut 49, Sauðárkróki. Friörik Magnússon, Hálsi, Dalvík. 80 ára__________________________________ Aöalbjörg S. Guðmundsdóttir, Hlíðarvegi 46, Kópavogi. 75 ára__________________________________ Þorbjörg Rafnar, Hlíöarhúsum 3, Reykjavík. Jóhann Ingimarsson, Tröllagili 14, Akureyri. 70 ára__________________________________ Siguröur Jónsson, Herríðarhóli, Rangárvallasýslu. 60 ára__________________________________ Laufey Bjarkadóttir, Hafrafellstungu 1, N.-Þing. Bjarni Guömundsson, Klettahlíð 8, Hveragerði. 50 ára__________________________________ Jensína Árnadóttir, Óöinsgötu 4, Reykjavík. Jenný D Stefánsdóttir, Jóruseli 13, Reykjavík. Kristín Friöriksdóttir, Fannafold 45, Reykjavík. Guömundur Jónsson, Fannafold 117, Reykjavík. Sjöfn Þóröardóttir, Trönuhjalla 7, Kópavogi. Ólöf Hilmarsdóttir, Rfumóa 2, Njarðvík. Anna María Halldórsdóttir, Eikarlundi 8, Akureyri. Elzbieta Olech, Ægissíðu 20, Grenivík. Sólveig Jóna Skúladóttir, Brúnagerði 8, Húsavík. Sigrún M. Vilhjálmsdóttir, Eyvindará 4, S.-Múlas. 40 ára__________________________________ Heba Helgadóttir, Tómasarhaga 57, Reykjavík. Ólafur Sigurösson, Völvufelli 40, Reykjavík. Ólöf Lilja Siguröardóttir, Stararima 19, Reykjavík. Anna Björg Valgeirsdóttir, Berjarima 4, Reykjavík. Guöráöur Óttar Sigurösson, Þinghólsbraut 69, Kópavogi. Kristján Arason, Tjarnarbraut 7, Hafnarfiröi. Rúnar Guömundsson, Háteigi 14f, Keflavík. Birna Gunnlaugsdóttir, Hjarðarholti 18, Akranesi. Kjartan Ólafsson Kjartan Ólafsson, framkvæmda- stjóri Steypustöðvar Suðurlands á Selfossi og formaður Samtaka garðyrkjubænda, hefur verið í fréttum síðustu daga þar sem hann mun taka sæti Áma John- sens á Alþingi fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Starfsferill Kjartan er fæddur 2. nóvember 1953 á Selfossi og ólst þar upp. Hann er garðyrkjufræðingur frá Garðyrkjuskóla ríkisins og stund- aði einnig framhaldsnám í dönsk- um garðyrkjuskóla. Kjartan hóf störf sem garðyrkjuráðunautur Búnaðarsambands Suðurlands ár- ið 1975 og var kosinn formaður Sambands garðyrkjubænda árið 1990. Hann hefur verið viðloðandi hestamennsku og hrossarækt í áratugi, auk þess að reka eigin garðyrkjustöð ásamt fjölskyldu sinni. Hann var formaður Skóg- ræktarfélags Árnesinga frá 1981 til 1996. Kjartan var framkvæmda- stjóri landbúnaðarsýningar á Sel- fossi 1978 og framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna á Hellu 1986. Þá var hann fjármálastjóri Búnaðarsambands Suðurlands og Tilraunabúsins á Stóra-Ármóti frá 1986 til 1998. Frá 1998 hefur hann verið framkvæmdastjóri Steypu- stöðvar Suðurlands. Kjartan hefur starfað í Sjálf- stæðisflokknum frá unga aldri. Hann hefur setið í stjórnum sjálf- stæðisfélaga og kjördæmisráðs á Suðurlandi og var formaður ráðs- ins 1993-1995. Hann var kosninga- stjóri Sjálfstæðisflokksins í Suður- landskjördæmi 1979 fyrir kjör- dæmið í flestum alþingiskosning- um síðan. Að auki hefur Kjartan átt sæti í stjómum fjölmargra fé- laga og fyrirtækja, jafnframt því að vera i starfsnefndum á vegum Búnaðarsambands Suðurlands, Bændasamtaka Islands og land- búnaðarráðuneytisins. Hann sat í stjórn Réttargeðdeildarinnar að Sogni frá 1992-1996 og í stjórn Áburðarverksmiðju rikisins frá 1988-1993. Fjölskylda Eiginkona Kjartans er Arna Kristín Hjaltadóttir frá Selfossi, f. 28. september 1957, garðyrkju- bóndi í Hlöðutúni. Foreldrar hennar eru Hjalti Þórðarson, Kví- arholti í Rangárvallasýslu, skrif- stofustjóri Mjólkurbús Flóamanna til 1995, og Elínborg Ólöf Guðjóns- dóttir, Valþúfu, Fellsströnd í Dala- sýslu. Kjartan og Arna eiga þrjú börn. Þau eru: 1) Hjalti Jón, f. 20. september 1980; 2) Hugborg, f. 18. júlí 1982; 3) Herdís Ólöf, f. 22. ágúst 1986. Foreldrar Kjartans eru Ólafur Jónsson, fyrrverandi kaupmaður á Selfossi, f. 29. mars 1922 og fram- kvæmdastjóri Steypustöðvar Suð- urlands, og Hugborg Benedikts- dóttur frá Sauðhúsum i Laxárdal í Dalasýslu, f. 27. febrúar 1922. Ætt Foreldrar Ólafs voru Jón Páls- son, dýralæknir á Selfossi, og Ás- laug Ólafsdóttir Stephensen. Jón var sonur Páls Þorsteins- sonar, óðaisbónda og hreppstjóra í Hinn veröandi þingmaöur Kjartan Ólafsson, framkvæmdastjóri og garðyrkjubóndi á Selfossi, sest á þing í staðinn fyrir Árna Johnsen sem sagt hefur afsér þingmennsku. Tungu í Fáskrúðsfirði, og Elin- borgar Stefánsdóttur húsfreyju á sama stað. Foreldrar Áslaugar voru sr. Ólafur Stephensen, prófastur í Bjarnamesi, og Steinunn Eiríks- dóttir húsfreyja á sama stað. Valdimar Sigurbjörn Jónsson vélvirki frá Hlíöarenda, ísafirði, Kirkjulundi 8, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Vfdalínskirkju á morgun, 24. júlí, kl. 13.30. Blóm er vinsamlegast afþökkuö en þeir sem vilja minnast hans láti Krabbameinsfélagiö njóta þess. Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir, Kambakoti, Skagaströnd, verðurjarð- sungin frá Hólaneskirkju þriðjudaginn 24. júlí kl. 14.00. Páll Sigurðsson tryggingalæknir fæddist 23. júlí 1892 í Lölukoti í Flóa. Foreldrar hans voru Sigurður bóndi i Lölukoti Gunnarsson og kona hans, Ingibjörg Þórðardóttir, siif- ursmiðs í Brattsholti í Flóa Pálssonar. Páll var stúdent 1917 og lauk cand. med. frá Háskóla íslands 1923. Hann var aðstoðarlæknir i Stykkishólmshéraði, kandidat á Rigshospital og gerðist síðan héraðslæknir í Flateyjarhéraði og í Hofsóshéraði. Páll var starfandi læknir á Siglufirði 1934 og í Reykjavík seinna sama ár til 1948. Hann var jafnframt að- stoðarlæknir héraðslæknisins i Reykjavík 1939 til 1949. Páll varð tryggingayfirlæknir 1948 og gegndi því starfl til 1960. Næstu fjög- ur ár var hann starfandi læknir i Reykjavík. Páll Sigurðsson Páll kenndi heilsufræði við Kennaraskóla íslands 1934 til 1947. Hann átti sæti í lækna- ráði í 12 ár og var trúnaðarlæknir fjár- málaráðuneytis um eftirgjafir aðflutn- ingsgjalda á bifreiðum til fatlaðra. Einnig sat Páll í úthlutunarnefnd slíkra hlunninda frá 1957. Hann sat stofnþing Alþjóða Læknafélagsins sem fulltrúi Læknafélags íslands i París 1947. Þá var Páll í stjórn Læknafélags íslands 1938 til 1951. Hann skrifaði fjölda greina í innlend og erlend blöð og var ritstjóri Heilbrigðislífs 1949 til 1951. Páll lést í Reykjavík 21. maí 1969. Persónuleg, alhlifia útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrír Einarsaon útfararatjóri Bryndís Valbjamardóttir útfararstjóri Útfararstofa íslands Suöurhlfö35» Sími 581 3300 allan sólarhringinn. WWW.Utforin.is DV Ókeypis smáauglýsingar! ►I Gefins -alltaf á miðvikudögum ► Tapað - fundið -alltaf á þriðjudögum v Smáauglýsingar E 550 5000 Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍI'.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.