Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2001, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2001, Qupperneq 28
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Skýringar ls- landssíma ófullnægjandi w Verðbréfaþing íslands hefur metið skýringar Islandssíma á af- komuviðvörun félagsins frá 12. júlí ófullnægjandi, og gerir fyrir- tækinu að skýra mál sitt betur. Íslandssími sendi frá sér af- komuviðvörun fyrir rétt tveimur vikum en þá voru liðnir um 2 mánuðir frá útgáfu útboðs- og skráningarlýsingar félagsins. Hjá Verðbréfaþingi þótti mönnum gæta mikils ósamræmis milli skráningarlýsingarinnar annars vegar og afkomuviövörunarinnar hins vegar og óskaði skýringa. Þær sendi íslandssimi til Verð- bréfaþings sem mat þær ófull- nægjandi og óskaöi frekari skýr- ^ inga. -gk Uppboðsmarkaðir: Starfsreglur áréttaðar Samtaka uppboðsmarkaða héldu fund í gær um verðlagn- ingu á fiski á fiskmörkuðum í kjölfar frétta um samráð fisk- kaupenda. Fiskistofa er nú að * kanna þetta mál í samráði við sjávarútvegsráðuneytið. Niður- staða fundarins var sú aö árétta starfsreglur markaðanna með því að senda út tilkynningu til fisk- kaupenda. Viðurkennt er að þó margir séu að öllu jöfnu um að bjóða á fisk á mörkuðunum, þá geti verið erfitt að koma algjör- lega í veg fyrir samráð fiskkaup- enda. Egill Jón Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Hornafjarðar, segist viðurkenna að hann hafi verið ósáttur við það sem gerðist og lýst var í DV. Þarna hafi verið vísir að samráði en eðli markaðarins hafi valdið þvi að það hrundi. Fundurinn í * gær hafi verið til að skerpa á vinnureglum markaðanna. -HKr. Selfoss: Slösuð eftir útafakstur Ung kona var flutt slösuð á slysa- deild Landspítalans eftir umferðaró- happ um sjöleytið í morgun. Slysið varð á Skeiðavegi og að sögn lögreglu lenti bílinn utan vegar og hafnaði á stórum steini. Tækjabíli slökkviliðs- ins á Selfossi var kailaður á vettvang og þurfti að nota klippur til að ná stúlkunni úr flakinu. Ekki var vitað í '» morgun hversu alvarleg meiðsl stúlkunnar eru. Bíllinn er gjörónýtur eftir óhappið. -aþ Matreiöslumenn hampa skartlegum guölaxl dvmynd brink Siguröur Rúnar Ragnarsson matreiöslunemi og Guömundur Helgason, yfirmatreiöslumeistari í Húsi Málarans, hampa glæsilegum guölaxi sem veiddist á Nesdýpinu fyrir stuttu. Guölaxinn, sem vegur 40 kíió, er bleikrauöur á litinn eins og lax þótt hann sé ekkert skyldur honum. Guölax flækist stundum aö ströndum landsins en taliö er aö hann elti smokkfiskgöngur á sumrin og haustin. Matreiöslumönnum þykir guðlaxinn spennandi hráefni og sagt er aö hann bragöist eins og sambland af laxi og túnfiski. Nesbú: 800 hænur köfnuðu Átta hundruð varphænur köfn- uðu í sendibíl við kjúklingabúið Nesbú fyrir stuttu. Hænumar höfðu verið fluttar í sendibíl frá Kjalar- nesi að höfuðstöðvum fyrirtækisins á Vatnsleysuströnd þegar slysið varð. Að sögn Björns Jónssonar, framkvæmdastjóra Nesbús, var um mannleg mistök að ræða. „Þetta var óhapp og atvik sem þetta hefur aldrei komið upp í sögu fyrirtækis- ins. Starfsmenn voru ekki nógu snöggir að afferma bílinn og gættu þess ekki að hafa nægilegt loftrými. Því fór sem fór,“ segir hann. Rúmlega 60 þúsund varphænur eru í Nesbúi og segir Björn flutn- inga á vegum fyrirtækisins hafa gengið að óskum hingað til. Tjónið nemur að sögn hans um 700 þúsund krónum. „Við erum afskaplega leiðir yfir þessu og munum tryggja að þetta komi ekki fyrir aftur,“ segir Björn Jónsson. -aþ ^ Kórónan fellur - Ungfrú ísland komin fjóra mánuði á leið: Ofrísk viö krýningu - vissi ekki af því - afsalar sér titlinum . DV-MYND EINAR J. Ungfrú Island meö Baldrl barnsfööur sínum Fyrst sjokk en nú tóm hamingja og gleði - veröur bara fallegri eftir barnsburöinn í desember. Kórónan er fallin. Ljóst er aö Ragnheiður Guðnadóttir, Ungfrú ísland 2001, var ófrísk þegar hún var krýnd fegurðardrottning 23. maí síðastliðinn og verður þvi að afsala sér titli og kórónu til þeirra stúlkna sem næst gengu henni i fegurð í keppninni. Tvo mánuöi á leiö „Ég vissi ekki af þessu þegar ég var krýnd. Eftir á hafa læknarnir hins vegar sagt mér aö ég hafi orðið ófrísk í síðustu viku mars- Víö krýnlnguna Ragnheiöur Guönadóttir og stúlkurn- ar tvær sem nú leysa hana af sem Ungfrú ísland 2001. mánaðar þannig að ég var komin tæpa tvo mán- uði á leið þegar ég vann titil- inn,“ segir Ragnheiður Guðnadóttir og viðurkennir að fyrstu viðbrögð hennar hafi verið sjokk. „En þetta kem- ur þegar þetta á að koma og nú lít ég á þungun mina sem tóma ham- ingju og gleði.“ Vegna þessa getur Ragn- heiður ekki komið fram sem fulltrúi íslands í Miss International-keppninni sem haldin verður í Japan né heldur í keppninni Miss Scandinavia þar sem henni var ætlaöur staður og sigurmöguleikar þóttu nokkrir. Vildi ekki Japan „Ég hefði hvort sem er ekki farið til Japans vegna þess að mér leist ekki á samninginn sem ég þurfti að undirrita til að taka þar þátt. Ég hefði hins vegar glöð farið til Skandinavíu en af því verður ekki enda er ég komin fjóra mánuði á leið,“ segir Ragnheiður sem heldur þó áfram að starfa sem andlit Bláa lónsins sem var hluti af titlinum Ungfrú ísland. Að öðru leyti starfar Ragnheiður á hárgreiðslustofum væntanlegs barnsfóðurs síns, Bald- urs Gylfasonar, sem rekur hár- greiðslustofurnar Monroe í Templ- arasundi og Mojo á Vegamótastíg. Ung en þroskuö sál Arftakar Ragnheiðar sem Ungfrú ísland verða stúlkumar sem lentu í öðru og þriðja sæti keppninnar en þær heita íris Dögg og íris Björg. Sjálf er Ragnheiöur 21 árs en reynd og þroskuð sál í ungum líkama, eins og hún orðar það sjálf: „Þótt ég sé ung þá hef ég reynt flest. Ég hef ferðast um heiminn frá því ég var 14 ára og ýmsu kynnst og margt séð.“ Ein kóróna til eða frá mun því ekki fella Ragnheiði Guðnadóttur þó titillinn sé á bak og burt og flest það sem honum fylgir. Ungfrú ís- land 2001 verður bara fallegri eftir bamsburðinn í desember. -EIR Siv Friðleifsdóttir hissa á Svíum og Finnum í Hvalveiðiráðinu: Málið fyrir ráðherrafund „Það kemur mér mjög á óvart að Finnar skuli ekki hafa staðið með okkur í þessu máli,“ segir Siv Friðleifsdóttir, umhverfis- ráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, við DV í tilefhi af því að bæði Finnar og Svíar voru í hópi þeirra ríkja sem beittu sér gegn íslendingum á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins. Siv bendir á að afstaða Svía komi ekki eins mikið á óvart því þeir hafi gert fyrirvara um sjálfbæra nýtingu sjávarspendýra þegar Norður- löndin náðu samstöðu um samhljóða yf- irlýsingu um sjálfbæra þróun á Norður- löndum til næstu 20 ára. „En vissulega Siv Frlöleifsdóttir. er það mjög sérkennilegt að Norðurlandaþjóðir, sem ættu þjóða helst að skynja þá strauma sem liggja í menningu hinna Norðurlandaþjóðanna, skuli ekki standa með okkur í þessu,“ segir samstarfsráðherrann. Hún kveðst hafa rætt þessi mál bæði á vettvangi Norðurlandaráðs og á vettvangi umhverfisráðherr- anna en telur að þessi nýjasta uppákoma gefi tilefni til að taka málið upp enn einu sinni á fundi nor- rænu umhverfisráðherranna síðar í sumar. „Það er greinilega fuD ástæða til að taka málið upp, ekki síst gagnvart Finnum sem fyrirvaralaust voru búnir að samþykkja yfirlýsingu um sjálfbær Norðurlönd til næstu 20 ára, þar á með- al að þjóðir gætu nýtt sína fiskistofna og sín sjávarspendýr með sjálfbærum hætti," segir Siv Friðleifsdóttir. Enn er ástandið á fundi Hvalveiði- ráðsins mjög sérstakt og tæpur helm- ingur fundarins hagaði í gær störfum sínum í samræmi við það að ísland væri fullgildur aðili á meðan rúmur helmingur kom fram eins og ísland væri áheymarfulltrúi. íslenska ríkis- stjómin segir ákvörðun meirihluta ráðsins ólöglega. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra telur hugsanlegt að vísa málinu til Alþjóðadómstólsins i Haag. -BG Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36 • sími 588 1560

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.