Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2001, Side 9
9
MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2001
DV Fréttir
Miðbær ísafjarðar tekur stakkaskiptum:
Verslunarmiðstöð
byggð úr stáli
- búið að rífa mikla húsalengju við Hafnarstrætið
DV-MYND VALDIMAR HREIÐARSSON
Agúst Gíslason verktaki
Á lóöinni í baksýn á aö rísa verslunarmiöstöö sem hugsanlega
verður komin í gagniö fyrir jól.
Miðbær ísafjaröar hefur tekið
miklum breytingum á undanfbrn-
um vikum. Þar mun á næstu mán-
uðum risa verslunarmiðstöð og
skrifstofuhúsnæði, eða eins konar
Kringla ísfirðinga. Þegar er búið
að rífa húsalengju viö Hafnar-
strætið sem náði frá Pólgötu að
Austurvegi og hýsti mörg fræg fyr-
irtæki i sögu bæjarins.
Það er verktakafyrirtækið
Ágúst og Flosi ehf. sem hefur veg
og vanda af byggingu þessarar
tvo:
Verktrygging Áslandsskóla lækkuð úr sex mánuðum í
Upphaflega kraf-
an óþarflega há
- segir forseti bæjarstjórnar. Ábyrgðarleysi að mati minnihlutans
Rekstur Aslandsskóla í Hafnarfirði
var til umræðu í bæjarráði Hafnar-
fjarðar i vikunni en eins og kunnugt er
var rekstur skólans boðinn út í vetur.
Hart var deilt um tryggingargjald sem
íslensku menntasamtökunum, rekstr-
araðila skólans, var ætlað að reiða
fram samkvæmt útboði. Útboðið gerði
ráð fyrir sex mánaða verktryggingu
sem væri í kringum fjörutíu milljónir.
Nú hefur bæjarstjórn fallist á að ís-
lensku menntasamtökin leggi fram
tveggja mánaða tryggingu í stað sex.
Samfylkingarmenn eru allt annað
en ánægðir með þessa þróun mála og
Aslandsskóli
Útboöiö geröi ráö fyrir aö íslensku
menntasamtökin legöu fram sex
mánaöa verktryggingu. Nú hefur
bæjarstjórn falliö frá þeirri kröfu og
samþykkt að lögö veröi fram tveggja
mánaöa trygging.
DV-MYND SIGURÐUR HJÁLMARSSON
Fallegt við Skógafoss
Engu líkara er en hjólreiöamennirnir hafi hrifist svo af fegurö landsins í veöur-
þlíöunni aö þeir hafi stokkiö af hjólunum og hlaupiö til fjaiia.
hafa gert athugasemdir við samning-
inn. „Þessir aðilar hafa augljóslega
ekki fjárhagslega getu til að standa
undir þeirri tryggingu sem var for-
senda útboðsins. Þetta er bæði ábyrgð-
arlaust og siðlaust af hálfu meirihlut-
ans. Ábyrgðarleysið felst í að falla frá
þeirri forsendu sem lagt var upp með.
Siðleysið felst í því að aðrir aðilar sem
höfðu hug á að senda inn umsókn
gerðu það ekki vegna hinnar háu
tryggingar. Tilgangurinn helgar með-
alið í þessu máli og einsýnt að einka-
væðingin skal í gegn, hvað sem hún
kostar. íslensku menntasamtökin virð-
ast komin í einstaka samningsaðstöðu
gagnvart bænum og geta í raun sjálf
sett skilmálana," segir Lúðvík Geirs-
son, fulltrúi Samfylkingar í bæjar-
stjórn.
Valgerður Sigurðardóttir, forseti
bæjarstjórnar, vísar athugasemdum
minnihlutans á bug. Hún segir algengt
að gerðar séu minni háttar breytingar
á samningum bæjarins. „Krafan um
sex mánaða tryggingu var óþarflega há
og þess vegna féllumst við á að lækka
hana. Við höfum kannað bakland sam-
takanna sem ætla að reka Áslands-
skóla og teljum trygginguna hæfilega
háa. Það er ekkert óeðlilegt við þetta
mál og má í því sambandi benda á
samning sem gerður var um rekstur
leikskóla í bænum um síðustu áramót.
Þar var samið um tveggja mánaða
verktryggingu og þótti öllum við hæfi.
Þá var bætt inn í samninginn ákvæði
þar sem rekstraraðilum er gert að sýna
fram á það mánaðarlega að staðið hafi
verið við skil á öllum launagreiðslum,"
segir Valgerður Sigurðardóttir, forseti
bæjarstjómar Hafnarfjarðarbæjar. -aþ
verslunarmiðstöðvar og er þegar
lokið við að steypa grunninn. Hug-
myndin er nokkurra ára en ætlun-
in var að nýja verslunarmiðstöðin
yrði komin í gagnið fyrir næstu
jól.
Ágúst Gíslason verktaki segir
samninga vegna uppkaupa húsa á
svæðinu hafa dregist og því sé
ekki ljóst hvort það takist að koma
byggingunni upp fyrir jól. Hann
segir það þó ekki útilokað en hús-
ið, sem er að hluta upp á þrjár
hæðir, er óvenjulegt að því leyti aö
burðarvirki er úr stáli. Aðeins
grunnur, plata og gólfplötur milli
hæða eru steyptar. Stálið í húsið
kemur þó ekki fyrr en í september.
Byggingin er að heildarflatarmáli
2.300 fermetrar en jarðhæðin er
1.580 fermetrar. Stórmarkaður
Samkaupa, sem undanfarin ár hef-
ur verið til húsa í Kaupfélagshús-
T©y©ta
RawjeRwerTord
Chevrotet
Suzutó
Omém
JeepWíllys
land Rwer
Musso
Isuzu
* c ^SSU
inu svokallaða á gatnamótum
Austurvegar og Hafnarstrætis,
mun nýta 900 fermetra af jarðhæð-
inni. Sjö aðrar verslanir verða í
húsinu.
Ágúst segir þetta skapa mikla
vinnu á svæðinu en slíkt stórhýsi
sem þetta sé ekki byggt nema á
fimmtán ára fresti á ísafirði.
Á svæðinu þar sem nýbyggingin
rís var mikil húsalenga sem hýsti
mörg fræg fyrirtæki í sögu ísa-
fjarðar. Þar má nefna rakarastofu
Villa Valla (Vilbergs Vilbergsson-
ar), blómabúð Ástu Eggertsdóttur
Fjeldsted, verslun Jónasar Magn-
ússonar og raftækjafyrirtækiö
Neista. Ýmis fleiri fyrirtæki hafa
verið í húsnæði blómabúðarinnar
og Neista hin síðari ár. Rakara-
stofan hans Villa Valla er hins
vegar flutt um set niður í Silfur-
götu. -HKr.
ALLTPLAST
Kænuvogí 17 • Símí 588 6740
RÆSIR HF Notaður bíll
Til sölu
Mercedes-Benz SLK 230
Kompressor, nýskr. 11/99. Rafdrifinn
stáltoppur, sjálfsk. ESP
stöðugleikakerfi, líknarbelgir, 16“
álfelgur, útvarp/CD, rafdr. rúður og
speglar, fjarst. samlæsingar, hraðastillir,
leðurklæðning, Bose hljómkerfi o.fl.
Fiuttur inn nýr, einn eigandi, ekinn
19.000 km.
t i - u -o , uu< Tilboðsverð kr. 3.850.000.
Til synis hja Bilahollinm hf.,c. -
Bíidshöfða 5. Skipti a odyrari.
--------------------------------www.raesir.is
Sbjuað///
A.\S: S6T 4B49, '
Mercedes Benz 260 E 4-matic, 4
d., árg. 1991, svartur, ek. 175 þ. km,
ssk., álf., toppl. V. 1.250 þús.
Nissan Terrano II SR, 2,4 I, 5 d., skr.
8/98, hvítur, ek. 69 þ. km, þsk., álf.,
krókur, stigbr.
V. 1.750 þús.
VW Passat 1600 Basic Line 4 d., skr.
6/98, svartur, ek. 44 þ. km, bsk., álf.,
CD, aukadekk. V. 1.290 þús.
Subaru Impreza LX 1600 4wd, 5 d„
skr. 6/97, grár, ek. 107 þ. km, bsk.,
álf„ ný dekk, spoiler o.fl. V. 920 þús.
Plymouth Voyager, 3,3 I,
fjölnotabifr., árg. 1995, blár, ek. 84 þ.
míl„ ssk„ álf„ 7 m„ innb. barnasæti.
V. 890 þ.
VANTAR BÍLA Á SKRÁ OG Á STAÐINN.
MIKIL SALA. ALLT AÐ GERAST!
0PIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL.10-18.
L0KAÐ LAUGARDAGA TIL 25. ÁGÚST.
mm fRÍLÁSAUNNj
nöUur ehf.
BÍLASALA
Tryggvabraut 14, 600 Akureyri
461 3020 - 461 3019
Land Rover 90 2,3, túrbó, dfsil, 3 d„
árg. 1988, hvítur, ek. 210 þ. km.
V. 550 þús.
Isuzu Trooper 4x4 3,0 dfsil túrbó, 5
d„ skr. 2/00, gullsans., ek.40 þ. km,
bsk„ 31“ dekk, álf.
V. 3.300 þús.