Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2001, Qupperneq 12
12
MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2001
Skoðun DV
Veitingastaðir
íslenskar fjölskyldur neyöast til aö fara á skyndibitastaöi efgera á sér dagamun. Þessi veitingahúsamenning
er einn angi af alltof háu matvælaveröi hértendis.
Veitingastaðir á íslandi
eru ekki fyrir almenning
a
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir?
Ingibjörg Gísiadóttir, 8 ára:
Mér finnst skemmtilegast aö vera úti
aö leika meö vinum mínum.
Hilda Jónsdóttir, 8 ára:
Aö vera úti aö klifra meö
vinum mínum.
Magdalena Gísladóttir, 3 ára:
Mér finnst skemmtilegast aö hjóla,
ég er mjög góö aö hjóla.
Einar Valgarðsson, 9 ára:
Mér finnst skemmtilegast að teikna,
ég teikna Pokémon mjög oft.
Hlynur Jóhannsson, 8 ára:
Mér finnst rosalega skemmtilegt
í bíó, ég sá t.d. síöast
Nýi stíll keisarans.
Emma Unde, 12 ára:
Mér finnst skemmtilegast aö dansa.
Sigurður
skrifar.
Það er með ólíkindum hvað það
er dýrt að fara út að borða á íslandi,
enda eru veitingastaðirnir aðeins
fullir af útlendingum sem neyðast
til að borða á þeim. Hér á landi sér
maður nánast aldrei íslenska fjöl-
skyldu fara út að borða saman eins
og má sjá erlendis. Það er helst þeg-
ar tilefnið er þeim mun stærra hjá
íjölskyldunni. íslenskar fjölskyldur
neyðast tO að fara á skyndibitastaði
ef gera á sér dagamun. Þessi veit-
ingahúsamenning er einn angi af
alltof háu matvælaverði hérlendis.
Okurverö á áfengi
Einnig hef ég aldrei skilið verö á
áfengi á veitingahúsum og kaffihús-
um. Miðað við verðið beint úr Rík-
inu, sem er til að byrja með mjög
Athugasemd Benedikts Vilhjálms-
sonar, Ytri-Höfninni á Egilsstöðum,
vegna lesendabréfs dags. 19. júlí sl._
Lagarfljótsormurinn hóf siglingar
á Lagarfljóti 20. júní 1999 og fyrsta
árið sigldu tæplega 8000 manns með
skipinu inn í Altavík. Þetta er ekki
í fyrsta skiptið sem ferja er í sigling-
um á Lagarfljóti því í maí 1905 hóf
mótorbátur siglingar frá Egilsstaða-
víkinni inn að Brekku í Fljótsdal.
Þetta skip var smíðað á Seyðisfirði
og var fyrsta mótorskipiö sem smíð-
að var á Austurlandi.
Barlnn í Lagarfljótsorminum
Lagarfljótsormurinn sem nú sigl-
ir um Fljótið er keyptur notaður frá
Svíþjóð eða nánar tiltekið frá
„Af hverju tekur ekki eitt-
hvert veitingahús eða kaffi-
hús upp á því að bjóða upp
á rauðvínsflösku sem kost-
ar um 1000 krónur ÍÁTVR
á 1300-1500 krónur í stað
2500-3500 krónur?“
hátt, þá er álagning veitingahúsa-
manna með ólíkindum. Af hverju
tekur ekki eitthvert veitingahús eða
kaffíhús upp á því að bjóða upp á
rauðvínsflösku sem kostar um 1000
krónur i ÁTVR á 1300-1500 krónur í
stað 2500-3500 krónur? Það er samt
50% álagning og staðurinn ætti að
græða nóg af því, talandi ekki um
meiri aðsókn vegna verðsins.
Einnig kostar hálfur lítri af bjór um
Kvöldsiglingar eru á laug-
ardagskvöldum og gjarnan
með dagskrá, trúbador,
diskóteki eða hljómsveit
og þá geta gestir dansað
um borð.
Vanersborg, rétt norðan viö Gauta-
borg. Skipið var flutt sjóleiðina til
Reyðarfjarðar og þaðan á sérsmíð-
uðum vagni yfir Fagradal til Egils-
staða. Skipið var síðan „sjósett" 10.
júní 1999 og eftir reynslusiglingar
fór það strax í rekstur. Skipið hefur
leyfi fyrir 110 farþegum.
Þetta skip er eina fljótaskipið á Is-
landi og á þægilegri siglingu meðal
180 krónur í Ríkinu en er seldur á
500-550 krónur á kaffihúsi.
Veitingahús hagnast á því
aö lækka verðið
Einnig má minnast þess að veit-
ingastaðir og kaffihús fá áfengið
ódýrara en Ríkisverðið vegna heild-
söluverðs og magninnkaupa. Sá
staður sem myndi hafa bjórinn á
250-300 krónur myndi hagnast strax
með aukinni aðsókn. Það gefur
nefnilega augaleið að sá staður sem
myndi vikja frá okrinu hefði beinan
hag af því. íslendingar geta ekki sótt
veitingastaði nema þegar fagna á
stórafmælum eða öðrum merkistíð-
indum. Hinn almenni launamaður
getur ekki boðið konu og bömum út
að borða á laugardegi því það kost-
ar aldrei undir 10.000 krónum. Veit-
ingamenn, hvar er viðskiptavitið?
vina er hægt að hlusta á ljúfa tónlist
eða leiðsögn meðan vinir sötra bjór,
bergja vín og/eða sitja að snæðingi.
Umhverfið skemmir ekki fyrir.
Nokkrar ferðir eru að Húsatanga,
þar er grillað og Hákon Aðalsteins-
son, skáld og skógarbóndi, tekur á
móti gestum.
Kvöldsiglingar eru á laugardags-
kvöldum og gjarnan með dagskrá,
trúbador, diskóteki eða hljómsveit
og þá geta gestir dansað um borð.
Fyrirhugað er að bjóöa upp á ferðir
að Hengifossi og Skriðuklaustri. Þá
er siglt frá Egilsstööum kl. 12.30 og
gestum skilað á Húsatanga, þar tek-
ur rúta við og að aflokinni rútu- og
gönguferð er skipið tekið til baka
frá Atlavík kl. 20.30.
Um Lagarfljótsorminn
mmmm
Davíð Pollýanna
Garri hefur yfirleitt verið tiltölulega ánægður
með hlutskipti sitt í lffinu. Hann hefur sætt sig
við að vera bara réttur og sléttur Garri en ekki
einhver annar og aldrei átt sér fyrirmyndir eða
viljað verða eins og þessi eða hinn. En eftir að
hafa lesið helgarviðtalið við Davíð Oddsson í DV
fer ekki hjá því að Garri hálfófundi Davíö og
vilji gjarnan líkjast honum sem mest.
Davíð er einhver öflugasti og klókasti stjórn-
málamaður sem ísland hefur alið, það ber flest-
um saman um, hvar í flokki sem þeir standa.
Menn hafa hins vegar ekki verið sammála um
ástæður velgengni Davíðs og ýmsar skýringar á
kreiki. En eftir helgarviðtalið í DV þarf ekki
frekari vitnanna við, Davíð lýsir þar sjálfur
þeim karaktereinkennum sem gera hann að
þeim mikla manni sem hann óneitanlega er.
Langbestur!
æsku hefur hann tamið sér að að lita á allt sem
hann eignast sem það besta í heiminum og engu
skeytt um utanaðkomandi verðmætamat eða álit
umhverfisins. Hann hefur glaðst yfir litlu og jafn-
an talið sér trú um að það væri mikið.
Og Davíð hefur aldrei ímyndað sér að eitthvað
væri betra hjá öðrum og því aldrei fundið til öf-
undar í garð annarra. Enda óþarfi þegar allt er
best í eigin ranni. Davíð er sem sé ekki bara
sáttur við sjálfan sig og sín verk. Hann er hæstá-
nægður með sjálfan sig. Og þess vegna líður hon-
um svo vel. Og þess vegna hefur honum gengið
svona vel.
Garri, sem er að mestu sáttur við sjálfan sig,
öfundar sem sé Davíð af heimaræktaðri sjálfs-
ánægjunni sem hefur fieytt honum í hæstu hæð-
ir.
Sólkonungur
Davíð hefur sem sé tamið sér að sjá alltaf það
besta út úr öllu sem hendir hann á lífsleiðinni.
Það þarf ekki að segja honum að horfa á björtu
hliðarnar i hverju máli, hann býr sjálfur til sínar
björtu hliðar. „Ég hef alltaf verið sáttur og ánægð-
ur hvar sem ég hef veriö,“ segir Davíð. Frá barn-
Davíð Oddsson er sem sé einhvers konar und-
arleg blanda af Birtingi sem býr í því langbesta
af öllum mögulegum löndum; Pollýönnu sem
jafnan gerði gott úr öllu sem upp á kom og
Sverri Stormsker sem sönglaði svo postullegur
um árið: „Horfðu á björtu hliðamar, heimurinn
hann gæti verið verri.“
Davið sönglar hins vegar: „Minn heimur er
langbestur, því þar er ég.“
Ósköp væri nú þægilegt og notalegt að geta
hugsað eins og Davið og látið
allt raunsæi lönd og leið. Gdfll
Falleg Þingholt
að ganga um
Sesselja skrifar:
Óskaplega getur Reykjavíkurborg
veriö ljót. Reykjavík er eins og eitt
stórt úthverfi þar sem meginreglan
virðist vera að náunginn megi alls
ekki vera innan 10 metra radíusar
frá manni. Byggð Reykjavíkur þarf
að þéttast í stað þess að enda uppi í
Bláfjöllum og hjá Esjunni. í hreint
ágætum leiðara hjá Sigmundi Erni
er bent á að byggð i Viðey sé
skemmtilegur kostur. Ég tek heils
hugar undir það, sérstaklega hug-
myndina hans að hafa byggðina
eins og lítið þétt þorp með litlum
miðbæ þar sem Viðeyjarstofan og
kirkjan njóta sín. Við skulum nýta
auð svæði sem má finna alls staðar
i Reykjavík. Það er hrein unun að
ganga um í Þingholtunum þar sem
húsin eru þétt hlið við hlið og garð-
arnir samvaxnir.
Strætó bs.
Ekki hefur þjónustan batnaö,
svo mikiö veit ég.
Verri þjónusta
hjá strætó
Jfllíus hrlngdl:
Ekki þykir mér vænlegt að búið
sé að koma almenningssamgöngum
höfuðborgarsvæðisins undir einn
hatt og hækka fargjöldin. Þvert á yf-
irlýsingar um að nýja fyrirtækið,
Strætó BS, eigi að vera hagkvæmari
kostur fyrir borgarbúa. Ekki hefur
þjónustcm batnað, svo mikið veit ég.
Síðastliöinn mánudag þurfti ég að
þeytast á milli borgarhluta í þeim
erindagjörðum að kaupa Græna
kortið handa syni mínum. Það
fékkst hvorki á Hlemmi né Lækjar-
torgi og fór svo að ég gerði mér ferð
upp í Mjódd til að fjárfesta í þessum
dýrgrip. Það er nokkuð undarlegt að
hvetja fólk til að leggja bílnum en
leggja stein í götu þess með slíkum
hætti. Tími minn er að minnsta
kosti dýrmætari en svo að geti séð
af nokkrum klukkustundum í svona
þvælu. Þetta er allt á sömu bókina
lært. Ætli yfirmenn hins nýja fyrir-
tækis „fylgi í hjólfór" Helga P„
haldi bíllausan dag og fari sjáffir
mn á einkabílum?
Vil fá gamla
góda Gulliö aftur
Jóhann hrlngdl:
Ég verð að
segja að mér
finnst útvarps-
markaðurinn
heldur hafa
þynnst út að
undanförnu.
Einu sinni var
ekki pláss í
minninu á út-
varpinu fyrir
allar stöðvam-
ar en nú er nóg
pláss. Einnar stöðvar sakna ég þó
mest og það er gamla góða Gullið
sem var á FM 90,9. Þar voru gömlu
smellirnir spilaöir og ég veit um
afar marga sem hlustuöu á þá stöð.
Jón Ólafsson, komdu nú aftur með
Guflið.
DVI Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 ReyKiavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.