Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2001, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2001
Fréttir
DV
Hafnarfjörður:
Skorað á Guð-
mund Árna í
framboð
- klæjar í fingurna
„Vitaskuld klæjar mig í finguma að
fá að taka þátt í endurreisn Hafnar-
fjarðar en það er þó ekki á dagskrá hjá
mér,“ sagði Guð-
mundur Árni Stef-
ánsson, aðspurður
hvort hann vildi
taka sæti á lista
Samfylkingarinn-
ar í Hafnarfirði
við næstu bæjar-
stjómarkosningar.
Andri Ólafsson,
formaður ungra
jafnaðarmanna í
bænum, ritar hvatningargrein í vefrit-
ið politik.is þar sem hann hvetur Guð-
mund til að bjóða sig fram. „Foringj-
ann vantar, einstakling sem er viður-
kenndur af flokksmönnum og almenn-
ingi sem óskoraður leiðtogi likt og
Ingibjörg Sólrún er í Reykjavík. Slíkan
forystusauð á Samfylkingin í Hafnar-
firði því miður ekki til í röðum sinna
annars ágætu bæjarfulltrúa," segir
Andri í grein sinni eftir að hafa minnt
á að tveir af reyndari fulltrúum flokks-
ins, þeir Tryggvi Harðarson og Ingvar
Viktorsson, séu að hætta í pólitík.
Ekki eina hvatningin
Guðmundur Ámi sagði í samtali við
DV að nú þegar væri mnninn út frest-
ur til að tilkynna þátttöku í skoðana-
könnun þeirri sem fram á að fara dag-
ana 12.-14. október og nafn hans væri
ekki þar á meðal. „Það segir nú það
sem segja þarf,“ segir Guðmundur.
Hann staðfestir þó að grein Andra sé
ekki eina hvatningin sem fram hafi
komið í þessa vem. En þó reglan segi
að menn eigi aldrei að segja aldrei í
pólitík þá sé framboð í Hafnarfirði
hins vegar ekki í hans kortum nú.
Skoðanakönnun sú sem fram mun fara
er ekki bindandi og mun 5 manna kjör-
nefnd sjá um að leggja fram endanlega
tillögu að framboðslista undir lok
nóvember. -BG
Guömundur Ámi
Stefánsson.
RÚV:
Vitlaust eintak
fór í loftið
„Þetta var skelfilegt og ég vona
bara að enginn hafi verið að horfa á
myndina,“ segir Þorfinnur Guönason
kvikmyndagerðarmaöur um þau
IHHnni mistök sem áttu
Wm sér stað þegar
I heimildarmynd
j hans um Lalla
Johns var sýnd í
M Sjónvarpinu síð-
' H astliöið sunnu-
M dagskvöld. Öll
JMl umhverfishljóð og
. ... tónlist vantaði í
storan hluta
rhyndarinnar og hún var vitlaust
klippt. Þorfinnur segir að ekki hafi
verið sýnt rétt eintak af myndinni
því það sem fór í loftið var hrátt
vinnueintak.
Vinnu kastað á glæ
„Mistökin eru sambærileg því að
skissur væru hengdar upp á mynd-
listarsýningu hjá myndlistarmanni
í stað fullkláraðra málverka,“ segir
Þorfinnur og bætir við aö vinna
fjölda listamanna og fleiri aöila hafi
ekki skilað sér í myndinni þar sem
ekki var um rétt eintak að ræða.
Hann segir fimm ára vinnu liggja á
bak við við myndina og þetta sé
eins og henni hafi verið kastað á
glæ. Þorfinnur hafði strax samband
við Sjónvarpið og fór fram á að
myndin yrði stöðvuð. Það var ekki
gert heldur var skipt um eintak af
myndinni og hún sýnd eins og ekk-
ert hefði verið að.
Að sögn Ragnars Santos, aðstoðar-
dagskrárstjóra Sjónvarpsins, var um
að ræða mannleg mistök. „Þegar í ljós
kom að um vitlausa spólu var að ræða
víxluðum við yfir á rétta spólu," segir
Ragnar. Myndin verður endursýnd á
næstunni. -MA
Vopnaleit í fyrsta sinn á Reykiavíkurflugvelli:
Fullgild leit á far-
þegum og í farangri
- handvirk leit á Akureyri og Egilsstödum
Fullgild vopnaleit hefst á Reykjavík-
urflugvelli næstkomandi fóstudag en
þessa dagana er verið að koma upp
bráðabirgðabúnaði til leitar í flugstöð-
inni. Farþegar sem fara um völlinn í
áætlunarflugi til Grænlands og Fær-
eyja verða frá og með fóstudeginum
gegnumlýstir og handfarangur þeirra
skannaður. Að sögn Hauks Hauksson-
ar aðstoðarflugmálastjóra verður
vopnaleitin einskorðuð við millilanda-
flug og ekki á döfinni að hefja slíka leit
í innanlandsflugi.
Haukur segir kaup á vopnaleitar-
tækjum hafa verið á fjárlögum og um
sé að ræða samvinnuverkefni sam-
gönguráðuneytis, dómsmálaráðuneytis
og Flugfélags íslands. Hryðjuverkin í
Bandaríkjunum hafi síðan orðið þess
valdandi að ákveðið hafi verið að
koma þegar í stað upp bráðabirgða-
DV-MYND GVA
Reykjavíkurflugvöllur
Lögreglumenn munu annast vopna-
leit á millilandafarþegum sem fara
um Reykjavíkurflugvöll frá og meö
næsta föstudegi.
búnaði - meðan beðið er eftir leitar-
búnaði að utan sem ætlað er að þjóna
vellinum til frambúðar. Að sögn
Hauks hefur eftirspum eftir vopnaleit-
artækjum ekki í annan tíma verið
meiri og því sé tveggja mánaða bið eft-
ir nýju tækjunum fyrirsjáanleg.
Lögreglumenn munu annast vopna-
leit á vellinum og hafa þeir hlotið sér-
staka þjálfun til verksins. „Þetta verð-
ur fullgild vopnaleit sem lýtur sömu
skilyrðum og í Leifsstöð. Á sama tíma
munum við hefja vopnaleit á Akureyri
og á Egilsstöðum en þar sem ekki er
áætlunarflug frá þessum stöðum verð-
ur handleitað í farangri farþega," segir
Haukur.
Um sex þúsund manns fara til Fær-
eyja og Grænlands með áætlunarflugi
árlega og talið er að allt að þúsund
manns fari um völlinn á einkaþotum.
Haukur segir tilhögun vopnaleitar á
farþegum einkavélanna í skoðun og
hugsanlegt að handvirkri leit verði
beitt á þann hóp. -aþ
DV-MYND JÚLÍA IMSUND
Góð síld, gott verð
Þeir Ágúst og Rúnar fylgjast meö síldarlönduninni. Arney landaöi um helgina 350 tonnum af stórri og
góðri síld sem fékkst í Berufjaröarál.
Góð síld, góður markaður
- en mannskap vantar til að verka aflann
DV, HQRNAFIRDI: ___________
Síldarvinnsla er byrjuð hjá Skinney
Þinganesi á Höfn. Búið er að vinna um
þijú þúsund tonn og er síldin flökuð og
fryst og einnig heilfryst. Gunnar Ás-
geirsson hjá Skinney Þinganesi segir
að síldin sé stór og góð og er hún unn-
in fyrir Rússlandsmarkað. Gunnar seg-
ir að söluhorfur séu góðar í haust og
gott verð fáist fyrir síldina. Síldveiði-
skip Skinneyjar Þinganess eru Amey,
Jóna Eðvalds og Ásgrímur Halldórs-
son. Síldin hefur aðallega veiðst á
Papagrunni og í Berufjarðarál.
Um fjörutíu manns vinna við síld-
ina en ekki hefur gengið vel að fá fólk
til starfa og vantar enn mannskap
-Júlía Imsland
Fimm ára athugun á mögulegu samráöi tryggingafélaganna loks að ljúka:
Frumniðurstaða
liggur nánast fyrir
- tryggingafélögunum gefinn kostur á andmælum innan skamms
Samkeppnisyfirvöld hafa verið með
meint samráð tryggingafélaganna til
athugunar allt frá árinu 1996 án þess
að komast að niðurstöðu, eins og DV
greindi frá í gær í umfjöllun um trygg-
ingafélögin. Samkvæmt heimildum
DV er nú loks að komast skriður á
þessa vinnu. Frumathugun liggur nán-
ast fyrir og er búist við að í þessari viku
eða þeirri næstu muni Samkeppnis-
stofnun senda frumskýrslu til trygg-
ingafélaganna þar sem þeim verður gef-
inn kostur á andmælum. Það ferli bend-
ir til að málinu sé hvergi nærri lokið og
gefúr vísbendingu um hugsanlegar að-
gerðir samkeppnisyfirvalda.
Guömundur Sig-
urðsson, forstöðu-
maður hjá Sam-
keppnisstofnun,
viðurkennir að-
spurður að þaö sé
bagalegt fyrir neyt-
endavemd i land-
inu að rannsókn
mála dragist svo á
langinn. Þetta sé
hins vegar um-
fangsmikið verkefni og annriki hafi
verið við ýmis önnur stórmál. Auk
þess hafa mannabreytingar hjá
stofnuninni tafið framgang rann-
sóknarinnar samkvæmt heimildum
DV, enda um sérhæfða athugun að
ræða.
„Þetta er óheppilegt en hvorki
einsdæmi í stjómsýslunni hér né
annars staðar. Ef við berum okkur
saman við kollega okkar í útlöndum
hafa sum mál þar tekið mörg ár,“
segir Guðmundur.
Hann segir að á tyllidögum heyrist
stundum að brýnt sé að efla Sam-
keppnisstofnun en fjölgun starfs-
manna hafi verið lítil undanfarið.
Alls starfa um 10 manns frá degi til
dags við athugun á samkeppnismál-
um. -BÞ
Guðmundur
Sigurösson.
Ómakleg gagnrýni
Halldór Bjömsson,
varaformaður Lífeyr-
issjóðsins Framsýnar,
mótmælir gagnrýni
Davíðs Oddssonar um
að fjárfestar hafi hald-
ið að sér höndum I
lilutafjárútboöi
Landssímans og að
þeir hafi keypt i erlendum fyrirtækjum
sem þeir þekkja hvorki haus né sporð á.
Halldór vísar líka á bug ummælum
Sturlu Böðvarssonar samgönguráð-
herra um að sjóðimir hafi haft samráð
um að kaupa ekki. - Vísir.is greindi frá.
Skilar af sér í dag
Nefndin sem falið var að endurskoða
stjóm fiskveiða skilar tillögum til ráð-
herra í dag. Nefndin hefur klofnað í
femt. Meirihlutinn er á einu máli. 1 til-
lögu hans er gert ráð fyrir veiði-
leyfagjaldi sem getur numið allt frá ein-
um til tveimur milljörðum króna á ári.
Fagnar formannssigri
Björgvin Guðmundsson blaðamaður
var í gærkvöld endurkjörinn sem for-
maður Heimdallar, félags ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík. Andri Óttars-
son laganemi bauð sig fram gegn sitj-
andi formanni og féllu atkvæði þannig
að Björgvin hlaut 385 atkvæði og Andri
274. Auðir seðlar vom sex en alls
gi-eiddu tæplega 700 félagar atkvæði.
Raffæn kosning
Embættismenn borgarinnar hafa ver-
ið að athuga þann möguleika að kosið
verði rafrænt í borginni í sveitarstjóm-
arkosningunum næsta vor. Tilraun var
gerð með slíka kosningu um framtíð
flugvallar í Vatnsmýrinni i vetur og
þótti gefa góða raun.
Eingöngu konur
Héraðsdómur Suðurlands er eingöngu
skipaður konum og er það í fyrsta skipti
sem slíkt gerist hérlendis. Útlit er fyrir að
dómuriim vérði áfram eingöngu skipaður
konum þar'til karlkyns dómstjóri kemur
aflur til starfa eftir árs leyfi. - Ríkissjón-
varpið greTndi frá.
Stóraukinn kostnaður
Jóhann Benedikts-
son, sýslumaður á
Keflavíkurflugvelli,
segir að lögreglan á
Keflavíkurflugvelli
eigi fullt í fangi með
að fullnægja öryggis-
kröfum í kjölfar
hryðjuverka í Banda-
ríkjunum. Aukakostnaðurinn verði um
200 milljónir króna á ári í vamarstöð-
inni og flugstöðinni.
Sjóvá tryggir flugið
Ríkissjóður hefur veitt Sjóvá-Al-
mennum, fyrir hönd Samtaka nor-
rænna flugvátryggjenda sem félagið er
aðili að, endurtryggingavemd á sviði
ábyrgðartrygginga vegna hernaðarað-
gerða, hryðjuverka og áþekkra atvika.
Sjóvá-Almennar gaf i gær út þessar vá-
tryggingar fyrir íslenska flugrekendur.
Kökudropaþjófur
Rúmlega fertugur karlmaður var í
Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur
í 2 mánaða fangelsi fyrir kjöt- og köku-
dropaþjófnað og fyrir að hafa tekið
dráttarvél ófrjálsri hendi og ekið henni
frá Kleppsspítalanum inn í port lög-
reglustöðvarinnar við Hverfisgötu.
Halldór á fundi NATO
Halldór Ásgríms-
son utanríkisráð-
herra mun sitja fúnd
vamarmálaráðherra
Atlantshafsbandalags-
ins sem haldinn verð-
ur í Bmssel i Belgíu á
morgun. Á fúndinum
verður öallað um
hryðjuverkin í Bandaríkjunum.
-HKr.