Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2001, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2001
Viðskipti__________
Umsjón: Vidskiptablaðið
Siglum í núll í hagvexti
Bolli Þór Bollason, skrifstofu-
stjóri efnahagsskrifstofu fjármála-
ráðuneytisins, segir útgjaldaaukn-
ingu ríkissjóðs umfram áætlanir
skýrast af liðum sem ekki voru á
fjárhagsáætlun.
Hann nefnir kjarasamninga, ör-
yrkjadóm, hækkun lífeyrisbóta og
gengislækkun krónunnar sem
dæmi. Kostnað vegna kjarasamn-
inga metur BoUi á 3 til 4 milljarða
en gengislækkun krónunnar segir
hann koma fram víða, t.a.m. í
auknum kostnaði vegna ferðalaga
tU útlanda.
„Svo kemur hún þungt fram hjá
sendiráðunum en öll útgjöld til
þeirra eru í krónum talin. Þá kem-
ur gengislækkunin fram í vaxta-
kostnaði af erlendum lánum. Af
þessum 4,7 milljörðum, sem eru
frávik frá áætlun, eru tveir millj-
arðar bara í vöxtum," sagði hann
og bætti við að gengislækkunin
kæmi einnig óbeint fram í hærra
verðlagi.
Ástæðu þess að ekki var að fullu
gert ráð fyrir áhrifum kjarasamn-
inga í áætlanagerð ríkisins segir
Bolli vera að þeir hafi færst yfir
áramót. „Sl. haust, þegar samning-
ar voru lausir, var gert ráð fyrir
ákveðnum hækkunum en vegna
þess að þeir færðust yfir áramót
kemur í raun inn tvöfóld áfanga-
hækkun sem ekki var gert ráð fyr-
ir í fjárlagafrumvarpinu." Bolli
segir það mat ráðuneytisins að
frekar sé ástæða til að óttast sam-
drátt í hagkerfinu en þenslu. Hann
vill þó fara varlega í að spá fyrir
um hvenær viðsnúnings sé að
vænta í efnahagslífinu því hag-
fræðingar spáðu hvað oftast vit-
laust fyrir um tímasetningu við-
snúnings. „Tilfinningin eftir að
hafa horft á þessar tölur er að við
séum mjög nálægt botninum,“
sagði hann en tiltók að nokkur
óvissa væri um framhaldið, m.a.
vegna hryðjuverkanna i Bandarikj-
unum.
Bolli segist vongóður um að
skattalækkunaráform ríkisstjórn-
arinnar hafi góð áhrif á væntingar
í efnahagslífinu gangi þau eftir.
„Svo eru menn almennt sammála
um að tímapunktur vaxtalækkun-
ar, sé hann er ekki þegar kominn,
nálgist mjög hratt. Eina vísbend-
ingin sem ekki styður vaxtalækkun
er staðan á vinnumarkaði."
Bolli sagði þó varhugavert að
einblína á atvinnuleysisskráningu
sem mælikvarða á þenslu því fólki
væri ekki sagt upp fyrr en allt ann-
að þryti. „Það dregur mjög hratt úr
eftirspurn og við túlkum þetta
þannig að við séum jafnvel að sigla
niður í núll í hagvextinum, og þá
fer nú að nálgast tímabil vaxta-
lækkunar," sagði hann.
Ishug fjar-
festir í
Maskina
- sérhæfir sig í þróunar- og umsýslulausnum
íslenski hugbúnaðar-
sjóðurinn hefur íjárfest , /
í fyrirtækinu Maskina r'
sem sérhæfir sig í gerð
þróunar- og umsýslu
lausna fyrir endanotend-
ur farsíma. Búnaðarbanki
íslands hf. og Bunadarbank-
inn International S.A.
einnig þátt í fjármögnuninni
ásamt öðrum áhættufjárfestum,
stofnendum og stjórnendum fyrir-
tækisins. íslenski hugbúnaðar-
sjóðurinn mun eiga um 20,3% hlut
í Maskina og taka virkan
þátt í uppbyggingu fyrir-
tækisins með stjórnar-
þátttöku, almennri ráð-
gjöf við uppbyggingu er-
Farsímalausnir
Maskina hefur þróað
umsýslulausnir fyrir
endanotendur farsíma.
UPPBOÐ
Framhald uppboös á eftirfarandi
eignum veröur háö á þelm sjálf-
um sem hér segir:
Álfhólsvegur 26, þingl. eig. Ragnhildur
Ólafsdóttir og Guðmundur Ólafur Heið-
arsson, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki
íslands hf., Hekla hf., íbúðalánasjóður,
Kaupþing hf., Sameinaði lífeyrissjóður-
inn og Sparisjóður Rvíkur og nágr., útib.,
föstudaginn 28. september 2001, kl.
15.00.______________________________
Efstaland v/Smiðjuveg 5, þingl. eig. Birg-
ir Georgsson og María Hreinsdóttir, gerð-
arbeiðendur Ibúðalánasjóður og sýslu-
maðurinn í Kópavogi, föstudaginn 28.
september 2001, kl. 10.30.
Kjarrhólmi 30, 3. hæð A, þingl. eig. Sig-
urlína Bjamadóttir, gerðarbeiðendur
Ibúðalánasjóður, Kjarrhólmi 30, húsfé-
lag, og Kópavogsbær, föstudaginn 28.
september 2001 kl. 13.00.
Smiðjuvegur 24, norðurendi 2. hæðar,
þingl. eig. Borðinn ehf., gerðarbeiðendur
Islandsbanki-FBA hf., Kópavogsbær,
Sparisjóður Kópavogs og Tryggingamið-
stöðin hf., föstudaginn 28. september
2001, kl. 09.30.____________________
SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI
lends sölunets og aðkomu er-
lendra fjárfesta að fyrirtækinu.
Maskina hefur þróað vöru
sem gerir farsímanotendum
kleift að hanna, dreifa og
nota einfaldar en verð-
\ mætar virðisaukandi
gagnaþjónustur án
nokkurrar sérstakrar
þekkingar á forritun
eða hugbúnaði.
Notendur greiða
ekkert fyrir að
hanna þjónustuna, ein-
ungis fyrir dreif-
ingu og notkun.
Hugbúnaðurinn
byggist á tækni
sem hefur þegar
verið tekin upp hjá fjölda farsíma-
fyrirtækja og gerir mjög litlar
kröfur til umsýslu og viðhalds af
hálfu þeirra. Tekjur af notkun
vörunnar eru í samræmi við að-
sókn notenda í að dreifa og nota
þær virðisaukandi þjónustur sem
gerðar eru í umhverfinu. Vinsæl-
ar gagnaþjónustur sem notendur
hafa hannað eru m.a. ýmsar stað-
setningartengdar upplýsingar,
brandarasöfn, spurningaleikir,
samkvæmisleikir, smáauglýsing-
ar, stjörnugjöf fyrir nýjustu mynd-
böndin, greindarpróf og persónu-
leikapróf. Vinsælustu þjónusturn-
ar í þessum hópi hafa fengið nokk-
ur þúsund heimsóknir en heildar-
fjöldi þeirra gagnaþjónusta sem
hannaðar hafa verið er nú þegar á
fjóröa hundrað.
Maskina hefur gert samstarfs-,
sölu- og dreifingarsamninga við
tvö erlend markaðsráðandi fyrir-
tæki. Þessi fyrirtæki eru saman-
lagt i viðskiptum við yfir 100 fyr-
irtæki sem veita farsímaþjónustu
og hafa þrír þjónustuaðilar á
Norðurlöndunum þegar tekið vör-
una í notkun. Stærstu hluthafar i
Maskina eftir hlutafjáraukning-
una, auk stofnenda og stjórnenda
fyrirtækisins, eru íslenski hug-
búnaðarsjóðurinn ásamt Búnaðar-
banka íslands hf. og Bunadar-
bankinn International S.A.
Höfuöstöövar RÚV
Brotthvarf RÚV af auglýsingamarkaði mundi þýöa að mun dýrara yrði fyrir
auglýsendur að ná til markhóþa sinna.
Auglýsendur vilja
RÚV áfram á aug-
lýsingamarkaði
Stjórn Samtaka auglýsenda hef-
ur sent frá sér yfirlýsingu þess
efnis að auglýsendur vilji alls
ekki að RÚV hverfi af auglýsinga-
markaði en allnokkrar umræður
hafa verið þess efnis undanfarnar
vikur í fjölmiðlum.
í ályktuninni segir að tvær
meginástæður liggi til grundvall-
ar afstöðu Samtakanna: „í fyrsta
lagi hefur RÚV langmesta viku-
lega dekkun allra sjónvarpsmiðl-
anna. Þetta þýðir að mun erfiðara
getur orðið fyrir auglýsendur að
nálgast markhópa sína ef RÚV
nyti ekki við. í öðru lagi myndi
brotthvarf RÚV þýða að mun dýr-
ara yrði fyrir auglýsendur að ná
til markhópa sinna. Þetta skapast
bæði af því að meiri eftirspurn
yrði eftir auglýsingatímum ann-
arra stöðva og vegna þess að erf-
iðara yrði að ná æskilegri dekkun
nema með meiri tíðni. Hvort
tveggja myndi síðan leiða til þess
að verð á vöru og þjónustu til
neytenda myndi hækka. Brott-
hvarf RÚV af auglýsingamarkaði
væri þvi hvorki í þágu aug-
lýsenda né neytenda og aug-
lýsendur því algerlega mótfalln-
ir.“
Smáauglýsingar
bílar, bátar, jeppar, húsbílar,
sendibílar, pallbílar, hópferðabílar,
fornbílar, kerrur, fjórhjól, mótorhjól,
hjólhýsi, vélsleðar, varahlutir,
viðgerðir, fiug, lyftarar, tjaldvagnar,
vörubílar... bílar og farartæki
|Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍC.ÍS 550 5000
DV
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI U-liH 3000 m.kr.
: - Hlutabréf 300 m.kr.
i - Ríkisbréf 1900 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
i © Eimskip 63 m.kr.
i Q Islandsbanki 35 m.kr.
i © Össur 34 m.kr.
MESTA HÆKKUN
| ©íshug 23,6 %
© Marel 12,2 %
i © síf 8,8 %
MESTA LÆKKUN
© Flugleiöir 5%
i © Kaupþing 0,9 %
i ©íslandsbanki 0,3 %
ÚRVALSVÍSITALAN 1017 stig
- Breyting O 2,19 %
Stáltak óskar
eftir greiðslu-
stóðvun
Stáltak hf. lagði í gær fram beiðni
um heimild til greiðslustöðvunar. í
frétt frá félaginu segir að reksturinn
hafi ekki gengið sem skyldi og að
þrátt fyrir aðgerðir til að rétta
reksturinn af virðist vera að skila
árangri þá sé greiðslustaða félags-
ins þannig að nauðsynlegt sé að fá
svigrúm til að endurskipuleggja
fjárhag fyrirtækisins.
Stáltak var stofnað árið 1999 við
samruna Slippstöðvarinnar á Akur-
eyri og Stálsmiðjunnar í Reykjavík
og varð við það stærsta fyrirtæki
landsins í málmiðnaði. Hjá fyrir-
tækinu starfa nú um 180 manns en
þegar flest var störfuðu um 260
manns hjá félaginu.
Olíuverð fell-
ur í níu mán-
aða lágmark
Olíuverð á heimsmarkaði féll nið-
ur í lægsta gildi sitt í níu mánuði í
London í gær vegna ótta um að
heimskreppa muni draga úr eftir-
spurn eftir vörum, unnum úr olíu.
Verð á Brent-olíu, sem afhendast
á í nóvember, féll um meira en 3
dollara fatið áður en verðið náði sér
aðeins á strik og var um 22,94 doll-
arar, eða um 2,5 dollurum lægra en
við lokun markaða á fóstudaginn
sem er um leið lægsta verðið síðan
í desember á siðasta ári.
Olía hækkaði um 4 dollara á
tunnu strax eftir atburðina í Banda-
rikjunum 11. september vegna ótta
um að stríð í Mið-Austurlöndum
gæti leitt til oliuskorts. Verðið síðan
þá hefur fallið um meira en fjórð-
ung úr dollar.
25.09.2001 kl. 9.15
KAUP SALA
Dollar 101,230 101,750
SElPund 148,080 148,840.
1*1 Kan. dollar 64,430 64,830
ESiPönsk kr. 12,4750 12,5440
EB Norsk kr 11,5230 11,5860
ELSSænskkr. 9,4310 9,4830
HHn. mark 15,6002 15,6939
B B Fra. frankl 14,1403 14,2253
B BBelg. franki 2,2993 2,3131
Q Sviss. franki 63,6100 63,9600
ESHoll. gyiiini 42,0901 42,3430
^Þýskt mark 47,4245 47,7095
L0ít. lira 0,04790 0,04819
□QAust. sch. 6,7407 6,7812
f Port. escudo 0,4627 0,4654
JSpá. peseti 0,5575 0,5608
1 * jjap. yen 0,86380 0,86900
B lírskt pund 117,773 118,481
SDR 130,6000 131,3900
EUecu 92,7543 93,3117