Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2001, Blaðsíða 10
d
10 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2001
I>V
Utlönd
REUTER-MYND
Leitaö í rústunum
Björgunarmenn aö störfum í rústum
verksmiöjunnar í Toulouse í Frakk-
landi sem sprakk á föstudag.
Hryðjuverk úti-
lokað í Toulouse
Saksóknari í Frakklandi útilok-
aði formlega í gær að hryðjuverk
hefði valdið sprengingunni i áburð-
arverksmiðjunni í Toulouse i
Frakklandi á. föstudag. Tuttugu og
níu manns létu lífið í sprengingunni
og þúsundir slösuðust, þar af marg-
ir lífshættulega.
Daniel Vaillant, innanríkisráð-
herra Frakklands, sagði að spreng-
ingin hefði væntanlega verið slys en
að rannsóknin héldi áfram.
Gifurlegar skemmdir urðu á hús-
um í næsta nágrenni verksmiðjunn-
ar þegar tvö til þrjú hundruð tonn
af hættulegum efnum sprungu.
Rúmlega fimm hundruð heimili eru
óíbúðarhæf og ellefu þúsund nem-
endur sitja heima vegna skemmda á
85 skólahúsum.
Makedóníuþing
féllst með sem-
ingi á breytingar
Þing Makedóníu féllst í gær með
semingi á fimmtán breytingar á
stjórnarskrá landsins til að renna
styrkari stoðum undir friðarsam-
komulag það við albanska skæru-
liða sem Vesturveldin höfðu milli-
göngu um.
Nokkrum klukkustundum áður
en þingheimur greiddi atkvæði
skutu öryggissveitir albanskan
mann til bana við varðstöð, sem
þykir til marks um að enn ríki mik-
il spenna við vopnahléslínuna í
norðurhluta landsins.
Stjómarskrárbreytingarnar eiga
að tryggja albanska minnihlutanum
í Makedóníu aukin mannréttindi.
Jiang Zemin, forseti Kína
Dregur sig í hlé á næsta ári.
Miðstjórnin ræðir
framtíð Kína
Miðstjórn kínverska kommúnista-
flokksins situr þessa dagana á þriggja
daga fundi í Peking þar sem línurnar
um framtíðarforystu flokksins verða
mjög líklega lagðar. Þetta er síðasti
fundur miðstjórnarinnar fyrir þing
flokksins sem fram fer í upphafi
næsta árs, en þar munu fimm af sjö
meðlimum framkvæmdastjórnarinnar
ganga úr stjóm. Þar á meðal eru for-
setinn Jiang Zemin, forsætisráðherr-
ann Zhu Rongji og Li Peng, forseti
þingsins. Það er því ljóst að mikil upp-
stokkun verður i forystunni en veðjað
er á að Hu Jintao varaforseti muni
taka við af Jiang og að hann fái það
erfiða hlutverk að stýra frekari
markaðsvæðingu Kínverja á næstu
ámm.
Hungursneyð yfirvofandi í Afganistan:
Talibanar hafa lokað
á allt hjálparstarf
REUTER-MYND
Nunnur hvetja til friöar
Á annaö hundraö nunnur og prestar tóku þátt í fundi viö bandaríska sendiráöiö í Róm í gær þar sem voldugasta ríki
heims var hvatt til aö stuöla aö friöi en leita ekki hefndar í kjölfar hryöjuverkaárásanna fyrir tveimur vikum. Á spjald-
inu á myndinni er hvatt til aö leitaö veröi réttlætis og friöar án þess aö grípa til hefnda.
ísraelsk kona skotin til bana á Vesturbakkanum:
Shimon Peres ætlar að hitta
Yasser Arafat síðar í vikunni
Talsmenn Sameinuðu þjóðanna
vöruðu í gær við „hræðilegu
ástandi" í Afganistan eftir að stjórn
talibana stöðvaði þar allt hjálpar-
starf. „Við viljum biðja alþjóðasamfé-
lagið í harmi sínum yfir hörmungum
hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin,
að gleyma ekki hryllilegu ástandi
mála í Afganistan og minnum á laga-
lega mannúðarskyldu okkar um að
fólkinu verði hjálpað, ekki síst sak-
lausum konum og börnum sem í dag
lifa við algjöra örbirgð í kjölfar
ástandsins sem magnast hefur í land-
inu eftir hryðjuverkin. Ástandið er
algjörlega óviðunandi og gripa verð-
ur til aðgerða strax ef ekki á illa að
fara,“ segir í yfirlýsingu hóps hjálp-
arliða sem skipuleggur hjálparstarf á
vegum Sameinuðu þjóðanna þar í
landi. Þeir fullyrða að afkoma meira
en fimm milljóna manna af 26 millj-
ónum íbúa landsins, aðallega kvenna
og barna, sé algjörlega háð utanað-
komandi hjálp og ef ekkert verði að
Shimon Peres, utanríkisráðherra
ísraels, sagði í gær að hann ætlaöi
að hitta Yasser Arafat, forseta
Palestínumanna, að máli síðar í vik-
unni, eftir að hann kemur úr heim-
sókn til Sýrlands.
Peres sagði í viðtali við CNN
sjónvarpsstöðina að Arafat yrði að
leggja sig meira fram um að sýna
vald sitt og binda enda á ofbeldis-
verk í löndunum fyrir botni Mið-
jarðarhafs.
Arafat sagði áður en hann lagði
upp í ferð til Amman í Jórdaníu í
gær að hann hefði fallist á fund með
Peres og Miguel Moratinos, sendi-
manni Evrópusambandsins, þegar
hann snýr aftur heim úr ferðalögum
sínum.
Til stóð að þeir Arafat og Peres
hittust á sunnudag en Ariel Sharon,
forsætisráðherra ísraels, sló þann
Áburðarvélar ekki á loft
Flugi lítilla áburðarflugvéla hefur
verið hætt í kjölfar hryðjuverkanna
11. september, af ótta við frekari
ódæði. Að sögn sérfræðinga gæti
bannið komið sér afar illa fyrir þá
sem reka síkar flugvélar.
gert bíði þeirra ekkert annað en
hungurdauði.
Hópurinn birti yfirlýsingu sína eft-
ir að stjórn talibana, sem óttast mjög
innrás Bandaríkjamanna í landið eft-
ir hryðjuverkaárásirnar, lokaði á allt
hjálparstarf SÞ í landinu og yfirtók
höfuðstöðvar þess í Kabúl, þar sem
um 1400 tonn af matvælum biðu
dreifmgár í birgðastöðvum SÞ.
Hjálparliðarnir telja að þrátt fyrir
að allir erlendir hjálparliðar hafi yf-
irgefið landið í síðustu viku af örygg-
isástæðum, sé enn mögulegt að koma
fólkinu til hjálpar með samvinnu við
innlenda aðila, sem reyna eftir bestu
getu að halda hjálparstafinu gang-
andi við erfiðar aðstæður. En eins og
ástandið er í dag mun ekkert hægt að
senda af matvælum inn í landið,
þannig að ástandið á eftir að versna
tfl muna næstu daga þegar birgðir
ganga til þurrðar og ekki er talið
líklegt að talibanar leyfi á næstu
dögum flutning matvæla inn í landið.
JUSTICE and
PEACE
REUTER-MYND
Skotin á Vesturbakkanum
ísraelar virða fyrir sér lík konu sem
Palestínumenn skutu til bana í gær.
fund af vegna þess sem hann kallaði
endurtekinna árása Palestínu-
manna.
Palestínskir byssumenn skutu
ísraelska konu til bana á Vestur-
bakkanum í gær. Konan var ásamt
eiginmanni sínum á ferð í bíl í
Jórdandalnum.
Til að auka enn á spennuna til-
kynnti ísraelski herinn að hann
hefði afmarkað sérstök lokuð hern-
aðarsvæði á norðurhluta Vestur-
bakkans til aö reyna að koma í veg
fyrir að Palestínumenn kæmust
ólöglega inn í ísrael. Palestinumenn
sögðu ráðstafanir þessar bera vott
um kynþáttafordóma. Kofi Annan,
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, fordæmdi þessar aðgerðir
ísraelska hersins harðlega og sagði
þær setja enn frekari hömlur á
ferðafrelsi Palestínumanna.
Páfi tii Armeníu
Jóhannes Páll
páfi fór í morgun til
Armeníu frá Kasak-
stan. Eins og á fyrri
áfangastöðum í ferð
sinni mun páfi
hvetja áheyrendur
sína og aðra til að
sýna öðrum trúar-
hópum en sínum umburðarlyndi.
Skuggi átaka í Mið-Asíu í kjölfar
hryðjuverkaárásanna í Bandaríkj-
unum hvílir yfir ferðalagi Jóhann-
esar Páls páfa.
Geitungafár í Þórshöfn
Geitungafaraldur gerir frændum
okkar Færeyingum lífið leitt um
þessar mundir. Einkum eru það
íbúar höfuðstaðarins Þórshafnar
sem verða fyrir barðinu á ófögnuð-
inum. Mildir vetur og löng og góð
sumur hafa stuðlað að landnámi
geitunganna.
Straw til írans
Jack Straw, utanríkisráðherra
Bretlands, er kominn til írans í op-
inbera heimsókn til að ræða svar
þjóða heims við hryðjuverkaárásun-
um vestan hafs.
OPEC gat ekkert gert
OPEC, samtök olíuframleiðenda,
gátu ekkert gert i gær til að koma í
veg fyrir mikla lækkun olíu á
heimsmarkaði. Olíuverð lækkaði
um 13 til 15 prósent.
Flugfélög hækka í verði
Gengi bréfa í flugfélögum hækk-
aði í verði i gær eftir að ríkisstjórn-
ir um alla Evrópu gáfu út ábyrgðir
fyrir stríðs- og hryðjuverkatrygg-
ingar flugvéla.
Tiiraunir til klofnings
Colin Powell, utan-
rikisráðherra Banda-
ríkjanna, sagði í gær
að reynt yrði að
kljúfa talibanahreyf-
inguna sem ræður
ríkjum í Afganistan
og þannig reynt að
leysa upp samtök
hryðjuverkamannsins Osama bin
Ladens, sem grunaður er um
hryðjuverkin fyrir tveimur vikum.
Drápum ekki Arkan
Yfirmaður leynilögreglu Slobod-
ans Milosevics, fyrrum Júgóslavíu-
forseta, neitaði í gær að hafa staðið
fyrir morðinu á stríðsherranum
Arkan í Belgrad.
Giuliani segir ekki orð
Rudy Giuliani,
borgarstjóri í New
York, neitaði í gær
að segja nokkuð um
hvort hann hygðist
reyna að fá að
gegna embættinu
eitt kjörtímabil
enn. Samkvæmt
lögum verður Giuliani að láta af
embætti við lok yfirstandandi kjör-
tímabils. Giuliani þykir hafa staðið
sig frábærlega í kjölfar hryðjuverk-
anna og nýtur mikilla vinsælda.
Hungur í Afganistan
Taliö er aö um fimm milljónir manna
séu nú háöa utanaökomandi hjálp í
Afganistan, aöallega konur og börn.