Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2001, Blaðsíða 20
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2001
24 ^Tté éi 15 S
I ■ itfliiiua
tölvui takni og vísinda
Seinkun
- og GameCube í Bandaríkjunum
á Xbox
Orðrómur um galla í vélbúnaði Xbox
hefur verið á sveimi í nokkurn tíma og
svo virðist sem hann sé ekki alveg úr
lausu lofti gripinn.
Microsoft höfðu fyrr í sumar svarið
að engin seinkun myndi verða á út-
gáfu Xbox. Einnig mun verða seink-
un á útgáfu Xbox í Japan en engar
dagsetningar eru komnar fyrir Evr-
ópumarkað.
Engar haldbærar skýringar
Sérfræðingar í tölvubransanum
höfðu sumir verið með getgátur um
að Microsoft ætti í vandræðum með
vélbúnað leikjatölvunnar sem
myndi valda seinkun. Þessu hefur
Microsoft neitað og gerir enn. Að
sögn Johns O’Rourke, yfirmanns
sölu- og markaðsmála í kringum
Xbox, fannst honum og samstarfs-
mönnum 15. nóvember vera rétta
dagsetningin eftir að hafa skoðað
málið frá öllum hliðum. Þessi yfir-
lýsing verður að teljast í meira lagi
óskýr og gerir lítið til að draga úr
efasemdum um vandræði við fram-
leiðslu.
Auk seinkunarinnar hafa áætlan-
ir um fjölda véla sem koma eiga á
markað verið dregnar til baka. í
upphafi áttu á milli
600.000 og 800.000 tölv-
ur að vera tilbúnar en
þær tölur eiga ekki
lengur við samkvæmt
fréttum frá Microsoft.
Engar tölur hafa komið
í staðinn sem gefur til
kynna að eitthvað sé ekki
eins og það á að vera. Það
er þó vonandi að ekki verði
alltof löng bið því marga er far-
ið að klæja i puttana.
Vandræöi meö 2. kynslóð
Það er ekki bara Microsoft sem á
í vandræðum. Nintendo hefur
einnig tilkynnt seinkun á útkomu
sinnar leikjatölvu, GameCube, á
Bandaríkjamarkað og kemur hún
ekki út fyrr en 18. nóvember. Líkt
og með Xboxið þá hefur orðrómur
um galla í vélbúnaði verið á sveimi.
Forsvarsmenn Nintendo hafa neitað
því og segja aðalástæðuna fyrir
seinkuninni vera þá að þeir vilji
eiga nóg af vélum á lager áður en
tölvan fer
í sölu í Banda-
ríkjunum. GameCube
er þegar komin í sölu í Japan.
Það virðist ekki vera heiglum
hent að koma leikjatölvum á mark-
að. Sjálfsagt eru unnendum leikja-
tölva enn í fersku minni vandræðin
sem Sony lenti í þegar fyrirtækið
setti PlayStation 2 á markað í
Bandaríkj-
unum og Evrópu
á seinasta ári. Afar tak-
markað magn véla kom á
markað og var skýringin sú að
skortur á vélbúnaðarpörtum hefti
framleiðsluna. Það er vonandi að
máltækið fall er faraheill eigi við
hér þar sem allar leikjatölvurnar
þrjár eru fyrstu eintök leikjatölva af
annarri kynslóð. Með annarri kyn-
slóð er átt við að auk hefðbundinn-
ar leikjatölvu er búið að bæta
nokkrum eiginleikum heimilistölva
inn, s.s. nettengingu og takmörkuð-
um forritunarmöguleikum.
Microsoft til-
kynnti í sein-
ustu viku að
komu leikjatölv-
unnar Xbox á
markað i Banda-
ríkjunum hefði
verið frestað og kemur hún á mark-
aö 15. nóvember í stað þess 8. Þótt
ekki sé um langan tíma að ræða,
eða eina viku, þá er þetta allstór
frétt þar sem forsvarsmenn
Sérfræðingar f tölvu-
bransanum höfðu
sumir verið með get-
gátur um að Microsoft
ætti í vandræðum með
vélbúnað leikjatölv-
unnar sem myndi
valda seinkun. Þessu
hefur Microsoft neitað
og gerir enn.
JuJl/'P
JmJúj'
Lítill áhugi á MP3
gegn greiðslu
- samkvæmt könnunum á Netinu
Samkvæmt
könnunum sem
gerðar hafa ver-
ið á Netinu virð-
ist lítill áhugi
meðal ungs
fólks á aö greiða fyrir aðgang að
tónlist á MP3 formi í gegnum Netið.
Allt að 62% þátttakenda hafa sagt að
þeir hafi ekki áhuga á slíku heldur
ætla þeir áfram að verða sér úti um
tónlistina endurgjaldslaust enda
nóg af skjalaskiptaforritum sem til
slíks eru brúkleg, s.s. Aimster og
Gnutella.
Þetta eru slæmar fréttir fyrir út-
gáfufyrirtæki sem bundist hafa
böndum um að opna þjónustu á Net-
inu þar sem boðið verður upp á tón-
list gegn gjaldi. MusicNet, sem EMI
og Warner Music standa m.a. að, og
Pressplay, rekið af Sony og Univer-
sal, opna bæði sínar þjónustusíður
eftir nokkrar vikur. Pressplay mun
bjóða upp á tónlist gegn gjaldi beint
til netverja á meðan MusicNet fram-
selja tónlist og tækni til annarra
Allt að 62% þátttak-
enda hafa sagt að þeir
hafi ekki áhuga á slíku
heldur ætla þeir áfram
að verða sér úti um
tónlistina endurgjalds-
laust enda nóg af
skjalaskiptaforritum
sem tíl slíks eru brúk-
leg, s.s. Aimster og
Gnutella.
fyrirtækja. Fyrirmyndin er tekin
frá Napster sem útgáfufyrirtækin
þvinguðu sameiginlega í gegnum
dómstóla til að loka fyrir þjónustu
sína þar sem boðið var upp á ókeyp-
is tónlist.
Sérfræðingar hjá fyrirtækinu
Webnoize segja að útgáfufyrirtækin
verði að bjóða upp á eitthvað bita-
stæðara en bara tónlist gegn
greiðslu ef þjónusta þeirra á að
borga sig. Ökeypis tónlist er að
þeirra mati komm til að vera á Net-
inu og svo lengi sem svo er þá sæki
fólk frekar í þá áttina. Webnoize
hefur m.a. annars bent á að
einkatónleikar yfir Netið, afsláttur
af geisladiskum, aðgangur að óút-
gefnu efni og fyrirganga með miða á
tónleika gæti sannfært fólk um að
borga fyrir tónlist á MP3 formi á
Netinu.
Ef fólk getur valið um að borga eða borga ekki fyrir sama hlutinn þá borgar
þaö ekki. Fleira verður að koma til ef greiðslan á að borga sig.
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra opinberar hér nýjung frá Landmælingum íslands í Iðnó síðastliöinn fimmtudag.
Um er að ræða geisladisk meö þrívíddarlíkani af íslandi í eðlilegum litum. Hægt er að fljúga yfir landið og skoða þaö
og kennileiti þess frá mismunandi sjónarhornum. Upplausnin er afar fullkomin og er m.a. tíu sinnum meiri en sést í
flugherminum MS Flight Simulator. Allir grunn- og framhaldsskólar fengu eintak af disknum og veitti Ingibjörg Ás-
geirsdóttir, forstjóri Námsgagnastofnunar, þeim viðtöku.
Breytt
netumferð
- í kjölfar hryöju-
verka Netiö
Áhrif hryðju-
verkanna í
Bandaríkjunum
fyrir tveim vik-
um hafa áhrif
viða í samfélagi
mannanna og
þ.á m. á Netinu. Fyrirtæki sem
bjóða upp á netleit hafa tilkynnt
verulega breytingu á því sem net-
verjar leita eftir. Netfyrirtækið
Google er eitt þessara fyrirtækja.
Samkvæmt tölum frá Google voru
fyrirspurnir um mál sem tengdust
hryöjuverkunum um 80% af efstu
500 atriðunum sem leitað var eftir
fyrstu dagana eftir ódæðisverkin.
Þ.á m. voru Osama bin Laden og
Pentagon auk spámannsins svokall-
aða, Nostradamusar, á topp tíu list-
anum.
Atriði sem virðast hafa átt hug
netverja að mestu hafa fallið veru-
Britney Spears hefur orðið aö láta í
minni pokann fyrir bin Laden og
Nostradamusi.
lega. Þar er kynlíf og allt tengt dott-
ið út af flestum topp tíu-listum eftir
að hafa setið þar þindarlaust í nokk-
ur ár. Auk þess var tónlist vinsælt
hugðarefni netverja, sem og Britney
Spears. Búast má þó við því að alla-
vega kynlíf og tónlist endurheimti
sinn sess enda erfitt að þurrka kyn-
og taktþörf mannkyns út. Öðru máli
gegnir þó um Britney Spears og
sjálfsagt einhverjum sem finnst
kominn tími til að hún taki sér fri
úr sviðsljósinu.