Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2001, Blaðsíða 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2001
Skoðun
DV
Spurning dagsíns
Hvar myndirðu vilja búa ef
ekki í Reykjavík?
Róbert Guðnason, atvinnulaus:
í Vestmannaeyjum, hef búiö þar og
þaö er mjög gott.
Kristín Eva Sigurðardóttir, 11 ára:
Akureyri, þaö er svo gaman aö
koma þangaö.
Theresa Borisiav Petkova, 10 ára:
Akureyri, þeir eiga svo fallegt
jólasveinaland.
Kristrún Ingadóttir, nemi:
Á Akureyri, ég bjó þar þegar ég var
yngri og þaö er mjög gott aö búa þar.
Guðrún Jóna Stefánsdóttir, nemi:
í Vestmannaeyjum, þaö er gaman aö
vera þar og þar býr svo gott fólk.
Rakel Sölvadóttir, nemi:
Ég myndi vilja búa á Akureyri, þaö er
gaman aö vera þar og Akureyringar
eru svo skemmtilegt fólk.
Skammast mín ekki að
standa við Þjófafoss
Leiðrétting
í frétt hér á síðunni á mánuclag
var sagt frá ferðafólki sem gckk á
Þrihymíng ofan Fljótshllöar Var
frá þvl greint að leiðsðgttmaður
hópsins hefði sóð ástœðu til að geta
þess að Þjófafoss væri ekki kenndur
við þingmenn kjördæmisins. Vegna
mistaka birtist með fréttinni mynd
af isólfi Gylfa Pálmasyni alþingis-
manni þar sem vera áttí mynd af
Eggerti Haukdai. Er
ísólfur Gyifi txiðinn
afsökunar á mistök-
unum um leið og birt
erréttmynd afEgg-
ertí Haukdal.
pjoíafoss
Svo bar við i
gönguferð úti-
vistárfólks á Þrf-
hyrning ofan
Fljótshífðar að
leiðsöguniaður
fann sig knúinn
til að taka það
fram aö vatnsfóll
sein vont tii
skoðunar ó leið-
inni vœri ekki
nefnd í höfttðið
á þlngntönnutn
kjördæmisins.
Var fölkið þá
statt við Þjófa-
foss.
Leiörétting á fyrrl frétt þykir Eggerti Haukdal koma spánskt fyrir sjónir.
Eggert Haukdal
skrifar:________________________
Hinn 17. september sl. birtist
frétt í DV undir fyrirsögninni
Þjófafoss. Tveimur dögum síðar
birtist ný frétt um sama efni
undir fyrirsögninni Leiðrétting.
Af þessu tilefni þykir mér
ástæða til að biðja DV að endur-
birta myndir af þessum tveimur
fréttum ásamt athugasemd
minni.
Af fréttunum sést aö þaö muni
hafa verið ætlan höfunda að fá
lesendur til að brosa og væntan-
lega hefur honum tekist það.
Hins vegar kemur leiðrétting á
fyrri frétt spánskt fyrir sjónir og
varpar kastljósi á höfund.
Ég skammast mín hins vegar
ekkert fyrir að standa við Þjófa-
foss í hugskoti blaðamannsins,
nú þegar sannleikurinn er að
upplýsast í því moldviðri ofsókna
sem staðið hafa yfir gegn mér.
Mér finnst hins vegar ástæða til
að vorkenna höfundi, úr þvi að
hann fór í gang með þetta hugverk
sitt, að hann skyldi láta einhvern
kippa í spottann, biðjast afsökunar
og skipta um nafn og mynd. Hefur
ekki einmitt fjölgað við Þjófafoss í
ljósi nýliðinna atburða?
Ég hef ekki alltaf sætt sanngirni í
DV. Á Þorláksmessu 1998 mátti lesa
á útsíðu að ég væri kominn meö
hátt í 5 milljóna króna misferli og
fjárdrátt hjá sveitarsjóði. Eftir að
endurskoðun KPMG haföi gert
skýrslu um málið, en skýrsluna
vann Einar Sveinbjörnsson, löggilt-
ur endurskoðandi, voru mér birtar
af ákæruvaldinu ákærur um fjár-
drátt upp á milljónir byggðar á
skýrslu KPMG,
Ég var síðan dæmur í Héraðs-
„Ogfram úr þessu gerðist
það að Héraðsdómur Suður-
lands (ekki fyrri dómari)
og Hœstiréttur hafa sýknað
mig af kröfum um
fjárdrátt. “
dómi Suðurlands og fékk 6 mánaða
skilorðsbundið fangelsi til tveggja
ára. Svo vel vildi til fyrir Einar end-
urskoðanda og KPMG að dómarinn
var nátengdur fyrirtækinu og dóm-
urinn því ekki annað en uppskrift
úr skýrslu KPMG.
Eftir þetta fékk ég mæta menn og
bókhaldsfróða til hjálpar og hafa
þeir ómerkt vinnubrögð endurskoð-
endanna sem höfðu blátt áfram log-
ið upp á mig sökum. Og fram úr
þessu gerðist það að Héraðsdómur
Suðurlands (ekki fyrri dómari) og
Hæstiréttur hafa sýknað mig af
kröfum um fjárdrátt. Eftir stendur
dómur um 1/2 milljónar króna fjár-
drátt sem er handvömm fyrrverandi
endurskoðanda. í því máli liggja
fyrir nýjar upplýsingar sem koma
fram við væntanlega endurupptöku
málsins í Hæstarétti.
Aö lokum. Ég hef ekki staðið fyr-
ir sjálftöku á fjármunum frá öðum.
Ég hef hins vegar orðið fyrir því að
aðrir, til dæmis KPMG og fleiri, hafi
staðið fyrir sjálftöku á mínum eigin
fjármunum.
Ég skammast mín því ekki fyrir
að láta mynda mig við Þjófafoss
ásamt öðrum sjálftökumönnum úr
núverandi og fyrrverandi þing-
mannaliði Suðurlands í framhaldi
af fréttum DV tengdum Þjófafossi.
Framboð eldri borgara
Sigursteinn Ólafsson
é Selfossi skrifar:
Talsmenn okkar eldri borgara,
þar á meðal fyrrverandi landlæknir,
hafa í fjölmiðlum að undanfórnu
ýjað að þeim möguleika aö eldra
fólk myndi í næstu þingkosningum
bjóða fram sérstakan framboðslista.
Takmarkið væri þá væntanlega að
við fengjum fulltrúa kjörna á Al-
þingi sem þar myndi berjast fyrir
bættum og leiðréttum kjörum okk-
ar. Ég tel að svona framboð myndi
ekki skila okkur neinu og höfum
við dæmi sem mér virðast geta
sannað það. Rækasta dæmið er efa-
lítið Frjálslyndi flokkur Sverris
Hermannssonar sem gagngert var
„Ég tel að svona framboð
myndi ekki skila okkur
neinu og höfum við dœmi
sem mér virðast geta sann-
að það. Rœkasta dœmið er
efalítið Frjálslyndi flokkur
Sverris Hermannssonar..."
stofnaður í þeim tilgangi að hnekkja
kvótakerfinu. Flokkurinn fékk tvo
menn kjöma á þing en árangur
flokksins er enginn. Kerfið sem
kennt er viö kvótann er aldrei
tryggara í sessi en einmitt nú og sí-
fellt fleiri tegundir fiskjar eru settar
undir kvóta. Að þessu sögðu má
spyrja sig hvort fulltrúar eldri borg-
ará á Alþingi næöu þeim árangri
sem vænta mætti í að bæta lifskjör
okkar.
Vöndurinn slær betur en stráið
segir máltækið. Því hefði ég talið að
affarasælast væri að við eldri borg-
arar myndum binda trúss okkar við
einhvern íjórflokkanna sem svo eru
nefndir ef þeir vUdu afdráttarlaust
taka það upp á sína arma að koma í
framkvæmd þeim loforöum um
bætt lífskjör okkár sem gefm hafa
verið. Þann flokk sem slíkt myndi
gera að stefnumáli sínu myndi ég
kjósa í næstu kosningum.
Um miðaftansbil!
Garri verður að játa að hann hafði ekki áttað
sig á því að það stóð aldrei tU að selja aUt það
hlutafé í Símanum sem boðið var til kaups í síð-
ustu viku. Að vísu heföu menn látið sig hafa það
ef rífandi eftirspum hefði verið eftir bréfunum
hjá almenningi og fagfjárfestum, en þetta var
hins vegar aldrei neitt sérstakt atriði af hálfu
stjómvalda. Þetta kemur í ljós nú eftir að útboð-
inu lauk með því að einungis brot af þeim bréf-
um sem tU sölu vom seldust. En þó svo að al-
þýðufjárfestarnir væru allir týndir og sýndu
Símanum lítinn sem engan áhuga þá kyrja bæði
Davíð Oddsson og Sturla Böðvarsson glaðbeittir
og hvergi bangnir einum rómi hendingar úr
gömlu vísunni: Það gerir ekkert tU, það gerir
ekkert tU - þeir koma um miðaftansbU.
Mlsskilnlngur
Það virðist semsé hafa verið útbreiddur mis-
skUningur að í einkavæðingarstefnu ríkisstjóm-
arinnar hafi falist að selja öU þessi bréf í Síman-
um. Þegar stjómarandstaðan er að gagnrýna
einkavæðingarstefnuna og tala'um að hún hafi
beðiö skipbrot í þessu útboði, þá kannast forsæt-
isráðherra auðvitað ekkert við slíkt, enda er
gagnrýnin öU á misskilningi byggð. Þetta á jafnt
við um gagnrýni þeirra fóstbræðra, össurar
Skarphéðinssonar og Steingrims J
Sigfússonar. Össur hefur verið að
muldra eitthvað um tímasetningar
sölunnar á meðan Steingrímur J. er
vitaskuld staðfastur í ríkiseignartrú
sinni og hefði helst vUjað að menn
væra ekkert að „fikta þetta í Síman-
um“. Hvorugur skilur - ekki frekar
en leiðarahöfundur Morgunblaðsins
- að þaö var aldrei neitt aðalatriði að
selja mikiö eða fyrir háar upphæðir
- það var í raun bara verið að bjóða
fólki þetta svona að gamni og sjá
hvort það vUdi ekki kaupa í þessu
fína fyrirtæki.
„Eignin fyrlr hendi"
Kjarni málsins er sá að „eignin er áfram fyrir
hendi“ eins og Davið Oddsson hefur bent mönn-
um á í viðtölum aUa helgina. Úr því ekki var
selt núna þá gerist það bara einhvern tima
seinna. Hann kemur um miðaftansbU! Og Garri
er viss um að það er líka alröng túlkun á viö-
brögðum ráðherra, þegar þeir fóm að skamma
Búnaöarbankann og lífeyrissjóðina fyrir hinar
dræmu undirtektir, að telja að þær skammir séu
tU komnar vegna þess að ríkisstjómin telji söl-
una hafa mistekist og að þessi uppákoma sé
áfall. Þvert á móti eru ráðherrar einfaldlega
hneykslaðir á því að lífeyrissjóðir skuli láta
þetta framhjá sér fara - af því að Síminn er sko
svo góður fjárfestingarkostur. Sjóðirnir máttu
heinlega ekki við því að missa af þessu. Skamm-
ir ráðherranna spmttu því af umhyggju fyrir líf-
eyrisþegum, en ekki af pirringi vegna bakslags í
einkavæðingarstefnu sinni. Það er því kominn
tími tU að menn átti sig almennt á því að það
stóð aldrei til að selja mörg hlutabréf
í Símanum - svona ekkert frekar! Garri
Sahari Jakobsson
- fólk vill að hann ráöi hvar hann býr.
Styður Sahari
Jakobsson
Hafdís Hallgrimsdóttir skrifar:
Mig langar að lýsa stuðningi mín-
um við Sahari Jakobsson. Mér
finnst eindregið að Hæstiréttur eigi
að endurskoða afstöðu sina í þessu
máli. Mér skilst að fjórir geðlæknar
og tveir sálfræðingar, íslenskir og
fríuiskir, hafi tekið afstöðu með Sa-
hari og talið að hann skaðist af veru
sinni úti. Þessi ákvörðun er mér því
óskUjanleg. Ég er sjálf móðir og veit
hversu móðurrétturinn er mikiU en
þegar það er farið að skaða barnið
þarf að grípa til ráða. Þegar maður
hlustar á viðtöl við drenginn og föð-
ur hans getur maður ekki annað en
fundið innilega til með þeim og séð
hversu óréttlát niðurstaðan var. Ég
hvet aUa til aö skrifa og styðja
feðgana í þessu máli.
Golfleysi
í sjónvarpi
Einar Lyng skrifar:
í gær, 20. september, var ég að
fylgjast með fjórum íslendingum
sem eru að spila á einu stærsta úr-
tökumóti Evrópu í golfi. Ég kom
heim eftir vinnu og settist fyrir
framan imbann (RÚV) í von um að
sjá hvað væri að gerast hjá þessum
strákum. Þar eð Björgvin Sigur-
bergsson spilaði 3 undir pari átti
maður nú von á léttum upplýsing-
um en þær skiluðu sér aldrei. Þrír
af fjórum kylfingum eru komnir
áfram á lokastigið og þætti mér
vænt um að fjölmiðlar gerðu þessu
skU. Golf er að verða með aUra vin-
sælustu íþróttum í heiminum en
góðs árangurs okkar manna er í
engu getið í fréttum hér.
Smáhnupl
Jón Jóhannsson
skrifar í DV þann
13. september um
siðferðisskerta
þingmenn og legg-
ur til að slíkir
víki sæti á þingi.
Sá sem hér skrifar
er honum sam-
mála en hvað á að
miða við? Á að
miða við smá-
hnupl þingmanna
eins og t.d. þegar þingmaður lætur
rikissjóö greiða fyrir sig uppihald í
opinberum ferðum erlendis þrátt
fyrir að hafa fengið til þess greidda
dagpeninga sem voru hugsaðir tU
greiðslu á ferðakostnaði? Dagpen-
ingunum stingur þingmaðurinn í
eigin vasa og notar í eigin þágu. Eða
á að miða við eitthvað annað, til
dæmis úttekt á byggingarefni eða
óeðlUeg jarðarkaup? Þingseta þarf
að miðast við að viðkomandi hafi
mikið siðferðisþrek en það virðist
vera skortur á slíkum einstakling-
um í þjóðfélaginu. Ef horft er tU
þess sem þingmenn gerðu í eigin
þágu í lífeyrismálum þyrfti að end-
urnýja þingliðið.
miK.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
ÞverhoKi 11,105 ReyKJavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.
■*__JT J.Z..----
Brynjólfur
Brynjólfsson
skrifar: