Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2001, Side 28
Subaru Impreza
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
f hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gastt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands:
Framkvæmdastjór-
anum sagt upp
- „greinilegur trúnaðarbrestur*
„Það hafa ákveðnir samskiptaörð-
ugleikar verið í gangi milli nefndar-
innar og fram-
Matthías
Garðarsson.
kvæmdastjórans
og því höfum við
falið lögfræðingi
okkar að ná
starfslokasamn-
ingi við hann,“
sagði Heimir Haf-
steinsson, for-
maður Heilbrigð-
isnefndar Suður-
lands, við DV í
Hjartakast í kjölfar áreitls
morgun. Nefndin ákvað þetta á síð-
asta fundi sínum og í fundargerð
segir að „greinilegur trúnaðarbrest-
ur“ hafi orðið.
Deilur hafa verið um nokkurt
skeið milli heilbrigðisnefndarinnar
og tveggja starfsmanna heilbrigðis-
eftirlitsins, þar á meðal fram-
Nýleg frétt DV
DV hefur sagt fjölda frétta af deilum
heilbrigöiseftirlits og heilbrigðis-
nefndar Suöurlands.
kvæmdastjórans Matthíasar Garð-
arssonar, eða allt frá því að upp
kom campylobacter í kjúklingabúi
Reykjagarðs á Ásmundarstöðum í
Holtum. Ónægja var í nefndinni
með framgöngu starfsmannanna í
fjölmiðlum vegna þess máls og hef-
ur öldurnar ekki lægt. Heimir Haf-
steinsson segir þetta hafa verið inn-
abúðarvandamál og að nú sé unnið
að endurskipulagningu á starfsemi
heilbrigðiseftirlitsins. Starfslok
framkvæmdastjórans séu hluti af
því, en nú sé tímabært og nauðsyn-
legt að öldurnar lægi, starfsemi
heilbrigðiseftirlits vegna.
Matthías Garðarsson hefur verið
í veikindaleyfi undanfarið. í samtali
við DV í morgun kvaðst Matthías
ekki vilja tjá sig um þá stöðu sem
nú er komin upp í hans málum.
Stéttarfélag Matthíasar hefur falið
Gesti Jónssyni hæstaréttarlög-
manni að gæta réttar hans í þessu
máli.
-sbs
Opin kerfi vilja ráöandi hlut í Landssímanum:
Meiri áhugi en talið var
- segir forstjóri Opinna kerfa um kjölfestufjárfesta
Opin kerfi eru eina islenska fyr-
irtækið sem vitað er til aö hafi
skilað yfirlýsingu um áhuga á því
að gerast kjölfestufjárfestir í
Landssímanum. Á miðnætti í gær
rann út frestur þeirra sem skiluðu
inn yfirlýsingum um að kaupa
24% í Landssímanum. Tveir óska
nafnleyndaíffcg gætu verið inn-
lendir aðilar en að ööru leyti er að-
eins um útlend fyrirtæki að ræða
fyrir utan íslenskan verðbréfasala
í New York.
Frosti Bergsson, forstjóri Op-
inna kerfa, sagði i samtali við DV
í morgun aö erfitt hefði verið að
sjá fyrir hve mikill áhugi yrði á
þessum hluta sölunnar en áhuginn
væri meiri en hann hefði átt von
á. Nokkuð ströng skilyrði eru sett
fyrir þátttöku í þessum hluta,
enda fær kjölfestufjárfestirinn
meirihluta í stjórn Landssímans.
Ljóst er að Opin kerfi uppfylla
ekki skilyröi um íjölda viðskipta-
manna og fleira að óbreyttu en
Frosti sagði aö menn sæju fyrir
sér samstarf við erlend símafyrir-
tæki og innlenda og erlenda fjár-
um hefur einnig sagt að verðið
væri of hátt.
Frosti Bergsson. Hreinn Loftsson.
festa. Aðeins er verið að lýsa
áhuga á kaupunum en ekki er um
bundna yfirlýsingu að ræða.
Meðal stórfyrirtækja sem eru á
listanum má nefna Telenor í Nor-
egi, Detecon í Þýskalandi, Malta
Telecom á Möltu, Schroders
Ventures í Bretlandi, Alacra í
Bandaríkjunum og svissneskt fyr-
irtæki. Þá er Guðmundur Frank-
lín Jónsson, verðbréfasali í New
York, einnig á listanum. Guð-
mundur er einn þeirra sem sagt
hafa opinberlega að verð símans
sé of hátt og hefur gagnrýnt þátt
einkavæðingarnefndar harkalega.
Frosti Bergsson hjá Opnum kerf-
Pólitískt deilumál?
Ýmsar kenningar hafa litið dags-
ins ljós undanfarið vegna misjafns
gengis við sölu Landssímans og
hafa ummæli Össurar Skarphéðins-
sonar, formanns Samfylkingarinn-
ar, í DV vakið athygli. „Við tjáum
okkur ekki um pólitísk deilumál,“
sagði Pétur Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi Islandssíma, þegar DV innti
hann viðbragða í gær.
Afleit niðurstaða hlutabréfaút-
boðsins til almennings var skýrð
þannig af Össuri að Hreinn Lofts-
son, formaður einkavæðingarnefnd-
ar, hefði upplýst að sölu Símans í
vor hefði verið frestað til að trufla
ekki útboð Islandssima. „Þetta er að
mínu mati ekkert annað en pólitísk
spilling. Með því að hagræða fyrir
vini sína í Íslandssíma verðfelldu
Hollvinasamtök Sjálfstæðisflokks-
ins þessa eign þjóðarinnar," sagði
Össur en Íslandssími vill sem fyrr
segir ekki tjá sig um ummælin.
-BÞ
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2001
MálVilhjálms kynnt háskólaráði:
Textinn ekki til frjálsra afnota
- segir upplýsingafulltrúi ESB
Niðurstaða deildarfundar laga-
deildar Háskólans i máli Vilhjálms
H. Vilhjálmssonar var kynnt á
fundi háskólaráðs sem fram fór i
gær. Lagadeildin ákvað í siðustu
viku að afturkalla einkunn sem Vil-
hjálmur hlaut fyrir kandítatsritgerð
sína við lagadeild og svipta hann
titli lögfræðings.
Páll Skúlason, rektor og formaður
háskólaráðs, sagði í samtali við DV
að á meðan kæra lægi ekki fyrir í
málinu myndi háskólaráð ekkert
aðhafast. Hann sagði niðurstöðu
lagadeildar hafa verið reifaða á
Háskólí Islands
Engin kæra borist.
fundinum mönnum til fróðleiks. Að-
spurður um hverja Páll teldi fram-
vindu málsins verða sagði hann að
það væri óljóst á þessu stigi.
I gær sendi Aðalsteinn Leifsson,
upplýsingafulltrúi hjá ESB, frá sér
yfirlýsingu þar sem hann hafnar
þeirri fullyrðingu að hann hafi sent
Vilhjálmi texta „til frjálsra afnota"
eins og kandídatinn orðaði það sjálf-
ur. Vilhjálmur hafnar hins vegar
afturköllun embættisgráðu sinnar
og segir lagadeild ekki hafa heimild
til slíks. Hann hefur ráðið lögfræð-
ing til að reka mál sitt en engin
kæra hefur þó borist yfirvöldum
Háskóla íslands eins og fyrr greinir.
-aþ
Rafkaup
Ármúla 24 • S. 585 2800
brother P-touch 9200PC
Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport______
i
i
i
i
i
i
i
i
DV-MYND RÓSA
Refur fær sér bita í byggð
Þessi yrötingur komst í feitt í Biskupstungunum í vikunni og var ekki lengi aö
láta sjá sig eftir að sumarbústaöaeigandi haföi lagt kjötbita út á stein. Kom
hann einungis 10 mínútum eftir aö lyktin af bitanum haföi leikiö um and-
rúmsloftið utandyra. Töluvert er rætt um þaö meöal fólks á Suðurlandi aö
mikið sé um ref, ekki síst í Biskupstungum og alla leið niöur á Skeiö.