Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2001, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2001, Síða 8
8 Útlönd MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2001 DV Eftirlýstur, dauður eöa lifandi CIA hefur nú fengið leyfi hjá Bush til að ráða bin Laden af dögum ef nauðsyn krefur. CIA fær frjálsar hendur Samkvæmt heimildarmanni bandaríska dagblaðsins The Was- hington Post undirritaði George W. Bush Bandaríkjaforseti fyrirskipun sem gefur leyniþjónustu Bandaríkj- anna, CIA, leyfi til að ráða Osama bin Laden af dögum. Leyniþjónustan fær milljarð doll- ara til ráðstöfunar i öflun upplýs- inga um ferðir bin Ladens og félaga hans í al Queda samtökunum. Fyrirskipunin gerir einnig ráð fyrir nánara samstarfi CIA og bandaríska hersins. Hersveitir verða tilbúnar í aðgerðir um leið og upplýsingar berast um ferðir bin Ladens eða samstarfsmanna hans og geta beitt ótakmörkuðu valdi ef nauðsyn krefur. Nýtt miltis- brandstilfelli Starfsmaður bandarísku póst- þjónustunnar í höfuðborg Banda- ríkjanna, Washington, greindist með miltisbrandssýkingu um helg- ina. Maðurinn smitaðist við innönd- un, sem er alvarlegasta smitleið miltisbrands, og liggur þungt hald- inn á spitala. Þetta er þriðja tilfellið af sýkingu við innöndun. Það fyrsta var maðurinn sem lést í Flórída. í allt hafa nú sex manns sýkst af milt- isbrandi í Bandaríkjunum síðan miltisbrandssýktar póstsendingar hófust. Ótti við miltisbrand er mikill víða um heim og hafa byggingar í mörgum löndum verið rýmdar vegna grunsamlegra bréfa eða gabb- hótana um sýktar bréfsendingar. Klaus Wowereit Fyrsti samkynhneigöi borgarstjóri Berlínar. Sósíal-demókrat- ar vinna Berlín Sósíal-demókrataflokkur Gerards Schroeder, kanslara Þýskalands, vann sigur í borgarstjórnarkosning- um í Berlín í gær. Höfuðandstæð- ingar hans, Kristilegi demókrata- flokkurinn, tapaði hins vegar miklu fylgi. Þá vann arftaki gamla komm- únistaflokksins í Austur-Þýsklandi einnig mjög á og gæti farið í sam- starf við sósíal-demókrata. Klaus Wowereit, borgarstjóraefni sósíal-demókrata, er fyrsti samkyn- hneigði borgarstjóri Berlínar. Átta úr sömu fjöl- skyldunni farast — í loftárásum á Kabúl Loftárásir Bandaríkjamanna og Breta héldu áfram í gær. Nokkrar sprengjur féllu á Khair Khana, úthverfi í höfuðborginni Kabúl en áttu að lenda á herstöð talibana. Fréttastofa Reuter greindi frá því að um 18 manns hefðu falliö i sprengjuárásunum og 20 særst. Af þeim 18 sem féllu voru átta úr sömu fjölskyldunni, þ.a. voru fjögur böm á aldrinum fjögurra til átta ára. Haft var eftir frænda þeirra að auk þess hafi móðir bamanna fallið og þrír aðrir ættingjar sem bjuggu í sama húsi. Faðir barnanna er mikið slasaður. Talibanar sögðust í gær hafa hrundið árásum rúmlega hundrað sérsveitarhermanna bandaríska hersins sem hentu sér í fallhlífum á afganska grund um helgina. Talibanar segjast hafa fellt á milli 20-25 hermenn, auk þess að hafa skotið niður eina þyrlu frá bandariska hernum. Stund milli stríöa Hermaður Noröurbandalagsins undirbýr málsverð. Richard Myers, hershöfðingi í flughernum, neitaði því að mannfall hefði orðið á meðal sérsveitarmannanna og kallaði það óskhyggju í talibönum. Hann viðurkenndi hins vegar að Blackhawk þyrla hefði farist og tveir menn með henni. Myers sagði ekkert benda til þess að talibanar hefðu skotið hana niður. Frekari rannsókn ætti þó eftir að fara fram. Hersveitirnar réðust á flugvöll og herstöð. Ekki er vitað hvort þær hafi verið sóttar eða hvort þær séu enn í landinu. Mótmæli gegn hernaðaraðgerðum Bandarikjanna gegn talibönum fóru fram í nokkrum löndum i gær. Þ.á m. í Pakistan þar sem mikil andstaða er við aðgerðirnar. Pervez Musharraf, forseti Pakistan, var einnig gagnrýndur af fylgjendum talibana og sagður vera ekkert annað en brúöa í höndum Bandaríkjanna. Leiötogar Kyrrahafsríkja hittast I Kína Vladimir Pútín, forseti Rússlands, George W. Bush Bandaríkjaforseti og Jiang Zemin, forseti Kína, sjást hér skarta heföbundnum kínverskum fatnaöi á ráðstefnu APEC, samtaka Kyrrahafsríkja. Ráðstefnan sendi frá sér yfirlýsingu þar sem ríkin fordæmdu hvers kyns hryöjuverkastarfsemi í heiminum. Áframhaldandi ofbeldi fyrir botni Miðjarðarhafs Fjórir palestinumenn féllu í gær í bardögum við ísraelska hermenn. ísraelski herinn hefur enn ekki dregið til baka skriðdreka og hersveitir í og við palestínskar borgir á Vesturbakkanum og sendar voru inn eftir að palestínskir byssumenn réðu af dögum ráðherra í ríkistjórn Ariel Sharon. Palestínskir embættismenn telja áframhaldandi veru ísraelskra hermanna á þessum svæðum gerða til að grafa undan völdum Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna. Arafat lýsti þvi yfir að það væri vilji ísraelskra stjórnvalda að valda meiri ófriði þrátt fyrir tilraunir erlendra ríkja til að stilla til friðar og endurvekja friðarferlið á milli striðandi fylkinga. ísraelsk stjórnvöld neita öllum ásökunum og segja ástæðuna fyrir Ásakar Arafat Sharon segir að Arafat verða að berjast gegn hryðjuverkamönnum. veru hersveita á palestínsku yfirráðasvæði vera til að koma í veg fyrir að öfgamenn úr röðum Palestínumanna kæmust inn í ísraelskar borgir til að fremja voðaverk. Haft var eftir Sharon að ísrael hefði engan áhuga á að hafa hersveitir sínar á palestínsku yfirráðasvæði. Herinn yrði hins vegar þar, þar til Arafat tæki sig á í baráttunni gegn palestínskum hry ðj uverkamönnum. Shimon Peres, utanrikisráðherra ísrael, tók undir orð Sharons og sagði að Palestínumenn yrðu að taka næsta skrefið. Samkvæmt Reuter fréttastofunni fékk Peres hringingu frá háttsettum samflokksmanni í Verkamannaflokknum sem fór fram á að Peres sliti stjórnarsamstarfi viö Ariel Sharon. Vill vera í fararbroddi Junichiro Koizumi, forsætis- ráðherra Japan, lýsti því yfir á ráð- stefnu leiðtoga ríkja við Kyrrahaf að hann vildi að Japan yröi í farar- broddi við uppbygg- ingu í Afganistan eftir að átökum lýkur. Japan styður aðgerðir Banda- rikjanna gagnvart talibönum í Afganistan en getur ekki veitt að- stoð í hemaðinum vegna ákvæða í stjórnarskrá landsins. Kraminn af fílum Starfsmaður dýragarðsins London Zoo lést í gær eftir að hafa verið kraminn af fll í garðinum. Talið er að maðurinn hafl dottið i búri þriggja asískra fíla með fyrr- greindum afleiðingum. Ekki hefur verið ákveðið hvað gera skuli við fllana. Sjö ár fyrir gabb Bresk stjórnvöld er um þessar mundir að leggja lokahendur laga- frumvarp um refsingar fyrir gabbhót- anir. Ef lögin taka gildi verður hægt að dæma þá sem hóta efnaárásum á borð við miltisbrand í þvi skyni að gabba í allt að sjö ára fangelsi. Stuðningur við Evru eykst Samkvæmt nýrri könnun eykst stuðningur við Evruna í Svíþjóð. 42% vilja Evru miðað við 30% fyrir ári. Andstæðingum hefur hins veg- ar fækkað úr 52% í 43%. Óskað eftir framsali Alejandro Toledo, forseti Perú, hefur fariö fram á það við Junchiro Koizumi, forsætisráðherra Japan, að Alberto Fujimori, fyrrver- andi forseti Perú, verði framseldur. Fujimori er í sjálfskipaðri útlegð í Japan en perúsk yfirvöld vilja að hann svari til saka fyrir spillingar- mál i stjórnartíð hans. Árás á Coca-Cola Öfgasinnaður hópur vinstrisinn- aðra Indverja sprengdi eina verk- smiðju Coca-Cola í Indlandi. Ástæð- una segja þeir vera til að mótmæla árásum Bandaríkjanna á Afganistan. Gagnrýnir ofbeldi í messu í dóm- kirkju heilags Péturs i Róm lýsti Jóhannes Páll páfi II yfir áhyggjum sínum vegna ástandsins fyr- ir botni Miðjarðar- hafs. Hann skorar á valdhafa í ísrael og Palestínu sem og annars staðar í heiminum að koma í veg fyrir frekara ofbeldi, hvar sem er í heim- inum, það leiði aðeins til dauða og eyðileggingar og sé vanvirðing við Guð og reisn alls mannkynsins. Kúrsk í höfn Flak rússneska kjarnorkukafbáts- ins Kúrsk kom i höfn í Rússlandi í gær eftir sex daga siglingu frá slys- stað þar sem kafbáturinn sökk í fyrra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.