Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2001, Blaðsíða 12
12
Menning
Hver með sínu nefi
Nýtt gallerí, Skuggi, hefur tekið til
starfa í útjaðri Skuggahverfisins, nánar
tiltekið að Hverflsgötu 39, og er hægt að
taka strætisvagn alveg upp að dyrum. Eft-
ir að flestir opinberir sýningarstaðir
hættu útleigu á aðstöðu hefur vöntun á
hentugu sýningarrými óneitanlega staðið
myndlistinni í landinu fyrir þrifum. Eink-
um hefur hún komið niður á yngri kyn-
slóð listamanna sem ekki hafa enn fundið
sér stuðningsaðila, hafa því tæplega efni á
kostnaðarsömum kynningum á verkum
sínum. Þótt sýningarrými í Skugga sé
ekki ýkja mikiö (um 80 fm) hefur galleríið
ýmsa kosti, ekki síst staðsetninguna,
ágæta birtu og töluvert veggpláss, bæði á
jarðhæð og í kjallara. Aukinheldur ættu
leigugjöld ekki að vera ofviða venjulegum
íslenskum daglaunamanni. Sömuleiðis
hafa aðstandendur innréttað setustofu
baka til, þar sem gestir geta tyllt sér yfir
kaffibolla, skipst á skoðunum eða blaðað í
fyrirliggjandi bókum og tímaritum. Allt er
þetta af hinu góða.
Ekki hefur verið gefin út yfirlýsing um
þá listpólitík sem Skuggi hyggst ástunda,
nema þá að opnunarsýningin „Hver með
sínu nefi“ veiti vísbendingu um hana. Hér er um
að ræða samsýningu Birgis Andréssonar, Guð-
mundar Odds, Akusa (Ásmundar Ámundssonar
og Justins Blaustein) og Lilju Bjarkar. Eins og
nafn sýningarinnar gefur til kynna er hér ekki
um að ræða heildstæða uppákomu heldur mjög
ólik viðhorf fjögurra samlyndra listamanna.
Vísanir án viðmiðs
Reyndastur sýnenda er Birgir Andrésson se'm
sýnir annars vegar „Húsa-ljóð“, blýantsteikning-
ar byggðar á grunnmynd hins „týpíska" íslenska
torfbæjar, hins vegar uppstoppaðan hrafn með
lambhúshettu og upptökur af „dúlli" í anda Guð-
mundar Ámasonar dúllara ásamt með ljósmynd
af honum sjálfum. Birgir hefur ítrekað lýst því
yflr að hann sé að „vinna með“ íslenskan veru-
leika í bráð og lengd, ekki síst ýmis sérkenni
DV-MYND HARI
Birgir Andrésson: Eftirhermur. Hrafn, hljóö, Ijósmynd 2001
Hrafninn dúllar eins og Guömundur sálugi Árnason dúllari.
þjóðarinnar. Sjálfum hefur mér aldrei verið ljóst
hvað öll þessi vinna á að leiða af sér, þar sem
hún felst nær einvörðungu í aftengingu þeirra
fyrirbæra sem listamaðurinn er með undir
hverju sinni. Torfbærinn er tekinn úr samhengi,
verður að óhlutbundnu mynstri sem hægt er að
endurgera út í það óendanlega, dúllið birtist okk-
ur sem heilber skrýtilegheit, úr tengslum við ör-
lög dúllarans sjálfs og það þjóðlíf sem hann er
sprottinn upp úr. Verk Birgis eru því vísanir án
viðmiðs, svo vitnað sé til kenninga Rolands
Barthes.
♦-
Guðmundur Oddur er sífellt að koma manni á
óvart. Hér er að fmna myndröð af myndskreytt-
um húsum í íslenskum sjávarþorpum, aðallega á
Austurlandi. Að því er segir í skrá eru myndirn-
ar „hluti af stærra safni mynda um ís-
lenskan veruleika". Hér er þessi títt-
nefndi veruleiki skoðaður í ákveðnu
samhengi, myndskreyting húsanna vek-
ur upp margs konar hugleiðingar um
alþýðulist, myndvæðingu umhverfisins
o.fl. Um leið hagræðir G. Oddur ljós-
myndum sínum eilítið í tölvu, gæðir
þær framandleika sem knýr áhorfand-
ann til að gaumgæfa þær í öðru Ijósi en
venjulega.
Innvígöra hjal
I skoti á efri hæð er rými þar sem
ungum listamönnum gefst tækifæri til
að láta ljós sitt skína. Þar sýnir Lilja
Björk alls kyns litaða vökva og duft á
krukkum. Hér vefst skríbent tunga um
tönn, því engin leið er að horfa fram hjá
þeirri staðreynd að verki hinnar ungu
listakonu svipar óþægilega til samsetn-
inga Sólveigar Aðalsteinsdóttur.
í kjallara er tvískipt rými og fremur
lágt undir loft. Sem kemur tæpast að
sök þegar þeir AKUSA-félagar eru ann-
ars vegar, þvl þeir sýna bæði i hólf og
gólf. Framlag þeirra er póstmódernískt
samvinnuverk um það hvernig menn fara að því
að vekja á sér athygli í bandarískum listaheimi.
Annars vegar hanna þeir „lógó“ fyrir helstu gall-
erí og myndlistarfrömuði í New York og senda
þeim ásamt grínaktugum bréfum, ef til vill í
þeirri von að frumleikinn verði þeim til fram-
dráttar. Hins vegar stunda þeir símaat, hringja
bæði í gallerí og gagnrýnendur og biðja um gott
veður og taka upp símtölin. Við getum hlustað á
þessi símtöl og haft gaman af misskilningnum,
yfirborðskurteisinni og innvígðra hjali viðmæl-
enda. En tæplega er viðfangsefnið stórbrotið eða
mikilsvert.
Aðalsteinn Ingólfsson
Gallerí Skuggi er opið alla daga nema mán. kl.
13-17 og þessi sýning stendur til 28.okt.
Wim Wenders-hátíð hefst í Bæjarbíói í Hafnarfirði á miðvikudagskvöldið:
Kvikmyndakrásir
Vió munum hann (og elskum) fyrir frábœrar
bíómyndir á boró vió Himin yfir Berlín, Paris,
Texas, Buena Vista Social Club og Ameríska vin-
inn en hann hefur vitaskuld gert ótalmargar í við-
bót og nokkrar þeirra fáum vió líka aó sjá á hátíð
sem tileinkuó er honum í Bœjarbíói í Hafnarfiröi
dagana 24. til 28. október. Þó œtlaói hann að veróa
prestur þegar hann yröi stór og hann hefur bœöi
próf í lœknisfræöi og heimspeki.
Wim Wenders er einn af athyglisverðustu leik-
stjórum þýsku nýbylgjunnar um og upp úr 1970
en ferill hans hefur haldist óslitinn síðan. Hann
leggur mikla áherslu á stílbrögð og uppbyggingu
myndmáls, líkt og expressjónistar fyrra gullaldar-
skeiðs í þýskri kvikmyndasögu, og leikur sér að
því að skeyta saman myndmáli Hollywoodkvik-
mynda og listrænna framúrstefnumynda. í mynd-
um sinum sökkvir hann sér ofan í mannlegar til-
finningar eins og einmanaleika og kvíða um leið
og hann rannsakar bandarísk áhrif í þýskri
menningu sem fáir leikstjórar hafa skoðað jafn
rækilega og hann.
Níu Wenders-myndir
„Þetta er með fyrstu stóru verkefnunum sem
Kvikmyndasafn íslands tekur að sér,“ segir Odd-
ný Sen, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, „og eig-
inlega má segja að þetta sé upphafið að cinema-
tek-starfsemi i Bæjarbíói. Auk kvikmyndasýning-
anna verður sýning í anddyri Bæjarbiós á ljós-
myndum frá Ástralíu sem sýna leifar af horfinni
menningu. Þama eru gríðarlegar víöáttur sem
Wenders fangar með japanskri Art-Panorama vél,
og til dæmis má þar sjá yflrgefinn risaskjá útibíós
í miöri eyðimörkinrii innan um kaktusa og und-
arleg tré, gamla draugabæi og annað slíkt. Wim
Wenders hefur sjáifur sagt um þessar ljósmyndir
sínar að þær túlki sýn menntamanns frá neyslu-
samfélagi Evrópu og tjái heimþrá hans eftir
horfnu menningarsamfélagi."
Á hátíðinni verða sýndar níu kvikmyndir,
sjaldséö verk eins og Saga frá Lissabon og Ala-
bama 2000 Light Years en einnig merkustu kvik-
myndir hans, þ.á m. meistarastykkin sem nefnd
voru hér í upphafi.
„Hann gerði fjölda mynda um það leyti sem
þýska nýbylgjan var að hefjast en þær hafa ekki
átt neinu fylgi að fagna,“ segir Oddný, „nema
Sumarið í borginni sem hann gerði í kvikmynda-
Úr kvikmyndinni Lísa í borgunum eftir Wim
Wenders.
mannsgaman
Það eru orðin meira en tuttugu ár frá því ég
tókst fyrst á loft upp úr leikhúsi. Það var hröð
ferð og hörð. Staddur í þann tíð í heimabæn-
um norður á Akureyri og undir brekkubrún-
inni góðu var verið að setja upp skrýtið leik-
rit eftir írskan furðufugl sem menn sögðu að
væri varla mennskur.
Fór í leikhúsið mestan part af því að við
vinirnir vorum að reyna að rækta með okkur
menningargáfur og sátum iðulega þessi árin á
kaffihúsum og reyktum stórskorinn Camel.
Lásum ljóð og reyndum hver annan í innvið-
um Sigfúsar Daða og Hannesar Pé. Þetta voru
gáfuð ár og góð til brúks.
Undarlegur kliður er um mann allt i kring
þegar sest er niður í leikhúsi. Eins og fólk
þurfi að muldra sig tómt áður en sest er í
þögnina. Svona er þetta enn og svona var
þetta þá. Og tjöldin frá. Galdurinn að hefjast.
Persónur kynna sig til leiks og smám saman
anda þær gestunum að sér.
Þarna kynntist ég Estragon og Posso. Og
skóla. Við erum raunar með eina mynd frá skóla-
árum hans, Angist markvarðar í vítaspyrnu, um
markvörð sem eyðir nótt í kvikmyndahúsi og
lendir í slæmum málum þegar hann kyrkir miða-
sölustúlkuna."
Wim Wenders er fæddur 1945 í Dússeldorf og
var afar feiminn sem unglingur, að sögn Oddnýj-
ar. Hann ætlaði að læra til prests en hætti við það
þegar hann fylltist áhuga á bandarískri menn-
ingu og fór í staðinn í læknisfræði og heimspeki.
Siðan stundaði hann listnám í París og þaðan lá
leiðin í kvikmyndaskóla.
„Síðan hann lauk námi hefur ferillinn verið
óslitinn," segir Oddný, „vinsældir hans hafa dal-
að inn á milli, til dæmis varð lítið vart við mynd-
imar tvær á undan Buena Vista Social Club en
hún sló líka í gegn svo um munaði. Núna er hann
að taka upp heimildarmynd i Bandaríkjunum;
þess vegna kemst hann ekki tO Islands."
Við fáum ekki að sjá framan í Wim en ennþá
betra er líka að fá að sjá myndirnar hans.
eins þeim félögum Vladimir og Lucky. Og
saman tóku þeir mig á flug fram af stólbrún-
inni. Upp i himna leikhússins. Ekki er ég lent-
ur enn. Og hef ekki hugsað mér það.
Leikritið um Godot er engu líkt og biðin svo
mikilvæg hverjum manni að í hvert sinn sem
þetta verk er sett á svið setur menn hljóða. Og
galdurinn verður ekki skýrður út. Hann er
innlifun hvers og eins. Það eiga allir sina út-
gáfu af biðinni. Og allir verja lífi sínu í þess-
ar eilífu væntingar um efni og anda. Godot
getur það verið og eins allt hitt sem á sér ým-
ist nöfn eða alls engin.
Beckett var óður. Og þurfti enda æði í æð-
islegt verk. Leikritið hans hefur lifað í fimm-
tíu ár og er ekki að lenda. Ekki frekar en ég
eftir tuttugu ár. Vilji menn og þori fá þeir
flugheimild á nýja sviðinu sunnan Kringlunn-
ar. Það verður smáókyrrð í loftinu - en góða
ferð.
-SER
Fram af stólbrúninni
MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2001
DV
Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir
Áfram stelpur
Á afmæli kvennafrídagsins á miðvikudags-
kvöldið verður skemmtikvöld í Salnum í
Kópavogi þar sem hópur úrvalslistakvenna
kemur fram. Tilefniö er líka útgáfa hljóm-
disks Ásgerðar Júníusdóttur mezzósópran-
söngkonu sem heitir Minn heimur og þinn og
inniheldur 18 lög eftir íslenskar konur við ljóð
íslenskra kvenna.
Auk Ásgerðar koma fram listakonurnar
Steinunn Birna Ragnarsdóttir, Bryndís Halla
Gylfadóttir, Auður Hafsteinsdóttir og Áshild-
ur Haraldsdóttir. Sigrún Eðvaldsdóttir flytur
fiðlueinleiksverk eftir Karólínu Eiríksdóttur
sem Ólöf Ingólfsdóttir hefur samið dansverk
við og frumflytur við þetta tækifæri. Gjörn-
ingaklúbburinn verður með gjörning, Kristin
Ómarsdóttir og Margrét Lóa Jónsdóttir lesa
úr nýjum verkum sínum og Helga Braga Jóns-
dóttir o.fl. verða með skemmtiatriði. Skemmt-
unin hefst kl. 20 og er miðasala þegar hafin.
Endalok menningar
Á morgun kl. 12.05 heldur Guðmundur Hálf-
dánarson sagnfræðingur opinn fyrirlestur í
hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Islands
sem hann nefnir „Hugmyndir Herders um
þjóðina og endalok menningarlegrar þjóðar".
Menningarleg þjóðernisstefna, sem hefur ver-
ið Islendingum pólitískt leiðarljós í nærfellt
tvær aldir, á uppruna í þeirri hugmynd þýska
heimspekingsins Herders að mannkynið
greinist í afmarkaða menningarhópa sem
skuli stjórna sér sjálfir. I fyrirlestrinum verð-
ur fjallað um forsendur þessarar hugmyndar
og hún gagnrýnd.
Popp og tíska
Candice Breitz, myndlistarmaður og gesta-
kennari við Listaháskóla Islands, flytur opinn
fyrirlestur um eigin verk í LHÍ Laugarnesi í
dag kl. 12. 30 í stofu 024. Candice ólst upp í Jó-
hannesarborg en býr og starfar í New York og
Berlín og hefur tekið þátt í fjölmörgum alþjóð-
legum sýningum. Verk sin vinnur hún með
popp-menningu og skemmtanaiðnaðinn í
huga og notfærir sér ýmiss konar tækni, svo
sem margmiðlun, hljóð, ljósmyndir og úr-
klippur úr tímaritum.
Svo verður framhald á tískusýningu nem-
enda LHl á textíl- og hönnunarsviði sem fóru
til Parísar í sumar. Fyrri hópurinn sýndi sl.
miðvikudag við gríðarlegar vinsældir; núna á
miðvikudaginn kl. 12.30 koma þau sem tóku
þátt í að undirbúa tiskulínu hjá hönnuðinum
Delphine Murat, sýna myndband og skyggnur
og segja frá reynslu sinni í fyrirlestrarsal
hönnunardeildar, Skipholti 1. Allir áhuga-
menn um hönnun, tísku og tiðaranda eru vel-
komnir.
Námskeið
29.10 hefst námskeið í myndvinnslu III,
photoshop við Opna Listaháskólann. Kennd er
vinnsla með „Layers" og möskun við samsetn-
ingu mynda. Kennari er Leifur Þorsteinsson
ljósmyndari.
5.11. hefst námskeið í Painter þar sem hægt
er að setja saman ljósmyndir og breyta litum,
og notandinn getur unnið í ýmis efni, t.d. olíu,
vatnslit eða krít. Lítilsháttar verður farið í
teiknimyndagerð sem er skemmtilegur mögu-
leiki í Painter. Námskeið í Photoshop er nauð-
synlegur undirbúningur. Kennari er Höskuld-
ur Harri Gylfason myndlistarmaður og graf-
ískur hönnuður.
Námskeið í módelteikningu I hefst 29.10.
Lögð er áhersla á stöðu, hlutfoll og líkams-
byggingu og unnið með blýanti, krítum og
bleki. Námskeiðið hentar bæði fyrir byrjend-
ur og lengra komna og er góður undirbúning-
ur fyrir myndlistarnám. Kennari er Hafdís
Ólafsdóttir myndlistarmaður.
Upplýsingar um námskeið og fyrirlestra i
síma 5452210 og slóð www.lhi.is