Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2001, Side 13
MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2001
IZ>V
Menning
13
DV-MYNDIR E.ÓL.
Boðskapurinn er að öll verðum við að rækta barnið í sjálfum okkur
Gunnar Hansson og Ólafur Guömundsson leika Blíöfinn og Barniö.
Á vit ævintýranna
Eftir því sem ég hef hlerað hjá vinum og kunningj-
um er ástæða vinsælda bóka Þorvaldar Þorsteinsson-
ar um Blíðfinn ekki síst fólgin í þeirri staðreynd að
fullorðnir hafa jafngaman af þeim og börn. Mér skilst
að á sumum heimilum hafi jafnvel verið rifist um
hvort foreldrið fengi að lesa kvöldskammtinn yfir af-
kvæmunum. Það skýrist ekki einungis af skemmtileg-
um stíl og ævintýralegri fléttu heldur einnig boð-
skapnum sem gengur út á það að öll verðum við að
rækta barnið í sjálfum okkur.
Á laugardaginn frumsýndi Leikfélag Reykjavíkur
leikgerð Hörpu Arnardóttur á sögunum um Blíðfinn.
Til að leikverkið standist sem sjálfstætt listaverk þarf
það að vera þannig úr garði gert að forþekking á
skáldverkinu sé óþörf. Þannig er því einmitt varið
með Blíðfinn. í stuttu máli lýsir leikritið leit Blíð-
finns að Barninu sem kemur til hans óvænt einn góð-
an veðurdag en hverfur seinna jafn skyndilega - eins
og Spekingurinn hafði raunar spáð. Þrátt fyrir úrtöl-
ur og hræðslu við hið ókunna ákveður Blíðfinnur að
leita Barnsins og heldur af stað út I óvissuna ásamt
Smælkinu með alheimskort og fleiri góða gripi í
farteskinu. Hætturnar eru við hvert fótmál en sem
betur fer hitta þau líka fyrir verur sem eru þeim vin-
veittar eins og dvergarnir 1 farandleikflokknum, fiðr-
ildastúlkan Merla og Gúbbarnir. Hræðilegastir eru
Akademónarnir og eftir viðureignina við þá hverfur
Smælkið til Ljósheima. Eins og i klassískum ævintýr-
um þarf Blíðfinnur að sigrast á þrautum til að kom-
ast til þroska. Hann fær líka sína umbun á leiðarenda
þó ekki sé hún nákvæmlega í samræmi við vænting-
ar.
Leiklist
Uppsetningin á Blíðfinni hefur tekist einstaklega
vel og leggst þar allt á eitt, Harpa Arnardóttir, sem
einnig leikstýrir, hefur fengið úrvals listamenn til
liðs við sig og ber þar fyrstan að telja Snorra Frey
Hilmarsson sem á heiðurinn af frábærri leikmynd og
bráðskemmtilegum búningum. Tæknilegir möguleik-
ar stóra sviðsins eru nýttir til hins ýtrasta og einfald-
ar lausnir eins og bogarnir sem marka Háskahelli
verða ótrúlega áhrifaríkar með markvissri lýsingu og
dulúðugri tónlist Hilmars Arnar Hilmarssonar. Það
er treyst á ímyndunarafl áhorfenda en stemningin í
hverju atriði fyrir sig engu að síður skýrt mörkuð. Út-
færslan á ævintýralegum persónum verksins verður
væntanlega lengi í minnum höfð og nægir þar að
nefna Gúbbana sem voru sérstaklega hugvitsamlega
hannaðir. Smáatriði eins og blómin á stígvélum
Smælkisins eru til vitnis um nostrið og alúðina sem
einkennir alla uppsetninguna.
Ástæðulaust er að gera upp á milli leikaranna átta
sem taka þátt í þessari uppfærslu því allir nálgast
þeir viðfangsefnið af einlægni og gleði sem smitast
yfir til áhorfenda. Gunnar Hansson, sem leikur Blíð-
finn, er sá eini sem ekki bregður sér í fleiri gervi og
Ásta Sighvats Ólafsdóttir er nánast aUan tímann í
hlutverki Smælkisins. Aðrir leikarar eru Jón Hjartar-
son, Ólafur Guðmundsson, Guðrún Ásmundsdóttir,
Edda Björg Eyjólfsdóttir, Árni Pétur Guðjónsson og
Katla Margrét Þorgeirsdóttir. Hvert um sig á þátt i að
gera sýninguna á Blíðfinni að jafneftirminnilegri leik-
Blíöfinnur og Smælkið mæta háska viö hvert fótmál
Gunnar Hansson og Ásta Sighvats Ólafsdóttir voru eins
og sköpuö í hlutverkin.
húsupplifun og raun ber vitni.
Blíðfinnur er hugljúft og skemmtilegt ævintýri en á
stundum ógnvekjandi eins og mátti merkja af ótal litl-
um höndum sem áttu það til að grípa fyrir augun á
frumsýningunni. Sum atriðin eru svo sorgleg að jafn-
vel hinum fullorðnu vöknar um augu og þvi er óhætt
að lofa væntanlegum áhorfendum spennu, hlátri og
gráti. Halldóra Friðjónsdóttir
Leikfélag Reykjavíkur sýnir á stóra sviöi Borgarleikhússins:
Blíöfinn eftir Þorvald Þorsteinsson ! leikgerö Hörpu Arnardóttur.
Leikgervi: Sigríöur Rósa Bjarnadóttir. Lýsing: Kári Gíslason. Tón-
list og hljóömynd: Hilmar Örn Hilmarsson. Dramatúrgia: Ingi-
björg Þórisdóttir. Aöstoö viö búninga: María Ólafsdóttir. Leik-
mynd og búningar: Snorri Freyr Hilmarsson. Leikstjóri: Harpa
Arnardóttir.
Toyota
Nissan
Range Rover Ford
Chevrolet
Suzuki
Jeep Willys
■fand Rover
Musso
Isuzu
ALLT PLAST
Kænuvogi 17 • Sími 588 6740
heimasíða:
www.simnet.is/aptast
Framleiðum brettakanta, sólskygni og boddíhluti á flestar geröir jeppa,
einnig boddíhluti í vörubíla og vanbíla. Sérsmíði og viðgerðir.
Efhún
er ekki
inni
skaiég
hundur
heita!
Nokkur dæmi um vörur á tilboði
í október og nóvember 2001
Sérmerkjum glös og postulín
!IH
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhéisi 2*110 Reykjsvik
Slmi 520 6666 • Bréfaslmi 520 6665 • Mls@rv.it