Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2001, Page 25
MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2001
37 4
DV
EIR á mánudegi
Óskar og síminn
Veröandi for-
stjóri íslands-
sima hvorki veit
né vill vita hvaö
hann og fjöl-
skylda hans
greiða í sím-
reikninga á
mánuði. Óskar
Magnússon hef-
ur sagt aö hann
sé vel að for-
stjórastarfinu
hjá Íslandssíma kominn enda sé
hann alltaf í símanum hvort sem
er - eða svo segi eiginkona hans.
„Ég dreifi þessu á mörg númer
til að blekkja sjálfan mig varöandi
kostnaöinn. Ætli ég sé ekki með
Qögur símanúmer," segir Óskar.
„Ég get ekki hugsað þá hugsun til
enda hvað þetta kostar mig og vil
reyndar ekki vita það.“
Oskar
Meö fjögur númer.
Lús í Kvennó
Lúsar hef-
ur orðið vart
í Kvennaskól-
anum í
Reykjavík. Er
það í fyrsta
sinn sem
fréttir berast
af lús i fram-
haldsskólum
höfuðborgar-
innar en hingað til hafa fregnir af
lúsafaraldri einskorðast viö grunn-
skólana. Ingibjörg Guðmundsdóttir,
skólastjóri Kvennaskólans, segir
viðkomandi nemendur hafa verið
senda heim með tilmælum um að
grípa til viðeigandi aðgerða: „Ég
vona að við höfum komist fyrir
þetta,“ segir skólastjórinn.
Kvennaskólinn
Lúsin færist upp í
skólakerfinu.
Skáldiö meö bókina
Yrkir um árshátíöir og hunda og
ketti. Líka sálma.
83 ára skáld
„Ég lifi fyrir ljóðið og bridge,“
segir Ólafur Kr. Þórðarson sem
er að gefa út sína fyrstu ljóða-
bók 83 ára að aldri. Ólafur hefur
ort allt sitt líf en fyrst nú ráðist
í úgáfu bókar og gerir það sjálf-
ur. „Þetta er þverskurður af
skáldskap mínum í gegnum lifið.
Ég yrki ekki aðeins um haustið
og vorið heldur og ekki síður
um afmæli, skólauppsagnir, árs-
hátíðir og hunda og hesta. Þá
yrki ég einnig sálma ef þannig
ber undir,“ segir Ólafur sem hef-
ur starfað við kennslu allt sitt
líf en er fæddur í Haga á Barða-
strönd og alinn upp 1 Múla sem
er þar næsti bær.
„Ég læt skýringar fylgja
hverju ljóði þannig að fólk geti
áttað sig á því hvers vegna var
ort. Ég sel töluvert af bókum
vegna skýringanna. Fólk virðist
hafa gaman af þeim,“ segir Ólaf-
ur sem lét prenta ljóðabók sína í
200 eintökum. Hann selur stykk-
ið á 1000 krónur. Bókin heitir
Leitað í sandinn.
Leiörétting
í frétt hér að ofan um súlusósur
Geira í Maxím láðist að geta þess að
meginuppistaðan í sósunum eru
strípuð ber.
Meö stúlkunum sínum
Geiri meö hluta af starfsstúlkum sínum - nóttin ung og stúlkurnar enn vel klæddar.
Geiri á Maxím stefnir á Ameríkumarkað með lostæti:
Úr súlum í sósur
- skreytir sig með gulli og gimsteinum fyrir 4 milljónir hversdags
Súlúkóngurinn Geiri á Maxim er
að hasla sér völl í bandarísku við-
skiptalífi með sölu á sósum sem
byggðar eru á íslenskum uppskrift-
um. Sósurnar eru framleiddar af
fyrirtækinu Úrvalssósur sem komið
hefur sér upp starfsaðstöðu i Al-
bany í New York-ríki. Með Geira í
sósuframleiðslunni eru þeir Þor-
steinn Hjaltested, óðalsbóndi á
Vatnsenda, og Þórður Bragason
matreiðslumeistari.
Kampavínssteinn
„Við leggjum aðaláherslu á bern-
aise-, rjómasveppa- og gráðostasósur
Gullakkeriö á brjósti Geira
Metiö til jafns viö nýlegan Renault af
gullsmiöi á landsbyggöinni.
en svo er verið að hanna nýjar,“ seg-
ir Geiri sem gefur sér nú loks tíma
til að líta upp úr erilsömu starfi sem
einn umsvifamesti súlúkóngur höf-
uðborgarsvæðisins. Hann rekur
Maxím í Hafnarstræti og svo Gold-
fmger-klúbbinn á Smiðjuvegi í
Kópavogi og er með 30 súlustelpur í
vinnu. Geiri hefur orðið skraut-
menni hin síðari ár og skreytir sig
daglega með gulli og gimsteinum
fyrir um fjórar milljónir. „Það er nú
aðallega konan mín sem er að gefa
mér þetta,“ segir Geiri um djásnin
sem hvarvetna vekja eftirtekt þar
sem hann fer og Geiri fer víða. Mun-
ar þar mest um dýrindis hring með
kampavínssteini sem metin er á 1,5
milljónir króna. Þá ber Geiri akker-
isfesti um háls sem gullsmiður á
landsbyggðinni bauð nýlega
Renault-bifreið í skiptum fyrir.
Ótalið er Rolex-úr Geira auk ann-
arra og minn hringja. Geiri hefur
verið kvæntur eistneskri konu í
þrjú ár en hún heitir Jaruslava og
vill hafa Geira frnan.
Price Chopper og Chaws
Sósusamningamir sem Geiri og
félagar hans hafa gert vestanhafs
eru við verslunarkeðjumar Price
Chopper og Chaws. Fyrmefnda keðj-
an hefur þegar gert samninga um
kaup á sósum fyrir 22 milljónir á
mánuði og er sala í verslunum Price
Chopper þegar hafm en þær em 103
talsins. Segir Geiri að sósumar geri
stormandi lukku. Við síðamefndu
keðjuna hefur verið gerður stærri
Hringirnir
Kampavínssteinninn metinn á 1,5
milljónir. Hinir hringirnir eru til staö-
festirngar trúlofun og hjónabandi
Geira og Jaruslövu konu hans.
samningur sem gerir ráð fyrir sósu-
kaupum fyrir 88 milljónir mánaðar-
lega en Chaws-keðjan rekur 290
verslanir víðs vegar um Bandaríkin:
„Samtals gera þessir samninga
ráð fyrir sölu á sósum okkar fyrir
fimm milljarða íslenskra króna og
Fimm ráð fyrir vil
1 EVRÓPSKT
Bregðið ykkur á
jyA jffj Mokka á Skóla- ^
■■■■jCjSKV' vöróustíg. Eina
evrópska kaffi-
■HHHi húsið í Reykja-
vík sem rís undir nafni. Hljóðið
í kaffivélinni gott og ristaða
brauðið afbragð með vel úti-
látnu smjöri og osti. Gestirnir
yfirleitt augnayndi.
INDÆLT
Leigið ykkur
sumarhús hjá
stéttarfélögun-
um. Nægt fram-
boð - allt stend-
ur autt. Njótið kyrrðarinnar
með þeim sem þið hafið van-
rækt. Fjórar nætur kosta sjö
þúsund. Margborgar sig.
HLEMM-KLIPP
Látið snyrta
hárið á Hlemmi.
Hvergi betra út-
sýni úr rakara-
stólnum en hjá
Torfa á Hlemmhominu. Hann er
líka ódýrari en kvenlegu tísku-
klippararnir. Og betri. Hann
kenndi þeim.
TVEIR GÓÐIR
Beðið eftir
Godot á nýja
sviðinu í Borg-
arleikhúsinu.
Gaman að sjá
salinn en skemmtilegra að sjá
Benedikt Erlingsson og Hilmi
Snæ fara á kostum. Þétt upplyft-
ing.
GOTT BENSÍN
Reynið bensín-
stöð Essó við
Ægissíðu.
Hvergi betri *-
þjónusta og
starfsmennirnir sérstakir hver
með sínum hætti. Takið eftir
skeggvextinum á þeim. Eins og í
sértrúarhópi. En þeir eru það
ekki.
þetta er rétt byrjunin," segir Geiri
sem sjálfur er gamall bryti á varð-
skipum og gerir greinarmun á
góðri sósu og vondri. Hann hefur þó
verið aö reyna að hemja eigin sósu-
neyslu og fór því gagngert í megr-
unarbúðir i fjallaþorpi í Ungverja-
landi ásamt samstarfsfélaga sínum
í fyrra. Þar misstu þeir 15 kfló hvor
en hafa bætt á sig 5 kílóum eftir
heimkomuna. Munar þar mest um
sósumar.
„í framhaldi af þessum samning-
um stöndum við i samningaviö-
ræðum við enn stærri verslunar-
keðju um þróun og framleiðslu á 15
nýjum sósum sem eingöngu yrðu
seldar I verslunum keðjunnar. Þar
erum við að tala um mánaðarlega
sölu upp á 300 milljónir en þá verð-
um við líka að stækka verksmiðju
okkar," segir Geiri en i sósuverk-
smiðjunni í Albany starfa nú 10
manns.
Gervigras við Austurbæjarskóla:
Fótbolti allt árið
Unnið er að gerð
sparkvallar með
gervigrasi á lóð
Áusturbæjarskól-
ans og kemur hann
til með að leysa
annan malbikaðan
af hólmi. Völlurinn
verður upphitaður
og þannig verður
hægt að leika knatt-
spymu á skólalóð-
inni allt árið.
„Þetta er 20x40
metra sparkvöllur og við notum heita-
vatnsaffallið úr skólanum tii að hita
hann upp. Völlurinn verður afgirtur
og upplýstur og er hugsaður fyrir alla
krakkana í hverfinu sem vilja spila
fótbolta," segir Kristinn Gíslason,
verkfræöingur hjá Reykjavíkurborg,
sem hefur umsjón með verkinu. Hann
gerir ráð fyrir að
völlurinn verði tO-
búinn í næsta mán-
uði en gervigrasið
verður þó ekki sett
á fyrr en að vori af
tæknilegum ástæð-
um. „Ásgeir Sigur-
vinsson hefur verið
okkur innan hand-
ar i sparkfræðOeg-
um efnum og hann
telur að þessi völi-
ur geti orðið mikil
lyftistöng fyrir knattspyrnuna í land-
inu,“ segir Kristinn.
Reykjavíkurborg hyggst gera fleiri
gervigrasveOi á opnum svæðum við
skóla borgarinnar og hefur þegar ver-
ið ákveðið að veita fjármagn í fjóra
slíka á næstu fjómm árum. Hvar þeir
verða hefur þó ekki verið ákveðið.
Fótboltaframkvæmdir
20x40 metra sparkvöllur, upphitaöur
og flóölýstur, fyrir krakkana í hverfinu.
Rétta myndin
Krókódíll í kæli
Þeir eru ófáanlegir hér á landi en sjást víöa í kæliboröum verslana erlendis.
Kjötiö þykir ágætt; líkist kanínukjöti og eryfirleitt steikt á pönnu. Einnig
ágætt í pottrétt.