Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2001, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2001, Síða 28
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2001 r:.-« ~r Dýr skólavist þúsunda tónlistarnema í uppnámi: Verkfall skollið á - ekkert mjakaðist í samkomulagsátt á löngum fundi í gær Verkfall er skollið á hjá tónlistar- kennurum en lítið sem ekkert miðaði í kjaradeilu tónlistarkennara á fundi þeirra og samninganefndar sveitarfé- laganna sem fram fór í gær. Annar fundur var boðaður i morgun. Ljóst er að dýr skólavist þúsunda tónlistar- nema er nú í uppnámi. Þeir sem þegar hafa greitt skólagjöld fá ekki endur- greitt. Verkfallið tekur til um 620 félags- manna Félags islenskra hljómlistar- manna og Félags tónlistarskólakenn- ara. Þórir Einarsson ríkissáttasemjari sagði í samtali við DV í gærkvöldi að andrúmsloftið hefði verið gott á þess- um langa fundi en hann stóð frá há- degi fram til klukkan rúmlega 10 í gær- kvöldi. „Það er verið að leita lausna en ekkert hefur mjakast í samkomulags- átt. Þó eru báðir aðilar fúsir til að leita leiða til samkomulags og ekki hefur slitnað upp úr samningaviðræðum." Þórir segir að sem áður strandi við- ræðurnar á launaliðnum. „Grundvall- arafstaða aðilanna hefur ekkert breyst í langan tima.“ Ráðamenn sýna lítinn skilning Sigrún Grendal Jóhannesdóttir, for- maður Félags tónlistarkennara, mátti í gærkvöld ekki tjá sig um viðræðumar þar sem fréttabann er af samningavið- ræðunum. í samtali við blaðamann DV fyrir helgi sagði hún tónlistakennara ekki sátta við að menntun þeirra og störfum væri sýnd sú lítilsvirðing sem tilboð samninganefndar Launanefndar sveitarfélaga endurspeglaði. Hún segir laun tónlistarskólakennara hafa dreg- ist verulega aftur úr launum annarra kennara á síðustu misserum og bendir á að flestir þeirra hafi 12-15 ára nám að baki, fyrst fari fólk í gegnum hin hefðbundnu 8 stig og síðan taki kenn- aranámið við og það taki þrjú ár. Að auki fer mikill hluti tónlistarfólks í framhaldsnám erlendis til frekari sér- hæfingar. „Það gefur augaleið að þama er um mikla sérþekkingu að ræða og fmnst okkur ráðamenn sýna lítinn skilning á hvers virði hún er samfélaginu," segir hún. „Það em veruleg vonbrigði ef raunin er sú að öll þau fógru orð sveitarstjórnar- manna og annarra stjórnmálamanna um mikilvægi menntunar og gildi kraftmikils lista- og menningarlífs í landinu em aðeins innantómt hjal og ætla tónlistarskólakennarar sér að láta reyna á það nú.“ Aðgerðir boðaðar Tónlistamemendur og foreldrar þeirra hafa þungar áhyggjur af yfirvof- andi verkfalli. Foreldrar barna sem stunda nám við tónlistarskóla Suzuki- sambandsins hafa staðið fyrir undir- skriftasöfnun þar sem lýst er yfir áhyggjum vegna verkfallsins og skorað á launanefnd sveitarfélaga að ganga strax til samninga. Foreldramir ganga á fund borgarstjóra í dag og afhenda hon- um undirskriftalistana. Einnig hefur Ýmir, nemendafélag Tónlistarskólans í Reykjavík, boðað kröfugöngu nemenda í dag. Gengið verður frá skólanum kl. 15.00 og haldið að Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar hyggjast nemendumir afhenda Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra bréf þar sem þeir lýsa yfir stuðningi viö kröfur tónlistarskólakennara og áhyggj- um af áhrifum verkfalls þeirra. -GG/ÓSB Söfnun til styrktar íbúum Afganistans: Þrjár milljónir söfnuðust Perlan rýmd um miðjan dag: Vopnaður úti- gangsmaður Talsvert lið lögreglumanna, þeirra á meðal Qórir víkingasveitarmenn, var kallað að Perlunni um miðjan dag i gær eftir að tilkynnt hafði verið um mann vopnaðan skammbyssu þar inni. Að sögn lögreglunnar var ljóst af lýs- ingu á manninum að um meinlausan góðkunningja lögreglunnar var að ræða. Maðurinn reyndist vera með tvær byssur í fómm sínum, báðar óvirkar og meinlausar, nánar tiltekið módel af gamaldags framhlaðningum. Hafði hann ráfað drukkinn inn í Perluna og „veifað þeim“ þar inni en ekki ógnað neinum. -fin Pilturinn fundinn Unglingspilturinn sem leitað hef- ur verið að frá því á þriðjudag, eöa í fimm daga, kom í leitirnar í gær, heill á húfi. -fin Alls söfnuðust þrjár milljónir króna í söfnun Rauða kross íslands og Hjálparstarfs kirkjunnar til styrktar íbúum Afganistans en henni lauk formlega í gær. Að sögn Þóris Guðmundssonar, upplýsinga- fulltrúa RKÍ, þýðir þetta að þrjú þúsund manns hafi hringt inn. „Við erum þakklátir þeim sem hringdu inn og lögðu söfnuninni lið,“ segir Þórir og bætir við að með því hafi þeir einnig verið að sýna samstöðu með afgönsku þjóðinni. Sá boðskap- ur að það sé almenningur í Afganistan sem styrjöldin og nátt- úruhamfarir undanfarin ár bitni á hafi greinilega komist tfi skila. í gærdag stóðu aðilar söfnunar fyrir útifundi við Hallgrímskirkju til að ininna á íbúa Afganistans og neyð þeirra. Þar sungu KK og Ellen Kristjánsdóttir, lesið var ljóð eftir afganskan dreng og framkvæmda- stjórar Hjálparstarfs kirkjunnar og Rauða krossins tóku til máls. Einnig var kveikt á friðarljósum og nýjar myndir frá Afganistan voru til sýnis. Þrátt fyrir að söfnuninni sé formlega lokið verður söfnunar- síminn 907 2003 opinn áfram næstu daga. Með því að hringja i hann er hægt að gefa þúsund krónur sem skuldfærast á næsta símareikning. -MA t i * i'T ,\. ’1',. \.*V - :-A > y . gf - ’ • .'. V . .»•„ ••A ;v: • '•'T'-í .V 3% Ni.V; ) >. 7 N'JtKi H; , •• •, •’*!• .. DV-MYND HILMAR Kíkt fyrir horn Þessi litla snót gaf sér tíma til aó kikja fyrir horn og beint í linsu ijósmyndara fyrir framan Hailgrímskirkju í gær. Þar var hópur manna samankominn á útifundi þar sem minnt var á neyö ibúa Afganistans. Umdeilda prestsráðningin í Danmörku: Pattstaða hjá Tryggingastofnun - ekki ákveðið hvort styrkveitingum verður haldið áfram Tryggingastofnun hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort stofnunin muni áfram taka þátt í kostnaði vegna prestakalls í Dan- mörku. Eins og DV hefur greint frá varð mikill hvellur þegar Sig- urður Sigurðarson vigslubiskup ákvað að skipa Þóri Jökul Þor- steinsson í starfið þvert gegn vilja hæfnisnefndar. Karl Steinar, for- stjóri Tryggingastofnunar ríkis- ins, sagði þá í DV að vinnubrögð- in væru móðgandi. Þar sem Trygg- ingastofnun greiddi helming kostnaðar við embættið ætti stofn- unin eitthvað að hafa um slíkar ákvarð- anir að segja. „í svona sam- starfi vil ég ekki taka þátt,“ sagði Karl Steinar í frétt DV fyrir skömmu. Trygginga- stofnun er ekki ætlað að greiða fyrir kristni- hald heldur fyrir þjónustu við sjúklinga í formi samstarfsverk- efnis við kirkjuna. í samtali við DV í gærkvöld sagði Karl Steinar að engin ákvörðun hefði verið tek- in um greiðslurnar en stofnunin væri bundin af samningi. Hann gat ekki heldur svarað hvenær ákvörðunar um þetta mál væri að vænta en spurður hvort það væri stjórnar Tryggingastofnunar að taka slika ákvörðun, sagði Karl Steinar: „Það fer sennilega eftir mínum tillögum. Þetta er í skoð- un.“ -BÞ Karl Steinar Guðnason. Útiljós Rafkaup Armúla 24 • S. 585 2800 nierhiuélin íyrirfagmenn og fyrlrtækl, helmili og skóla, fyrir röð og reglu, mlg og þig. J i hýbglauegl 14 • sfmi 5S4 4443 • If.ls/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.