Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2001, Qupperneq 24
»
44
FIMMTUDAGUR 15. NOVEMBER 2001
Tilvera
I>V
lí f iö
Anna Pálína í
Salnum
Hjónin Anna Pálína Ámadóttir
og Aöalsteinn Ásberg
Sigurðsson, ásamt nokkrum
félögum sínum, halda tónleika í
Salnum í Kópavogi í kvöld.
Sérstakur gestur er Kristinn
Ámason gítarleikari.
Tónleikamir hefjast kl. 20. Þar
verður flutt brot af því besta!
Tónfist ______________________
■ MULINN I kvöld leika T Húsi mál-
arans þeir Valdimar Kolbeinn Sigur-
jónsson, kontrabassi, Davíö Þór
Jónsson, píanó, Eiríkur Orri
Ólafsson, trompet, Hlynur Aöils
Vilmarsson, tölva, o.fl. Þeir hefja
leik kl. 21.
■ JAZZANDI Á VÍDALÍN Triðið
Jazzandi leikur á Vídalín í kvöld. Þaö
skipa Sigurjón Alexanderson,
Sigurdór Guömundsson og Gestur
Pálmason
■ SINFÓNÍAN í HÁSKÓLABÍÓI
Þíanókonsert nr. 2 og sinfónía nr. 6
eftir Pjotr Tsjajkovskíj. verða fluttir á
sinfóníutónleikum í Háskólabíói í
kvöld sem hefjast kl. 19.30. Hljóm-
sveitarstjóri er Alexander Anlssimov
og einleikari Boris Berezovskíj.
■ ÚTÓPÍA OG NORÐANPILTAR
Hljómsveitin Utópía er í tónleikaferö
og spilar í Verkmenntaskólanum,
Akureyri í kvöld meö Norðanpiltum.
Leikhús
■ MEÐ VIFH) I LUKUNUM A stóra
sviöi Borgarleikhússins veröur í
kvöld leikritið Meö vífiö í lúkunum
eftir Ray Coone og hefst kl. 20.
■ PÍKUSÖGUR Þrjár leikkonur flytja
verkiö Píkusögur á þriöju hæö Borg-
arleikhússins kl. 20 í kvöld.
■ SYNGJANPI j RIGNINGUNN
Syngjandi í rigningunni veröur sýnt í
Þjóöleikhúsinu í kvöld, kl. 20.
■ VERÖLPIN ER VASAKLÚTUR
The lcelandic Take Away Theatre
sýnir í kvöld, kl. 21, í Kaffileikhús-
inu verkiö Veröldin er vasaklútur.
Kabarett
■ O. BORG MIN BORG Sýningin O,
borg mín borg með þeim Magnúsi
Eiríkssyni og Kristjáni Kristjánssyni
veröur flutt í kvöld á Hótel Borg.
Fyrir börnin
n K0TTUR I NORRÆNA HUSINU Sýn-
ingin Köttur úti í mýri verður opnuð í
Norræna húsinu í dag. Þar er aö
finna fjölda fallegra verka eftir
norræna listamenn.
Fundir og fyrirlestrar
ÍfÍLMÓTS VÍÐ NÝJA
KYNLIFSSIÐFRÆÐI Dr. Sólveig
Anna Bóasdóttir mun flytja
fyrirlestur í dag kl. 17. Hann heitir
„Til móts viö nýja kynlífs-siöfræöi" ,
og veröur í V stofu aðalbyggingar HÍ.
■ GILFÉLAGH) TIL FRAMTÍÐAR
Opinn félagsfundur í Deiglunni í
kvöld um umsýslu Gilfélagsins og
undirbúning listasumars 2002.
■ SKARTGRIPASÝNING Fríöa
gullsmiöur opnar skartgripasýningu í
versluninni Spaksmannsspjörum
Bankastræti 11, kl. 20- 22 í kvöld.
■ RABBKVÓLD MEÐ MEGASI
Rabbkvöld verður meö Megasi í
Nýló í kvöld. Þar ræöir hann um
landsins gögn og nauösynjar.
■ KRISTINN E HRAFNSSON í
SLUNKARIKI Svning Kristins E.
Hrafnssonar,- Síöasta stund og
nokkur önnur verk er í Slunkaríkl á
Isafirði þessa dagana en lýkur þann
íslendingar á maraþonflutning á óperum Wagners:
Heppin að fá úthlutað miðum
- segir Selma Guðmundsdóttir, formadur Wagnerfélagsins
Maður Irfandi
er bíllinn?
Kolbrún
Bergþórsdóttir
skrifar.
góð sæti. Svo er auövitaö flug og
gisting þar fyrir utan. Fólk annast
það hver fyrir sig.“
Tónlist Richards Wagners mun
hljóma nær samfellt í hálfan mánuö
í Staatsoper unter den Linden í
Berlín um páskaleytið næsta ár er
öll stærstu verk þessa mesta óperu-
skálds sögunnar verða flutt. Hljóm-
sveitarstjóri allra sýninganna verð-
ur Daniel Barenboim og leikstjóri
Harry Kupfer. Nokkrir íslendingar
verða meðal þeirra sem verma
munu sæti óperunnar meðan á þess-
um maraþonflutningi stendur því
Selma Guðmundsdóttir, píanóleik-
ari og formaður Wagnerfélagsins á
íslandi, gat útvegað sínum félags-
mönnum fáeina miða. Að hennar
sögn varð mikill fögnuður í hópnum
og níu miðar af þeim tíu sem henni
stóöu til boða runnu út. „Mér skilst
að það sé þræluppselt á þetta allt
saman og ég veit að þeir sem eru
búnir að tryggja sér miöa hlakka
mikiö til,“ segir hún. Sjálf kveðst
hún ekki fara að þessu sinni enda
hafi hún bæði farið í óperuferð
til Berlínar og á hina árlegu
Wagnerhátíð í Bayreuth á
síðasta sumri. „Ég ætla að
sitja þetta af mér núna
þótt ég geri það með viss-
um trega,“ segir hún.
„Berlín er stórkostleg
borg og það er heilt
intýri að geta verið
í tvær vikur og séö all
an Wagner.“
Formaöur Wagnerfélagsins meö óperuskáldiö sér viö hliö
Selma Guðmundsdóttir píanóleikari stofnaði félagið ásamt fleirum eftir aö brot út Nifl-
ungahringnum var sýnt hér á landi.
um
hljóm-
burði.
Miðar á
hverja
sýningu
geti kostað
frá 6-15 þús-
und, eftir því
hvar setið er.
„Ég held þetta
séu svona 130
þúsund krónur
sem hver og einn úr
okkar hópi þarf aö
leggja út fyrir miða,
því við fengum frekar
Wagner sótti efni til íslai
Wagnerfélagið á íslandi var
aö 1995 og í því eru um 150 manns
Selma rekur aðdraganda stofnunai
innar: „Ég sat í stjórn Listahátíðar
árið 1994 og þar sem ég og maður-
inn minn, Ámi Tómas Ragnarsson,
læknir, vorum orðin smituð af
Wagneráhuga eftir að hafa farið á
Wagnerhátíðina í Bayreuth þá leit-
uðum við til yfirmanna við óperuna
þar um aðstoð við að koma Wagner
á svið á íslandi. Sonarsonur tón-
skáldsins, Wolfgang Wagner, lagði
það til að við tækjum Niflunga-
hringinn og sýndum brot úr honum.
Tengsl Niflungahringsins við ísland
eru mjög sterk. Tónskáldið sækir
söguefni óperanna í íslenskar forn-
bókmenntir, einkum Eddukvæðin,
Snorra Eddu og Völsungasögu auk
þess sem textinn og tónmálið eru
undir sterkum áhrifum af íslensk-
um kveöskaparháttum. Við gerðum
eina kvöldsýningu þar sem brot úr
Niflungahringnum voru flutt og at-
riðin tengd saman með töluðum
texta þannig að úr varð samfelld
sýning sem gaf góða mynd af þessu
stórbrotna verki og augljósum
tengslum þess við bókmenntaarf
okkar. Þessi sýning þjappaði saman
áhugamönnum um Wagner hér
heima og félagið var stofnað. Það
hefur síðan staðið fyrir myndbands-
sýningum, tónleikahaldi og fyrir-
lestrum en það sem merkast er telst
án efa útkoma bókarinnar Wagner
og Völsungar sem Árni Bjömsson
þjöðháttafræðingur skrifaði um
þessi tengsl Wagners við ísland og
út kom hjá Máli og menningu í
fyrra.“
Mikil forréttindi
Selma segir margt skemmtilegt
fólk vera í Wagnerfélaginu og sakir
kunningsskapar við yfirmenn
Bayreuth-óperuhússins sem sýni
eingöngu Wagner, hafi félagið ár-
lega fengið nokkra miða á hátíðina
þar. „Fyrir almenning um allan
heim er yfirleitt svona 7-8 ára bið-
tími eftir miðum. Svo þetta eru mik-
il forréttindi,“ segir hún að lokum.
-Gun.
Mikið efni að innbyrða
Selma segir að hver ópera taki
4-5 klukkutíma í flutningi, nema
Hollendinginn fljúgandi sem er ívið
styttri. Niflungahringurinn er í fjór-
um óperum sem heita Rínargullið,
Valkyrjan, Siegfried og Ragnarök.
Hinar eru Tannháuser, Lohengrin,
Hollendingurinn, Meistarsöngvam-
ir frá Núrnberg, Tristan og Isold og
Parsifal. Sú síöastnefnda var síðasta
óperan sem Wagner samdi. Selma
viðurkennir að svona sýningar kalli
á langar setur og sumum finnist
þetta lika einum of mikið efni að
innbyrða á jafn skömmum tíma og
tveimur vikum. „í Bayreuth sl. sum-
ar sá ég allan Niflungahringinn og
Lohengrin á sex dögum. Það var
stórkostlegt en mátti ekki vera mik-
ið meira. Þetta er svo mikið að
hugsa um. Ég býst við að flestir sem
fari á þessa
Wagnerhátíö í Berlín þekki allar óp-
erumar og komi að þeim sem góð-
um kunningjum. Reyndar eru upp-
setningar nú til dags, einkum í
Þýskalandi, oft ögrandi og það kall-
ar á mikla úrvinnslu og umhugsun.
Þegar maður er farinn að þekkja
textann skynjar maður þegar leik-
stjórinn er að gera eitthvað sem
stangast á við þann skilning sem
maður hefur sett í verkið. Þá veltir
maður því líka fyrir sér hvað
Wagner hafi í raun verið að meina.
Það eru til svo margs konar túlkan-
ir. Eflaust verða margir forvitnir
um það hvernig Lars von Trier
muni takast upp, en hann hefur tek-
ið að sé að leikstýra nýrri upp-
færslu á Niflungahringnum í
Bayreuth árið 2006.“
Sætin fín
Nú beinist talið að nytsömum
hlutum eins og því hvernig sætin
séu í Staatsoper í Berlín og hvað
svona 10 sýninga pakki kosti.
Selma segir óperuhúsið
afar glæsilegt í alla
staði, með fínum
sætum og
afar
Hvar
„Er bíllinn langt í burtu?"
spurði afgreiðslustúlkan þegar ég
var komin með svo voldugan að-
ventukrans í fangið að ég sýndist
fremur smá í samanburöi við
hann. „Ég á ekki bíl“ sagði ég um
leið og ég gekk út úr búðinni. Síð-
an dröslaðist ég með kransinn
minn niður Laugaveginn. Þetta
gekk ágætlega hjá okkur, enda hef
ég náð talsverðri leikni í burði.
Það sem aðrir setja í bílinn sinn
ber ég í fanginu.
Ég á ekki bíl og mig langar ekki
í bíi. Ég verð ekki fyrir tilfinnan-
legu tapi af þessu eignarleysi. Eina
sem ég fmn fyrir er að ég fæ ekki
lengur nýja símaskrá árlega. Áður
fyrr sótti maður hana á pósthúsið.
Nú á maður að sækja hana á bens-
ínstöðvar. Þar hef ég aldrei við-
komu. Þess vegna er símaskrá
heimilisins tveggja ára gömul.
Truflar mig lítið. Ég hef aldrei ver-
ið sérlega sólgin í spjall við ókunn-
uga.
Ég á sennUega eftir aö komast í
gegnum líflð án þess að taka bU-
próf. Mér finnst það þægUeg tU-
fmning þótt mér þyki reyndar yfir-
leitt ágætt aö fá far með vinunum.
Ég skU reyndar ekki að tU sé eitt-
„Ég á sennilega eftir að komast í gegnum lífið án þess
að taka bílpróf. Mérfinnst það þægileg tilfinning þótt
mér þyki reyndar yfirleitt ágætt að fá far með vinun-
um. Ég skil reyndar ekki að til sé eitthvað sem heitir
fallegur bíll. Og mig hefur aldrei langað til að setjast
við stýri og keyra. Svo held ég bara að ég gœti það
ekki. “
hvað sem heitir fallegur bUl. Og
mig hefur aldrei langað tU að setj-
ast viö stýri og keyra. Svo held ég
bara að ég gæti það ekki. Ég er of
utan við mig. Dæmigert fyrir mig
að keyra niður næsta mann. í því
vU ég sannarlega ekki lenda. Ég á
líka í nógu miklum vandræðum í
umferðinni. Tvisvar í viku kemst
ég nálægt því aö ganga fyrir
strætó. Stundum hugsar maður
svo mikið að maður sér bara hugs-
anir. Vont hvað þessar hugsanir
skUa sér illa í raunveruleikanum.
En það er náttúrlega aUt annað
mál.
Ég þarf ekki á bU að halda frem-
ur en kettlingi eða gullflskum. í
fjarlægðum mælt takmarkast
heimur minn við Hjarðarhaga -
Þverholt - Þverholt - Hjaröarhaga.
Um daginn rambaði ég upp í stræt-
isvagn sem bar mig í aðra átt en ég
ætlaði. Hann keyrði að því mér
fannst endalaust og ég sá bæði
Breiðholtið og Grafarvoginn.
Reyndar ekki í fyrsta sinn, en í
fyrsta sinn í langan tíma. Það var
mikU ævintýraferð. Samt varö ég
mikið fegin þegar ég komst aftur
niður í minn bæ. SennUega er ég
bara lítið fyrir langferðir.