Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2001, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001
Fréttir
DV
Niðurskurður yfirvofandi á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri:
Gæti þýtt gjör-
breytta þjónustu
- Halldór Jónsson heldur í vonina þar til fjárlög eru endanlega afgreidd
Fjóröungssjúkrahúsiö
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri stendur nú á tímamótum en minnkandi fjár-
veitingar til stofnunarinnar að raungildi kalla á grundvallarbreytingar og niður-
skurð á starfseminni.
Halldór Jónsson, forstjóri Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri, seg-
ist ekki vilja trúa því fyrr en búið sé
að afgreiða fjárlögin endanlega frá
Alþingi að ekki verið komið til móts
við þarfir FSA um fjárveitingar. Nú
stefnir í að framlögin á næsta ári
verði að raungildi lægri en þau eru
í ár. Ef ekkert gerist segir Halldór
að framkvæmdastjórn spítalans
muni þurfa að koma með tillögur
um spamað sem gætu þýtt grund-
vallarbreytingu á þeirri þjónustu
sem spítalinn veitir. „Ég vil ekki tjá
mig um hverjar þær tillögur kynnu
að verða fyrr en þær þá koma fram
en það gæti orðið seint í næstu
viku. Ég hins vegar vona að til þess
þurfi ekki að koma, það kunna að
vera einhverjir pottar eða sjóðir
enn til sem gætu bjargað málum,“
segir Halldór.
Þrátt fyrir að sett hafl verið í
gang sérstök spamaðar- og að-
haldsáætlun á spítalanum í haust
er ljóst að halli verður á rekstrin-
um í ár. Skýrist hann fyrst og
fremst af nokkrum sérstökum
stórum liðum en einnig því að
óvenju mikið var um slys og stór-
ar aðgeröir sem ollu því að spam-
aðaráætlunin skilaöi sér ekki sem
skyldi.
Spitalinn fékk nokkrar leiðrétt-
ingar á nýsamþykktum fjárauka-
lögum en hins vegar hefur ekki
verið tekið tillit til stórra þátta
sem skipta miklu í rekstrinum.
Þannig hefur spítalinn ekki fengið
framlög til aö mæta ákvæðum um
vinnutíma, sem komu fram í ár
vegna EES-samningsins en kostn-
aðaraukinn við þaö nemur um 40
milljónum króna. Þá hafa tvö
röntgentæki, sem spítalinn keypti
fyrr á árinu, orðið 25 miUjónum
dýrari en samningarnir gerðu ráð
fyrir vegna þess hve gengi krónun-
ar hefur lækkað. Þessir tveir póst-
ar eru að mestu ábyrgir fyrir hall-
anum á spítalanum en auk þessa
hafa verðbreytingar umfram for-
sendur fjárlaga valdið FSA vand-
ræðum líkt og öðrum sjúkrastofn-
unum.
Ljóst er að staða FSA er erfið þar
sem sjúkrahúsið er eina varasjúkra-
hús landsins og það einai á lands-
byggðinni sem gæti tekið við hlut-
verki Landspítala ef hann af ein-
hverjum ástæöum getur ekki sinnt
sínu hlutverki. Þá hefur upptöku-
svæði spítalans aukist og verkefn-
um fjölgaö, m.a. með tilkomu samn-
inga um sjúkraflug. Samkvæmt fjár-
lagafrumvarpinu er spítalanum gert
eins og öðrum sjúkrastofnunum að
spara með flötum niðurskurði um
1% sem er um 25 milljónir króna.
Spamaðarkrafan á því ári sem var
að líða hljóðaði upp á 17 milljónir
og segir Halldór mjög farið að
þrengjast um möguleika á hagræð-
ingu. -BG
Komdu og njottu hatiðarstemmngannnar
í Smáralind þar sem jólasveinarnir og yfir 70 verslanir
og þjónustuaðilar bjóða alla velkomna.
Frábær jóiadagskrá í Vetrargarðinum í dag!
16:00-18:00 Jólasveinamir skemmta.
16:30 og 17:30 iÓlasagajólasveinannalesin.
17:00 Jólaskemmtun fyríralla fjölskylduna.
Fram koma Helga Möller, Maggi Kjartans,
jólasveinarnir, Grýla Og LeppalÚðÍ.
Ævintýraheimur barnanna i JÓlalandÍriU i allan dag.
Einnig verðurlíf og flör í göngugötunni í allan dag þar sem
harmonikku- og fiðluleikarar ásamt jólasveinunum, Grglu og
Leppalúða skapa rátta jólaandann.
-RÉTTI JÓLAANDINN
Verslanir opnar i dag milli klukkan 11:00 og 20:00 ■ www.smaralind.is
Borgarstjóri um úthverfaframboð:
Mikil uppbygg-
ing í Grafarvogi
- hafnar að einblínt sé á 101-svæðið
„Það hefur fremur verið rætt um
að miðborg Reykjavíkur eigi undir
högg að sækja heldur en margt ann-
að,“ sagði Ingi-
björg Sólrún
Gísladóttir borg-
arstjóri í samtali
við DV í morgun
þegar'013010 bar
undir hana hug-
mynd um sér-
stakt úthverfa-
framboð.
Gísladóttir. Formaður
íbúasamtaka
Grafarvogs segir aö mótvægi vanti
við svokallaða 101-stefnu yfirvalda
en Ingibjörg hafnar því alfarið að
einblínt hafl verið á miðbæinn. „Ef
við horfum á uppbygginguna i borg-
inni hefur hún að langmestu leyti
átt sér stað í úthverfunum og þar
vegur Grafarvogur þyngst." Sem
dæmi hafi fimm nýir grunnskólar
verið byggðir í Grafarvogshverfum
en á hinn bóginn hafl einnig verið
hugað að ýmsum eldri hverfum
borgarinnar, sem hafi verið tíma-
bært.
Borgarstjóri segir að öllum sé
frjálst að bjóða fram en treystir sér
ekki til að meta áhrif svona sér-
framboðs á fylkingamar tvær, R-
listann og D-listann. í síðustu kosn-
ingum komu fram tvö minni fram-
boð, Launalistinn og húmanistar en
náðu ekki inn manni. -BÞ
Sjá nánar bls. 2.
Flugfélag íslands meö mest netviðskipti:
Stærsti verslun-
arvefur landsins
íslendingar hafa tekið raf-
rænu bókunarfyrirkomu-
lagi Flugfélags íslands fagn-
andi og var tæplega fjórða
hver ferð í innanlandsflugi í
nóvember sl. seld á Netinu.
Þetta er mikil hlutdeild mið-
að við að landanum bauðst þessi
möguleiki fyrst í febrúar sl. og hefur í
fór með sér aukið hagræði fyrir félag-
ið. Netsalan hjá Flugleiðum er hins
vegar aðeins um 5%.
Árni Gunnarsson, markaðsstjóri
FÍ, segist geta fullyrt að vefur flugfé-
lagsins sé oröinn langstærsti verslun-
arvefur íslands í dag. Salan í nóvem-
ber hafi verið um 21% á Netinu eða 32
milljónir. í heild hafl FÍ selt fyrir tæp-
ar 200 milljónir á Netinu í
ár.
Nýtingin hjá FÍ er mun
betri nú en í fyrra og má
álykta aö tilboðin í Net-
klúbbnum eigi nokkurn þátt.
Að sögn Árna er nýtingin
um 62% núna sem þykir nokkuð gott
í innanlandsflugi en á sama tíma hef-
ur ferðum fækkað enda minni umferð
innanlands en í fyrra. T.a.m. hefur
ferðum milli Akureyrar og Reykjavík-
ur verið fækkað um eina á dag en
ekki er búist við frekari fækkun í
bráð.
í kjölfar netvinsældanna hefur
símaþjónusta batnað, að sögn Árna,
þar sem kúnninn bíður skemur. -BÞ
Heiti potturínn
BBjfg!
Umsjón: Höröur Kristjánsson
netfang: hkrist@dv.is
Ný ræktunarstefna
Mestu fiskætur heims að eigin
mati, sjálf íslenska þjóðin, er hætt að
éta fisk og Laufey Steingrímsdóttir
hjá Manneldisráði hefur áhyggjur af
þessu. Ari Teits-,
son, formaður I
Bændasamtaka ís-
lands, hefur þó enn I
meiri áhyggjur af I
því að íslendingar
eru lika hættir að |
éta kjöt. Kjötneysl-
an er nú i sögulegu 1
lágmarki. Það er helst að þeir fáist
til að úða 1 sig pylsum og hamborg-
urum þegar þeir veltast ofurölvi út af
öldurhúsum um miðjar nætur. Menn
eru hins vegar alveg hættir að éta
væna síðubita, saltkjöt og kæfu. Þyk-
ir líklegt að Ari beini því nú til
bænda að þeir rækti héðan í frá fé
sem eingöngu gefur af sér læri og
hryggi og helst léttreykta svo hægt
sé að selja góðgætið sem londonlömb
fyrir jólin...
Skemmtanaskattur
Jón Kristjánsson, ráðherra heil-
brigðismála, sagði skömmustulegur
frá því í hálfum hljóðum í sjónvarpi
á dögunum að hann yrði sennilega
að hækka ýmis
gjöld á sjúklinga.
Allt væri þetta til
að redda ríkis-
sjóðnum hans Dav-
íðs Oddssonar sem
eitthvað er farið að
skrölta í. Þannig
verður nú sett 11%
hækkun á komugjöld til lækna. At-
hygli vekur hins vegar að í þessum
komugjöldum er svokölluð tíund sem
væntanlega er þá 10% af heildar-
komugjöldum. Tíund þessi er síðan
m.a. nýtt fyrir heilsugæslustarfsfölk
til ferðalaga og skemmtanahalds. í
heilbrigðisgeiranum er fólk sagt fara
hjá sér við að innheimta þessi stór-
hækkuðu gjöld af illa höldnum sjúk-
lingum sem gjarnan kalla komu-
gjöldin „skemmtanaskatt"...
I lið með fjendum sínum
Þaö er sannarlega margt skrýtið i
kýrhausnum. Þetta hefur berlega
komið í ljós viö fall íslenska ferðaris-
ans Samvinnuferða-Landsýnar. Ekki
er langt síðan,
Helgi Jóhanns- j
son réð þar rikj-
um. Þá var farið I
að síga verulega á
ógæfuhlið eftir j
harðan slag í ferða-
bransanum. Hafði I
Helgi m.a. stofnað 1
til svokallaös „Flugfrelsis" og hugs-
uðu Flugleiðir og þeirra ferðaskrif-
stofa, Úrval-Útsýn, Helga þegjandi
þörfina fyrir þetta uppátæki. Nú hef-
ur jörðin ferðast einn hring um sólu
og Samvinnuferðir á hausinn. Það
sem meira er, Helgi er nú farinn að
stýra Dublinarferðum með erkiljend-
unum í Úrvali-Útsýn í nafni Ferða-
skrifstofu íslands. - Ja, enginn veit
sína ævina...
Tímamótasigur Halifaxa
Á Halifaxvef Skessuhorns bregðast
ekki skemmtilegar frásagnir af
breska sparkvellinum. Segir þar að
eftir undraverða ósigurgöngu hafi
horskum höldum
Halifaxhrepps tekist
að klóra í bakkafuil-
an lækinn og rífa sig
upp á rasshárunum
þegar þeir mættu
hinu lítt árenniléga liði Þurrkvíar
(Torquay) sem er vinabær Staðarfells
í Dölum. Eftir að Halifaxar höfðu
rutt i sig kökum og kornmeti hvers
konar í leikhléi komu þeir aftur til
leiks, fllefldir, saddir og sælir. Það
var síðan Jón sonur Feita-Patreks
(Ian Fitzpatrick) sem innsiglaði
glæstan timamótasigur með bylm-
ingsskoti sem hafnaði bak við Ketil
Hjartarson, markvörð Þurrkviar.
Þetta var fyrsti deildarsigur Faxa
undir stjórn Aireks lága (Alan
Little) sem orðiö hefur að lúta svo
oft t gras að hann mun vera kominn
með heiftarlegt frjóofnæmi...