Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2001, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2001
31
I»V
Tilvera
Bíófrumsýningar:
Billy Bob í vafasömum málum
Bandlts
Bruce Willis, Billy Bob Thornton og Cate Blancett leika aðalhlutverkin.
burðarrásjn tekur síðan óvænta
stefnu þegar óhamingjusöm eigin-
kona (Cate Blanchett), ansi tæp á
geði, verður á vegi þeirra og slæst í
för með útlögunum. Bandits er
blanda af gamni og alvöru. Barry
Levinson hefur reynsu af hvoryt-
veggja, leikstýrði meðal annars
Robin Williams . í Goodmorning
Vietnam og gerði síðast hina bráð-
skemmtilegu Wag The Dog.
Bandits er sýnd í Smárabiói,
Regnboganum og Borgarbíói, Akur-
eyri
The Man Who Wasn’t Here
Joel og Ethan Coen eiga að baki
glæsilegan feril í kvikmyndaheim-
inum. Þeir hófu ferð sína með Blood
Simple sem þegar er orðin klassísk
og hápunktinum hingað til náðu
þeir með Fargo. The Man Who
Wasn’t Here er nýjasta kvikmynd
þeirra og hefur eins og fyrri mynd-
ir þeirra fengið góðar viðtökur hjá
gagnrýnendum sem og almenningi.
Myndin fjallar um rakarann Ed
Crane, sem starfar í smábæ í Kali-
forníu. Hann er óánægður með líf
sitt og gefur fljótt eftir þegar eigin-
kona hans freistar hans með tillögu
að fjárkúgun. Ed sér tækifæri til að
sleppa frá leiðinlegu lífi en þegar lít-
ið afbrot fer að snúa upp á sig lend-
ir hann fljótt í vandræöum. Með
helstu hlutverk fara Billy Bob
Thornton, Frances McDormand,
James Gandolfini og Michael
Badalucco.
The Man Who Wasn't Here er sýnd
í Stjörnubíói.
The Hole
The Hole er bresk kvikmynd leik-
stýrt af Nick Hamm, sem gerði með-
al annars Martha Meet Frank, Dani-
el and Laurence sem naut nokkurra
vinsælda. í The Hole segir frá því
þegar fjórir unglingar í breskum
einkaskóla komast að því að í kjall-
ara skólans er að flnna „holu“ sem
fyrir mörgum áratugum var notuð
sem byrgi þegar gerðar voru loft-
árásir á England. En það er ekki
víst að allir þeir sem fóru niður í
holuna komist aftur upp. I aðalhlut-
verki er bandaríska unglingastjarn-
an Thora Birch. Auk hennar leika í
myndinni Desmond Harrington,
Daniel Brocklebank og Embeth Dav-
idtz.
The Hole er sýnd í Sam-bíóunum.
Þrjá kvikmyndir verða frumsýnd-
ar í kvikmyndahúsum í dag,
Bandits, The Man Who Wasn’t Here
og The Hole. Tvær þeirra fyrst-
nefndu eiga það sameiginlegt að
Billy Bob Thomton leikur aðalhlut-
verkið i þeim báðum. Sjálfsagt eru
æstustu aðdáendur Coen bræðra,
Joels og Ethens búnir að sjá The
Man Who Wasn’t Here þar sem
tvær sýningar voru á myndinni á
nýliðinni kvikmyndahátíð.
Bandits
Bandits er nýjasta kvikmynd hins
kunna leikstjóra Barry Levinsons. í
henni leika Bruce Willis og Billy
Bob Thornton tvo undarlega vini
sem strjúka úr fangelsi til þess eins
að ræna eins marga banka og þeir
geta en aðferðir þeirra eru ekki
hefðbundnar. Kvöldið fyrir ránið
ræna þeir bankastjóranum, gista
heima hjá honum og íjölskyldu
hans og daginn eftir ræna þeir
bankann í fylgd hans! Ótrúleg at-
The Man Who Wasn’t Here
Billy Bob Thornton leikur rakara sem
beitir fjárkúgun.
Uppáhaldsmyndin
Galdrakarlinn í OZ er listaverk
- Kristlaug Siguröardóttir, rithöfundur í Keflavík
„Veistu hvað klukkan er,“ spyr
Kristlaug María Sigurðardóttir, rit-
höfundur í Keflavik, þegar hringt er
í hana snemma á fimmtudags-
morgni og hún spurð um uppáhalds-
myndina sína. „Ég hugsa aldrei um
bíómyndir fyrir hádegi."
Kikka segist vera aö bíða eftir þvi
að fá eplaskífupönnu frá Danmörku
og að hún eigi hug sinn allan.
„Steiktar eplaskifur eru það eina
sem fjölskyldan saknar frá Köben
og vinkona mín ætlar að senda mér
sérstaka pönnu til að redda því.“
Skide-smart
Þegar Kikka er búin að jafna sig
tekur hún til máls og viðurkennir
að hún hafi mjög gaman af bíó-
myndum. „Ég fer reyndar ekki oft í
bíó eftir að ég eignaðist börnin en ef
ég fer þá fer ég á barnamyndir.
Ég á nokkrar uppáhaldsmyndir
sem erfitt er að velja á milli og sú
fyrsta sem kemur upp í hugann er
Fifth Element eftir Luc Besson. Eft-
ir aö ég sá hana fékk ég hugmynd-
ina að graskerinu í Ávaxtakörfunni.
Divan í Fifth Element bjargar heim-
inum og graskerið er dívan í
Ávaxtakörfunni. Það fannst mér
„skide-smart“. Ætli Forrest Gump
sé ekki i öðru sæti, sagan er
skemmtileg og ég er alltaf veik fyr-
ir fólki sem er öðruvísi. Gestaboð
Babettu er líka í miklu uppáhaldi
eins og margar danskar myndir."
Mary Poppins
Kikka segist eiga DVD-tæki og
gott safn af myndum sem hún
horfi á reglulega. „Síðasta mynd-
in sem ég horfði á var Mary
Poppins og svo hef ég alltaf jafn
gaman af Galdrakarlinum í OZ, hún
er listaverk. Það eiga allir að eiga
þessar tvær myndir og horfa á þær
að minnsta kosti einu sinni á ári;
þær eru mannbætandi.
Síðasta mynd sem ég sá í bíó var
Nýi stíllinn keisarans. Mér fannst
hún ósköp skemmtileg en yfirleitt
horfi ég meira á bömin en myndina
þegar ég fer með þeim í bíó þannig
að ég er kannski ekki dómbær."
Að lokum segir Kikka að um
þessar mundir langi hana mest til
að sjá Mávahlátur en viti ekki
hvenær hún hefur tíma. „Ég verð
örugglega
upptekin
við að
steikja
epla-
skífur
allan
desem-
ber.“
-Kip
Danskar myndir í uppáhaldi
Kristlaug María Siguröardóttir, rithöfundur í Keflavík,
segist horfa reglulega á Mary Poppins.
The Testimony of Taliesin Jones
★★★ (0*S2!'s
í eigin hugarheimi
Hinn tólf ára gamli
Taliesen Jones er
kominn í sálar-
kreppu. Eftir að móð-
ir hans yfirgaf fjöl-
skylduna verður
hann mjög ráðvilltur
og á erfitt með að
flnna sér stað í sam-
félaginu. Faðir hans og bróðir sætta
sig betur við hvernig komið er þó
faðirinn geri sér enn vonir um að
eiginkonan snúi aftur þegar hún
hefur fengið nóg af borgarlífinu.
Heimilislífið er þvingað og Jones
fær frið í sálinni með því að vera í
nánu sambandi við píanókennara
sinn, eldri mann, sem einnig er heil-
ari. Sá segist muni kenna Jones
heilun verði hann duglegur að læra
á píanó. Þroski Jones er samt ekki
meiri en svo að hann telur að gegn-
um heilun og nógu sterka trú geti
hann læknað fólk af hverju sem er.
Gerir hann tilraun á skólafélaga
sinum með miður góðum árangri.
The Testimony of Taliesen Jones
er einstaklega ljúf og gefandi, kvik-
mynd sem heldur á lofti sterkri
barnstrú sem verður fyrir miklu
áfalli. Jones skapar sér heim með
hjálp trúarinnar. Þannig getur hann
verið í góðu sambandi við föður
sinn og móður. Eins og oft vill verða
með góðan leik hjá börnum þá lifir
John Paul MacLeod sig inn í hlut-
verkið. Nær hann auðveldlega að
bera myndina uppi meö stuðningi
hinna reynslumiklu leikara, Jon-
athan Pryce, Ian Bannen og Geraldi-
ne James. -HK
Útgefandi: Skífan. Lelkstjóri: Martin Duf-
fy, Bretland, 2000. Lengd: 93 mín. Leik-
arar: John Paul Macleod, Geraldine
James og Jonathan Price. Leyfö öllum
aldurshópum.
Bait ★★
Sjón er sögu ríkari
Það er ótrúlegt
hvað eðlilegt það
virðist að blanda
teiknimynd og
leikna mynd. Ekki
eru nema nokkur ár
síðan Who Framed
Roger Rabbit? þótti
stórkostlegt tækni-
afrek. Með aukinni tölvutækninni
virðist þetta ekki vera neitt til-
tökumál eins og sjá má i Monkey-
bone, en aðal myndarinnar er
hversu eðlilegt það er fyrir Brend-
an Fraser að leika á móti teikni-
fígúrum og hvernig í raun hægt er
að fella þetta saman án nokkurs
misræmis.
Fraser leikur teiknimyndasögu-
höfundinn Stu Miley, höfund Mon-
keybone, sem er mjög vinsæl
teiknimyndasaga. Þegar við hefj-
um leikinn er verið að tilkynna að
Monkeybone verði sjónvarpssería.
Allir eru upphafnir af hrifningu
nema Stu sem er með hugann við
annaö. hann ætlar nefnilega að
biðja sér kvonfangs um kvöldið.
Áður en að því veröur lendir hann
í bílslysi og fellur í dauðadá eða
svo halda allir. Þetta er samt ekki
alls kostar rétt. Stu er kominn á
fulla ferð í sína eigin teiknimynda-
sögu og er alls ekki ánægður með
dvölina í furðuheimi sem hann
hefur skapað.
Monkeybone er kvikmynd sem
hefur myndmálið fram yfir texta.
Sagan er aukaatriði og rómantíkin
í myndinni hverfur alveg fyrir
ærslaganginum í teiknimynda-
flgúrunum svo maður tali ekki um
þegar teiknimyndahetjan Monkey-
bone bregður sér í líkama skapara
síns. Gallinn er að í öllum hama-
gangnum nær myndin ekki al-
mennilegu flugi, lyftist af og tO
upp en dettur jafnóðum niður aft-
ur. -HK
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Henry
Selick. Bandaríkin, 2001. Lengd: 97
mín. Leikarar: Brendan Fraser, Bridget
Fonda, Chris Kattan og Whoopi Goldberg.
Ekki viö hæfi ungra barna.