Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2001, Blaðsíða 15
1-
15
FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001___________________________________________________________________________________________
DV Útlönd
Síöustu meginvígi talibana í Afganistan fallin:
Uppgjöf í Kandahar og Tora Bora
einnig á valdi Noröurbandalagsins
Hersveitir talibana í Kandahar, síð-
asta höfuðvígi talibanahreyfingarinn-
ar í Afganistan, byrjuðu í morgun að
afhenda vopn sín samkvæmt uppgjaf-
arskilmálum sem samþykktir voru af
foringum hersveita andstæðinga
þeirra í gær, þar sem gert var ráð fyr-
ir að talibanar gæfust skilyrðislaust
upp og hermenn þeirra afhentu sér-
skipuðu ráði samansettu af ættbálka-
foringjum, íslömskum fræöimönnum
og fyrrum foringjum mujaheddin-
hreyfingarinnar öU vopn sín.
Það var nýskipaður leiðtogi nýrrar
bráðabirgðaríkisstjórnar Afganistans,
Hamid Karzai, sem fundaði með for-
ingjum talibana í Kandahar í gær, en
engar fréttir voru af afskiptum
MuUah Mohammad Omars, trúarleið-
toga talibana eða nánustu aðstoðar-
manna hans af samningunum, en
hingað til hefur Omar skipað mönn-
um sinum að berjast tU síðasta blóð-
dropa. Talibönsku samningamenn-
irnir höfðu þó farið fram á sakarupp-
gjöf til handa trúarleiðtoganum, sem
Bandaríkjamenn hafa aftur á móti al-
Bandarískur sérsveitarmaður í fullum skrúöa
Bandarískar sérsveitir hafa veriö hersveitum andstæðinga taiibana til trausts
og haids í Kandahar og Tora Bora, en bæöi svæöin eru nú á valdi hersveita
Noröurbandaiagsins.
gjörlega hafnað, en Karzai sagði í gær
að auðvitað yrðu æðstu foringjar tali-
bana að sæta ábyrgð. „Verði þeir
fundnir sekir verða þeir afhentir al-
þjóðlegum dómstólum," sagði Karzai.
Donald Rumsfeld, landvarnaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær að
foringjar talibana og al-Qaeda-samtak-
anna þyrftu ekki endUega að koma
fyrir bandaríska dómstóla, heldur
væri aðalatriðið að færa þá réttvís-
inni og dæma í málum þeirra.
Samkvæmt nýjustu fréttum mun
vígi talibana í Tora Bora einnig faUið,
eftir viku-umsátur og stöðugar
sprengjuárásir Bandaríkjamánna. Að
sögn Mohammad Habeels, talsmanns
Norðurbandalagsins, náðu hersveitir
þeirra aðalbækistöð al-Qaeda-samtak-
anna á sitt vald seint í gærkvöldi og
þar með aðalheUasvæðinu. „MestaUt
Tora Bora-hérað er á okkar valdi, en
ekkert hefur enn sést tU bin Ladens.
Hann hefur ekki sést á svæðinu síð-
ustu daga og ef hann hefur verið hér
þá er hann eflaust flúinn til Pakist-
ans,“ sagði Habeel.
REUTER-MYND
Á vakt við moröstaöinn
Lögregla gætir innkeyrstunnar aö
plastverksmiðjunni í indiana i
Bandaríkjunum þar sem óánægður
starfsmaður drap vinnufélaga sinn
áöur en hann svipti sig lífi.
Drap vinnufélaga
og sjálfan sig
Óánægður starfsmaður í plast-
verksmiðju í Indiana í Bandaríkjun-
um skaut samstarfsmann sinn til
bana í gær og særði sex aðra áður
en hann svipti sig lífi.
Vopnaðir lögregluþjónar sátu um
verksmiðjuna í tvær klukkustundir
í gær eftir að skothríðin hófst.
Fyrstu fréttir hermdu að 35 manns
hefðu orðið fyrir skotum.
Dagblað í Indiana sagði að byssu-
maðurinn hefði lent í rifrildi við
samstarfsmann sinn og verið send-
ur heim til að róa sig í nokkra daga.
Hann hafði þá í hótunum og kom
aftur um þremur stundum síðar
vopnaður haglabyssu.
REUTER-MYND
Hraust kona í Pétursborg
Hin 72 ára gamla Ljúdmíla Túmasova lætur sig ekki muna um aö bregöa sér út í ískalda ána Nevu í miðborg
Pétursborgar í Rússlandi til aö fá sér baö. Hitastigið var mínus tíu gráöur þegar þessi mynd var tekin i gær. Ljúdmíla
ku víst stunda það aö henda sér út í ískalt vatniö þar sem hún fær sér sundsprett.
REUTER-MYND
Utanlegsfóstur
Sophie, eiginkona Játvarös prins á
Englandi, gekkst undir aögerö vegna
utanlegsfósturs í gær.
Kona Játvarðs
missti fóstrið
Sophie, eiginkona Játvarðs prins
á Englandi, liggur nú á sjúkrahúsi í
London þar sem hún er að jafna sig
eftir að hafa misst utanlegsfóstur.
Sophie, sem er 36 ára, var flutt i
skyndi með þyrlu frá sveitasetri
sínu á sjúkrahús i London í gær þar
sem hún gekkst undir aðgerð eftir
að uppgötvaðist hvers kyns var.
„Hún var flutt á sjúkrahús þar
sem henni hafði ekki liðið vel nótt-
ina áður. Búist er við að hún verði
þar í nokkra daga,“ sagði talskona
drottningar í Buckinghamhöll. Ját-
varður prins er við hliö konu sinn-
ar á sjúkrahúsinu.
Utanlegsfóstur getur verið hættu-
legt og þarf alltaf að fjarlægjast. Það
getur einnig leitt til minni frjósemi.
Brahimi gerir lít-
ið úr ágreiningi
Lakhdar Brahimi, sérlegur sendi-
maður Sameinuðu þjóðanna í
Afganistan, reyndi í gær að gera lít-
ið út þeim ágreiningi sem virðist
kominn upp um nýgert samkomu-
lag um framtíðarskipan mála í
Afganistan.
Stríðsherrann Abdul Rashid Dost-
um, af ættflokki úsbeka, sagði í gær
að þjóðarbrot hans fengi ekki nægi-
lega marga fulltrúa í nýju stjórninni
og Gailani, andlegur leiðtogi
pashtúna, sagði að ráðherraembætt-
unum væri misskipt.
„Ég hef ekki allt of miklar áhyggj-
ur af þessu,“ sagði Brahimi. „Sér-
hverju þjóðarbroti finnst það stærra
en öðrum finnst."
r og kók • Kjúklingur og kók • KJúklingur og kólc •