Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2001, Blaðsíða 25
29
FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001
DV Tilvera
Þriðji tortímandinn
Flest bendir nú til þess að
þriðja Termiator-myndin með
stórstjömunni Arnold Schwarzen-
egger í aðalhlutverki sé að verða
að veruleika, ef marka má nýj-
ustu fréttir frá kvikmyndaborg-
inni Hollywood. Áætlanir gera ráð
fyrir að hún verði ein dýrasta
mynd allra tíma og herma fréttir
að verið sé að semja við
Schwarzenegger um litlar 20 millj-
ónir punda. Kappanum veitir
reyndar ekkert af tekjunum og
því er talið nokkuð víst að hann
taki boðinu. Handritið mun þegar
klárt og mun ofurmennið þar fá
það hlutverk að kljást við
kventortímanda sem býr yfir ofur-
kröftum.. Ekki er enn vitað hvaða
leikkonu er ætlað það hlutverk,
en tökur á myndinni munu hefjast
í apríl af allt gengur samkvæmt
áætlun.
Bono maður ársins
Bono, söngvari poppgrúppunnar
U2, var á dögunum valinn Evrópu-
maður ársins af lesendum belgiska
vikublaðsins „Europian Voice“. Les-
endur völdu úr 50 nöfnum sem til-
nefnd höfðu verið af hópi blaða-
manna og mun Bono hafa verið til-
nefndur vegna framlags síns til
verkefnisins „Fellum niður skuldim-
ar“ sem samnefnd samtök, sem beita
sér fyrir hjálp fyrir fátækar þjóðir,
standa fyrir. Auk Evrópumanns árs-
ins var valið um niu aðra stórtitla
og þar á meðal um stjórnmálaleiö-
toga ársins í Evrópu og erlendan
stjórnmálaleiðtoga ársins en þar
urðu þeir Tony Blair og George W.
Bush fyrir valinu. Öllum titlunum
tiu fylgdu 5000 dollara verðlaun sem
viðkomandi titilhöfum var ætlaö að
gefa til einhvers hjálparstarfs
Carey til Kosovo
Poppstjaman Mariah Carey
heillaði hundruð bandarískra her-
manna þegar hún kom fram á
nokkrum skemmtunum sem
haldnar voru til að lifga upp á
andann hjá bandarísku friðar-
gæslusveitunum á Balkanskaga í
síðustu viku. „Við vildum færa
þeim svolitinn glans,“ sagði Carey
sem kom fram í tilheyrandi her-
mannabúningi. Hún flaug til
Skopje með leiguflugvél frá
London og þaðan með herþyrlu til
bækistöðvanna í Kosovo. „Við er-
um að kynna nýja diskinn minn í
Evrópu og því tilvalið að skeila
sér í heimsókn til strákanna í
Kosovo. Þeir fá lítið fri og mér
fannst þeir eiga þetta skilið,"
sagði Carey sem átt hefur erfitt að
undanfomu eftir að hafa fengið
taugaáfall fyrr í haust. Erfið ferð
hennar til Kosovo kom því vem-
lega á óvart.
Dagur hjá Mæðrastyrksnefnd:
Þorláksmessuös
í byrjun desember
Það er þvaga fyrir utan Sólvalla-
götu 48 þar sem Mæðrastyrksnefnd er
til húsa. Þetta er einn þeirra daga sem
opið er bæði fyrir móttöku og af-
greiðslu, auk þess sem tekið er við
umsóknum um jólamatargjafir. í fata-
afgreiðslunni er sannkölluð Þorláks-
messuös. Fatnaðurinn er á slám og í
hillum, körfum og kössum. Sumt er
nýtt, annað notað en allt vel útlítandi.
Fjöldi kvenna er að leita að einhverju
sem hentar á fjölskylduna og spyrjast
fyrir um vissar stærðir. Eina vantar
jólaföt á fjögurra ára dreng, aðra
peysu á ellefu ára strák, stóran. Af-
greiðslukonurnar leiðbeina eftir
mætti. Þær þekkja suma skjólstæðing-
ana og vita nákvæmlega hvað best
hentar. Þrengslin eru mikil. Það er
rótað og leitað. Þeir heppnustu fara út
með akkúrat það sem þá vantaði, aðr-
ir ætla að koma seinna og athuga
hvað þá verður á boðstólum en flestir
finna eitthvað nýtilegt fyrir sig og
sína, sumt á lágu verði, annað ókeyp-
is.
Treysta á kranavatnið
í eldhúsinu eru konur í óðaönn að
pakka brauðum, þykkmjólk og kókó-
mjólk í poka. Mjólkursamsalan og Ný-
brauð, Ömmubakstur og Myllan gefa í
viku hverri matvæli til nefndarinnar
og það væri synd að segja að þau
rynnu ekki út. í eldhúsdyrnar koma
þær, yngri og eldri konur, rétta fram
miða með tölu yfir fjölda barnanna
sem þær þurfa að seðja. Þær eru bún-
ar að gefa skýrslu í næsta herbergi.
Það er hringt. Lögreglan er á leiðinni.
Hafði hitt á konu og barn sem ekki
höfðu fengið að borða í marga daga.
DV-MYND GUN.
Formaðurinn og varaformaðurinn
Þær Ásgerður Jóna Flosadóttir og Bryndís Guðmundsdóttir huga að innpökkun á gjöfum.
Á fatalagernum
Magnea og Guðrún taka upp föt og sortéra.
DV-MYND E.ÖL.
starfinu uppi og hafa gert í áraraðir,
endurgjaldslaust. Kassar og svartir
pokar með fatnaði og fleiru hrúgast
inn. Þetta er varningur sem fólk er að
gefa. Vonar að hann komi að notum.
Sumt af fatnaðinum er vel útlítandi,
annað er slitið, jafnvel með málning-
arblettum. Það fer i sérstaka poka.
Flest fer beint fram í afgreiðslu, ann-
að á slá á lagernum. Það koma skór,
gardínur, húfur, alls konar fót og for-
kunnarfallegir jóladúkar. Magnea
Tómasdóttir er að taka í sundur
pappakassa svo þeir taki minna pláss
því öðru hvoru er gangurinn alveg að
stíílast. Inn kemur poki, ansi þungur.
Þegar farið er að skoða í hann reynist
innihaldið rök föt og hálffrosin.
Næsta sending er notalegri. Það er
fullur poki af af smábarnafotum, sam-
anbrotnum og straujuðum. Þau fara í
bunka í barnafatarekkanum og stuttu
seinna sé ég að hann hefur minnkað
verulega. „Eigið þið nokkur leikfóng
sem hægt er að setja í jólapakka?"
spyr ein ung kona hæversklega? Hún
heldur á lítilli stúlku í fanginu." Jú,
falleg dúkka finnst á lagernum. Kon-
an verður himinlifandi og flýtir sér að
stinga henni í poka svo litla daman
reki ekki augun í hana.
Margir leggja liö
Nú þarf að rýma til því væn send-
ing er komin frá Ora. Það fer í
jólamatarpakkana þegar að þeim kem-
ur. Gleðitíðindi berast um fjárstuðn-
ing frá Blómaváli, Samtökum verslun-
arinnar og Velferðarsjóði barna, til
viðbótar við myndarlegan styrk frá
Rydenskaffi. Allt mun þetta koma í
góðar þarfír því auk um 1000 jólamat-
arpakka gefur Mæðrastyrksnefnd
matarmiða í Bónus. f fyrra nam sú
upphæð fimm milljónum. Konurnar í
Mæðrastyrksnefnd segja neyðina enn
meiri nú.
-Gun.
Það er pakkað í væna poka handa
þeim. Fimmtíu matarpokar renna út
þennan daginn og dugar ekki til. Ás-
gerður Flosadóttir, forstöðukona
Mæðrastyrksnefndar, segir þennan
dag ekki sérstaklega annasaman. Oft
sé neyðin mun meiri þegar líði að
mánaðamótum, enda séu sumar kon-
ur þá farnar að treysta á kranavatnið.
„Það er staðreynd að til eru konur
sem þurfa að svelta sig til að eiga fyr-
ir mat handa börnunum sínum,“ seg-
ir hún og telur einstæðar mæður sem
orðið hafi öryrkjar ungar að árum
vera hvað verst settar. Annars er ekki
auðhlaupiö að því að ná Ásgerði í við-
tal. Hún er á fullu að taka við um-
sóknum um jólamat og meta þörf
hvers og eins. Það er biðröð út úr dyr-
um. Allir þurfa að gefa nákvæmar
upplýsingar um sínar aðstæður,
heilsufar, laun og fjölskyldustærð og
Ásgerður fær að heyra margar rauna-
sögur.
Rök föt og hálffrosin
Leiðin liggur inn á lager. Þar eru
þær Guðrún Magnúsdóttir og Kristín
Halldórsdóttir að handleika fót. Þess-
ar konur og nokkrar aðrar halda
Hljómsveitin
SNILLINGARNIR
HLJOMAR
Allir íþróttaviðburðir í beinni á risaskjám. Pool. Góður matseðill.
Tökum að okkur hópa, starfsmannafélög. Stórt og gott dansgólf.
LAUGARDAGSKVOLD
FOSTUDAGSKVOLD
f beinni iaugardag kl. 15.00: Liverpool - Middiesborough
og Man. Utd - West Ham