Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2001, Side 11
FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001
11
DV
Fréttir
,Nýhöfn“ austan Ingólfsgarðs í Reykjavík:
Yfirbyggð smabatahofn
rétt við miðbæinn
- með 20 hæða hóteli, verslunum, veitingastöðum og íbúðum
Nú stendur yfir opin hugmynda-
samkeppni um deiliskipulag þess
hluta miðbæjar Reykjavíkur sem
snýr að höfninni. Þar er m.a. gert
ráð fyrir að nýtt tónlistarhús muni
rísa. Um 40 tillögum hefur verið
skilað inn en úrslit verða kunngerð
í janúar. Til hliðar við þessa sam-
keppni hafa Guðjón Magnússon
arkitekt og Bjöm Emilsson kvik-
myndagerðarmaður, undir nafninu
Tvitindar, varpað fram skemmti-
legri hugmynd sem þeir kalla „Ný-
höfn“ í Reykjavík.
Sagt er frá þessari hugmynd í 2.
tbl. tímaritsins avs - arkitektúr
verktækni og skipulag. í stórum
dráttum felst hugmyndin í því að
byggja trillu- og smábátahöfn með
yfirbyggðu glerþaki við Reykjavík-
urhöfn, austan við Ingólfsgarð. Yrði
hún í bland við ýmiss konar þjón-
ustu og íbúðarbyggð. Segir í grein-
argerð með tillögunni að staðnum
sé ætlað að vera þyrping sem yrði
eins konar athvarf islenskrar ferða-
þjónustu og þeirra sem á einn eða
annan hátt tengjast sjósókn.
Áhersla verður lögð á að planta
íslenskum trjá- og blómagróðri við
höfnina, auk nýtingar á íslensku
grjóti og jafnvel klettaborgum sem
komið yrði fyrir í hafnarrýminu.
Samtengt höfninni yrði innangengt
í fjögurra stjörnu 300 herbergja hót-
el. Þarna yrðu einnig verslanir og
fyrirtæki, tengd ferðaþjónustu og
MYNDIR - TVITINDAR
Nýhöfn í Reykjavík
Hugmyndir um fjölþætt þjónustu- og
íþúöasvæði ásamt smáóátahöfn
ásamt viðlegukanti fyrir skemmti-
ferðaskip við Reykjavíkurhöfn.
Höfundarnir, Guðjón Magnússon
arkitekt og Björn Emilsson kvik-
myndagerðarmaður, vonast til að
„Nýhöfnin“ geti fallið að þeirri
hugmynd sem sigrar i samkeppni
um deiliskipulag svæðisins.
fiskiðnaði. Einnig er gert ráð fyrir
íbúðarbyggingum sem seldar yrðu á
frjálsum markaði, almennum versl-
unum og veitingastöðum. Við þetta
svæði er ráðgert að koma upp við-
leguaðstöðu fyrir erlend skemmti-
ferðaskip, jafnvel af stærstu gerð.
Landrýmisþörf vegna þessa er
áætluð 45.000 fermetrar og reiknað
er með að heildarkostnaður vegna
framkvæmda yrði um 5,7 miiljarðar
Borgarráö Reykjavíkur:
Vilja rafrænar
kosningar
Borgarstjóri lagði
fram tillögu í borgar-
ráði í vikunni um að
því yrði beint til fé-
lagsmálaráðherra „að
hann beiti sér fyrir
breytingu á lögum nr.
5/1998 um kosningar
til sveitarstjóma
þannig að sveitar-
stjómum verði heimilt að nota rafræna
kjörskrá við sveitarstjómarkosningar
25. maí nk.“ Sem kunnugt er féll sú
vinna um sjálfa sig eftir að dómsmála-
ráðhema missti áhugann í kjölfar sam-
þykktar á Landsfundi sjálfstæðismanna
um að ekki væri rétt að taka upp rafræn-
ar kosningar að svo komnu máli. -BG
Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir.
króna. Þarna yrðu 20 íbúðir, sam-
tals 4 þúsund fermetrar, og 8 þús-
und fermetra verslunar- og þjón-
usturými. Burðarásar hugmyndar-
innar eru viðlegupláss og hótelbygg-
ing samtals upp á um 3 milljarða
króna.
Guðjón Magnússon arkitekt segir
að þeir félagar hafi unnið að þessari
hugmynd í tvö ár. Búið væri að
kynna hana fyrir fjölmörgum aðil-
um og hafi hugmyndinni verið vel
tekið bæði af Reykjavíkurborg,
hafnaryfirvöldum og hótelrekend-
um. Það væri ekki síst fyrir þær
sakir að þessu verkefni yrði skipt
niður i framkvæmdaeiningar og
ekki skemmi fyrir nálægðin við
miðbæinn og væntanlegt tónlista-
hús. Þá segir hann töluverðan
áhuga fyrir fjögurra stjörnu hóteli á
þessum stað sem þykir rekstrar-
vænlegra enflmm stjömu hótel sem
hugmyndir hafa verið um að byggja
í tengslum við tónlistarhús. Segir
Guðjón hótelið utan aðflugslínu aö
Reykjavíkurflugvelli og því sé ekk-
ert því til fyrirstöðu að það geti ver-
ið upp á 20 hæðir. -HKr.
Sérfræðingar í
viðgerðum og
viðhaldi á Sony
og Panasonic
tækjum.
^ Radióverkstæðið
Sonn?*
Einholti 2 • sími 552 3150
Panasonic
Veðurhúsin
({omin aftur
_ , , A. A. riiiftmiinrliir
Sendum I Hermannsson
DÓStkrÖfUj^^^m. Bæjarlind 1
Æmfíæm. « 554 7?70
Þú
staðgreiðir
eða borgar
með korti
Nýtt flugfélag boðar ferðir til þriggja borga Evrópu:
London 16 sinnum í viku
Nýtt íslenskt lággjaldaflugfélag er
í burðarliðnum og fyrirhugað að
áætlunarflug félagsins hefjist á vor-
mánuðum. Áfangastaðirnir verða
þrir, flogið verður 16 sinnum á viku
til London, 7 sinnum til Parísar og 6
sinnum til Barcelona. Bókanir hefj-
ast á næstu vikum.
Að sögn Jóhannesar Georgsson-
ar, forsvarsmanns nýja félagsins,
hefur stofnun fyrirtækisins verið í
undirbúningi síðustu tvö árin.
Hann segir reksturinn byggjast á
óhefðbundinni aðferðafræði sem
London
Áfangastaður
nýja flugfélags-
ins auk
Barselóna og
Parísar.
ætlað sé að skila
sér í lægri far-
gjöldum til neyt-
enda. „Við verð-
um með sölu-
skrifstofur t
hverri borg en
höfuðstöðvarnar
verða í Reykja-
vík. Auk þess
munum viö selja
farmiða í gegnum
ferðaskrifstofur
og á Netinu. Yfir-
bygging verður lítil hjá fyrirtækinu
og gengur út á mikið hagræði hvað
varðar kostnað,“ segir Jóhannes.
Að félaginu stendur að sögn Jó-
hannesar hópur fjárfesta en hann
sagði í samtali við DV að ekki væri
tímabært að gefa nöfn þeirra upp.
Ekki liggur ljóst fyrir hvernig
flugflotinn verður samsettur en Jó-
hannes segir fyrirtækið vera að
skoða tvo möguleika í þeim efnum.
Um sé að ræða 140 sæta flugvélar og
verður flugið boðið út í stað þess að
leigja vélarnar. -aþ
viö veitum
18%
afslátt af
smáaugiýsingum
W lpp,fc:‘-... - / —
wamðLá 550 5000
EUROCARD
Masteri
smaauglysingar@dv.is
Skoðaðu smáuglýsingarnar á