Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2001, Page 12
12
FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001
Viðskipti
Umsjón: Viöskiptabladið
Skífan sektuð
um 25 milljónir
- fyrir brot á samkeppnislögum
Verslun Skífunnar viö Laugaveg
Samningurinn Skífunnar og Baugs útilokaði, nánast að fullu, önnur heild-
sölu- og dreifingarfyrirtæki á hljómdiskum en Skífuna frá því að koma
geisladiskum í sölu í verslunum Baugs.
Samkeppnisráð hefur komist að
þeirri niðurstöðu að í samningi
Skífunnar hf. og Aðfanga hf. um
einkakaupasamning á hljómdisk-
um felist alvarlegt brot Skífunnar
á samkeppnislögum. Með samn-
ingnum hafi fyrirtækið misnotað
markaðsráðandi stöðu sina og ger-
ir Samkeppnisráð Skífunni að
greiða 25 milljóna króna sekt í rik-
issjóð vegna þessa brots. Eftir
breytingar á samkeppnislögum,
sem tóku gildi fyrir réttu einu ári,
er það meginregla að leggja skuli
stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem
brjóta gegn bannákvæðum sam-
keppnislaga, segir í tilkynningu
frá Samkeppnisráði.
Skífan og Hagkaup, f.h. Aðfanga,
gerðu með sér samning í apríl 2001
sem gilda átti í tvö ár sem fól í sér
að Aðföng keyptu nær alla geisla-
diska til endursölu í verslunum
Baugs hjá Skífunni. Samningurinn
útilokaði, nánast að fullu, önnur
heildsölu- og dreifingarfyrirtæki á
hljómdiskum en Skifuna frá því að
koma geisladiskum í sölu í versl-
unum Baugs fram á árið 2003.
Japís hf. reyndi án árangurs að
semja um að koma hljómdiskum í
dreifingu í verslanir Baugs. Samn-
ingurinn við Skifuna kom i veg
fyrir það. Japís og Félag íslenskra
hljómlistarmanna sendu sam-
keppnisyfirvöldum erindi vegna
þeirra samkeppnishindrana sem
samningur Skífunnar og Aðfanga
felur í sér.
í máli því sem hér um ræðir
kemur fram að Skífan lagði á það
áherslu við gerð samningsins við
Aðföng aö hann væri einkakaupa-
samningur og Skífan sæi um að
velja nær allt efni til sölu í versl-
unum Baugs. Með því að veita til-
tekinn afslátt knúði Skífan fram
samninginn. Gögn málsins bera
það einnig með sér að samningur-
inn hafi verið gerður til að útiloka
kvartanda í málinu og aðra keppi-
nauta frá markaðnum og þannig
haft þann tilgang að styrkja eða
viðhalda markaðsráðandi stöðu
Skífunnar. Með vísan til aðstæðna
og gagna málsins telur samkeppn-
isráð að umræddur samningur feli
í sér misnotkun Skífunnar á mark-
aðsráðandi stöðu fyrirtækisins og
teljist vera alvarlegt brot á 11. gr.
samkeppnislaga.
Markaðsráöandi fyrirtæki geta
með aðgerðum sínum raskað sam-
keppni og skaðað hagsmuni neyt-
enda. Leggja samkeppnislögin því
ríkar skyldur á herðar slíkra fyrir-
tækja svo þau vinni ekki gegn
markmiðum laganna. í þessu máli
telur samkeppnisráð nauðsynlegt
að beita sektum til að tryggja að
Skífan láti af lögbrotum í framtíð-
inni og telur samkeppnisráð hæfi-
legt að leggja 25 milljón króna sekt
á fyrirtækið.
Síminn sektaður um 40 milljónir
vegna misnotkunar á markaðsráöandi stöðu. Mun áfrýja ákvörðun Samkeppnisráðs
Samkeppnisráð hefur lagt 40 millj-
óna króna sekt á Landssíma íslands
vegna misnotkunar fyrirtækisins á
markaðsráðandi stöðu þess. í máli þar
sem Síminn náði samningum við Hafn-
arfjarðarbæ um síma- og gagnaflutn-
ingsþjónustu komst Samkeppnisstofn-
un að því að hallað hefði á fyrirtækið
Titan í eigu Íslandssíma, sem hafði
einnig gert tilboð í sama verkefni, og
að í samningnum felist því alvarlegt
brot Landssímans á samkeppnislögum.
Samkeppnisráð hefur gert Landssíman-
inn að greiða 40 milljónir króna i sekt
til ríkissjóðs vegna þessa brots. Eftir
breytingar á samkeppnislögum, sem
tóku gildi fyrir réttu ári, er það megin-
regla að leggja skuli stjómvaldssektir á
fyrirtæki sem bijóta gegn bannákvæð-
um samkeppnislaga.
Á haustdögum síðastliðins ár áttu
sér stað samningaviðræður Landssím-
ans og Hafnarfjaröarbæjar um síma- og
gagnaflutningsþjónustu fyrir bæinn og
hafði fjarskiptafélagið Títan hf. einnig
áhuga á þessu verkefni og óskaði eftir
því aö fá að gera tilboð í verkið. Þann
12. desember sendi Títan tilboð en bær-
inn ákvað að taka tilboði Landssímans
og var samningur þar að lútandi undir-
ritaður þann 28. desember 2000. Títan
sendi samkeppnisyfirvöidum erindi og
taldi að Landssiminn hefði brotið sam-
keppnislög með þessum samningi.
Hafnarfjarðarbæ óheimilt að
eiga viðskipti við aðra
Samkeppnisráð telur í ákvörðun
sinni að gögn málsins gefi skýrt til
kynna að Landssíminn hafi misnotað
markaðsráðandi stöðu sína með gerð
samningsins við Hafnarfjarðarbæ. Fyr-
UPPBOÐ
Framhald uppboös á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Austurströnd 3, 0102, 175,50 fm, Sel-
tjamamesi, þingl. eig. I. Brynjólfsson og
Co ehf., gerðarbeiðandi Jón Ólafsson,
þriðjudaginn II. desember 2001 kl.
11.30.
Bræðraborgarstígur 43, 0102, verslunar-
hús á 1. hæð t.h. m.m., Reykjavík, þingl.
eig. Kjörbúð Reykjavíkur ehf., gerðar-
beiðendur Byko hf., Söfnunarsjóður líf-
eyrisréttinda og Tollstjóraembættið,
þriðjudaginn 11. desember 2001 kl.
10.30.
Hjaltabakki 10,0301,50% ehl. í 3ja herb.
íbúð á 3. hæð, 76,9 fm m.m., Reykjavík,
þingl. eig. Kristín Gunnarsdóttir, gerðar-
beiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudag-
inn 11. desember2001 kl. 13.30.
Hrafnhólar 6, 0103, 4ra til 5 herb. íbúð á
I. hæð m.m., bílskúr merktur 040117 og
geymsla í kjallara, merkt 0037, Reykja-
vík, þingl. eig. Steina Steinarsdóttir, gerð-
arbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn
hf. og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn
II. desember 2001 kl. 14.00.
Hverfisgata 82, 010101, verslunarhús-
næði í A-enda, 35,7 fm, Reykjavík, þingl.
eig. Sigtún 7 ehf., gerðarbeiðandt Húsfé-
lagið Hverfisgötu 82, þriðjudaginn II.
desember2001 kl. 16.00.
Orrahólar 7, 0303, 3ja herb. íbúð á 3.
hæð, merkt C, Reykjavík, þingl. eig.
Kristján A. Kjartansson, gerðarbeiðandi
íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 11. desem-
ber 2001 kl. 14.30. _____________
Skógarhlíð 10, 010002, 169,8 fm í kjall-
ara og 020102,820,1 fm vinnslusalur t.v.,
Reykjavík, þingl. eig. Vestfjarðaleið Jóh.
Ellertss ehf., gerðarbeiðendur Hekla hf.
og Islandsbanki-FBA hf., þriðjudaginn
11. desember 2001 kl. 10.00.
Torfufell 35, 0303, 3ja herb. íbúð á 3.
hæð t.h. m.m., Reykjavík, þingl. eig. Þór-
ir Úlfarsson og Lilja Hraunfjörð Huga-
dóttir, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður,
Skóladagheimilið Völvukot og Toll-
stjóraembættið, þriðjudaginn 11. desem-
ber 2001 kl. 15.00,__________________
Yrsufell 18, Reykjavík, þingl. eig. Ragn-
heiður Björgvinsdóttir, gerðarbeiðandi
Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 11. des-
ember2001 kl. 15.30.
Öldugrandi 5, 5 herb. íbúð, merkt 0203,
Reykjavík, þingl. eig. Hans Sigurbjöms-
son og Ásta Jónsdóttir, gerðarbeiðandi
Ibúðalánasjóður, þriðjudaginn 11. desem-
ber 2001 kl. 11.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Síminn sektaöur
Stjórn Landssímans hefur ákveðið að
áfrýja ákvörðun Samkeppnisráðs um
greiðslu þessarar sektar
irtækið hafi með óeðlilegum aðgerðum
náð þessum viðskiptum og skaðað
stöðu keppinauta fyrirtækisins. Samn-
ingurinn fól m.a. í sér að Hafnarfjarð-
arbæ væri óheimilt á samningstíman-
um að eiga viðskipti við aðra en Lands-
símann um sima- og gagnaílutnings-
þjónustu. „Slík einkaréttarákvæði i
samningi markaðsráðandi fyrirtækis
fela í sér skýrt brot á samkeppnislög-
um. Það hefur skaðleg áhrif ef fyrir-
tæki eins og Landssíminn reyna meö
þessum hætti að halda keppinautum--.
sinum frá markaðnum. Samkeppni á
fjarskiptamarkaðnum er takmörkuð
vegna yfirburðastöðu Landssimans og
allar frekar hömlur á samkeppni vegna
háttsemi Landssímans eru óásættan-
legar og andstæðar hagsmunum neyt-
enda,“ segir í tilkynningu frá Sam-
keppnisstofnun.
Jafnframt var kveðið á um það í
samningnum að Landssíminn veitti
Hafnarfjarðarbæ afslátt af viðskiptum
sem þegar höfðu átt sér stað allt að 8-9
mánuöum áður en samningurinn var
gerður. Slík afturvirk afsláttarkjör eru
óeðlileg og óvenjuleg. Sú athöfn Land-
símans sem fyrirtækis í yfirburðastöðu
á fjarskiptamarkaði, að setja ákvæði
um afturvirkan afslátt í samning um
sölu á fjarskiptaþjónustu, hefur skaðleg
áhrif á samkeppni og hindrar aðgang
annarra að markaðnum. Sama á við
um þaö ákvæði samningsins sem kveð-
ur á um endurgreiðslu fjarskiptasam-
banda sem Hafnarfjarðarbæ hafði láðst
að segja upp. Samningsákvæðin um af-
slátt voru þess eðlis að ekkert fyrirtæki
annað en Landssíminn gat veitt sam-
bærilegan afslátt.
Áfrýjar ávörðun
Samkeppnisráös
Landssíminn hefur viðurkennt að í
umræddum samningi felist óvenjuleg
ákvæði en fyrirtækið hélt því fram
fyrir samkeppnisráði að þau hefðu
komið til vegna mistaka. I ákvörðun
sinni felst samkeppnisráð ekki á þetta
heldur telur þvert á móti að gögn
málsins sýni ótvírætt að um meðvit-
aða aðgerð hafi verið að ræða sem
miðaði að því styrkja eða viðhalda
ráðandi stöðu fyrirtækisins. Lands-
síminn hafi margoft misnotað mark-
aðsráðandi stöðu sína. Hingað til hafi
samkeppnisráð kosið að beita ekki
sektarúrræðum samkeppnislaga held-
ur brýnt fyrir Landssimanum að gæta
hinnar sérstöku skyldu til að raska
ekki samkeppni sem hvílir á fyrirtæk-
inu skv. samkeppnislögum.
Stjórn Landssímans hefur ákveðið
að áfrýja ákvörðun Samkeppnisráðs
um greiðslu þessarar sektar og sendi í
gær frá sér yfirlýsingu þar sem kom
fram að vissulega væru í umræddum
samningi ákvæði sem orka kynnu tví-
mælis. Ákvæði þessi vörðuðu skilyrði
um einkakaup og afsláttarkjör og
komu að frumkvæði Landssímans
aldrei tfi framkvæmda. I úrskurðinum
hefði þetta haft áhrif til lækkunar á
ákvörðun sekta.
Enn fremur segir: „Með tilliti til þess
að Landssíminn að eigin frumkvæði
framkvæmdi aldrei hin umdeildu atriöi
þá er það skoöun Landssímans að sekt-
arúrræði sé alls óþarft í máli þessu,
auk þess sem sektarfiárhæð er úr öllu
samhengi við umfang og eðli málsins.
Það sem vekur einnig furðu er aö ráðið
líti til annarra ákærumála og láti það
hafa áhrif til hækkunar á sektarfiár-
hæðinni. Þau fyrri mál eru rakin allt
aftur til Póst- og símamálastofnunar-
innar og varða m.a. póstdreifingu sem
eðli málsins samkvæmt er Landssíman-
um óviðkomandi. Auk þess vekur at-
hygli að undir rekstri málsins gafst
Símanum ekki kostur á að tjá sig um
þessi gömlu mál. Virðist Samkeppnis-
ráð, að því leyti, hafa brotið andmæla-
rétt á fyrirtækinu," segir í tilkynningu
frá Símanum.
I>V
jf 4 ;T TTf?W?»l r-T
HEILDARVIÐSKIPTI 2.356 m.kr.
- Hlutabréf 172 m.kr.
- Ríkisbréf 1.336 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
ö Pharmaco 64 m.kr.
Landsbankinn 17 m.kr.
Marel 11 m.kr.
MESTA HÆKKUN
1 O Sjóvá-Almennar 5,6 %
O Opin kerfi 3,3 %
O Búnaöarbankinn 2,4 %
MESTA LÆKKUN
O Auölind 1,9%
O Kaupþing 1,6 %
© Bakkavör 1,4 %
ÚRVALSVÍSITALAN 1.092 stig
j - Breyting 0,28 %
KA innleiðir
Vigor-viðskipta-
hugbúnað
Kaupfélag Árnesinga og Vigor
ehf., dótturfyrirtæki TölvuMynda
hf., hafa undirritað samning um að
KÁ taki í notkun Vigor-viðskipta-
hugbúnaö fyrir allar deildir fyrir-
tækisins. Um er að ræða fiárhags-
kerfi, viðskiptamannakerfi, eigna-
kerfi, rafrænt skönnunar- og fylgi-
ritakerfi, svo eitthvað sé nefnt. Inn-
leiðing er þegar hafin og mun nýja
kerfið verða tekið í gagnið fljótlega
eftir næstu áramót.
KÁ var stofnað 1. nóvember 1930
og hélt þvi upp á 70 ára afmælið á
síðasta ári. Lengst af var starfs-
svæðið bundið við Árnessýslu en á
síðustu árum hefur það þanist út og
nú eru starfsstöðvar félagsins allt
frá Keflavík og austur á Kirkjubæj-
arklaustur. Skiptist starfsemin í
fiögur svið, Fjármálasvið, Hótel- og
gistisvið, Búrekstrarvörusvið og
Bensín- og söluskálasvið.
Bláa lónið
fær verðlaun
í tengslum við ráðstefnu Ferða-
málaráðs íslands um heilsutengda
ferðaþjónustu, sem nú stendur yfir,
voru í fyrsta skipti afhent hvatning-
arverðlaun Ferðamálaráðs í heilsu-
tengdri ferðaþjónustu. Þau komu í
hlut Bláa lónsins.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra afhenti verðlaunin og i máli
hans kom fram að eins og ávallt
þegar verðlaun eru veitt væru
margir kallaðir en fáir útvaldir.
„Eitt fyrirtæki þykir þó standa upp
úr þegar kemur að veitingu þessar-
ar viðurkenningar nú í fyrsta skipt-
ið og var það samdóma álit allra í
Ferðamálaráði að Bláa lónið skyldi
hljóta verðlaunin,“ sagði Sturla m.a.
_________ 07.12.2001 kl. 9.15
KAUP SALA
Dollar 108,760 109,310
SSjjpund 155,120 155,920
1*1 Kan. dollar 69,080 69,510
! Dönsk kr. 13,0250 13,0970
lltiÉll Norsk kr 12,1490 12,2160
C3 Sænsk kr. 10,3710 10,4280
R. mark 16,3113 16,4093
j |Fra. franki 14,7849 14,8737
B 1 Belg. franki 2,4041 2,4186
Sviss. franki 65,7200 66,0800
Holl. gyllini 44,0088 44,2732
Þýskt mark 49,5864 49,8844
B ít. líra 0,05009 0,05039
Sá} Aust. sch. 7,0480 7,0903
j J Port. escudo 0,4837 0,4867
l.« . 1 Spá. peseti 0,5829 0,5864
1 9 | Jap. yen 0,86950 0,87480
| írskt pund 123,142 123,882
SDR 137,5600 138,3800
Hecu 96,9826 97,5653