Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002
Fréttir I>V
Sjóðir verkalýðsins eru stóreigendur í verslanakeðju Kaupáss:
Kaupás er ekkert
inn þrýstingi um
undanskil-
lækkanir
*
- segir framkvæmdastjóri Alþýðusambands Islands
I tilkynningaskriðu verðlækkana
verslana- og þjónustufyrirtækja und-
anfama daga hefur vakið athygli að
Kaupásverslanimar era ekki þar á
meðal. Þykir mörgum samt að þessu
verslanaveldi ætti eirma helst að renna
blóðið til skyldunnar og ganga á und-
an með verðlækkunum, launþegum tii
hagsbóta. Er þá bent á að stærsti hlut-
haflnn í félaginu er Eignarhaldsfélagið
Alþýðubankinn (EFA) sem aftur er af-
sprengi verkalýðshreyfmgarinnar. Þá
er fyrrum forseti Alþýðusambands ís-
lands, Ásmundur Stefánsson, stjórnar-
formaður fyrirtækisins.
Gylfi Ambjömsson, framkvæmda-
stjóri ASÍ, segir að sér fmnist þetta bil-
leg umræða, sem og tal Baugsmanna
um að þær verslanir sem tilkynnt hafa
vömlækkanir að undanfómu séu að
stunda auglýsingaskrum.
„Vissulega eram við að setja sama
þrýsting á Kaupás og alla aðra aðila á
þessum markaði. Alþýðusambandið á
ekki nema um 3% í EFA sem
er skráð félag á markaði og
rekið sjálfstætt. Þess vegna
stýrir Alþýðusambandið ekk-
ert Eignarhaldsfélaginu. Það er
þó ekkert undanskilið þessari
kröfu um að taka þátt í að sam-
komulagið um að kaup og kjör
haldi.“
Gylfi sagðist vilja benda á
það líka að lifeyrissjóðir væra
einnig hluthafar i Baugi og fyr-
irtækjum víða í þjóðfélaginu.
„Ég er þó ekki í nokkrum vafa um
það að lífeyrissjóðir era okkur sam-
mála um að þessum fyrirtækjum sé
mikið í mun að það takist koma á stöð-
ugleika. Það er ekkert prívatmál
verkalýðshreyfingarinnar. Við ætl-
umst til þess að stjómendur þessara
fyrirtækja, hvort sem það er Baugur,
Kaupás eða aðrir, meti það hvar hags-
munir þeirra liggja. Liggja þeir í því
að kaupmáttur fari hér út. í veður og
vind? Þessi fyrirtæki era al-
gerlega háð því hvaða vaxta-
stig er hér í landinu. Kaupás
er þar ekkert undanskilinn -
að sjáifsögðu ekki.
Við metum mjög mikils
tramtak BYKO, Húsasmiðj-
irnnar og Fjarðarkaupa. Það
kann vel að vera að stóri ris-
inn á markaðnum, sem ekki
getur tekið sig saman um að
fylgja þessu eftir, telji þetta
auglýsingaskrum. Mér er spum. Hvað
var það þá sem forystumenn Baugs
kynntu hér vorið 2000 undir heitinu
„Viðnám gegn verðbólgu?" - Var það
þá bara auglýsingaskrum?"
EFA er 34% hlutfiafi í Kaupási
í skýrslu stjómar Kaupáss í síðasta
ársreikningi samsteypunnar vora
hluthafar í lok ársins 2000 samtals 34
talsins en vora 16 í upphafi árs. Tveir
hluthafanna eiga meira en 10% hluta-
fjárins. Það era EFA (Eignarhaldsfé-
lagið Alþýðubankinn) með 33,98% og
Landsbankinn fjárfesting með 19,12%.
Hlutafé í félaginu þá var 732,4 milljón-
ir en var í lok desember það ár aukið
um 33,3 milljónir króna við kaup á
Intersport og Húsgagnahöllinni.
Undir væng Kaupáss era Nóatúns-
verslanir, 11/11-verslanimar, KÁ-
verslanir, Kjarvalsbúðir á Selfossi,
Húsgagnahöllin, Intersport og Krónu-
búðimar.
Eignarhaldsfélag Alþýðubankans
var samkvæmt ársreikningi 2000 í eigu
1.306 hluthafa. Tíu stærstu hluthafam-
ir eru: Sameinaði lifeyrissjóðurinn,
Lífeyrissjóðurinn Lífiðn, Verzlunar-
mannafélag Reykjavikur, Lífeyrissjóð-
ur verzlunarmanna, Efling stéttarfé-
lag, Rafiðnaðarsamband íslands, Líf-
eyrissjóðurinn Framsýn, ÍAV hf„
Landsbanki íslands og Alþýðusam-
band Islands. Aðrir eiga minna.
-HKr.
Bændum fækkar
íslenskum bænd-
um fækkaði rnn 120
í fyrra, samkvæmt
bráðabirgðatölum
frá Bændasamtök-
unum.ÝÝÞetta þýð-
ir rúmlega 2 bænd-
ur á viku. Ari Teits-
son, formaður
Bændasamtakanna, segir að stjórn-
völd gætu hugsanlega gert meira til
að halda landsvæðum í byggð, væri
vOji til þess. - RÚV greindi frá.
Ekki næturflug
Flugmálastjóm hefur kynnt bæj-
arstjóra og formanni bæjarráðs ísa-
fjarðarbæjar niðurstöðu skýrslu
sem danska ráðgjafafyrirtækið In-
tegra Consult A/S vann varðandi
nætui-flug til og frá ísafjarðarflug-
velli. Samkvæmt skýrslunni er það
ekki talið áhættunnar virði að
fljúga til ísafjarðar í myrkri. - BB
greindi frá.
DV flytur
í sögufrægt hús
Samningar voru undirritaðir í gær
um leigu Útgáfufélagsins DV á húseign
Þyrpingar við Skaftahlíð 24. Húsið er
sögufrægt, en þar var félagsmiðstöðin
Tónabær og áður Lídó rekin um langt
árabil.
Leigusamningurinn er til tíu ára, en
DV leigir allt húsið, sem er á tveimur
hæðum ásamt kjallara, alls um 2100
fermetrar að stærð.
Að undanfómu hafa staðið yfir
gagngerar endurbætur á húsinu og
hefur meðal annars verið skipt um allt
ytra byrði þess, auk þess sem hæðum
hefur verið breytt til móts við nútíma
þægindi og kröfúr.
Iðnaðarmenn era nú að reka smiðs-
höggið á verkið. Ráðgert er að DV flytji
með alla starfsemi sína í húsið í apríl
á þessu ári, en það hefur verið með
höfuðstöðvar sínai- í Þverholti 11 í
nærfellt 18 ár.
I nýja húsnæðinu verða skrifstofur
og auglýsingadeild blaðsins á jarðhæð,
en ritstjóm á annarri hæð. -aþ
Glæsilegt húsnæði í alfaraleiö
Gamla Tónabæjarhúsiö veröur nú miöstöö fjölmiölunar. Fyrirtækiö Þarfaþing hefur séö um endurgerö hússins en
Teiknistofa Halldórs Guömundssonar hannaöi endurbæturnar. Á innfelldu myndinni sjást Hjalti Jónsson,
framkvæmdastjóri Útgáfufélagsins DV, og Bergur Hauksson frá Þyrpingu undirrita leigusamninginn í gærdag.
Ingibjörg Sólrún telur jafnræðisregluna í hávegum hafða á Reykjavíkurlista:
Er mjög sátt með niðurstöðuna
- 9. sætið verður „ofur-varamannasæti“ og fellur í hlut Samfylkingar
„Ég er mjög sátt. Við höfum með
þessu samkomulagi náð fram jafhræði
milli flokkanna og það er tryggt að
menn hafa þá skýra tilfmningu að all-
ir sitji við sama borð á sama tíma og
tryggð er ákveðin opnun inn á list-
ann,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir í samtali við DV í gær. Forystumenn
Reykavíkurlistans kynntu í gær fyrir-
komulag framboðsmála sinna við borg-
arstjórnarkosningamar í vor. Uppstill-
ing á listann verður samkvæmt þeirri
meginreglu að jafnræði verði með
stjómmálaflokkunum þremur sem
standa að þessu kosningabandalagi og
auk þess mun Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir skipa 8. sætið eins og áður.
Frambjóðendur, sem fundnir era af
sérstakri uppstillingamefnd flokkanna
og borgarstjóra, munu hins vegar velja
menn í 7. og 12. sæti listans. Ingibjörg
segir aðspurð erfitt að segja til um
hvers konar frambjóðanda hún sjái
fyrir sér að muni setjast í 7. sæti list-
ans en sá frambjóðandi á að vera á
ábyrgð flokkanna sameiginlega. „Það
er erfitt að segja til um hvaða kröfur
hann þarf að uppfylla fyrr en maður
sér þetta heildstætt og hvaða frambjóð-
endur verða í öðram sætum. Auðvitað
hljóta menn þá að vera að leita að
ákveðnu jafhvægi I skírskotun til mis-
munandi þjóðfélagshópa og að nægjan-
leg breidd sé á listanum," segir Ingi-
björg Sólrún.
Kosninga-
bandalag R-list-
ans byggist
annars vegar á
sérstakri sam-
starfsyfirlýs-
ingu og hins
vegar málefna-
samkomulagi
en hvort
tveggja verður
lagt fyrir fund
flokkanna á
laugardaginn
eftir rúma
viku.
Skipt um
„pakka“
Sú niður-
staða sem kynnt var í gær hefur átt sér
nokkum aðdraganda og hafa samn-
ingaviðræður lengst af verið í höndum
þriggja manna framkvæmdahóps sem
starfað hefur sem undimefnd í sjálfri
samninganefnd flokkanna. Athygli
vekur að breytingar virðast hafa orðið
á uppstillingu á síðustu metram
þannig að Vinstri grænir hafa fengið
þann „pakka“ sem áöur hafði verið tal-
að að Samfylkingin myndi fá. Vinstri
grænir munu því eiga fulltrúa í 1. sæti
listans en auk þess fær flokkurinn 6.
sætið, 11. sætiö
og 13. sætið.
Framsóknar-
flokkurinn fær
hins vegar 2.
sætið, 5. sætið,
10. sætið og 14.
sætið á meðan
Samfylkingin
fær 3. sætið, 4.
sætið, 9. sætið
og 15. sætið.
Eins og áður
segir verður sér-
staklega stillt
upp í 7. og 12.
sætið af uppstill-
ingarnefnd og
mun uppstilling-
amefndin auk
þess ganga frá
listanum að öðru leyti. Flokkamir
munu sjálfir ákveða hvaða leiðir þeir
fara við uppstillingu í sin sæti á listum
og hefur enginn þeirra kveðið upp úr
með það endanlega hvemig það verður
gert í einstökum atriðum. Ljóst er að
sérstök spenna mun koma upp hjá
Samfylkingunni þar sem þrír núver-
andi borgarfulltrúar munu takast á
um tvö af efstu sætunum sem teljast
nokkuð örugg borgarstjómarsæti
vinni R-listinn borgina á annað borð.
Ofur-varamaður
Hins vegar verður þriöji samfylk-
ingarmaðurinn í 9. sæti eftir að
flokkurinn skipti við Vinstri græna á
„pökkum" þannig að hann á veika
von um að komast inn sem aðalmað-
ur. Stóri ávinningurinn við 9. sætið
er hins vegar að sá sem þar er verð-
ur eins konar „ofur-varamaður“.
Hann verður bæði varamaður fram-
bjóðandans í 7. sæti og borgartjóra
sem situr í 8. sæti auk þess að vera
varamaður beggja fulltrúa Samfylk-
ingarinnar á listanum. Þar sem boð-
ið er fram undir formerkjum kosn-
ingabandalags kemur varamaður
hvers flokks alla jafna úr sama flokki
en þar sem 7. og 8. sæti eru á ábyrgð
flokkanna sameiginlega mun fyrsti
varamaður á listanum, 9. sætið, koma
inn fyrir þá, forfallist þeir. Niunda
sætið yrði því varamannasæti fyrir
um helming borgarfulltrúanna. Skipt-
ing embætta verður hins vegar þannig
að Framsóknarflokkur og Vinstri
grænir munu skipta með sér embætti
forseta borgarstjómar tvö ár hver, nái
R-listinn völdum, og varaformennska í
borgarráði og formennska í borgar-
stjómarflokknum munu færast á milli
flokka. Um nefndaskipan verður síðan
fjallað eftir kosningar og miðað við
jafnræðisregluna eins og í öðra.
-BG
Fulltrúar listans
Borgarstjóri ásamt fulltrúum
Samfyikingarinnar, Vinstri grænna og
Framsóknarfiokksins.
Kveikt í bifreið
Brotist var inn í bifreið við Irabakka
í Breiðholti um miðnætti og eldur síðan
borinn að bifreiðinni. Að sögn lögreglu
var hljómflutningstækjum stolið úr bif-
reiðinni. Slökkviliðið kom á vettvang til
að slökkva eldinn en bifreiðin er mikið
skemmd og hugsanlega ónýt.
Innbrot í sjoppu
Brotist var inn í söluturn í Breið-
holti í nótt um klukkan fjögur. Ibúi á
efri hæð í sama húsi varð innbrotsins
var og lét lögreglu vita en þjófurinn
komst undan með feng sinn en ekki lá
fyrir í morgun hversu miklu hafði ver-
ið stolið.
Kristján Þór Júlí-
usson, bæjarstjóri á
Akureyri, segir að
ekki standi til að
draga til baka áður
samþykktar breyt-
ingar á þjónustu-
gjöldum og álögum
eins og verkalýðs-
hreyfingin hefur krafist. Hann minnir
á að sveitarfélögunum hafi ekki verið
boðið að standa að samkomulagi
verkalýðshreyfingarinnar, atvinnulífs-
ins og ríkisstjómarinnar um að stuðla
að stöðugleika í efnahagslífinu. - RÚV
greindi frá.
Meiri álversstækkun
I tillögu um mat á umhverfisáhrif-
um stækkunar álvers Alcan í Straums-
vík er gert ráð fyrir því að framleiðslu-
geta álversins í Straumsvík verði auk-
in um 260.000 tonn á ári en ekki 200.000
tonn eins og upphaflega var gert ráð
fyrir. Orkuþörfin vegna þessa sam-
svarar framleiðslu Sultartangavirkjun-
ar. -gk/HKr.
Bakkar ekki
lilU helgarblað
Hárlaus, ekki
raddlaus
I Helgarblaði DV
á morgun verður ít-
arlegt viðtal við Ei-
rík Hauksson
rokksöngvara í
Noregi sem hefur
átt erfitt að undan-
förnu. Á nýliðnu
ári hefur Eiríkur
tekist á við hjónaskilnað og illvíga
tegund af krabbameini. Blaðamaður
DV heimsótti Eirík í Noregi og fór
með honum á lokatónleika Artch.
I blaðinu verður einnig rætt við
Hannes Lárusson um húsbyggingar
á Kjarvalsstöðum, Pál Rósinkrans
um viðskilnað hans við Krossinn og
Margeir Pétursson um stjórnmál.
Einnig er að finna þar greinar um
aldur hluta, pípureykingar og Mar-
gréti Danadrottningu.