Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Blaðsíða 4
4
Fréttir
FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002
DV
Skoðanakönnun DV um afstöðu borgarbúa til nektardansstaða:
Alþingi:
Meirihluti vill bann á
nektardansstaðina
- lconur einarðari talsmenn banns
Bann við nektardansstöðum í Reykjavík
S Fylgjandi
Andvig
58.3%
41.7%
Karlar
ÍFylgjandi 40.4%
ISAndvig 59.6%
Konur
Fylgjandi 75.4%
S Andvig 24.6%
Meirihluti borgarbúa er fylgjandi
þvi að nektardansstaðir í Reykjavík
verði bannaðir. Meðal kvenna er
öflug andstaða en ríflega 7 af hverju
10 konum vilja banna þá. Hins veg-
ar eru sex af hverjum tíu körlum
andvígir slíku banni. Þetta eru
helstu niðurstöður skoðanakönnun-
ar DV sem gerð var meðal kjósenda
í Reykjavik sl. þriðjudagskvöld.
Úrtakið var 600 manns, jafnt skipt
á milli kynja. Spurt var: Ertu fylgj-
andi eða andvíg(ur) því að nektar-
dansstaðir verði bannaðir í Reykja-
vík.
Alls tóku 92,4 prósent aðspuröra
afstöðu í könnuninni en 5,8 prósent
voru óákveðin og 1,8 prósent neit-
uðu að svara. Af öllu úrtakinu sögð-
ust 53,8 prósent vera fylgjandi banni
á nektardansstaði en 38,5 prósent
andvíg slíku banni. Sé einungis lit-
ið til þeirra sem afstöðu tóku voru
58,3 prósent fylgjandi því að nektar-
dansstaðir verði bannaðir en 41,7
prósent andvíg.
Athyglisvert er að skoða niður-
stöðurnar þegar þær hafa verið
greindar eftir kynjum. Karlar eru á
móti því að nektardansstaðir verði
bannaðir. 59,6 prósent karla eru
andvig banni en 40,4 prósent fylgj-
andi. Hjá konunum snýst dæmið við
og gott betur. 75,4 prósent reyk-
vískra kvenna eru fylgjandi því að
nektardansstaðir í Reykjavík verði
bannaðir en 24,6 á móti banni.
Konur eru einarðar í afstöðu
sinni að þessu sinni en einungis 5,3
prósent kvenna eru óákveðnar eða
svara ekki spurningunni á móti 10
prósentum karla. -hlh
Bann er mál
löggjafans
„Miðað við umræðuna sem verið
hefur um þetta hefði ég jafnvel talið
að það væru fleiri fylgjandi banni
en þessi tæpu 60% sem þessi könn-
un sýnir. Hins vegar eru vitaskuld
margir sem ekki eru hrifnir af þess-
um stöðum þó þeir séu kannski
ekki tilbúnir að ganga svo langt að
banna þá,“ segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, aðspurð um viðbrögð
við könnun DV um nektarstaði.
Hún segir enn fremur að það
komi ekki á óvart að fleiri konur
skuli vera á móti þessum stöðum en
karlar. Ingibjörg bendir á að borgar-
yfirvöld hafi heldur verið að
þrengja að þess-
um stöðum i
skipulagi sínu en
hins vegar sé
málið nokkuð
flókið. Þegar
staðirnir settu
sig niður í borg-
inni á sínum
tíma hafi það ver-
ið gert með full-
komlega lögleg-
um hætti, enda sé þetta starfsemi
sem er lögleg og því í fullum rétti.
„Það er hins vegar hægt að sporna
við fjölgun þeirra og það höfum við
verið að gera með tilteknum skipu-
lagsaðgerðum, en það er enginn sem
getur í sjálfu sér bannað þessa starf-
semi nema löggjafinn," segir borg-
arstjóri. -BG
Kemur ekki
á óvart
„Þessi niðurstaða staðfestir þá til-
finningu sem ég hef fyrir málinu, en
ég hef verið talsmaður þess að grípa
til aðgerða varðandi þessa staði. Af-
staða fólks hefur verið að breytast,
það töldu margir í upphafi að þess-
ir staðir gætu þrifist hér en svo hafa
komið upp mál varðandi konurnar
sem þarna starfa sem sýna okkur
annað. Sjálf var ég ekki andvíg þess-
um stöðum í upphafi en hef breytt
um skoðun" segir Steinunn Valdís
Óskarsdóttir borgarfulltrúi R-list-
ans um niðurstöðuna.
„Mér finnst þetta merkileg niður-
staða en hún kemur reyndar ekki á
Steinunn Valdís Kjartan
Óskarsdóttir. Magnússon.
óvart. Ég man ekki betur en hafa
séð svipaða niðurstöðu úr skoðana-
könnun um þetta efni áður“ segir
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins. DV bar niður-
stöðurnar einnig undir tvo aðra
bogarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
en þeir vildu ekki tjá sig um málið.
-gk
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir.
Björn Grétar gagnrýnir
verkalýðsforustuna
- segir ekki gott að veifa spjöldum þegar menn hafa gleypt flautuna
DV-MYND BRINK
Óskaö til hamingju
Sverrir Jakobsson afhendir Jóni Karli
Helgasyni viöurkenningu Hagþenkis.
Höfundar Njálu:
Nýstárlegt
fræðirit
Jón Karl Helgason, bókmenntafræð-
ingur og rithöfúndur, hlaut í gær við-
urkenningu Hagþenkis, félags höíúnda
fræðirita og kennslugagna, fyrir bók
sína Höfúndar Njálu. Viðurkenningin
var veitt í 15. sinn og felst í innrömm-
uðu skjali og ávísun á kr. 500.000.
Höfundar Njálu kom út hjá Máli og
menningu í fyrra og fylgdi henni
margmiðlunardiskur, Vefúr Darraðar,
með texta Njálu og öllu því í bók-
menntum og myndlist síðari tima sem
tengist þeirri miklu sögu. Jón Karl er
í'bók sinni ekki að leita að höfundi
Njálu heldur skoðar hann þar hvemig
ýmsir rithöfundar hafa nýtt sér efni úr
Njálu í eigin bókmenntaverk og gerst
eins konar „höfúndar Njálu“. Felur
skilningur og nálgun Jóns Karls í sér
„að hver túlkun sögunnar, hvort held-
ur í mynd eða orðum, sé í raun endur-
sköpun hennar út frá nýjum forsend-
um. Hver lesandi, hver tími, skapar
sér nýja Njálu,“ segir í niðurstöðu við-
urkenningarráös Hagþenkis. -SA
„Mér finnst það ekki hafa komið
nægjanlega vel fram að þegar samið
var um það að fresta ákvörðun um
uppsögn launaliðar kjarasamninga á
almennum markaði í síðasta mánuði
var þegar kominn grandvöllur til upp-
sagnar samninganna og auðvitað áttu
menn að halda sig við það og gefa
verkafólkinu kost á að sækja rétt sinn.
Mér líst hreint ekkert á þessa þróun
mála,“ segir Bjöm Grétar Sveinsson,
fyrrverandi formaður Verkamanna-
sambands Islands, en um tvö ár era nú
liðin síðan gerður var við hann starfs-
lokasamningur og honum gert að
draga sig í hlé frá verkalýðsbarátt-
unni. Síðan hefur Bjöm Grétar ekki
tjáð sig opinberlega um málefni verka-
lýðshreyflngarinnar.
„Ég hef alltaf litið svo á að verka-
lýðsbarátta snúist um skiptingu á þjóð-
Vart hefur orðið við talsvert af
dauðum svartfugli í Skagafirði.
Náttúrustofu Norðurlands vestra á
Sauðárkróki bárust í vikunni fregn-
ir af óvenjulega miklu magni af
dauðum svartfugli í Garðsfjöru.
Þorsteinn Sæmundsson, forstöðu-
maður Náttúrustofunnar, fór á fjör-
una og fann þar 40-50 fugla, flesta
nýdauða. Þorsteinn sendi þá suður
arauði og mér þyk-
ir það mjög miður
að verkafólki, sem
er á lægstu laun-
unum af öllum í
þjóðfélaginu, skuli
ekki hafa verið
gert kleift að fá
leiðréttingu á sín-
um málum þegar
það átti rétt á því,
Á undanförnum
árum hef ég hins vegar séð það gerast
að þau verkalýðsfélög og samtök sem
hafa haft í forastu fólk sem hefur hvatt
til baráttu hafa borið mest úr býtum
og sums staðar hefur orðið gríðarlegur
árangur, eins og hjá kennuram. Verka-
lýðsforastan hefur hins vegar kosið að
halda aftur af mönnum í stað þess að
sækja fram,“ segir Bjöm Gétar.
til rannsóknar á Náttúrufræðistofn-
un íslands.
í fréttum að undanfomu hefur
verið mikið fjallað um dauðan
svartfugl á Norðausturlandi. Eins
var ástatt með fuglinn á Garðsfjöru
og þann eystra, hann er ákaflega
magur, ekki nema um hálft kíló, en
í venjulegu ástandi eru þeir um eitt
kiló að þyngd.
Hann segir það sitt mat að verka-
lýðsforustan hafl, með fáum undan-
tekningum, ekki staðið sig vel. „Því
miður hefur barátta forastunnar oftar
en ekki snúist um það að halda aftur af
fólki í stað þess að sækja fram og það
kann aldrei góðri lukku að stýra. Núna
koma forustumennimir svo fram, til
að mynda Grétar Þorsteinsson, forseti
Alþýðusambandsins, og segja að þeir
hafl gul spjöld til að veifa og síðan
rauð spjöld til að sýna í haust fari
verðlagshækkanir á skrið eftir 1. maí.
En það er bara ekki gott að veifa
spjöldum þegar menn hafa gleypt flaut-
una. Því miður líst mér ekkert á það
ástand sem uppi er og aðferðirnar sem
menn vilja nota í verkalýðsbaráttunni
í dag era ekki þær réttu að mínu
mati,“ segir Björn Grétar. -gk
Þorsteinn Sæmundsson segir að
fréttir berist einnig af dauðum fugli
á VestQörðum og þetta sé mikið
áhyggjuefni ef fugladauðinn sé að
færast vestar en ekki sé vitaö t.d.
um ástandið á Skaganum eða við
Húnaflóann. Þorsteinn vill koma
þeirri ábendingu til fólks að ef það
verði vart við dauðan svartfugl að
láta Náttúrufræðistofuna vita. -ÞÁ.
Dauður svartfugl í Skagafirði
Björn Grétar
Svelnsson.
Nudd verði
viðurkennt
Rannveig Guð-
mundsdóttir al-
þingismaður hef-
ur beint fyrir-
spurn til Jóns
Kristjánssonar,
heilbrigðis- og
tryggingamála-
ráðherra, um
skottulækningar.
Rannveig spyr
hvort ráðherra
hafi einhverjar áætlanir um endur-
skoðun á ákvæðum læknalaga um
skottulækningar og hvort endurskoð-
un á lögununum komi til greina. Þar
vill Rannveig sérstaklega vita hvort
óhefðbundnar lækningaaðferðir, svo
sem nálastungumeðferð, smá-
skammtalækningar, hnykklækning-
ar og nudd, gætu hlotið viðurkenn-
ingu að uppfylltum skilyrðum. -BÞ
Akureyri:
Inga Þöll bæjar-
lögmaður
Bæjarráð Akureyrar samþykkti á
fundi sínum í gær tillögu frá bæjar-
stjóra þess efnis að Inga Þöll Þór-
gnýsdóttir, lögmaður á Akureyri,
verði ráðin næsti bæjarlögmaður.
Ráðningin verður staðfest á bæjar-
stjómarfundi í næstu viku.
Aðrir umsækjendur um stöðuna
voru Björn Jónsson, Reykjavík,
Brynjólfur Hjartarson, Reykjavík,
Erlingur Óskarsson, Reykjavík, Sig-
urður Eiriksson, Akureyri, Sigurð-
ur Georgsson, Reykjavík, og Svavar
Pálsson, Reykjavík. -gk
Rannveig Guó-
mundsdóttir.
Kveikt í bifreið
Brotist var inn í bifreið við íra-
bakka í Breiðholti um miðnætti og eld-
ur síðan borinn að bifreiðinni.
Að sögn lögreglu var hljómflutn-
ingstækjum stolið úr bifreiðinni.
Slökkviliðið kom á vettvang til að
slökkva eldinn en bifreiðin er mikið
skemmd og hugsanlega ónýt.
Þá var brotist inn í sölutum í Breið-
holti í nótt um klukkan fjögur. íbúi á
efri hæö í sama húsi varð innbrotsins
var og lét lögreglu vita en þjófúrinn
komst undan með feng sinn en ekki lá
fyrir í morgun hversu miklu hafði ver-
ið stolið. -gk
Heilbrigðisnefndir:
Gjaldskrár
hækkaðar
Þrátt fyrir að ráðherrar keppist
við að lýsa því yfir að kaupmenn
eigi að hemja sig í verðhækkunum,
þá hefur hver hækkunin af annarri
dunið yfir á síðustu vikum. Þar er
bæði um að ræða stofnanir ríkis og
sveitarfélaga.
Samtök atvinnulífsins hafa t.d.
bent á að nær allar heilbrigðis-
nefndir sveitarfélaga hækkuðu
gjaldskrár sinar árið 2001. Þessar
nefndir hafa m.a. eftirlit með heil-
brigðismálum í fyrirtækjum lands-
ins. Mest var hækkunin á Kjósar-
svæði, 33,3%, 20% á Norðurlandi
vestra og 10% í Reykjavík. Þessar
hækkanir urðu allar í desember,
sem og 5,7% hækkun heilbrigðis-
nefndar Hafnarfjarðar og Kópavogs.
Tiu svæðisbundnar heilbrigðis-
nefndir hafa með á höndum lög-
bundið heilbrigðis- og mengunar-
varnaeftirlit á grundvelli laga um
hollustuhætti og mengunarvarnir.
Aðrar hækkanir slíkra nefnda urðu
fyrr á árinu, nema á Suðurlandi þar
sem gjaldskráin var ekki hækkuð
árið 2001 en það mun nú vera í
bígerð.
Tímagjald er mismunandi á milli
einstakra heilbrigöisnefnda. Fyrir
hækkanir síðasta árs var gjaldið
lægst á Kjósarsvæði en er nú lægst
á Norðurlandi eystra, 5.200 kr/klst.
Hæst er gjaldið á Suðumesjum,
5.800 kr/klst„ en þar var gjaldskrá-
in reyndar lækkuð um 0,5% á síð-
asta ári. -HKr.
J
'