Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002
Fréttir DV
Hjá Landssímanum eru þrír forstjórar og tveir í fríi:
Ris og fall Þórarins
Skyndileg starfslok Þórarins Viðars
Þórarinssonar hjá Landssíma íslands
vöktu mikla athygli og vangaveltur
um það hvað hefði orðið til þess að
trúnaðarbrestur varð milli hans og
Davíðs Oddssonar forsætisráðherra.
Landssíminn heyrir aö vísu ekki und-
ir ráðuneyti Davíðs en það er sam-
dóma álit þeirra sem DV ræddi við að
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra
hafi aðeins verið milliliður i deilunni
þrátt fyrir að Landssíminn heyri und-
ir ráðuneyti samgöngumála.
Mikil fjármálaumsvif
Þórarinn Viðar var um árabil fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands þar sem hann naut virð-
ingar fyrir samningalipurð og hörku.
Hann varð smám saman valdamikill
innan atvinnulífsins og menn óttuðust
hann og virtu í senn. Honum var
treyst fyrir ábyrgðarstörfum, svo sem
því að sitja í stjóm Lífeyrissjóðsins
Framsýnar. Þá fór hann með
framkvæmdastjóm á Vinnudeilusjóði
hjá sambandinu. Þar stóð hann í
miklum fjárfestingum í fyrirtækjum
og bréfum. Sjóðurinn blómstraði sem
aldrei fyrr og höfuðstóll hans reis í
metstærð. Samtimis var Þórarinn
umsvifamikill í eigin fjárfestingum.
Sögusagnir sprattu um að ekki væri
eölilega að málum staðið og
stjómarmaður spurði Þórarin hreint
út hvort hann hefði aðhafst eitthvað
óeðlilegt. Þórarinn neitaði því en benti
á að hann hefði sömu dómgreind á
góða fjárfestingarkosti fyrir sjálfan sig
og Vinnudeilusjóðinn.
Halldór Blöndal, þáverandi sam-
gönguráðherra, sá eins og fleiri styrk
Þórarins og skipaði hann sem stjómar-
formann Landssímans. Þá fá í loftinu
að fyrirtækið yrði einkavætt og árið-
andi að stjómarformaðurinn sigldi fyr-
irtækinu inn á þá braut. Ekki fer sög-
um af öðra en forsætisráðherra væri
sáttur við þessa tilhögun. Þórarinn
Viðar var góður og gegn sjálfstæðis-
maður og naut virðingar meðal at-
vinnurekenda og verkalýðsleiðtoga.
Forstjórinn fauk
Heimildir herma að Þórarinn Viðar
hafi fljótlega sem stjómarformaður
haft ýmislegt að athuga við ffammi-
stöðu Guðmundar Bjömssonar for-
stjóra sem hann taldi alls ekki standa
sig í starfi og væri hægfara og gamal-
dags. Þetta er Þórarinn Viðar sagður
hafa reifað við Sturlu samgönguráð-
herra sem sannfærðist um að það væri
fyrirtækinu fyrir bestu að forstjórinn
viki. Það varð niðurstaða Sturlu og
Þórarins að farsælast væri að stjómar-
formaðurinn sjálfúr tæki við forstjóra-
starfinu og kveddi þar með sitt gamla
starf í herbúðum Vinnuveitendasam-
bandsins í Garðastræti. Heimildir DV
innan stjórnar Landssímans herma að
hlutir hafi gerst hratt þegar Þórarinn
var ráðinn forstjóri sumarið 1999.
Hann sagði af sér stjómarformennsku
og Friðrik Pálsson var kosinn í hans
Samstarfsmenn
Á meöan allt lék í lyndi
unnu þeir Friörik Pálsson
stjórnarformaöur, Sturla
Böðvarsson
samgönguráöherra
og Þórarinn Viöar
Þórarinsson
náiö saman.
Nú er vik
milli vina.
stað. Þetta kom flatt upp á flesta stjóm-
armenn sem nú fengu til umfjöllunar
að forstjóraskipti færa fram þar sem
Guðmundur Bjömsson viki fýrir Þór-
ami V. Þórarinssyni samkvæmt starfs-
lokasamningi sem kvað á um aö hann
færi í sérverkefni. Drög að ráðningar-
samningi við Þórarin voru kynnt. Al-
talað er innan stjómarinnar að það
plagg hafi Þórarinn Viðar sjálfur
samið ásamt Sturlu
Böðvarssyni sam-
gönguráðherra.
Heimildir innan
stjómar herma að
Friðrik Pálsson
hafi verið andvígur
þvf að samningur-
inn við forstjórann
væri gerður til
fimm ára en hann hefði orðið að lúta
þar í lægra haldi fyrir „eigandanum",
Sturlu, sem taldi að með hliðsjón af
einkavæðingu fyrirtækisins væri
traustvekjandi að sýna fram á að fyrir-
tækinu væri stjómað af stefnufestu til
margra ára í senn. Með öðrum orðum
að ekki væri hringlað með yfirstjóm
fyrirtækisins. Sjálfur benti Þórarinn
Viðar á að hann væri að yfirgefa
traust og gefandi starf í Garðastræti og
þyrfti því tryggingu fýrir að halda for-
stjórastarfinu í nokkur ár. Stjómin
beygði sig fyrir þessum rökum. Engum
blöðum er um það að fletta að sam-
gönguráðherra stuðlaði að ráðningu
Þórarins Viðars með samþykki eða af-
skiptaleysi Davíðs Oddssonar.
Örlagaríkur málsverður
Þórarinn Viðar sat framan af á frið-
arstóli en óveðursskýin hrönnuðust
eitt af öðra upp yfir höfði hans. Heim-
ildir herma að Þórarinn Viðar hafi
fyrst fallið í ónáð hjá forsætisráðherra
þegar Fjárfestingarbanki atvinnulífs-
ins var einkavæddur haustið 1999. Þór-
arinn var þá samhliða forstjórastarf-
inu stjómarformaður f Lífeyrissjóðn-
um Framsýn sem var annar
tveggja lífeyrissjóða sem fóra fyr-
ir í samningum um kaup á stór-
um hlut i bankanum. Þá var hon-
um legið á hálsi af einstökum ráð-
herrum fyrir að hafa skaðað einka-
væðinguna. Þegar bréfin i FBA
hækkuðu í kjöifar sölunnar
þótti það sönnun þess
að svo hefði verið.
Sjálfur mun Þórar-
inn hafa lýst því að
hann hafi fallið í
ónáð hjá Davíð um
þetta leyti.
1 janúar árið
2001 snæddu Jón
Ólafsson, stjómarformaður Norður-
ljósa, og Þórarinn Viðar saman hádeg-
isverð á veitingastaðnum La Prima-
vera í Austurstræti. Norðurljós vora
þá einn stærsti viðskiptavinur Lands-
símans en í þeim kröggum að gjald-
fallnar skuldir þess viðSímann vora
um 100 milljónir króna. Eftir þvi sem
næst verður komist var umræðuefnið
á hádegisfundinum í La Primavera að
semja um skuldina
svo komist yrði
Reynir hjá lokun. Þetta
Traustason mun hafa tekist
ritstjórnarfulltrúi og þeir skildu sátt-
ir. Þórarinn Viðar
mun aftur á móti
hafa lýst því við
nána vini sína að
hádegismaturinn
hafi haft sínar afleiðingar þvf fregnir
af stefnumótinu hafi borist til eyma
Davíðs sem orðið hafi reiður. Þórarinn
Viðar er sagður hafa látið í ljós í einka-
samtölum að náinn samstarfsmaður
forsætisráðherra hafi sagt að honum
hefði verið nær að nota tækifærið til
að „knésetja Jón Ólafsson" í stað þess
að létta honum lifið. Ekki bætti úr
skák síðar þegar Þórarinn Viðar sam-
þykkti að hleypa sjónvarpsstöðvum
Norðurljósa inn á breiðband Lands-
símans gegn uppsettu gjaldi. Hann
mun hafa lýst þvi aö það hafi verið tal-
in höfuðsynd að daðra þannig við
helsta andskota sjáifstæðismanna.
Hugað að heimsbyltingu
Um þetta leyti stóð Þórarinn Viðar
ásamt Friðriki Pálssyni í þeim stór-
ræðum að fjárfesta í @IPbell-
fyrirtækinu sem boðaði heimsbyltingu
i fjarskiptum. í hita leiksins er líklegt
að hann hafi ekki veitt eftirtekt þeim
kulda sem lagði frá stjómarráðinu.
Samvinna hans og Sturlu
samgönguráðherra var með ágætum
og sömu sögu var að segja af
samvinnunni viö Friðrik
Pálsson stjómarformann sem
tók þátt í öllum samningum
vegna @IPbell. Drjúgur
hluti af starfi Þórarins
Viðars árið 2000 fór í að
hlúa að örfyrirtækinu og
síðar að reyna að forða því
frá skelfingu. í janúar árið
2001 varð það
gjaldþrota án
þess menn
fengju rönd
við reist.
Friðrik og
Þórarinn
Innlerrt fréttaljós
Viðar gripu þá til þess ráðs að taka
yfir reksturinn erlendis í nafni IP-
fjarskipta í því skyni að vinna áfram
með viðskiptahugmyndina. Ævintýrið
endaði með þeim ósköpum að
Landssíminn tapaði 500 milljónum
króna á núvirði.
Sögur um brask
Fyrri hluta ársins 2001 sprattu enn
miklar sögusagnir um meint brask
Þórarins Viðars með verðbréf í nafni
einkafyrirtækisins Stofna sem var í
eigu hans og eiginkonu hans, skráð á
heimili þeirra á Einimel. Fyrirtækið
stóð í gríðarlegum fiárfestingum eins
og sjá má af því að hagnaður þess var
rúmar 50 milljónir króna árið 2000 og
eignir skráðar hátt í 200 milljónir.
Slíkt brask með mjólkurpeningana á
Einimel samhliða forstjórastarfmu og
stjómarsetu í Þróunarfélaginu og
Framsýn var ráðherranum lítt að
skapi.
Látið var að því liggja að Þórarinn
hefði misnotað aðstöðu sína. Svo
svæsnar vora sögurnar orðnar að Þór-
arinn Viðar tók málið sjálfur upp á
stjómarfúndi Landssímans skömmu
fyrir páska. Þar skoraði hann á þá
stjómarmenn sem heyrðu slíkar sögur
að sannreyna þær með því að láta
endurskoðendur Símans skoða bók-
hald Stofna. Einn stjómannaður mun
hafa grafist nokkuð fyrir en án þess að
finna neitt. Um þetta leyti var staða
Þórarins á forstjórastóli orðin erfið.
Vilji var fyrir því hjá „eigandanum"
að víkja Þórami úr starfi en Friðrik
Pálsson varði hann framan af. í júní
fékk Þórarinn fund með Davíð Odds-
syni forsætisráðherra þar sem hann
baðst griða. Mat manna var eftir þann
fund að sátt væri komin milli eigenda
og forstjóra.
Landssíminn of dýr?
En svo var aðeins um skamma hríð
því um haustið kom aftur babb í bát-
inn. Þórarinn Viðar mun hafa látið í
ljós eftir hryðjuverkin í New York 11.
september að Landssíminn væri of
hátt verðlagður og fiárfestar myndu
ekki kaupa á genginu 5,75 sem sam-
svaraði því að fyrirtækið væri i heild-
ina 40 milljarða króna virði. Enn átti
forstjórinn fund með forsætisráðherra
í október sl. í því skyni að ná sáttum.
Hann sat þá enn í stjómum Lífeyris-
sjóðsins Framsýnar og Þróunarfélags-
ins þrátt fyrir að hafa vikið tímabund-
ið. Þetta líkaði forsætisráðherra ekki
en eftir októberfundinn töldu menn þó
að aftur væri orðin sátt með þvi að
Þórarinn Viðar einbeitti sér að þvi að
stjóma Landssímanum en léti stjóm-
arstörf annars staðar eiga sig. Um
miðjan október hafði þó svo hitnað
undir forstjórastólnum að sjáifur
ákvað Þórarin Viðar að víkja tíma-
bundið til að skapa frið um Landssím-
ann. Áfram sat hann í áðumefndum
stjómum. Tveimur mánuðum síðar
dró til þeirra tíðinda að samgöngu-
ráðherra og stjómarformað-
ur Landssímans vora sann-
færðir um að trúnaðar-
brestur forstjórans og eig-
andans væri staðfestur.
Þórarinn Viðar var rek-
inn úr starfi 11. desem-
ber og ákvæði ráöning-
arsamníngsins um 5
ára starf varð virkt.
Nú er tekist á um það
mál og þrír forstjórar
starfa hjá Símanum
en tveir era í fríi.
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 16.52 16.18
Sólarupprás á morgun 10.26 10.29
Síódegisflóö 15.53 20.26
Árdeglsflóó á morgun 04.25 08.58
Austlæg átt, 8-15 m/s en 15-20
syðst. Skýjað með köflum og þurrt
vestanlands en viöa dálítil snjókoma
eða él annars staðar, einkum
austanlands og á annesjum noröan
til. Heldur hvassari um tíma í kvöld
og nótt. Kalt í veöri.
-61
■sltesv _
V V ^
11C22@ . V
-fe®
Kalt í veðri
18-23 m/s meö suöurströndinni,
en annars 10-18. Úrkomulaust á
landinu en áfram kalt í veöri.
Véiðriiði
■ampMiw
Sunnudagur Mánudagur Þriðjudagur
® CZk qT-
<2T(b
Híti 1'
til 12° til 12° tíi 8°
Vindur: Vindur: Vindur:
8-13 8-13 m/& 7-11"'.'5
* 11
NA 8-13 m/s, NA 8-13 m/s, A- og NA-átt og
en A 13-18 viö en A 13-18 viö slydda eöa
suöurströndina. suöurströndina. rigning sunnan
Dálítil él noröan Dál'itil él noröan og austan til en
og austan til en og austan til en úrkomulítiö
annars skýjaö annars skýjaö annars staöar.
meö köflum. meö köflum. Hlýnar í veöri.
Frost 1 til 12 Frost 1 til 12
stig. stig.
Vj''...
Logn Andvari Kul Goia Stlnningsgola Kaldi Stinningskaldi Allhvasst Hvassvibri Stormur Rok Ofsaveður Fárviöri m/s 0-0,2 0,3-1,5 1,6-3,3 3.4- 5,4 5.5- 7,9 8,0-10,7 10.8- 13,8 13.9- 17,1 17,2-20,7 20,8-24,4 24.5- 28,4 28.5- 32,6 >= 32,7
AKUREYRI heiöskírt -16
BERGSSTAÐIR heiðskírt -14
BOLUNGARVÍK skýjaö -6
EGILSSTAÐIR léttskýjaö -15
KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö -6
KEFLAVÍK skýjaö -2
RAUFARHÖFN alskýjað -14
REYKJAVÍK skýjaö -5
STÓRHÓFÐI rykmistur -3
BERGEN haglél -3
HELSINKI rigning 3
KAUPMANNAHÖFN léttskýjað 1
ÓSLÓ léttskýjað -7
STOKKHÓLMUR snjókoma -5
ÞÓRSHÖFN snjóél -6
ÞRÁNDHEIMUR snjóél -12
ALGARVE skýjaö 10
AMSTERDAM léttskýjað 4
BARCELONA heiöskírt 7
BERLÍN léttskýjaö 3
CHICAGO heiöskírt 1
DUBLIN rigning 6
HALIFAX snjókoma -1
FRANKFURT skúr 6
HAMBORG léttskýjaö 3
JAN MAYEN snjóél -11
LONDON skýjað 3
LÚXEMBORG skýjaö 3
MALLORCA léttskýjaö 7
MONTREAL alskýjaö -5
NARSSARSSUAQ skafrenningur 0
NEW YORK alskýjaö 7
ORLANDO hálfskýjaö 17
PARÍS léttskýjað 5
VÍN skýjaö 9
WASHINGTON rigning 8
winnipeg þoka ■fimfttiiáagiamaM'iiiiiiiHn -15