Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Síða 7
7
FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002___________________________________________________________________
DV Fréttir
Stjórnmálafræðiprófessorar við Háskóla íslands um framboðsmál D-lista:
Björn að taka áhættu
- gæti endað sem oddviti minnihlutans eftir kosningatap
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
prófessor í stjómmálaffæði við Há-
skóla íslands, telur að staða Sjáifstæð-
isflokksins í Reykjavík hafi styrkst
verulega við ákvörðun Ingu Jónu
Þórðardóttur um að taka ekki þátt í
leiðtogaprófkjöri flokksins. „Ég held að
Inga Jóna hafi hugsað þetta þannig að
þetta væri eitthvað sem myndi styrkja
stöðu flokksins en ekki verið að hugsa
um eigin stöðu. Hún er mjög fram-
bærilegur leiðtogi sem hefur staðið sig
afar vel í stjómarandstöðunni og ég
held að ákvörðun hennar mælist mjög
vel fyrir,“ segir Hannes, aðspurður
hvort hann telji að þetta muni veikja
eða styrkja Ingu Jónu Þórðardóttur
sem stjómmálamann til lengri tíma.
Kollegi Hannesar við Háskólann,
Gunnar Helgi Kristinsson prófessor, er
sömu skoðunar og telur lika að útspil
Ingu Jónu hafl
verið sterkt. „Mér
finnst þetta hafa
verið nokkuð
sterkur leikur hjá
henni því hún var
ekki f sérstaklega
góðri stöðu þar
sem það blasti við
að hún yrði undir
gegn Bimi i þessu
leiðtogaprófkjöri.
Sú hugmynd hennar að gefa kost á sér
í 8. sætið er til þess fallin að halda
henni áfram í ákveðnum fókus sem
mótleikari á móti Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur sem verður í 8. sæti hjá
Reykjavíkurlistanum," segir Gunnar.
Gunnar Helgi telur nokkuð ljóst að
þessa stöðu hafl ekki borið að með
þeim hætti sem Bjöm hafi hugsað sér
þó þetta sé hins
vegar sú niður-
staða sem hann
hafi viljað - að
hann yrði í 1. sæti
listans og myndi
keppa um borgina
við Ingibjörgu. „Ef
menn vilja stilla
þessu upp sem
keppni miili
Bjöms og varafor-
mannsins Geirs H. Haarde þá megi
segja að Bjöm hafi verið heldur að
dragast aftur úr í því kapphlaupi en
við það að vinna borgina muni hann
skjótast fram fyrir hann,“ segir Gunn-
ar en tekur jafnframt fram að hann sé
ekki endilega viss um að rétt sé að
stilla þessum slag upp í samhengi sem
þessu. Hann telur þó ekki að það muni
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson.
Gunnar Helgi
Kristinsson.
Formaður iðnaðarnefndar sakar Vínstri græna um sýndarmennsku:
Vilja þeir alþingi götunnar?
- spyr Hjálmar Árnason vegna tillögu VG-framboösins um þjóöaratkvæöi
Hjálmar Árnason, formaður iðn-
aðamefndar Alþingis, gefur lítið
fyrir þingsályktunartillögur
Vinstri grænna um þjóðaratkvæði
um Kárahnjúkavirkjun og svæðið
norðan Vatnajökuls. Hann segir að
það væri miklu hreinlegra hjá
Vinstri grænum að segja hreint út
að þeir væru á móti virkjunar-
áformum.
„Það er það sem hangir á þessari
spýtu. Einu sinni hét það að allt
ætti að fara í lögformlegt umhverf-
ismat en þegar því er náð gripa
þeir í þetta
hálmstrá. Þeir
gleyma að við
búum við það
lýðræðisfyrir-
komulag að hér
eru lýðræðislega
kjörnir fulltrúar
á þjóöþingi," seg-
ir Hjálmar.
Hann segir að
málið sé dæmi
um enn eina skrautfjöðrina í þeirri
sýndarmennsku sem Vinstri grænir
Hjálmar
Árnason.
hafi haldið uppi i þessum málum.
„Gírinn er einfaldlega sá að vera á
móti hvað varðar verðmætasköpun
en sýna mikið hugmyndaríki hvað
varðar eyðslu.“
Sjálfur segist Hjálmar ætla að
greiða atkvæði gegn þingsályktun-
artillögunni og hann telji minni lík-
ur en meiri á að hún verði sam-
þykkt. „Kannski vilja Vinstri græn-
ir svona í anda sinnar hugsunar
bara taka upp alþingi götunnar?
spyr þingmaðurinn. -BÞ
draga úr áhrifum þess sigurs fyrir
Bjöm - ef til kæmi - að Inga Jóna
myndi væntanlega eiga stóran hlut í
honum líka. Staða borgarstjóra sé það
sterk og áberandi að Bjöm myndi ekki
tapa á slíku. Hins vegar segir Gunnar
ljóst að Bjöm sé að taka verulega póli-
tiska áhættu því hann gæti auðvitað
lent í minnihluta. „Hann er að taka
þarna áhættu en spumingin er
kannski hverju er hann nákvæmlega
að tapa?“ segir Gunnar og efast um að
það hafi verið mjög eftirsóknarvert í
augum Björns að sitja áfram við
óbreytt ástand í menntamálaráðuneyt-
inu.
Hannes Hólmsteinn segir að fráleitt
sé að tala um einhveija valdabaráttu
miili Bjöms og Geirs, enda ekkert fyr-
ir þá að beijast um, því staða for-
manns flokksins sé ekkert laus og sé
ekkert að losna. Nærtækasta skýring-
in sé einfaldlega sú að Inga Jóna hafi
talið að með þessari uppstillingu kæmi
fram sterkasti listinn, enda sé almenn
ánægja og sátt innan flokksins um
þessa niðurstöðu og því megi búast við
að men snúi bökum saman og fari að
takast á við R-listann. Hannes Hólm-
steinn er hins vegar sammála Gunnari
Helga um það að Bjöm Bjamason sé
að taka pólitíska áhættu með því að
stíga úr stóli menntamálaráðherra og
yfir í leiðtogastólinn í borginni, en
þannig sé pólitíkin og eins og Bjöm
hafi sjálfur minnt á á vefsíðu sinni
þurfi menn að taka áhættuna til að sjá
hvort hún er þess virði. Sjálfstæðis-
flokkurinn leggi mikið undir í þessum
kosningum og vissulega sé ekkert gef-
ið um það að sjálfstæðismenn vinni
borgina þótt sá listi sem nú sé í burð-
arliðnum sé vissulega afar sigur-
stranglegur. -BG
Mikil gerjun einkenndi framboðsmál í borginni nú í ársbyrjun og í árslok 1993:
Kannanir DV örlagavaldar
Skoðanakönnun DV, sem birt var
fyrir viku og sýndi að Bjöm Bjamason
væri langlíklegastur til að leiða D-lista
sjálfstæðismanna til sigurs í borgar-
stjórnarkosningunum i vor, vakti
mikla athygli og hefur verið örlaga-
valdur í atburðarásinni á þeim vett-
vangi síðustu daga. Þessi könnun DV
sýndi svo ekki verður um villst að
Bjöm Bjamason bar höfuð og herðar
yfir aðra mögulega frambjóðendur í þá
fyrirhuguðu leiðtogaprófkjöri sjálf-
stæðismanna, þau Ingu Jónu Þórðar-
dóttur, Júlíus Vífil Ingvarsson og Ey-
þór Amalds. Taldi helmingur reyk-
vískra kjóserida Björn sigurstrangleg-
astan.
Kjósendur höfðu sagt hug sinn á
ótvíræðan hátt i
könnun DV og við
þeim skilaboðum
var síðan bmgðist.
Það gerði Inga
Jóna á eftirminni-
legan hátt þegar
hún dró framboð
sitt til baka í vik-
unni og lýsti yfir
stuðningi við
Bjöm. Eyþór Am-
alds gerði slíkt hið
sama og fátt bendir
til að Júlíus Vífill
troði aðrar slóðir.
Áður en könnun
DV var fram-
kvæmd gat enginn
vitað nákvæmlega
hve sterk staða
mögulegra fram-
bjóðenda í leiðtoga-
prófkjöri væri. DV hafði áhuga á að
kanna þessa stöðu, tók af skarið og
gerði könnun strax á þriðjudagskvöld.
Nú lítur hins vegar út fyrir að ekkert
verði af fyrirhuguðu leiðtogaprófkjöri
- kjósendur hafa þegar sagt hug sinn.
Raðað verður á lista.
60
54,2*
51*
50 -
30
20 -
10 -
Insa Jóna
Biorn
Þór
rdóttlr
Bjarnason
Sigurstranglegasti leiðtogi D-listans
DV
Ingvarsson
R-listinn og Ingibjörg
„veröa til“
Skoöanakannanir DV um
fylgi við flokkana og
möguleg borgarstjöraefni í
Reykjavík í nóvember 1993.
Björn sterkastur
Nýleg skoöanakönnun DV sem sýndi hvernig Björn Bjarnason bar höfuð og
heröaryfir aöra leiðtogakandídata D-listans fyrir kosningarnar í vor.
fram saman. Skýrari vísbendingar um
jafh mikið fylgi við „þriðja aflið“ í
kosningunum höfðu ekki komið fram
áður. Nú hafa Ólafur F.
Magnússon og Frjálslyndi
flokkurinn þegar leitt sam-
an hesta sína í von um
mann inn.
R-listinn
Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem skoðanakann-
anir DV eru örlagavaldar
í stjómmálum. I nóvem-
ber 1993, tæpu hálfu ári
fyrir borgarstjómarkosn-
ingamar 1994, höfðu um
nokkurt skeið farið fram
þreifingar um sameigin-
legt framboð minnihluta-
flokkanna i Reykjavik.
Lengst af vom það fulltrúar Alþýðu-
flokks, Alþýðubandalags og Nýs vett-
vangs sem ræddu saman. Framsókn
fylgdist með og það kom síðar fram að
þar á bæ hefði mönnum lengst af ekki
hugnast þetta samkrull. Á vegum
Hrannars B. Amarssonar var keypt
framkvæmd könnunar til að kanna jarð-
„Þríðja aflið“
Áðm- en DV birti könnunina um sig-
urstranglegasta leiðtoga D-listans var
birt könnun um fylgi framboða í
Reykjavík fyrir kosningamar í vor.
Þar kom fram að smáframboðin gætu
mögulega komið að manni byðu þau
veginn og var niðurstaða hennar já-
kvæð fyrir minihlutaflokkana.
En það er fyrst með birtingu niður-
staðna úr skoðanakönnun DV 25. nóv-
ember 1993 að möguleiki á sameiginlegu
framboði minnihlutaflokkanna fær byr
undir báða vængi - verður lýðum ljós
sem raunhæfur kostur. Þar kom fram
að listi sameiginlegs framboðs fengi
54,5% fylgi og meirihluta í borgarstjórn.
Ingibjörg Sólrún
Daginn eftir vom enn birtar niður-
stöður úr skoðanakönnun DV sem tóku
af allan vafa um hver mundi leiða þetta
sameiginlega framboð. „Ingibjöig Sól-
rún skákar starfandi borgarstjóra,"
sagði uppsláttarfrétt blaðsins þann dag-
inn. Kjósendur vom beðnir um að velja
borgarstjóra úr hópi þriggja, þeirra Ingi-
bjargar Sólrúnar Gisladóttur, Jóns
Magnússonar lögmanns og Markúsar
Amar Antonssonar, starfandi borgar-
stjóra. Þar kom fram að 47,4% vildu
Ingibjörgu Sólrúnu, 43,3% Markús Örn
og einungis 9,4% Jón.
Um miðjan janúar 1994 var enn kann-
að fylgi við framboðin í borginni. Þá
hafði forskot sameiginlegs lista á D-list-
ann aukist, var 63,2% á móti 36,8%.
Viku áður höfðu minnihlutaflokkarnir,
þ.e. Framsókn, Alþýðubandalag, Al-
þýðuflokkur og Kvennalisti, náð sam-
komulagi um sameiginlegt framboð.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var sam-
þykkt sem borgarstjóraefni og allt lagt
undir. Hún skyldi skipa 8. sæti listans,
baráttusætið. Nýr andstæðingur, Árni
Sigfússon, sem var borgarstjóri í 100
daga, laut í lægra haldi i kosningunum.
Nú í ársbyrjun og eins í árslok 1993
var mikil gerjun í undirbúningi fyrir
komandi borgarstjórnarkosningar og
umræður miklar manna á meðal. I bæði
skiptin tók DV af skarið og spurði kjós-
endur i Reykjavík álits. Niðurstöðurnar
töluðu sínu máli og eftirleikurinn er
kunnur. -hlh
Ófrjósemisaðgerðir:
Skýrslubeiðni
heimiluð
Samþykkt var á Alþingi á miðvik-
dag að heilbrigðisráðherra flytji Al-
þingi skýrslu um ófrjósemisaðgerð-
ir sem gerðar
voru samkvæmt
lögum nr. 16/1938
á gildistíma
þeirra á árunum
1938 til 1975. Þrjá-
tíu og fimm þing-
menn alls
greiddu atkvæði
með því að
skýrslan yrði
flutt.
Leitast verður við að svara marg-
víslegum spumingum í skýrslunni
og á með henni að komast til botns
í þvi hvort mannréttindi hafi verið
brotin á fleiri íslendingum en þeim
sem vann dómsmál gegn íslenska
ríkinu í janúar 1996. Ríkið var
dæmt í því máli til að greiða manni
fjórar milljónir i bætur fyrir ólög-
mæta ófrjósemisaðgerð sem gerð
var á honum árið 1973 þegar hann
var 18 ára.
Það var þingflokkur Samfylking-
arinnar í heild sinni sem óskaði eft-
ir skýrslunni en fyrsti flutnings-
maður hennar er Þórunn Svein-
bjarnardóttir. í greinargerð með
skýrslubeiðninni kemur fram að
áhrif mannkynbótastefnunnar séu
augljós í umræddum lögum og að
tilgangur þeirra hafi verið að koma
í veg fyrir úrkynjun en fyrirmynd
þeirra var sótt til bandarískra og
skandinaviskra laga. -MA
Póstkassar íslandspósts:
Voru lokaðir
um áramótin
Undanfarnar vikur hefur nokkuð
verið um að póstkassar á höfuðborg-
arsvæðinu væru sprengdir. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Islands-
pósti er mest um slíkar sprengingar
í kringum áramót og var því gripið
til þess ráðs um síðustu áramót að
loka öllum póstkössum á höfuðborg-
arsvæðinu frá 27. desember og fram
í miðjan janúar. Sú ákvörðun var
tekin í ljósi reynslu fyrri ára. Að
minnsta kosti eitt dæmi er um að
póstkassi sem var fullur af bréfum
hafi verið sprengdur og í slíkum til-
fellum er reynt að hafa samband við
Bretar
vilja evru
í fyrsta skipti sýna kannanir að
meirihluti Breta vill taka upp evru
í stað pundsins, skv. frétt í The Gu-
ardian. í blaðinu í gær er birt könn-
un sem sýnir að meirihluti breskra
kjósenda styður evruna að þvi
gefnu að ríkisstjórnin fylgi þeirri
ákvörðun eftir. Könnunin var gerð
af NOP fyrir Barclays Capital og
sýnir að almenningsálitið er að
breytast eftir evruvæðinguna á
meginlandinu. Mjótt er þó enn á
mununum. 40% vilja evruna en 39%
eru mótfallnir henni.
Samtök iðnaðarins telja að þessi
niðurstaða sé enn einn vísbending-
in um að þau þrjú ríki ESB sem nú
standa utan evrunnar muni taka
hana upp á næstu misserum. -BÞ
Þórunn Svein-
bjarnardóttir.