Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Page 11
FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002
Útlönd
DV
Elie Holbeika, fyrrum ráðherra og stríðsherra, drepinn í bílsprengingu í Beirút:
Líbanir segja að ísrelar
beri ábyrgð á morðinu
Yfirvöld í Líbanon hafa ásakaó
ísraela um að bera ábyrgð á bíl-
sprengjunni sem í gær varð líbanska
stríðsherranum og fyrrum ráðherran-
um Elie Hobeika að bana en auk hans
létust fimm aðrir í sprengingunni og
nokkrir slösuðust. Sprengjan sprakk í
aðeins 500 metra f]arlægð frá heimili
Hobeika i Beirút en hann var ásamt
lífvörðum sínum að leggja af stað út á
baðströnd þegar geysiöflug sprengja
sprakk undir bifreið hans um leið og
vélin var ræst.
Að sögn Emiles Lahoud, forseta Lí-
banons, beinast böndin helst að ísrael-
um þar sem það var þeirra hagur að
losna við Hobeika. „Hann vissi of
mikið um slátrunina í palestínsku
flóttamannabúðunum í Sabra og
Shatila árið 1982 og þeir vildu koma í
veg fyrir að hann bæri vitni gegn
Ariel Sharon, forsætisráðherra ísra-
els, í fyrirhuguðum stríðglæparéttar-
höldunum yfir honum í Belgíu," sagði
forsetinn í viðtali við líbanska sjón-
varpið 1 gær. Þá hélt Elias Murr, inn-
anríkisráðherra Líbanons því fram að
upplýsingar lægju fyrir sem tengdu ís-
raela beint við morðið en vildi þó ekki
greina nánar frá því.
Frá sprengjuvettvangi í Beirút
Eins og sjá má á myndinni var bílsprengjan, sem varö Elie Hobeika, fyrrum
stríðsherra í Líbanon, aö aldurtila, mjög öflug og olli miklum skemmdum.
Sjálfur sagði Ariel Sharon að þetta
væru staðlausar ásakanir og ekki
einu sinni þess virði að hlusta á þær.
í gær tilkynntu áður óþekkt líbönsk
samtök, sem kalla sig „Frjálsa og sjálf-
stæða Líbani", að þau bæru ábyrgð á
morðinu á Holbeika og kölluðu þau
hann „undirtyllu Sýrlendinga“ með
tilvísan til hollustu hans við stjórn-
völd í Damaskus eftir lok borgarstyrj-
aldarinn 1975- 90 en Hobeika hafi ver-
ið foringi herskárra hersveita krist-
inna manna í borgarstríðinu sem
studdar voru af ísraelum og stóðu að
slátruninni í áðurnefndum flótta-
mannabúðum sem umkringdar höfðu
verið af ísraelskum hersveitum.
í vikunni hafði Holbeika upplýst að
hann byggi yfir mikilvægum upplýs-
ingum og væri tilbúinn að vitna í mál-
inu gegn Ariel Sharon, sem af
belgíska dómstólnum er ásakaður um
glæpi gegn mannkyninu. Sharon
sagði af sér sem vamarmálaráðherra
árið 1982 eftir að ísraelsk rannsóknar-
nefnd hafði komist að þeirri niður-
stöðu að hann bæri óbeina ábyrgð á
morðunum í flóttamannabúðunum
sem yfirmaður ísraelska hersins.
Shimon Peres, utanrikisráðherra
tsraels, sagði í gær að fráleitt væri að
kalla ísraelska ríkið til ábyrgðar
vegna morðsins á Hobeika en það er
framið á sama tíma og Líbanir undir-
búa ráðstefnu arabaríkja sem fram á
að fara í Beirút i mars nk. og ásakar
líbanska ríkisstjómin ísrela um að
vilja koma á óróa á svæðinu. „Þeir
munu ekki komast upp með það og
þeir seku verða eltir uppi,“ sagði í yf-
irlýsingu frá líbönsku ríkisstjóminni.
REUTER-MYND
Bannaö aö tala við blaðamenn
Öryggisvöröur bannar múslimafjölskyldu frá Burma aö ræöa viö fréttamenn í húsakynnum Flóttamannastofnunar Sam-
einuöu þjóðanna í Kuala Lumpur í Malasíu í morgun. Tuttugu og átta manns úr þremur fjölskyldum, þar á meðal
konur og börn, settust þar aö og krefjast þess að þeim veröi veitt hæli.
Bandarískir þingmenn öskureiðir:
Fátt um svör endurskoðenda
um eyðingu skjala frá Enron
Ævareiðir bandarískir þingmenn
fengu fá svör og ófullnægjandi í gær
þegar þeir reyndu að komast að því
hvers vegna starfsmenn endurskoð-
unarfyrirtækisins Arthur Andersen
eyddu þúsundum skjala sem tengdust
bókhaldi orkusölufyrirtækisins En-
ron. Sumir starfsmanna Arthurs
Andersens unnu að skjalaeyðingunni
í yfirvinnu. Þá lék þingmönnum for-
vitni á að vita hvers vegna endur-
skoðunarfyrirtækið dró jafnlengi og
raun ber vitni að stöðva eyðinguna.
Snurða hljóp á þráðinn í rannsókn
þingsins á gjaldþroti Enron þegar
einn yflrmanna Arthurs Andersens,
David Duncan, neytti stjórnarskrár-
varins réttar sins til að svara ekki
spurningum þingmanna. Æðstu yfir-
menn hans saka hann um að bera
ábyrgð á eyðingunni og að hafa fyrir-
skipað hana. Duncan segist ekki hafa
gert neitt rangt.
„Enron rændi bankann og Arthur-
Andersen útvegaði undankomubílinn
REUTER-MYND
Neitar aö tjá sig
David Duncan endurskoöandi segir
ekki orö um eyðingu skjala Enron.
og þeir segja að þú hafir setið undir
stýri,“ sagði þingmaðurinn James
Greenwood sem stjórnaði yfirheyrsl-
unum.
Þúsundir starfsmanna misstu vinn-
una og eftirlaunasjóði sína og hlut-
hafar töpuðu milljörðum dollara á
gjaldþroti Enron í desember. Æðstu
menn fyrirtækisins högnuðust aftur á
móti mikið skömmu áður á sölu bréfa
í fyrirtækinu.
Yfirheyrslurnar í gær, bæði í full-
trúadeildinni og öldungadeildinni,
voru þær fyrstu af níu sem þingið fyr-
irhugar.
Joseph Lieberman öldungadeildar-
þingmaður sagðist ætla að kanna sér-
staklega tengsl Enron við Hvíta húsið
og aðrar stjómarstofnanir. Kenneth
Lay, sem sagði af sér stjómarfor-
mennsku í Enron í gær, var góðvinur
Bush forseta og lagði mikið fé í kosn-
ingasjóði hans og annarra stjórn-
málamanna, bæði repúblikana og
demókrata.
Einstaklingsíbúðir til leigu
fyrir 60 ára og eldri
Hraunbær 107 ehf. auglýsir til leigu 37
einstaklingsíbúðir að Hraunbæ 107. íbúðimar verða
tilbúnar til innflutnings í næsta mánuði. Um er að ræða
33 fm íbúðir í nýju húsi með góðri sameign, lyftu og í
göngufæri við Félags- og þjónustumiðstöð. Allir 60 ára
og eldri geta sótt um óháð búsetu. Leiguverð er kr.
55.000 á mánuði en leigjendur íbúðanna hafa
möguleika á að sækja um húsaleigubætur sem verða
allt að kr. 12.500 á mánuði. íbúðimar verða til sýnis
þann 26. og 28. janúar nk, frá kl. 10.00 til kl. 14.00.
Sérstök umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
Félagsbústaða hf. að Suðurlandsbraut 30 sem fylla
verður út og skila fyrir 31. janúar nk.
S FELAGSBUSTAÐIR HF.
Pizzur eins
og þær^—