Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Side 12
12
Viðskipti
Umsjón: Viöskiptablaðið
Landsbankinn spáir 1%
vaxtalækkun í næstu viku
Landsbankinn spáir því að Seðla-
bankinn tilkynni 1% vaxtalækkun
bankans samhliða útkomu Peninga-
mála, ársfjórðungsrits Seðlabanka
íslands, en ritið kemur út föstudag-
inn 1. febrúar næstkomandi. Lands-
bankinn nefnir ýmis rök máli sínu
til stuðnings.
Áhrif breytinga á stýrivöxtum
koma að fullu fram á u.þ.b. 18 mán-
uðum sem þýðir að ákvörðunin um
lækkun stýrivaxta nú þarf að taka
mið af líklegri þróun hagkerfisins á
næstu misserum. Vissulega skiptir
máli hvernig vísitala neysluverðs
breytist frá mánuði til mánaðar en
upplýsingagildi þess varðar fortíð-
ina en ekki framtíðina.
Til að meta þróun næstu missera,
m.t.t. nauðsynlegra breytinga á
stýrivöxtum, horfir Seðlabankinn
einkum á horfur og þróun gengis
krónunnar, verðbólguálags skulda-
bréfa, atvinnuleysis og útlána inn-
lánsstofnana. Gengi krónunnar hef-
ur styrkst umtalsvert frá áramótum
og er krónan nú sterkari en verð-
bólguspá Seðlabankans fyrir árið
2002 gekk út frá. Gengisvísitalan
hefur að jafnaöi verið í 141 stigi frá
áramótum en í forsendum verð-
bólguspár Seðlabankans er hún
144,4 stig.
Verðbólguálag skuldabréfa hækk-
aði nokkuð eftir birtingu síðustu
verðbólgutalna en er þó svipað og
það var er Seðlabankinn lækkaði
stýrivexti í nóvember og mælast
raunstýrivextir um 6,6% sem sýnir
að aðhald peningastefnunnar er
áfram mikið, einkum í alþjóðasam-
anburði.
Nýjustu atvinnuleysistölur end-
urspegla minnkandi umsvif í hag-
kerfinu og hagræðingar fyrirtækja
til að mæta þeim. Vinnumálastofn-
un spáir mikilli aukningu atvinnu-
leysis í janúar og er því augljóst að
þenslan er á hröðu undanhaldi.
Að síðustu má nefna útlánatölur
innlánsstofnana, en eins og lesa
mátti úr síðustu ársfjórðungsupp-
gjörum bankanna þá mátti rekja út-
lánaaukninguna nær alfarið til
gengisþróunar krónunnar og verð-
breytinga innanlands. Náðst hefur
breið samstaða um að tryggja að
verðlagsforsendur kjarasamninga
náist.
Vaxtalækkun Seðlabankans væri
gott innlegg í baráttuna um að verja
kaupmátt launafólks en fyrst og
fremst væri sú ákvörðun rökrétt
með tilliti til ofantalinna atriða.
leikfélag Reykjavikur • lisfabrau
Söngur - leiklist - dans!
Lög úr þekktum söngleikjum
einsöngvar - dúettar.
Selma Bjömsdóttir og
Jóhanna Vigdís Arnardóttir,
ásamt dönsurum úr íslenska
dansflokknum og hljómsveit.
Laugardaginn 26. janúar,
kl. 16:00 á Stóra sviði.
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og
íram að sýningu sýningardaga.
Sími miðasölu opnar kl. 10
virka daga. Fax 568 0383
midasala@borgarleikhus.is
www.borgarleikhus.is
Tónleikar Selmu og Hönsu
- endurteknir vegna fjölda áskorana
BORGARLEIKHUSIÐ
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru
hér með auglýstar til kynningar tillögur að deiiiskipulagsáætlunum fyrir eftirtalin svæði í
Reykjavík:
Suðurlandsbraut, Vegmúli, Ármúli, Hallarmúli, endurskoðað deiliskipulag.
Tillagan tekur til svæðis er afmarkast af af Suðurlandsbraut til noröurs, Vegmúla til austurs,
Ármúla til suðurs og Hallarmúla til vesturs.
Um er að ræða tillögu að endurskoðuðu deilskipulagi svæðisins. Markmið með endurskoðun
þess er m.a. að stuðla að og stýra frekari uppbyggingu á svæðinu og endurskoða
bílastæðamál þess. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir aó heimilt verði að byggja við og ofan á nokkur
hús á reitnum auk þess sem heimilt verði að byggja bílageymslur á flestum lóðunum.
Brautarholt, Skipholt, Nóatún, endurskoðað deiliskipulag.
Tillagan tekur til svæðis er afmarkast af Brautarholti til norðurs og austurs, Skipholti til suðurs
og Nóatúni til vesturs.
Um er að ræða tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi reitsins. Markmíð með endurskoðun
þess er m.a. að stuðla að því að reiturinn verði fullbyggður, styrkja og fegra götumyndir hans
og gera húseigendum kleyft að endurbæta og eftir aðstæðum stækka hús sín. Tillagan geri
m.a. ráð fyrir að heimilt verði að byggja ofan á húsin nr. 23 og 29 við Skipholt, nýbyggingum
á lóðinni nr. 29, á horni Skipholts og Brautarholts, og nr. 30 við Brautarholt, auk minni
viðbyggingarmöguleika við önnur hús á reitum.
Tillögurnar liggja frammi í sal Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3,
1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 25. janúar 2002 til 8. mars 2002. Eru þeir sem telja
sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og
athugasemdum við þær skal skila skriflega til Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur
(Borgarskipulags Reykjavíkur) eigi síðar en 8. mars 2002.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 25. janúar 2002.
Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur.
íslenski hugbún-
aðarsjóðurinn
fjárfestir í CCP
- verður stærsti hluthafinn
Islenski hugbúnaðarsjóðurinn (ÍS-
HUG) hefur fest kaup á um 19,6% hlut í
CCP hf. Félagið var stofnað árið 1997 í
því augnamiði að verða leiðandi þróun-
arfyrirtæki á sviði tölvuleikja og þá sér-
staklega nýrrar tegundar slíkra leikja,
svokallaðra „massively multiplayer"
leikja sem leiknir eru Netinu og þátt-
takendur greiða fyrir aðgang aö með
áskrift. Eftir kaupin verður ÍSHUG
stærsti hluthafi félagsins með um 19,6%
hlut og mun taka mjög virkan þátt i
stjóm félagsins en þar hefúr ÍSHUG
einn fulltrúa.
Starfsemi CCP hefur verið í vexti á
undanfómum misserum að því er segir í
frétt frá íshug og nú starfa þar alls 29
manns meö mikla reynslu af hugbúnað-
argerð og intemet- og servertækni. Þró-
un á fyrstu vöm CCP, tölvuleiknum
EVE - The Second Genesis er nú langt
komin og gera áætlanir ráð fyrir að
hann komi i út í byijun sumars. Ef áætl-
anir ganga eftir munu ailt að 250.000 not-
endur geta leikið EVE í einu og byggir
tekjuhliö viðskiptahugmyndar CCP
einkum á þeim notendaflölda. Leikurinn
hefur hlotið mikla athygli erlendra fiöl-
miðla og fagtímarita. Um 30.000 einstak-
lingar hafa skráð sig vegna prófana á
lokagerð leiksins og félagið á nú i við-
ræðum við nokkra erlenda aðila um út-
áfu og dreifmgu EVE á heimsvísu.
„Við í íslenska hugbúnaðarsjóðnum
höfum fylgst grannt með CCP undan-
farin misseri og erum mjög spenntir
fyrir þessu verkefni," er haft eftir Sig-
urði Smára Gylfasyni, framkvæmda-
stjóra ÍSHUG, í frétt félagsins. „Að-
koma okkar nú er einnig á mjög heppi-
legum tímapunkti fyrir aðra hluthafa
CCP þar sem ÍSHUG mun taka virkan
þátt í rekstri CCP og leggja félaginu lið
í þeim verkefnum sem nú liggja fyrir,
einkum þó í tengslum við samninga
við þá útgefendur sem sýnt hafa áhuga
á að gefa EVE út.“ Þá segir Frosti Sig-
uqonsson, stjómarformaður CCP hf.,
að það sé mjög ánægjulegt að tekist hafi
samingar við ÍSHUG um hlutdeild í fé-'
laginu. „Islenski hugbúnaðarsjóðurinn
er leiðandi framtaksQárfestir á sviði
upplýsingatækni á íslandi og virk að-
koma sjóðsins að rekstri og stjóm fé-
lags mun án efa styrkja okkúr mjög.“
Verðbólga 2% á ári
á EES-svæðinu
Samræmd vísitala neysluverðs í EES-
rikjum var 109,7 stig í desember síðast-
liðnum og hækkaði um 0,2% frá nóvem-
ber. Á sama tima hækkaði samræmda
vísitalan fyrir ísland um 0,4%. Frá des-
ember 2000 til jafnlengdar árið 2001 var
verðbólgan, mæld með samræmdri vísi-
tölu neysluverðs, 2,0% að meðaltali í
rikjum EES, 2,1% í evru-ríkjum og 9,1%
á íslandi. Mesta verðbólga á evrópska
efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða
tímabili var á íslandi, 9,1%, og i
Hollandi, 5,1%. Verðbólgan var mlnnst,
0,9%, i Lúxemborg.
FÓSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002
X>v
HEILDARVIÐSKIPTI ??? m.kr.
- ??? ??? %
- ??? ??? %
MEST VIÐSKIPTI
©??? ??? %
© ??? ??? %
© ??? ??? %
MESTA HÆKKUN
Q??? ??? %
Q??? ??? %
©??? ???%
MESTA LÆKKUN
©??? ??? %
© ??? ??? %
©??? ??? %
ÚRVALSVÍSITALAN ??? stig
- Breyting o ???%
Forstjóri Enrons
segir af sér
Kenneth L. Lay sagði af sér sem for-
stjóri bandaríska orkufyrirtækisins En-
rons á miðvikudagskvöld en hann hefur
að undanfómu verið sakaður um flest
það sem fór úrskeiðis í rekstri fyrirtæk-
isins. Hann verður þó áfram í sýóm En-
rons. Lay, sem er 59 ára, breytti Enron
úr staðbundu orkudreifingaríyrirtæki í
eitt af stærstu fyrirtækjum heims á
sviði viðskipta með orku.
„Ég vil að Enron lifi þetta af og til
þess að það geti orðið þurfum við að að
hafa mann við stjómvölinn sem getur
algerlega helgaö sig því að endurskipu-
leggja fyrirtækið og vemda verðmæti í
þágu lánardrottna og starfsfólks okkar,“
sagði Lay i yfirlýsingu sem hann sendi
frá sér á miðvikudag.
Lay sagði að of mikið af tíma sínum
hefði farið í íjölda rannsókna sem gerð-
ar em á starfsháttum Enrons og að
erfitt væri að einbeita sér að því sem
mikilvægast væri fyrir hluthafa Enrons.
í dag hefjast tvær vitnaleiðslur fyrir
þingnefhd tengdar gjaldþroti Enrons.
Minnkandi tölvu-
sala í heiminum
Dreifing á einmenningstölvum dróst
saman um 6,7% í heiminum á fjórða
ársfiórðungi síðasta árs. Minni sam-
dráttur var í Evrópu, Miðausturlöndum
og Afríku, eða 5,1%, að því er fram kem-
ur í könnun Intemational Data Cor-
poration (IDC).
Compaq er
stærsti tölvu-
framleiðand-
inn í dag, með
14,3% mark-
aðshlut-
deild, Dell
er með 9,6%, Hewlett-
Packard með 8,5%, Fujitsu Siemens með
8,4% og IBM rekur lestina af stærstu
framleiðendunum með 5,9% markaðs-
hlutdeild.
Ástæðan fyrir samdrætti í dreifmgu
á tölvum er sögð aðhaldsaðgerðir í fyr-
irtækjum og að mörg þeirra uppfæra
tölvur sínar ekki eins ört og áður. Fram
kemur á vefsíðunni IDG að hinu nýja
stýrikerfi Windows XP frá Microsoft
hafi ekki tekist að örva sölu á tölvum
eins og vonir stóðu til. Þar er haft eftir
Andrew Brown, hjá greiningafyrirtæk-
inu IDC, að mun meiri eftii-spum sé eft-
ir tölvum í Evrópu en í Bandaríkjunum,
en þar sé markaðurinn einfaldlega mett-
aður.
Einkum sé vöxtur í sölu á fartölvum
í Evrópu en sala á fartölvum er meiri en
á borðtölvum, bæði til nota á heimilum
og í fyrirtækjum. Talið er að ástæðan
fyrir aukinni sölu á fartölvum sé meðal
annars verðstrið milli smásala.
25. 01. 2002 kl. 9.15
KAUP SALA
jfalpollar 102,460 102,990
SÍÖPund 145,830 146,570
1* ÍKan. dollar 63,870 64,270
“ Donsk kr. 12,0760 12,1420 1
btllNorsk kr 11,3940 11,4570 |
CBSænsk kr. 9,7190 9,7730 j
J! Sviss. franki 61,1200 61,4600
j 1 • |jap. yon 0,7603 0,7648
: í^ecu 89,7236 90,2628 :
SDR 127,6300 128,3900 |