Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Síða 21
FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002
Tilvera^
Myndgátan
Lárétt: 1 dugleg,
4 bragð, 7 leyfí,
8 loftgat, 10 leikni,
12 snjóhula, 13 ljómi,
14 kraftlítil, 15 þreytu,
16 eyktamark,
18 ávarp,
21 afturhluta,
22 dolla, 23 sigaði.
Lóðrétt: 1 blaut,
2 seyði, 3 aflvana,
4 umhverfa, 5 óvissa,
6 mælir, 9 horfur,
11 stif, 16 beiðni,
17 dygg, 19 áköf,
20 flýtir.
Lausn neðst á síöunni.
Skák
Ruslan Ponomariov varö yngsti
FIDE-heimsmeistarinn í skáksögunni,
18 ára, þegar hann samdi jafnteíli við
Vassilí ívantsjúk í aðeins 22 leikjum
og lokatölumar urðu 4,5-2,5. Lokastaö-
an í síðustu skákinni er mun betri hjá
Pono og sterkir skákmenn ganga svo
langt að segja að hún sé unnin!
Hvítt: Ruslan Ponomariov (2727)
Svart: Vassilí ívantsjúk (2717)
Aljechin-vöm.
Heimsmeistarakeppni FIDE,
Moskvu (7), 23.01. 2002
1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6 4. Rf3
Rc6 5. c4 Rb6 6. e6 fxe6 7. Rc3 g6 8.
Be3 Bg7 9. h4 0-0 10. h5 e5 11. d5
Rd4 12. Rxd4 exd4 13. Bxd4 g5 14.
Bxg7 Kxg7 15. h6+ Kg8 16. Dd2 e5
17. Hh5 g4 18. Dg5+ Dxg5 19. Hxg5+
Kh8 20. Hg7 Hf6 21. Hxc7 Hxh6 22.
b4. Jafntefli
Bridge
Umsjón: ísak Örn Sigurösson
Það er skammt á milli hláturs og
gráts i bridge og úrslit leikja í
sveitakeppni geta auðveldlega ráð-
ist af einu spili. Spil dagsins, sem
kom fyrir í sveitakeppni fyrstu
deildar í Danmörku nýverið, olli
ótrúlega stórri sveiflu í leiknum.
Sagnir voru hressilegar og enduðu
á redobluðum samningi, suður gjaf-
ari og NS á hættu:
* 109762
*D65
* G108
* 65
* ÁD83
* KG8
* K32
* KDG
ó KG54
M Á3
•f 754
* Á873
* 109742
* ÁD96
* 10942
SUÐUR VESTUR NORÐUR AUSTUR
Kröjg. Adams. Henneb. Palmund
Pass pass 1« pass
1 grand redobl pass P/h 3 grönd dobl
Dennis Koch-Palmund ákvað að
dobla þrjú grönd til þess að benda á
að spaðaútspil og redobl Niels
Kröjgaard lýsti efasemdum um að
þrjú grönd væru rétti samningurinn.
Jens Ove Henneberg var hins vegar
tilbúinn að freista gæfunnar i þessum
samningi. Útspil vesturs var tían í
spaða. Sagnhafi tók fyrsta slaginn á
ásinn og laufakóngurinn lagöur niö-
ur. Austur drap á ásinn og spilaði
spaðagosa. Sagnhafi tók slaginn á
drottninguna, spilaði
DG í laufi, tígli á ás-
inn, tók fjórða laufið
og tígli á kóng heima.
Klaus Adamsen gætti
þess vel að henda átt-
unni og gosanum í
tígli undir ÁK.
Henneberg ákvað þá að svina níunni
í tigli og vörnin fékk sex slagi og 1000
í sinn dálk. Ef hann hefði hins vegar
toppað tígulinn hefði sagnhafi fengið
töluna 1000! Samningurinn á hinu
borðinu var 4 hjörtu sem vannst auð-
veldlega og sveit Adamsens græddi 17
impa í stað þess að tapa 9 impum.
Lausn á krossgátu _____
•isb oz ‘isæ 61 ‘ruj u ‘>jso 91 ‘qji)s h
‘)II)n 6 ‘)?ui 9 ‘íja 9 ‘BdJBAnotj f ‘snBUjBJti g ‘qos z ‘)Oa i :))QjQQ7
•t))B 82 ‘snjtj ZZ ‘sdumj \z ‘bqsbj 81 ‘B))o 91 ‘Bnj gx
‘5JTOA n ‘)n8 81 ‘IPJ 81 ‘)SI) oi ‘BQn) 8 ‘JOJJO z, UII3>[ \ ‘jjsoa x :))3JB1
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
blaðamaður
Húrra fyrir
nýjum blöðum
Það gleður mitt gamla
landsbyggðarhjarta að ný hér-
aðsfréttablöð á austan- og
norðaustanverðu landinu
skuli vera að hefja göngu sína
eða vakna af nokkurra miss-
era dvala. Eystrahorn hefur
eitt staðið vaktina að undan-
förnu á eystri helmingi lands-
ins. Fyrst heyrði ég 1 nýjum
ritstjóra þess blaðs sem koma
mun út í mínu gamla kjör-
dæmi á Austurlandi. Þar fer
gamall fréttahaukur, Brynjólf-
ur Þorvarðarson, sem ritstýrði
Eystrahorni í eina tíð og leið-
ararnir hans lifa enn í minn-
ingunni. Nú svo er það nýja
blaðið á Húsavík sem er að
líta dagsins ljós í dag. Eflaust
blað alls mannkyns eins og
gamla Víkurblaðið. Þar stýrir
pennanum Jóhannes Sigur-
jónsson sem þekktur er meðal
þjóðarinnar fyrir sína hnyttni.
Þrátt fyrir tilkomu netmiðla
og annarrar nýtísku hafa hér-
aðsfréttablöðin enn hlutverki
að gegna, ekki síður en dag-
blöðin. Þau ná að vísu sjaldan
að vera fyrst með stórfréttirn-
ar en þau eru mikilvægur
vettvangur skoðanaskipta og
menningar- og mannlífsefnis í
sínum byggðarlögum, auka
samkennd borgaranna og
sjálfsvirðingu staðanna. Svo
gefa þau okkur hinum, sem
komin erum í aðrar sóknir,
kost á að fylgjast með lífinu í
landinu, bæði í máli og mynd-
um. Ekki má gleyma hinum
sagnfræðilega þætti svona út-
gáfu. Blöðin eru nefnilega ald-
arspegill með ómetanlegt
heimildagildi.
Sandkorn ___
Umsjón: Höröur Kristjánsson • Netfang: sandkorn@dv.is
Björn Bjarnason, núver
andi menntamálaráðherra og vænt-
anlegur borgarstjóri; í það minnsta
að mati sjálfstæðis-
manna, þykir sér-
lega laginn í að
draga mál á lang-
inn. í meira en ár
hefur verið gefið i
skyn að honum
gæti allt eins
hugnast að taka
yfir forystusæti Ingu Jónu Þórðar-
dóttur í borgarstjórnarflokki sjálf-
stæðismanna. í heilt ár hefur Björn
þó aldrei sagt að hann ætlaði að
gera þetta. Hann hefur heldur aldrei
sagt að hann ætlaöi ekki að gera
þetta. Með því að segja í raun aldrei
neitt þá hefur honum samt tekist að
fá tvo frambjóðendur í forystusætið,
Ingu Jónu og Eyþór Arnalds, til að
hætta við framboð sin. Er nú eng-
inn í framboði í oddvitasætið. Þau
hafa bæði afgreitt málið svo snyrti-
lega að jafnvel þótt Bjöm segði bara
„ - úps, sorrý, allt í plati,“ þá eiga
þau ekki afturkvæmt í forystuhlut-
verkið. Það yrði því uppi meiri hátt-
ar fár ef Björn segði á morgun: „Því
miður, það stóð bara aldrei til að ég
hætti sem ráðherra ...“
Ótrúlega spaklegir auglýsinga-
frasar eru enn til umræðu. Hér eru
nokkrir sem hafa borist Sandkomi
nýverið: Isa-
Qarðarkaup-
staður:
Starfsmann
vantar, kven-
mann, til
starfa. - Við
byggjum upp
líkama sem endist ævilangt! - Vant-
ar mann til að vinna í dínamítverk-
smiðju. Þarf að vera tilbúinn til að
ferðast. - Notaðir bílar. Því að fara
annað og láta svíkja sig. - Ólæs?
Skrifaðu okkur strax í dag og við
munum veita þér ókeypis aðstoð! -
Vinna í boði fyrir mann til að
hugsa um kú sem hvorki reykir né
drekkur ..!
Sjálfstæðisflokkurinn í
ísafjarðarbæ býður að öllum líkind-
um fram klofið í sveitarstjórnar-
kosningunum í vor. í héraðsfrétta-'-
blaðinu BB er greint frá því að
Halldór Jónsson,
fyrrum bæjarfull-
trúi sjálfstæðis-
manna í ísafjarð-
arbæ, sé í hópi
fólks sem vinnur
að undirbúningi
nýs framboðs við
bæjarstjórnar-
kosningarnar í vor. Hann segir orð-
ið nokkuð öruggt að af þessu fram-
boði verði. „Það þarf mikið að ger-
ast til að það verði ekki framboð."
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem~'
flokkurinn klofnar í bæjarmálapóli-
tíkinni. Með hliðsjón af fólksfækk-
un á svæðinu velta menn nú vöng-
um yfir því hvort flokkurinn sé
ekki að hrökkva í öreindir ...
Dagur millifótakonfektsins er í
dag, eða svokallaður bóndadagur.
Markar dagurinn upphaf þorra og
hefst þá tími
þorrablót-
anna. Sumir
illa innrættir
segja reynd-
ar: „timi
skemmda
matarins“.
Vist er að þá -
eru dregnir upp á borð réttir sem
ekki eru öllum að skapi. Það þótti
því tíðindum sæta í vetur er spurð-
ist af gífurlegri eftirspurn Banda-
ríkjamanna eftir millifótakonfekti,
eða hrútspungum. Er svo komið að
framboð hérlendis er orðið mun
minna en eftirspurn, reyndar svo
mjög að aðdáendur hinna súru
punga óttast nú um hag sinn.
Heyrst hefur að íslenskir pungaunn-
endur hyggist stofna samtök
pungaunnenda til að stemma stigi^-
við óheftum útflutningi hrútspunga.
Mun þar efst á stefnuskránni að
knýja í gegnum Alþingi lög sem
banna ómannúðlega meðferð
Bandaríkjamanna á pungum. Þeir
steikja pungana í sjóðheitri feiti likt
og franskar kartöflur! Slíkt sé mis-
þyrming á stolti karldýrsins og
jaðri við guðlast...
I
1
I
Og eigur-
vegarinn er.
Fyrir besiu endur-
greiÖ5lu frá ekatti
eru tilnefndir...
Margeir fs&MísZv
Svanseon! klapp klap
klapp klapp klapp
Aukaverðlaunin
eru nú aðeins
^■1 að fara úr
3S\böndunum.
Fyrir bestu sölu á næsff
um-sjávareignum eru til-
nefndir: Njáll Finnsson,
Eðvarð Fálsson og Mar-
aeir Svansson...