Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Page 22
.,26
*" Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
85 ára________________________
Stefanía Ólöf Magnúsdóttir,
^Hörpugötu 13b, Reykjavík.
'Hannes Kristjánsson,
Silfurbraut 21, Höfn í Hornafirði.
Katrín Loftsdóttir,
Hátúni 10, Vík.
80 ára___________________
Fríöa Sveinsdóttir,
Hjálmholti 12, Reykjavík.
75 ára___________________
Jóhann Þórðarson,
Bugðulæk 6, Reykjavlk.
Þorsteinn Egilsson,
Stóragerði 28, Reykjavík.
Hreggviöur Karl Elíasson,
Hjarðarholti 8, Akranesi.
Sigurlaug Jónsdóttir,
Ási, Skagaströnd.
60 ára___________________
Baldur Sveinsson,
Asparfelli 2, Reykjavík.
Helga Ingólfsdóttir,
Strönd, Bessastaðahreppi.
Margrét Stefánsdóttir,
Brennigerði, Sauöárkróki.
María Margrét Árnadóttir,
Eyrarvegi 4, Akureyri.
Kristinn Gunnarsson,
Ártúni 4, Hellu.
50 ára________________________
Ingibjórg Ingadóttir,
" Njálsgötu 75, Reykjavík.
Bjarni Geirsson,
Hjallalandi 2, Reykjavík.
Sveinbjörn Smári Herbertsson,
Möörufelli 1, Reykjavík.
Svala Björgvinsdóttir,
Lindasmára 47, Kópavogi.
Sigrún Steingrímsdóttir,
Glitvangi 1, Hafnarfirði.
Margrét Hannibalsdóttir,
Neðra-Núpi, Hvammstanga.
Sigurgeir Guömundsson,
Bergöldu 1, Hellu.
4 40 ára_________________________
Margrét Dagmar Ericsdóttir,
Miðleiti 1, Reykjavík.
Birgir Rafn Árnason,
Gnoðarvogi 52, Reykjavík.
Guðný Stefanía Hauksdóttir,
Heiðnabergi 14, Reykjavík.
Egill Grímsson,
Ásbúö 85, Garöabæ.
Victor Örn Victorsson,
Borgabraut 1, Hólmavík.
Viöar Magnússon,
Móasíðu 9a, Akureyri.
(A
•OD
<Z>
550 5000
03
'03
£L
550 572T
Þverholt 11,
105 Reykjavík
Andlát
Siguröur G. Ingólfsson, fyrrv. flug-
vélstjóri, Selkoti við Selvatn, lést á
sjúkrahúsi í Odda í Noregi þriðjud. 22.1.
Lára Sigþrúöur Siguröardóttir, Skóla-
garöi 8, Húsavík, lést á öldrunardeild
Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga sunnud.
20.1.
Herbert Albertsson, fæddur Herbert
Patrick Ward, Hraunbæ 91, Reykjavík,
andaðist á gjörgæsludeild Landspítal-
/ans við Hringbraut sunnud. 20.1.
Lilja Vigfúsdóttir, Holtageröi 52, Kópa-
vogi, lést á Landspítala Fossvogi laug-
ard. 12.1. Útförin hefur farið fram í kyrr-
þey að ósk hinnar látnu.
Ólafur G.S. Karvelsson, Árskógum 6,
Reykjavík, lést á Landspítalanum Foss-
vogi, þriöjud. 15.1. Jarðarförin hefur far-
iö fram í kyrrþey að ósk hins látna.
FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002
DV
Fólk í fréttum
Ingólfur Hannesson
íþrottastjori RUV
Ingólfur Hannesson, Iþróttastjóri
RÚV, hefur mikið verið í fréttum að
undanförnu vegna umræðna um
það hvort heimsmeistarakeppnin í
knattspyrnu næsta sumar verði
sýnd í ríkissjónvarpinu.
Starfsferill
Ingólfur fæddist í Borgarnesi 23.6.
1953 og ólst þar upp og í vesturbæn-
um í Reykjavík. Hann var í Mela-
skóla, Hagaskóla, lauk stúdentsprófi
frá MR, lauk íþróttakennaraprófi
frá íþróttakennaraháskóla Islands á
Laugarvatni 1978, cand.mag.-prófl í
uppeldisfræði og félagsfræði frá Há-
skólanum í Ósló 1984, hefur hann
sótt fjölmörg námskeið, m.a. í
starfsmannastjórnun við American
Management Association og nemur
nú mannauðsstjórnun við Endur-
menntunarstofnun HÍ.
Ingólfur hefur lagt stund á ýmis
sumarstörf, s.s. byggingarvinnu o.fl.
Hann vann við laxveiði hjá foreldr-
um sínum við Hvitá í Borgarfirði,
starfað að íþróttaþjálfun, m.a. knatt-
spyrnuliða Leifturs, Einherja og
Skallagrims, stundaði blaða-
mennsku 1978-81 á Tímanum og
Þjóðviljanum, var íþróttakennari
við Austurbæjarskóla og Iðnskól-
ann i Reykjavík 1978-81, íþrótta-
fréttamaður hjá ríkissjónvarpinu
1983-85 og hjá Ríkisútvarpinu
1985-87, var starfsmannastjóri hjá
Eimskipafélagi Islands 1987-88 og
hefur verið iþróttastjóri Ríkisút-
varpsins frá 1988.
Ingólfur hefur gegnt margvísleg-
um félags- og trúnaðarstörfum, m.a.
sem formaður Samtaka íþrótta-
fréttamanna og varaformaður Fé-
lags fréttamanna. Hann var einn af
stofnendum íslensku ólympíuaka-
demíunnar 1987, hefur setið í stjórn
hennar frá stofnun og er nú formað-
ur hennar. Hann var einn af stofn-
endum nemendasamtaka alþjóðlegu
ólympíuakademíunnar (IOAAA)
1989, var forseti þeirra í ijögur ár,
hefur verið fulltrúi RÚV (íþrótta) á
erlendum vettvangi m.a. innan EBU
og samtaka norrænna sjónvarps-
stöðva, situr i þróunarnefnd EBU,
hefur starfað mikið á erlendum
vettvangi fyrir EBU, m.a. á
þrennum síðustu ólympíuleikum,
hefur haldið fyrirlestra um íþrótta-
málefni og starfsmannastjórnun og
skrifað greinar um iþróttamálefni í
íslensk og erlend tímarit.
Fjölskylda
Ingólfur kvæntist 25.8. 1979 Guð-
rúnu Bjarnadóttur, f. 2.7.1957, kenn-
ara við KHÍ. Hún er dóttir Bjarna
Sigmarssonar, verkstjóra hjá ÚA, og
Helgu Ásgeirsdóttur, sem nú er lát-
in.
Börn Ingólfs og Guðrúnar eru
Harpa María, f. 5.2.1979, læknanemi
í Óðinsvéum í Danmörku; Daði
Freyr, f. 13.11.1991, nemi.
Albróðir Ingólfs er Gústaf, f. 18.6.
1949, sölumaður i Reykjavík.
Systkini Ingólfs, sammæðra, eru
Jón Sigurðsson, f. 8.12. 1941, nú
látinn, framkvæmdastjóri í Reykja-
vík; Ingibjörg Sigurðardóttir, f. 13.1.
1940, gjaldkeri á Akranesi.
Foreldrar Ingólfs: Hannes Ólafs-
son, f. 28.9. 1903, d. 15.12. 1985, lax-
veiðibóndi á Hvítárvöllum í Borgar-
firði, og k.h., Ása Sigríður Björns-
dóttir, f. 14.9. 1913, d. 1993, laxasölu-
maður og húsmóðir.
Ætt
Hannes var sonur Ólafs, b. á Hvít-
árvöllum Davíðssonar, b. á Þor-
gautsstöðum, bróður Ólafs, langafa
Jóns, föður Þorsteins, skálds frá
Hamri. Ólafur var einnig langafi
Guðrúnar, móður Bjarna Benedikts-
sonar forsætisráðherra, föður Björn
menntamálaráðherra. Hálfsystir
Guðrúnar var Kristín, móðir Ragn-
hildar Helgadóttur, fyrrv. mennta-
málaráðherra. Annar bróöir Davíðs
var Sigurður, pr. í Vatnsfirði,
langafl Þórarins, afa Þórarins Tyrf-
ingssonar yfirlæknis. Davíð var
sonur Þorbjörns ríka, gullsmiðs í
Lundum Ólafssonar, og Málfríðar
Sigurðardóttur, b. í Fljótstungu
Halldórssonar. Móðir Ólafs var Mál-
fríður Þorsteinsdóttir, b. að Hurðar-
baki Þiðrikssonar og Steinunnar
Ásmundsdóttur.
Móðir Hannesar var María Sæ-
mundsdóttir, b. á Grjóti Jónssonar
og Guðrúnar Jónsdóttur.
Ása Sigríður var dóttir Jóns,
kaupmanns í Borgarnesi, bróður
Málfríðar, móður Málfríðar Einars-
dóttur rithöfundar. Önnur systir
Jóns var Helga, móðir Halldórs H.
Jónssonar, arkitekts og stjórnarfor-
manns, föður Garðars arkitekts, en
systir Halldórs var Selma, forstöðu-
maður Listasafns Islands. Bróðir
Jóns var Guðmundur, sýslumaður i
Borgarnesi. Annar bróðir Jóns var
Kristján, faðir Þuríðar, prófessors
við KHÍ. Jón var sonur Björns, b. á
Skarfhóli í Stafholtstungum Ás-
mundssonar, b. á Laxfossi Þórðar-
sonar, pr. í Hvammi Þorsteinsson-
ar. Móðir Björns var Margrét
Björnsdóttir, pr. í Hítarnesþingum
Sigurðssonar. Móðir Jóns var Þur-
iður, skáld og ljósmóðir Jónsdóttir,
b. á Hofsstöðum Halldórssonar,
fræðimanns á Ásbjarnarstöðum
Pálssonar. Móðir Jóns á Hofs-
stööum var Þórdis Einarsdóttir,
Sveinbjörnssonar, bróður Þórðar
dómstjóra. Móðir Þuríðar ljósmóður
var Helga Jónsdóttir.
Móðir Ásu Sigríðar var Ragnhild-
ur, hálfsystir Karls, yfirlæknis á
Landakoti, og Gústafs Adolfs, skrif-
stofustjóra í dómsmálaráðuneytinu
Jónassona. Ragnhildur var dóttir
Jónasar, b. í Sólheimatungu Jóns-
sonar, b. á Leirá Ámasonar. Móðir
Jónasar var Guríður Þorbjörns-
dóttir, b. í Kvíum í Þverárhlíð
Ólafssonar. Móðir Ragnhildar var
Guðrún Tómasdóttir.
Fimmtugur
Valgeir Sigurðsson
verkstjori a Akureyri
Valgeir Sigurðsson, verkstjóri í
Hörpu og Sjöfn, Huldugili 29,
Akureyri, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Valgeir fæddist að Ytra-Dalsgerði
í Eyjafjarðarsveit og ólst upp í
Eyjafjarðarsveit til 1965 og síðan á
Akureyri. Valgeir var í
Steinsstaðaskóla í Skagafirði.
Valgeir var í Grímsey um skeið á
unglingsárunum og kynntist þar
eiginkonu sinni. Þau hófu sinn
búskap í Grimsey en fluttu til
Akureyrar 1969. Valgeir hóf þá
fljótlega störf hjá
Efnaverksmiðjunni Sjöfn og hefur
starfað þar síðan, lengst af sem
verkstjóri.
Valgeir er mikill áhugamaður um
söng og hefur sungið í Karlakór
Akureyrar-Geysi um árabil.
Fjölskylda
Valgeir kvæntist 26.12. 1970
Siggerði Jóhannesdóttur, f. 14.10.
1952, húsmóður. Hún er dóttir
Jóhannesar Magnússonar, f. 20.5.
1925, fyrrv. útgerðarmanns í
Grímsey, og Guðrúnar Sigfúsdóttur,
f. 21.8. 1924, d. 3.1. 1994, húsmóður.
Börn Valgeirs og Siggerðar eru
Jóhannes, f. 6.6. 1968, ráðgjafi í
íslandsbanka á Akureyri en kona
hans er Astrid Hafsteinsdóttir, f.
23.7. 1968, kennari og eru synir
þeirra Svanur, Bjarki og Halldór;
Svanur, f. 5.4. 1969,
starfsmannastjóri hjá Bónus í
Kópavogi en kona hans er Guðrún
Dóra Marteinsdóttir, f. 10.10. 1966,
flugfreyja og eru synir þeirra
Garðar og Valgeir Árni;Unnur, f.
15.10. 1974, kennari á Akureyri.
Dóttir Valgeirs er Sólveig Hulda,
f. 31.7. 1975, hjúkrunarfræðingur á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
en maður hennar er Garðar
Sigurðsson, f. 1.4. 1972, tannlæknir
og er dóttir þeirra Guðrún Björk.
Systkini Valgeirs eru Baldur
Sigurðsson, f. 21.2. 1932, búsettur á
Sauðárkróki; Jónína Sigurðardóttir,
f. 27.2. 1934, húsmóðir, búsett í
Reykjavík; Sigrún Sigurðardóttir, f.
28.1. 1936, starfaði lengi við
heimilisþjónustu á vegum
Akureyrarbæjar, búsett á Akureyri;
Fjóla Sigurðardóttir, f. 11.8. 1939,
starfrækir trésmíðaverkstæði með
manni sínum, búsett á Akureyri;
Halla Sigurðardóttir, f. 14.10. 1944,
kennari, búsett á Akureyri; Pálmi
Sigurðsson, f. 24.9. 1945, bygginga-
verkamaður, búsettur á Akureyri;
Lilja Sigurðardóttir, f. 27.4. 1947,
búsett í Mosfellsbæ; Kristinn
Sigurðsson, f. 22.9. 1948, húsvörður
við Oddeyrarskóla, búsettur á
Akureyri.
Foreldrar Valgeirs voru Sigurður
Sigurðsson, f. 12.11. 1910, d. 22.4.
1976, og Unnur Pálmadóttir, f. 26.8.
1912, d. 19.10. 1975, búsett í Ytra-
Dalsgerði og í Kaupangi við
Akureyri og siðan á Akureyri.
Valgeir verður að heiman á
afmælisdaginn.
Merkir íslendingar
Páll Valdimar Guðmundsson Kolka
læknir, fæddist á Torfalæk á Ásum í
Torfalækjarhreppi 25. janúar 1895. Hann
var sonur Guðmundar Guðmundssonar,
bónda á Torfalæk, og Ingibjargar Sól-
veigar Ingimundardóttur húsfreyju,
systur Guðrúnar Ástu, ömmu Braga
Níelssonar, yfirlæknis og fyrrv. alþm.
á Akranesi. Hálfbróðir Páls var Jón,
bóndi á Torfalæk, faðir Jónasar
fræðslustjóra, föður Ögmundar, alþm.
og formanns BSRB. Jón var einnig fað-
ir Guðmundar, skólastjóra á Hvanneyri,
Ásgeirs námsgagnastjóra og Björns,
læknis og veðurfræðings.
Páll lauk stúdentsprófi frá MR 1913 og
embættispróf i læknisfræði frá HÍ 1920. Hann
PállV.G. Kolka
var læknir í Vestmannaeyjum 1920-1934, þar
af sjúkrahúslæknir 1930-1934, og héraðs-
læknir í Blönduóshéraði 1934-1960. Eftir
1960 stundaði hann ýmsar læknisfræði-
legar rannsóknir, einkum á sviði
berklaveikinnar á nítjándu öld.
PáU stundaði búskap á jörðunum
Klöpp á Miðnesi og í Holti á Kolku-
mýrum, sat í lengi í bæjarstjórn Vest-
mannaeyja og var forseti hennar
1930-1934, starfaði þar að bindindis-
málum og var formaður íþróttaráðs
Vestmannaeyja, var áhugamaður um
sögu og ættfræði, sat í stjórn Sögufélags
Húnvetninga í tæp tuttugu ár og sendi frá
sér ábúenda- og ættartalið Föðurtún, ljóða-
bækur og samdi leikrit. Hann lést 19. júlí 1971.
Sigurborg Jónsdóttir, Heiðarhvammi
8G, Keflavík, verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju föstud. 25.1. kl. 14.
Theodór Karlsson, Krosseyrarvegi 4,
Hafnarfirði, verður jarösunginn frá
Kapellunni í Kirkjugarði Hafnarfjarðar
föstud. 25.1. kl. 13.30.
Helga Anna Kristinsdóttir, Seljahlíö,
Hjallaseli 55, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Fossvogskapellu föstud.
25.1. kl. 15.
Ari Þóröarson frá Hlíö verður jarösung-
inn frá Háteigskirkju 25.1. kl. 13.30.
Jarðarför Ralph Smith, 14 The Byeway,
London, SW14 7NL, fer fram frá
Mortlake Crematorium, Kew Road,
föstud. 25.1. kl. 14.30.
Guömundur K. Einarsson vélstjóri frá
Siglufirði, verður jarðsunginn frá Siglu-
fjarðarkirkju laugard. 26.1. kl. 14.