Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Side 24
-,28
~ Tilvera
FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002
DV
lí f iö
E F T I R V I N N U'
irnamessa
Málþing verður um þjóðhætti i
Þjóðarbókhlöðunni dag í tilefni
af 70 ára afmæli Árna
Bjömssonar, þjóðháttafræðings.
Það stendur milli kl. 13.30-17.
Til máls taka Margrét Hall-
grímsdóttir, Þórður Tómasson,
Jóan Pauli Joensen, Terry
Gunnel og Hallgerður Gísla-
dóttir, auk afmælis-bamsins.
Guðni Franzson og Tatu
Kanotmaa leika þjóðlega tónlist.
Kaffi og kleinur verða á borðum.
Leikhús
■ BOÐOWÐIN 9 Borgarleikhúsið
frumsýnir í kvöld leikritiö Boðorðin 9
eftir Ólaf Hauk Símonarson kl. 20 á
stóra sviðinu.
■ FYRST ÞARF NÚ AÐ FÆÐAST
er sýnt á Nýja sviði Borgarleikhúss-
ins og hefst sýningin kl. 20.
■ HVER ER HRÆDPUR VIÐ VIRG-
INIU WOOLF? I kvöld sýnir Þjóöleik-
húsið Hver er hræddur við Virginíu
Woolf?. kl. 20.
LEIKUR Á BORÐI islenska leik-
húsgrúppan sýnir í kvöld leikverkið
Leikur á, borði - gómsætur gaman-
leikur í íslensku óperunni kl. 20.
■ MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI i
kvöld sýnir Þjóöleikhúsiö Með fulla
vasa af grjóti eftir Marie Joneskl.
20.
■ SLAVAR í kvöld frumsýnir Lelkfé-
lag Akureyrar verkið Slavar eftir
Tony Kushner kl. 20.
Kabarett
■ SOLARKAFFI A HOTEL SOGU
Sólarkaffi Isfirðinga er haldið á Hót-
el Sögu. Hljómsveitirnar Heiðurs-
menn og Kolbrún, Rúnar Þór og fé-
lagar og ísfirska hljómsveitin Ponnu-
kókur með rjóma Igika fyrir dansi.
J. Skemmtidagskrá: Önundur Jónsson,
Magnús Reynir Guömundsson, Halli
og Laddi og Geir Ólafs.
■ ÞJÓÐLÖG Á ÞORRA
Þúsundþjalakvöld verður í Salnum í
Kópavogi í kvöld. Flutt verða þjóðlög,
þjóövísur og kvæði í ýmsum búningi.
Síðustu forvöð
■ VEGGSKULPTURAR I GALLERI
SÆVARS KARLS Það fer hver að
veröa síöastur aö kíkja á veggskúlpt
úra eftir Helgu Kristrúnu Hjálmars-
dóttur í Galleríi Sævars Karls í
Bankastræti.
POPP
■ MHONÆTURTONLEIKAR BUBBA
I MOSFELLSBÆ Bubbi Morthens
mætir með hljómsveit sína, Stríð og
v frlð, á Álafoss föt best í Mosfells-
bæ á miðnætti í kvöld
■ KYNNING í 12 TÓNUM Kl. 17
kynnir Einar Rafn Þórhallsson efni af
nýrri plötu sem nefnist Dreymandinn
í versluninni 12 tónar á Skólavörðu-
stíg.
Krár
■ BUFF A VIDALIN Sprellikarlarnir í
Buff mæta glaðir á Vídalín og halda
uppi voöa fjori.
■ CATALÍNA. KÓPAVOGI Þotuliðiö
leikur fýrir dansi á Catalínu Hamra-
borg, en sveitin ætti að vera Kópa-
,’5vogsbúum vel kunn.
■ CERES4 Ceres 4 heldur áfram
fyrirlestraferð sinni um landið ásamt
hljómsveit sinni, Sannaðuða. Að
þessu sinni staldrar hann viö á hinni
víðfrægu unglingabúllu Slrkus
v/Klapparsíg þar sem hann mun
halda reiðilestur yfir æsku landsins.
Uppáhaldsmyndbandið
pwwmai
Vísindaskáldsagnafíkill
- segir Inga Sólveig Friðjónsdóttir myndasmiður
„Ég reyni alltaf að sjá myndir
í bíó ef ég get, að minnsta kosti
stóru myndirnar," segir Inga
Sólveig Friðjónsdóttir mynda-
smiður. „Síðasta mynd sem ég
sá í bíó var Lord of the Rings.
Mér fannst hún mjög góð en það
truflaði mig hvað ég sá hana í
litlum sal. Það er svo mikið í
gangi í myndinni að maður
verður að sjá hana á stóru
tjaldi."
Amelie yndisleg
Inga segist hafa séð myndina
Amelie um daginn og að hún sé
yndisleg. „Ég flissaði eins og
smástelpa allan tímann, hún er
bæði falleg og fyndin." Þegar
Inga er spurð hvort hún hafi
meira gaman af einni gerð af
myndum en öðrum segist hún
Flótti frá raunveruleikanum
„Þegar ég hugsa út í þaö, “ segir inga Sólveig Friöjónsdóttir
myndasmiður, „eru kvikmyndir mín leiö til aö flýja raunveruleik-
ann og kynnast öörum heimum, hvort sem þaö eru ímyndaðir
heimar vísindaskáldsögunnar eöa myndir sem lýsa menningu
annarra þjóöa. “
Underground
Aö sögn Ingu var rosalega mikið aö gerast í
júgóslavnesku myndinni Underground og skemmti-
leg lúörasveitatónlist í sígaunastíl sem hún spilar
mikiö í partíum.
heimsótt öll þau lönd
sem mann langar til og
þá er gaman að horfa á
myndir sem veita innsýn
í aðra heima og önnur
lönd.“
hafa gaman af góðum þrillerum.
„Þær eru fin afþreying en stoppa
stutt í kollinum á mér. Ég hef líka
gaman af því að horfa á myndir úr
öðrum kúltúr og finnst kinverskar
og japanskar myndir oft mjög
skemmtilegar. Crouching Tiger
Hidden Dragon var bæði flott og frá-
bær og svo var ég líka mjög hrifln af
hinni kínversku myndinni, hvað
hét hún aftur, Rauði lampinn.
Því miður getur maður ekki
Fullt af flottum sen-
um
„Ég hef aldrei lagt mig
eftir myndum með ein-
hverjum sérstökum leikurum eða
eftir ákveðna leikstjóra. Ég man
reyndar eftir nafninu á júgóslav-
neskum leikstjóra sem heitir Emir
Kusturica og gerði myndirnar Und-
erground og Svartur köttur, hvítur
köttur. Það er rosalega mikið að
gerast í Underground og skemmti-
leg lúðrasveitatónlist í sígaunastíl,
ég keypi mér diskinn og spila hann
mikiö í partíum."
Inga segir að það hafi dregið úr
vídeóglápi hjá henni. „Ég horfði
mikið á myndbönd hér áður fyrr en
er orðin svo kresin með aldrinum.
Ég verð svo fúl þegar ég kem heim
með mynd og ætla að hafa það kósí
í sófanum og hún er léleg að ég
nenni því varla lengur. Síðasta góða
myndin sem ég sá á videó var The
Cell með Jennifer Lopez. Það var
fullt af flottum senum í henni og
hún var glæsileg út frá myndrænu
sjónarhorni."
Að sögn Ingu er hún mikill vís-
indaskáldsagnafíkill og hefur gam-
an af öllum myndum sem fjalla um
framtíðina og aðra heima. „Þegar ég
hugsa út í það eru kvikmyndir
hugsanlega mín leið til að flýja
raunveruleikann og kynnast öðrum
heimum, hvort sem það eru ímynd-
aðir heimar vísindaskáldsögunnar
eða myndir sem lýsa menningu
annarra þjóða.“ -Kip
Conspiracy ★★★
Útrýmlng skipulögö 'c ^
í janúar árið 1942
var haldinn fundur
meðal þýskra herfor-
ingja þar sem aðeins
eitt mál var á dag-
skrá: Lausn Gyðinga-
vandamálsins. Fund-
armenn voru margir
og með margar skoð-
anir. Allar voru þær þó kveðnar í kút-
inn nema tillaga sem Reinhard Hey-
drich, einhver grimmasti herforingi
Hitlers, var með í farteskinu. Hann
lætur aðra fundarmenn mala í langan
tíma, vera ósammála um eitt og ann-
að, passar þó alltaf upp á að hann hafi
alla þræði í hendi sér. Þegar svo
ósamkomulagið er orðið það mikiö að
engin lausn er i sjónmáli kemur hann
með drög að að „Helfórinni": Útrýma
skal öllum gyðingum. Lætur hann
hvern og einn fundarmanna sam-
þykkja tillögu sína. Aldrei hefði frést
af þessum fundi ef ein fundargerð
hefði ekki fundist fyrir tilviljun í lok
stríðsins.
Um þennan fund fjallar Conspiracy,
margverðlaunuð og góð sjónvarps-
mynd með frábærum leik, mynd sem
gerist nánast að öllu leyti í einu her-
bergi og við eitt fundarborð. Það er
með ólíkindum hvað leikstjórinn
Frank Pierson nær að halda viö þeirri
magnþrunginni spennu sem myndast
á milli fundarmanna. Þeir eru ekki
sammála og í ræðum þeirra og sam-
tölum kemur vel í ljós hvern mann
þeir hafa að geyma og hversu dýrkun
þeirra á Hitler og Þriðja ríkinu er tak-
markalaus.
Eins og áður segir standa leikarar
sig með mikilli prýði. Hér verður að-
eins minnst á tvo þeirra, Kenneth
Brannagh og Stanley Tucci. Branagh
leikur Heydrich af snilld, sýnir vel
hrokann og tilfinningaleysið sem býr
í manninum. Tucci er ekki síöri sem
Adolf Eichmann, sem greinilega vill
ekki láta hanka sig á neinu, er gest-
gjafinn og sá sem Heydrich treystir. í
lok myndarinnar er sagt frá afdrifum
hvers og eins, undir dramatískum
tónum Schuberts og er það magnaður
endir. -HK
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Frank Pier-
son. Bandaríkin 2001. Lengd: 107 mín.
Leikarar: Kenneth Brannagh, Stanley
Tucci, Colin Firth og lan McNeice. Bönn-
ub börnum innan 12 ára.
DV-MYNDIR BRINK
Vertlnn, smiðurinn og kokkurinn
Jóhannes Viðar Bjarnason, veitingamaður og bæjar-
stjóri víkingaþorpsins í Hafnarfiröi. Tréskurðarmaöur-
inn Ole Jakob Nielsen frá Leynum og Birgir Enni, kokk-
ur, sigiingamaður og fjölfræðingur.
Færeyskir tónlistarnemar taka lagiö
Tróndur Helgason Enni söng og spilaöi meöal annars
á gítar og trompet, Angelika Nielsen leiö um salinn
eins og engill og lék á fiölu og Rúni Eysturhlíö plokk-
aði gítarinn af mikilli list. Hljóöfæraleikararnir eru allir
í tónlistarnámi hér á landi.
Færeyskir dagar í Fjörukránni og Vestnorræna menningarhúsinu:
Tónlist, listmunir og matur
Fjörukráin og Vest-
norræna menningarhús-
ið standa þessa dagana
fyrir færeyskum dögum
sem hófust 22. janúar og
standa til 3. febrúar.
Færeyskur matur er á
boðstólum og færeyskt
handverk til sýnis í
Menningarhúsinu. Tré-
skurðarmaðurinn Ole
Jakob Nielsen frá Leyn-
um sýnir muni úr tré og
skartgripasmiðurinn
Torgerð Suðuroy frá Suð-
uroy sýnir skartgripi.
Færeysk tónlist verð-
ur í hávegum höfð því
auk tónlistarmanna frá
Færeyjum munu Færey-
ingar búsettir hér á landi
taka lagið og söngvarinn
Fjöldi gesta var viö setningu færeyskra daga. Á myndinni má
meöal annar sjá
Riitta Heinámaa, forstjóra Norræna hússins, Ótaf Proppé,
rektor Kennaraháskóla íslands, og Matthías Bjarnason, fyrr-
verandi ráöherra.
Robert Mc Burnie leika fyr-
ir dansi ásamt Rúnari Júlí-
ussyni og sonum fyrstu
helgina en færeyska rokk-
hljómsveitin Taxi spila eft-
ir það.
Kokkurinn og siglinga-
maðurinn Birgir Enni sér
um að gæla við bragðlauk-
ana en hann mun einnig
halda fyrirlestur og mynda-
sýningu um Færeyjar. Á
matseðlinum er boðið upp á
ýmsar færeyskar kræsing-
ar eins og „skerpikjöt og
skinsakjöt vid breyði,
sítrónumarinerad hýsa vid
purruleyk, steikt tvöst vid
smörsteiktum leyki og
steikt lomviga vid beikon".
-Kip
Blind Obsession ★★
.. \
Varnarlaus logga
Blind Obsession er
spennutryllir um
köttinn sem er að
leika sér að músinni.
Þegar annar köttur
fer að skipta sér af
gerðum hins bjargast
músin og kettimir
liggja eftir i valnum.
Músin í þessu tilfelli er stór og stæði-
legur lögreglumaður, Jack, sem
slasast í atlögu að glæpamönnum og
verður blindur. Til sögunnar kemur
blindrakennarinn Rebecca sem á aö
sjá um að Jack geti hjálpað sér sjálfur.
Áður höfum við aðeins kynnst heimil-
isaöstæðum Rebeccu sem býr ein með
geðveikri systur sinni. í fyrstu virðist
sem Rebecca sé himnasending fyrir
Jack. Það sem Jack veit ekki er að
hann er einnig himnasending fyrir
Rebeccu...
Ekki er vert að fara nánar út í sögu-
þráðinn sem er samt ekkert sérstak-
lega flókinn og kemur ekki á óvart
þegar fer að líða á myndina. Þetta er
margtuggið í mörgum kvikmyndum,
sérstaklega ódýrum kvikmyndum
sem ætlað er að fara beint á mynd-
bandamarkaðinn eins og raunin er
með Blind Obsession. Hún hefur það
þó fram yfir margar aðrar álika
myndir að það er nokkuð góður stíg-
andi í atburðarásinni og hún fellur
aldrei í þá gildru að þykjast vera
meira en hún er. Leikur er ekki á háu
plani, en vert er þó að nefna Megan
Gallagher sem sýnir ágætan leik í
hlutverki Rebeccu. -HK
Útgefandi: Bergvlk. Leikstjóri: Robert
Malenfant. Bandaríkin, 2001. Lengd: 90
mín. Leikarar: Brad Johnson, Megan
Gallagher, Roxana Zal og Ken Kercheval.
Bönnub börnum innan 16 ára.