Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Page 28
FRETTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú Sbendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í sfma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum alian
sólarhringinn.
550 5555
FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002
Sameiginlegar tillögur sjómanna og útgerðarmanna:
Verið að háls-
höggva mig
- segir Jón Arason, útgerðarmaður og skipstjóri
„Þetta er harmleikur, fjölskyld-
umar brotna niður og sjá lífsafkom-
una hverfa. Það er verið að háls-
höggva mig og
aðra sem eins er
ástatt fyrir og
mér verður hugs-
að til nafna míns
biskupsins," segir
Jón Arason, út-
gerðarmaður og
skipstjóri á Ást-
þóri ÁR-16 frá
Þorlákshöfn, en
Jón er einn þeirra
kvótalausu útgerðarmanna sem
munu verða illa úti vegna sameigin-
legrar tillögu samtaka útgerðar-
manna og sjómanna um framsal á
aflaheimildum.
Það þykir tíðindum sæta að
Landssamband islenskra útvegs-
manna, Sjómannasambandið, Far-
manna- og fiskimannasambandið og
Vélstjórafélag Jslands skuli hafa náð
samkomulagi í þessum efnum, enda
hafa útgerðarmenn og sjómanna-
samtökin aðailega verið þekkt fyrir
það undanfarin ár að geta ekki
samið um eitt eða neitt. Nú er sam-
komulag þeirra um framsal afla-
marks hins vegar í höfn og eru meg-
inþættir þess að ekki verður heimilt
að framselja meira en 25% afla-
marks frá fiskiskipi í stað 50% áður,
og ekki má flytja meira aflamark tii
skips en sem nemur tvöfaldri kvóta-
úthlutun þess skips. Þeir sem verða
harkalega úti vegna þessa eru auð-
sjáanlega eigendur kvótalitilla eða
kvótalausra skipa og hefur þvi verið
slegið fram að um 100 útgerðir gætu
endað í gjaldþroti vegna tillagnanna
nái þær fram að ganga á Alþingi.
„Það var víða vakað í nótt vegna
þessara tillagna enda eru heimili
víða veðsett í botn hjá þessum
kvótalausu útgerðum. Það er mjög
sárt að það standi til að taka allt af
mönnum sem þeir hafa verið að
byggja upp og þræla fyrir,“ segir
Jón Arason.
„Það þarf að taka þetta mjög al-
varlega, enda eru það mikil tíðindi
að þessir aðilar skuli ná samkomu-
lagi um framsalsmálin,“ segir Einar
K. Guðfmnsson, formaður sjávarút-
vegsnefndar Alþingis. „Ég hef talið
eðlilegt að skip veiði sem mest af
sínum úthlutunum. Hins vegar hef
ég miklar áhyggjur af þeim útgerð-
um sem hafa verið að kaupa skip og
hafa litlar sem engar aflaheimildir
og það er brýnt að skoða stöðu
þeirra. Alþingi mun eiga síðasta orð-
ið í þessu máli en tillögur þessara
aðila sem nú hafa náð saman verða
auðvitað teknar mjög alvarlega,"
segir Einar. -gk
Valt niður í sjó
Bílvelta varð í sunnanverðum
Reyðarflrði í nótt. Ökumaður, sem
þar var á ferð, missti vald á bifreið
sinni í mikilli hálku og valt bifreiðin
fram af háum vegkanti niður í sjó við
Bolabás.
Ökumanni tókst að láta vita af sér
og var hann sóttur og fluttur í heilsu-
gæslustöðina á Eskiflrði til aðhlynn-
ingar en hann mun hafa sloppið
furðuvel frá þessu óhappi. Bifreið
hans er hins vegar talin ónýt. -gk
Verðkönnun DV:
Margar verslanir
með svipað verð
(' V
Mjög svipað verð er á matarkörfu
DV í þeim verslunum þar sem verð
mældist hvað hæst. Sem dæmi má
nefna að í þeim tveimur verslunum
sem áttu dýrustu körfurnar að
þessu sinni er sama verð á 20 vöru-
tegundum af þeim 33 sem í körfunni
lentu og aðeins munar 2% á verði
dýrustu verslunarinnar og þeirrar
fjórðu dýrustu.
Bónus er sem fyrr með lægsta
verðið og Krónan fylgir þar á eftir
með 6% dýrari körfu. Dýrasta karf-
an sem keypt var í Nýkaupi reynd-
ist 34% dýrari en Bónuskarfan.
Sjá könnun á bls. 8. -ÓSB
Vara við ofurálagi á
þjóðvegum landsins
Þingmenn Sjálfstæðisflokks og
Vinstri grænna eru sammála um að
þjóðvegunum séu
komnir út í öfgar.
Þetta kom fram i
1. umræðu um
nýja samgönguá-
ætlun á Alþingi í
gær. Þar vöruðu
Steingrímur J. Sig-
fússon og Guö-
mundur Hall-
varðsson við þvi
mikla álagi sem
skapast hefur á ís-
lenska þjóðvegi
eftir að strand-
flutningar lögðust
nánast af. Telja
þingmennimir að
létta verði þunga-
flutningum af veg-
um og auka veg
strandsiglinga að
nýju.
Mikil mengun
■ fylgir hinu stórfellda vörubifreiðaá-
lagi á vegina, auk mikillar slysa-
hættu. Steingrimur sagði eðlilegt að
flytja dagvörana með sem skjót-
virkustum hætti en þungavaran ætti
að fara sjóleiðis.
Guðmundur Hallvarðsson sagði að
þungaskattur virtist of lágur á vöru-
bíla og eitthvað yrði að gera til að
snúa þessari þróun við. Hann tók sem
dæmi að vikulega færu allt að 70 gám-
ar landleiðis milli Reykjavíkur og
Eskifjarðar. Fram kom hjá þingmönn-
unum að krafa nútímans væri sú að
allar vörur þyrftu að komast sem
fyrst á milli staða en það væru grund-
vallarmistök að það ætti líka við um
þungavöru. Útreikningar sýndu að
hagkvæmt gæti verið að reka eitt fé-
lag um strandflutninga.,
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra tók undir þessi sjónarmið en
lýsti að öðru leyti mikilli ánægju með
hina nýju samgönguáætlun. Hann
sagði hana afrakstur viðamikillar
vinnu sem margir hefðu komið að.
Meginhugmyndin væri að Alþingi
legði í framtíðinni meiri áherslu á
stefnumótun en minni áherslu á ein-
stakar framkvæmdir. -BÞ
landflutningar á
Sturla
Böövarsson.
Steingrímur J.
Sigfússon.
DV MYND NJORÐUR HELGASON
Kalt sólbaö
Þessir hressu strákar fengu sér einn kaldan úr hananum í gær um leiö og
þeir nutu góöa veöursins og sólarinnar, rétt áður en þorrinn gengur í garö.
Starfslok Þórarins Viðars:
Örlagarík máltíð
á La Primavera
í upphafi ársins 2001 snæddu Jón
Ólafsson, stjórnarformaður Norður-
ljósa, og Þórarinn Viðar Þórarins-
son, forstjóri Landssímans, saman
hádegisverö á veitingastaðnum La
Primavera í Austurstræti. Norður-
ljós voru þá einn stærsti viðskipta-
vinur Landssímans en í þeim krögg-
um að gjaldfallnar skuldir þeirra
voru um 100 milljónir króna. Þórar-
inn Viðar er sagður hafa látið í ljós
í einkasamtölum að fundurinn hafi
verið örlagaríkur því náinn sam-
starfsmaður forsætisráðherra hafi
sagt að honum hefði verið nær að
nota tækifærið til að „knésetja Jón
Ólafsson" í stað þess aö létta honum
lífið.
Sjá fréttaljós, Ris og fall Þórar-
ins, á bls. 6
Sjö manns handteknir vegna svika í byggingavöruverslunum:
Skipulagður parketþjófnaður
- skrifuðu vörurnar á opinbera stofnun
Sjö menn voru handteknir í
Reykjavík í fyrrinótt eftir að hafa
svikið út parket í tveimur gólfefna-
verslunum í borginni og gert til-
raun til að svíkja út meiri gólfefni í
þeirri þriðju.
Ljóst er að um skipulega svika-
starfsemi var að ræða, en mennirn-
ir létu skrifa parketið á opinbera
stofnun að sögn rannsóknarlögreglu
í morgun. Upp komst um svikin
þegar mennirnir voru í þriðju versl-
uninni og voru þá tveir þeirra hand-
teknir. Vegna hinna málanna
tveggja voru svo fimm menn til við-
Stórtækir þarketþjófar á næturbrölti.
bótar handteknir og í morgun voru
fjórir menn enn í haldi vegna máls-
ins og rannsókn þess enn í gangi.
Samkvæmt heimildum DV not-
uðu mennimir bfia frá sendibíla-
stöð til flutninganna og í tveimur
fyrstu ferðunum mun þeim hafa
tekist að komast undan með um 1,5
tonn af parketi eða um 300 fer-
metra sem flutt var í hús við
Frakkastíg. Einn mannanna sem
áttu þátt í fyrstu ferðinni mun hafa
þegið kaffisopa í versltminni á
meðan beðið var eftir afgreiðslu og
þar skildi hann eftir „nafnspjald-
ið“ sitt í formi fingrafara á kaffi-
bollanum.
-gk
iWWWWWWWWWr
Gitarinn
Stórhöfða 27, Ý
^ s. 552 2125. ^
ifömmmi
iWWWWWWWWWV
brother P-touch 9200PC
Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport