Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 DV Fréttir Eignarhald lífeyrissjóða á verslunarfyrirtækjum: Vandræðalegt fyrir verkalýðsfélögin - kaupin á Kaupási kannski ekki nógu sniðug, segir varaforseti ASÍ Halldór Björnsson, varaforseti ASÍ, segir eignarhald sjóða verka- lýðsins á Kaupási vissulega vand- ræðalegt mál fyrir verkalýðsfélög- in. „Auðvitað hefðu menn óskað að sjá þetta þróast öðruvísi, en þetta er bara einn angi af þeim fjárfestingum sem menn töldu skynsamlegar fyrir tveim til þrem árum.“ Halldór segir gagnrýni fjölmiðla á fjárfestingar lífeyrissjóða verka- lýðsfélaganna ekki alltaf maklega. Lífeyrissjóðirnir leggi áherslu á að tryggja afkomu sína þannig að þeir skili launþegum góðum ellilíf- eyri. Gríðarlegar breytingar á fjár- málamarkaði á síðustu misserum hafi hins vegar gert þaö að verk- um að peningar hafi tapast við tjárfestingar sjóðanna. Ef ekki megi fjárfesta í atvinnufyrirtækj- um, þá sé fátt annað eftir nema ríkisskuldabréf og bankabækur. Halldór Ásmundur Björnsson. Stefánsson. Halldór segir að í þeim sjóðum sem hann þekki til reyni menn samt að gæta mikillar varkárni í íjárfestingum, ekki síst síðustu mánuðina. „Menn hafa reynt að fjárfesta af bestu vitund í fyrirtækjum sem síð- an hafa kannski ekki reynst nógu traust. Fjárfestingar verkalýðs- hreyfingarinnar í atvinnurekstri er auðvitað alftaf hægt að gagnrýna." Þetta segir Halldór í Ijósi þess aö eignarhald lífeyr- issjóða og Al- þýðusambands íslands á versl- anakeðjunni Kaupási í gegn- um Eignarhalds- félag Alþýðu- bankans þykir Gyifi orðiö í hæsta Arnbjörnsson. máta vandræða- legt. Verkalýðs- hreyfingin hefur barist hart gegn hvers konar verðhækkunum á neysluvöru og á verði þjónustu. Hún stendur nú frammi fyrir því að nokkrar verslanir i „þeirra versl- anakeðju" Kaupási, hafa hvað eftir annað komið illa út í verðkönnun- um á neysluvörum. Á sama tíma eiga verkalýðsforingjar í orðaskaki viö risann á íslenkum matvöru- markaði, Baug, sem er í beinni sam- keppni við Kaupás, en býður sam- kvæmt könnunum oft á tíðum mun betra verð. Ekki bætir úr skák að núverandi stjórnarformaður Kaupáss, Ás- mundur Stefánsson, var áður forseti ASÍ og situr í stjórn fyrir hönd Eignarhaldsfélags Alþýðubankans. Þá sat Gylfi Arnbjörnsson, núver- andi framkvæmdastjóri ASÍ, einnig um tíma sem stjórnarformaður í Kaupási. „Ef ekki má ávaxta fé lífeyrissjóð- anna í íslenskum atvinnufyrirtækj- um, þá er bara sú leið eftir að fara með meira fjármagn úr landi. En þá verðum við skammaðir fyrir það. Kaupás er kannski eitt dæmi um það sem ekki var alveg nógu snið- ugt fyrir verkalýðshreyfmguna að blanda sér inn i. Sér í lagi vegna þess að þar var verið að tala um fjárfestingu í mjög viðkvæmum matvörumarkaði," segir Halldór Björnsson, varaforseti ASÍ. -HKr. Landssíminn tapaði milljónum dollara á @IPbell: Auðvelt að spila lottó með peninga annarra - segir Pétur Blöndal og vill aö stjórnendur fjárfesti líka sjálfir „Alltaf er hættu- legt þegar menn taka áhættu með annarra fé. Þá snertir tap þá ekki beint og þeir verða ekki eins varkárir og ella. Þess vegna er mjög mikilvægt að menn hætti eig- in fé samhliða," segir Pétur Blöndal alþingismaður um ábyrgð stjómenda ríkisfyrirtækja og annarra félaga þar sem þeir eiga sjálf- ir ekki hlut. Eins og DV hefur greint ítarlega frá tapaði Landssiminn stórfé á fjárfest- ingum í fyrirtækinu @IPbell sem varð gjaldþrota aðeins ári eftir að Landssíminn lagði fjórar milljónir dollara í hlutafé. Aðeins sex mánuðum eftir að fjárfestingin átti sér stað sáu íslensku eigendumir að í óefni stefndi og vildu þá hafa áhrif á stjóm fyrirtækisins. Það tókst ekki og stjómendur örfyrirtækisins sem stefndi að heimsbyltingu í fjarskiptum sigldu fyrirtækinu í þrot. Niðurstaðan varð sú að eigandi Landssímans, íslenska þjóðin, tapaði umræddum fjármunum. Einn stjómarmanna Landssímans benti DV á að þeir peningar sem fóm í @IPbell hafi ekki verið tapaðir þar sem lægri skattar Pétur Blöndal. Sími í klóm skýjaglópá . ••irkHI ui.It ■ w W~ luiUWfctt 1» k~«tl • fc'.ttt T Meðal skýjaglópa Frétt DV sl. fimmtudag þar sem greint var frá stórtapi Landssímans. Landssímans til ríkissjóðs hafi komið á móti tapinu. Pétur segir að án þess að hann vilji leggja dóm á það hversu ígrunduð íjárfesting Landssímans hafi verið þá myndi það almennt tryggja ákveðið aðhald að tengja fjárhag stjómenda beint við fjárfestingar þeirra. „Þegar ráðist er í áhættufjárfestingu er mikilvægt að menn átti sig á áhættunni og geti því tapað með bros á vör. Það sýnist mér að hafi átt við í þessu tilviki og þeir hafi áttað sig á áhættunni. í rauninni ætti að gera kröfu til þess að þeir einstaklingar sem taka ákvarðanir um fjárfestingu með annarra manna fé fjárfesti með fyrir sjálfa sig þannig að þá muni um tapið. Slíkt er iðulega gert þegar stjómendur em ráðnir. Það er auðvelt að spila lottó með annarra manna peninga," segir Pétur. -rt Evrópumótiö í knattspyrnu: Islendingar heppnir Eignarhaldsfélag DB: Oddi ákærir ekki „Við viljum ekki taka þátt í þessu máli, um það geta aðrir séð,“ sagði Þorgeir Baldursson, forstjóri Prent- smiðjunnar Odda. Fyrirtæki hans á enga aðild að kæra sem ríflega 30 hlut- hafar í Eignarhaldsfélagi Dagblaðsins sendu á hendur Sveini R. Eyjólfssyni í vikunni. Þorgeir segir að fyrir síðasta aðalfund félagsins hefði prentsmiðjan veitt Gunnari Sturlusyni hrl. umboö til að fara með atkvæði Odda þar. Lengra hefði umboðið ekki náð. Sagðist Þorgeir hafa fengið þau svör frá frá lögmanninum að vegna mistaka væri Prentsmiðjan Oddi á ákæraskjalinu. -sbs Það má með sanni segja að ís- land hafi dottið í lukkupottinn í gær þegar dregið var í riðla í und- ankeppni Evrópumóts landsliða í knattspymu. ísland dróst í 5-riðil með Þýskalandi, Skotlandi, Lit- háen og Færeyjum. „Þetta er dráttur sem sameinar eiginlega allt sem maður vonar að komi út úr þessu, hvað íþróttir varöar er það Þýskaland sem hefur náð hvað bestum árangri Evr- ópuliða í HM eða EM. Síðan er þetta iþrótta- og árangurslega mjög vænlegur riðill hvað varðar að hækka sig um styrkleikaflokk. Fara úr þriðja styrkleikaflokki í annan," sagði Eggert Magnússon, formaöur KSl, samtali við DV- Sport í gær og var í skýjunum meö þessa útkomu. Efsta sætið gefur þátttökurétt í úrslitakeppni Evrópumótsins sem fer fram í Portúgal sumariö 2004. Annað sæti riðilsins gefur tvo aukaleiki um laust sæti í úrslita- keppninni 5-riðill. „Við köllum þetta hjólreiðariðilinn hjá Knatt- spymusambandinu,“ sagöi Eggert að lokum. íslenska landsliðið í knattspyrnu hefur verið með mikinn meðbyr undanfarin ár og þessi 5-riðill Evr- ópumóts landsliða gefur væntan- lega enn meiri byr í seglin, að minnsta kosti hvað varðar áhorf- endur, og þá verður einnig stutt að fara fyrir landann á útileiki íslands. -vbv Blaöiö í dag Blekking eða búhnykkur? lnnlent fréttaljós — Pípan mín prúð Deyjandi íþrótt Kaupi hug- myndir á himnum Itzlk Gallli 18 1 Hugmyndin erhús n- " b Hannes wmÆmSrfKí.. Lárusson Víðtæk samstaða veit á gott Margeir Pétursson Allt upp úr súru DV-matur VG fyrir vestan Stofnuð var í vik- unni félagsdeild Vinstrihreyfingar- innar - græns fram- boðs i ísafjarðarbæ. Lilja Rafney Magn- úsdóttir á Suður- eyri er formaður. VG vestra hefur hug á að láta til sín taka í sveitar- stjómarkosningunum í vor - og mun nýkjörin stjórn kanna hvort lag sé. Fimm útköll Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór í gær í fimm útköll í Hafnarfirði vegna sinuelda. í öllum tilvikunum var eldurinn minni háttar og fljót- slökktur. Hins vegar var mikið hringt vegna allra þessara mála og slökkviliðið því fljótt á vettvang. Atlanta til Afganistans Atlanta mun á næstunni flytja tæki, varning og lyf sem fara eiga til hjálparstarfs í Afganistan. Með þessu móti leggja íslendingar endur- uppbyggingu í landinu lið. Þá verð- ur flogið til Pakistans með 100 tonn af lyfjum. Utanríkisráðuneytið hef- ur yfirumsjón með þessu. Hækkunum mótmælt Bæjarfulltrúar Kópavogslistans, þar á meðal Flosi Eiríksson, hafa sent frá sér tilkynningu þar sem mótmælt er hækkun fast- eignagjalda í bæn- um um að meðaltali 12%. Segja þeir skjóta skökku við að þegar fjölmargir grípi til aðgerða til að halda niðri verðbólgu skuli meirihlutinn auka álögur á bæjar- búa. Nýherji í mál Nýherji krefst 70 millj. kr. í bæt- ur frá ríkinu vegna niðurstöðu i út- boöi á nýju fjárhagskerfi fyrir ríkið. Samið var við Skýrr hf. Kærunefnd útboðsmála hefur sagt galla hafa verið á framkvæmd útboðsins. Þórður Sverrisson er forstjóri Ný- herja. Sækja um sýslumanninn Tíu umsækjendur eru um emb- ætti sýslumannsins á Isafirði, þar á meðal sýslumennirnir Jónas Guð- mundsson í Bolungarvík og Bjarni Stefánsson á Hólmavík. Ellefu sækja um sýslumannsembættið á Blönduósi, þar á meðal tveir sýslu- menn jafnframt. Aðför í Eyjum Það er aðfor að Vestmannaeyjum aö taka Herjólf úr áætlunarsigling- um í maí án þess að gera viðeigandi ráðstafanir til að útvega boölega bílaferju í staðinn. Þetta segir í ályktun sem stjórn og trúnaðarráð stéttarfélagsins Drífanda hefur sent frá sér. Vistvænt á Kjalanesi Haldið verður í dag opið þing um vistvæna byggð á Kjalarnesi. Þingið er ekki aðeins ætlað Kjal- nesingum heldur er það opið öllum þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í mótun hugmynda um útfærslú vistvænnar byggðar. Borgarstjóri ávarpar þingið. -sbs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.