Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Page 4
4
LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002
DV
Fréttir
Dæmt um skipan sýslumanns á Keflavíkurflugvelli:
Kolbrún var hæfari
- dæmdar miskabætur upp á 2,3 milljónir
„Ég er mjög ánægð með þessa
niðurstöðu og þetta er reyndar sú
niðurstaöa sem ég bjóst viö. Ég
taldi mig hafa verið hæfari og hafa
meiri reynslu og menntun en sá
sem hlaut starfið," sagði Kolbrún
Sævarsdóttir en héraðsdómur
Reykjavíkur komst í gær að þeirri
niðurstöðu að brotið hafi verið á
henni með skipun utanríkisráð-
herra í embætti sýslumannsins á
Keflavíkurflugvelli frá og með 1.
aprii 1999. Kolbrúnu voru dæmdar
2,3 milljóna kr., auk dráttarvaxta,
í bætur en hún sótti um stöðuna á
sínum tíma og fékk ekki. Hún fór
hins vegar fram á tæpar 7,5 milljónir
í skaöa- og miskabætur. Aðspurð
sagði Kolbrún að upphæðin skipti
ekki öllu i þessu
máli. „Peningam-
ir eru ekki allt
heldur var þetta
spurning um
hvort okkar væri
hæfara til starfs-
ins. Niðurstaðan
er nú ljós,“ sagði
Kolbrún.
Utanríkisráöu-
neytið taldi Jó-
hann R. Benediktsson hins vegar
„langhæfastan sjö umsækjenda „ ...
og hæfni hans hafi verið svo augljós
umfram aðra umsækjendur að ekki
hafi verið talin ástæða til að fara í
tímafreka samanburöarúttekt á um-
sækjendum eða kalla þá i viötöl,"
Kolbrún
Sævarsdóttir.
eins og í dómn-
um segir. Var
mat ráðuneytis-
ins að sérþekking
Jóhanns á
Schengen-samn-
ingnum réði þar
miklu. Dómurinn
hafnar því að
þekking Jóhanns
á þessu eina sviði
geti valdið því að
hann teljist hafa haft yfirburði fram
yfir Kolbrúnu. Frá því embættið var
veitt liðu tvö ár þar til Schengen-
samningurinn gekk í gildi. í dómn-
um segir að ekkert bendi til annars
en á þeim tíma hefði Kolbrún náð
fullum tökum á þeim verkefnum,
w
Jóhann R.
Benediktsson.
sem af samningnum leiddu fyrir
sýslumanninn, og er þá miðað við
fyrri störf hennar og nám.
Kærunefnd jafnréttismála var á
þeirri skoðun að Kolbrún Sævars
dóttir teldist að minnsta kosti jafn
hæf Jóhanni til að gegna sýslu
mannsembættinu á Keflavíkurflug
velli. Héraðsdómur segir hana hæf
ari, því starfsferill hennar hafi nán-
ast eingöngu verið á þeim sviðum
sem nýtist sem undirbúning fyrir
störf sem sýslumenn gegna, en Jó-
hann hafi ekki starfað að neinu
slíku „... nema hvað sumarstörfin í
lögreglunni munu ábyggilega reyn-
ast gagnleg," segir í dómnum.
Utanríkisráðherra mun áfrýja
málinu til Hæstaréttar. -aþ/sbs
D-listi á Akranesi:
Ellefu gefa
kost á sér
í gær var gefinn út listi með nöfnum
þeirra sem hyggjast taka þátt í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins á Akranesi
fyrir kosningamar í vor. Gert er ráö
fyrir að prófkjörið fari fram í febrúar.
Frambjóðendurnir er Egill Ragnars-
son, Guðrán Elsa Gunnarsdóttir,
Gunnar Sigurðsson, Hallveig Skúla-
dóttir, Ingþór Bergmann Þórhallsson,
Jón Gunnlaugsson, Kristjana Guðjóns-
dóttir, Láms Ársælsson, Sæmundur
Víglundsson, Sævar Haukdal og Þórð-
ur Þ. Þórðarson.
Sjálfstæðismenn hafa setið í minni-
hluta á Akranesi þetta kjörtimabil og
einungis einn þesséu'a frambjóðenda,
Gunnar Sigurðsson framkvæmda-
stjóri, situr nú sem aðalfulltrái í bæj-
arstjóm. Pétur Ottesen, sem einnig
hefur setið sem aðalmaður í bæjar-
stjóm, er ekki á þessum lista. Jón
Gunnlaugsson svæðisstjóri situr nú
sem varamaður í bæjarstjóm ásamt
Jóni Ævari Pálmasyni sem gefur ekki
kost á sér nú. -HKr.
Lundabaggar og annað Ijúfmeti í Hagkaupi
Starfsmenn Hagkaups klæddu sig upp í tilefni bóndadagsins, sem var í gær, og buöu viöskiptavinum aö bragöa á
þorramat. Mikil sala hefur veriö á þorramat undanfarna daga.
Stjórn Orkuveitunnar
ræðir gjaldskrárlækkun
Ekki liggur fyrir hve mörg sveitaifé-
lög hyggjast taka áskorun um gjald-
skrárlækkanir til vamar verðbólgu.
Formaður Sambands sveitarfélaga,
Vilhjálmur Vilhjálmsson, segir að
sveitarfélögin séu að skoða sin mál en
þau geti ekki þegar allt kemur til alls
verið ábyrg nema að takmörkuðu leyti
fyrir verðbólguþróuninni.
Sem dæmi um sveitarfélög sem þeg-
ar hafa bmgðist við er Bessastaða-
hreppur sem hefur dregið ákvörðun
um gjaldskrárhækkun leikskólagjalda
til baka. Akureyr-
arbær hefur hins
vegar svarað að
þar verði engar
lækkanir. Vil-
hjálmur segir
mestu máli skipta
hvað stærstu sveit-
arfélögin gera en
bendir á að mörg
landsbyggðarsveit-
arfélög heyi erfiða
varnarbaráttu og hafi varla nokkurt
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson.
svigrám til að ganga á tekjustofna
sína.
Mögulegt er að Reykvíkingar muni
innan tíðar njóta hagstæðara orkuverðs
en þeir hafa greitt fyrir undanfarið.
Óformlegar umræður hafa farið fram
um hvort lækka eigi gjöld frá Orkuveitu
Reykjavikur, að sögn Vilhjálms, sem sit-
ur einnig í stjóm Orkuveitunnar. „Ég
tek fram að þetta er aðeins óformleg
umræða en við emm að skoða hvort rétt
sé aö Orkuveitan leggi sitt af mörkum.
Hver sem niðurstaðan verður veit ég að
stjómin mun skoða þetta mál,“ segir
Vilhjálmur.
Sumir sveitarstjómarmenn hafa
kvartað undan því að sveitarfélögin hafl
staðið utan samkomulags ASÍ og ríkis-
stjómarinnar um aðgerðimar gegn
verðbólgu. Vilhjálmur tekur undir þær
raddir. „Já, mér hefði fundist það skyn-
samlegt og við höfum hvatt til þess að
aukið samstarf yrði um efnahagsstjóm-
ina milli ríkis og sveitarfélaga," segir
formaður Sambands sveitarfélaga.
-BÞ
Stuttur tími til kosninga og uppstilling best fyrir flokkinn:
Júlíus styður Björn Bjarnason
Júlíus Vífill Ingvarsson lýsti í gær
yfir stuðningi sínum við Björn
Bjarnason menntamálaráðherra sem
leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík. Samhliða tók Júlíus af allan vafa
um hvort hann ætlaði sjálfur fram í
leiðtogaprófkjöri og tilkynnti að hann
hygði ekki á framboð í leiðtogapróf-
kjöri. í yfirlýsingu sem Júlíus hefur
sent frá sér kemur fram að mikill
Qöldi fólks hafi sett sig i samband við
hann og hvatt hann til þátttöku í leið-
togapróíkjöri og segir hann það
ánægjuefni fyrir sig, ekki síst i ljósi
þess að hann hafi engar yfirlýsingar
gefiö um að hann stefndi á slíkt fram-
boð. Hann hafi vegna þessara áskor-
ana íhugað málið vandlega en komist
að þeirri niðurstöðu að besta leiðin
til að tryggja flokknum gott gengi í
kosningunum sé að hann standi sam-
einaður og vinni einhuga að settu
marki.
„Það er vissulega hluti sjálfstæði-
manna sem hefði kosið að prófkjör
hefði farið fram í Reykjavík og það
eru þær raddir sem hafa verið að ber-
ast mér. Persónulega er ég í þeim
flokki sem er hlynntur prófkjöri, ég
kem úr þeim geira þar sem menn
keppa á jafnréttisgrunni og svo kem-
ur í ljós hvaða árangri menn ná. Það
eru hins vegar ekki nema 120 dagar
til kosninga, sem er í raun stuttur
tími og ég hef metið þetta eins kalt og
mér er frekast unnt og ég er sann-
Júlíus Vífill
Ingvarsson.
Björn
Bjarnason.
færður um að það sé best fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn núna í þessari stöðu
að ganga að uppstillingu og vinda sér
svo beint í konsingabaráttuna," sagði
Júlíus Vífill í gær.
Aðspurður umi hvort hann muni
sækjast eftir sæti á listanum eða
hugsanlega draga sig í hlé frá pólitík
sagði Júlíus: „Ég hef mikinn áhuga á
stjórnmálum. Hins vegar er röðun á
framboðslista komin í hendur kjör-
stjómar og það er hennar að ákveða
hvernig hún telur skynsamlegt að
raða á listann. Ég mun auðvitað tala
við hana æski hún þess og fara yfir
þessi mál, en fram að þeim tíma bíð
ég bara rólegur." Júlíus segist sann-
færður um að sá listi sem nú er verið
að móta verði mjög öflugur og sterk-
ur. „Bjöm kemur til meö að styrkja
þann lista mjög mikið, hann er bar-
áttumaður og ég treysti honum til að
leiða þessa baráttu til sigurs í vor,“
sagði Júlíus. -BG
Sverrir
Hermannsson.
Loðnuveiðin:
Tæp 100
þúsund tonn
á árinu
Tæplega 100 þúsund tonn af loðnu
höfðu borist á land frá áramótum
samkvæmt upplýsingum frá Sam-
tökum fiskvinnslustöðva í gær. Afl-
inn frá áramótum var þá 96.670
tonn, á sumar- og haustvertíð veidd-
ust 147.412 tonn og því er heildar-
veiðin á vertíðinni orðin um 244
þúsund tonn. Þá eru óveidd um 950
þúsund tonn miðað við að gengið
verði að tillögum Hafrannsókna-
stofnunar um heildarkvóta.
Frá áramótum hefur mestu verið
landað á Eskifirði, 16.136 tonnum,
en næstu löndunarstaðir eru Nes-
kaupstaður, 13,249 tonn, Seyðisfjörð-
ur, 13.042 tonn, Vestmannaeyjar,
9.206 tonn, Þórshöfn, 8.296 tonn,
Grindavík, 7.094 tonn, Fáskrúðs-
fjörður, 6.161 tonn, og Vopnafjörður,
5.150 tonn. -gk
Frjálslyndir óánægðir:
Kastljóssfólkiö
á teppið hjá
útvarpsráði
Sverrir Her-
mannsson, formað-
ur Frjálslynda
flokksins, hefur sent
útvarpsstjóra bréf
þar sem hann mót-
mælir „grófu hlut-
leysisbroti ríkis-
sjónvarps" í Kast-
ljóssþætti Sjónvarps
þriðjudaginn 15. jan-
úar. Frjálslyndir eru
ósáttir við að þá hafi Kristján Kristjáns-
son talað eins og aðeins tveir valkostir
byðust borgarbúum en óánægja Sverris
er ekki ný af nálinni. Þannig sendi hann
einnig bréf til útvarpsstjóra 28. apríl
árið 2000 með kvörtun vegna Kastljóss
en fékk þá afsökunarbeiðni frá stofnun-
inni. Útvarpsráð óskaði skýringa for-
ráðamanna Kastljóss á næsta fundi
ráðsins. -BÞ
Árborg:
Grunnskolarnir
sameinaðir
Bæjarstjórn Árborgar kynnti í gær
á fréttamannafundi tillögu að breyt-
ingu á skólamálum á Selfossi sem
samþykkt var á fundi fimmtudaginn
24. janúar með 6 atkvæðum gegn 3, að
sameina i eina stofnun grunnskólana
á Selfossi, Sandvíkurskóla og Sól-
vallaskóla, sem taki formlega gildi 1.
ágúst 2002.
Markmiðið með sameiningunni er
að bæta starfsemina, jafna aðstöðu
nemenda, auka samræmi í grunn-
skólastarfinu. Sameiningarhugmynd-
imar vora gagnrýndar af starfsfólki
skólanna í haust en í fréttatilkynn-
ingu frá Árborg segir aö þrátt fyrir
að fyrir liggi andstaða við málið sé
skýr stuðningur frá þeim er láta sig
skólamál varða. Þá var samþykkt á
fund bæjarstjórnarinnar með 6 at-
kvæðum gegn 3 nýtt skipurit í stjórn-
sýslu sveitarfélagsins, sem taka mun
formlega gildi þann 1. mai 2002. -NH
Lýst eftir bíl:
Mitsubishi
Lancer stolið
Bifreiðin YR-211, sem er Mitsubis-
hi Lancer, árgerð 1991, rauð á lit,
meö topplúgu, vindskeið og á sport-
felgum var stoliö við Bogahlíð að-
faranótt þriðjudagsins 22. janúar
síöastliðinn. Þeir sem hafa orðið
varir við bílinn eru vinsamlegast
beðnir að láta lögregluna í Reykja-
vík vita.