Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Side 6
6 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 Fréttir 1>V Ríkisendurskoöun hefur lokið skoðun á sölu ríkisjarða: Salan þykir í takt við lög og reglur „Þegar á heildina er litið eru þeir starfshættir sem tíðkaðir eru hjá jarða- deild landbúnaðarráðuneytisins í sam- ræmi við lög og þær reglur sem ráðuneyt- ið hefur sett sér um sölu ríkisjarða." Þetta er meginniðurstaða í skoðun Ríkisendur- skoðunar á því hvemig Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra hefur staðið að sölu ríkisjarða á árunum 2000 og 2001. Tilefni skoðimarinnar er ósk ffá ráðuneytinu sem kom 1 kjölfar umræðna um miðjan desember í Qölmiðlum og á Alþingi um þessi mál. Fram kemur að Ríkis- endurskoðun gerir ekki athugasemd við verkiag jarða- deildar landbúnað- arráðuneytis við sölu ríkisjarða og bendir á að mikiar breytingar hafa orðið á starfsemi deildarinnar frá því Ríkisendur- skoðun gerði stjómsýsluúttekt á jarðadeildinni 1998. „Hefúr hún í flestu lagað sig að tiilögum um verklag sem þar voru gerðar," segir í skýrslu Ríkisendurskoðunar. í einu tilviki átelur Rikisendurskoðun að ekki hafi verið gætt að málsmeðferðar- reglum stjómsýslulaga en það er í tilfelli þar sem Guðni Ágústsson seldi bróður sínum jörð. „Það hefúr áður verið skrífað um einmitt þá sölu í DV og þá kom það frarn að honum vai- ekki hyglað um neitt,“ segir Guðni Ágústsson. „Það mál fór upp í gegnum ailt keríið og slysið er að menn átta sig ekki á því í jarðadeildinni að þetta er bróðir minn. En þegar ég kemst að því, og málið er á lokastigi og af- sal liggur fyrir, þá vísa ég málinu frá mér. En hefði málið komið til mín á fyrri stig- um hefði ég farið í ríkisstjóm og beðið um seturáðherra eins og maður gerir í svona málum og ég hafði gert i öðm tiifelli þeg- ar bróðir minn átti i blut,“ segir Guðni enn fremur. Athugun Ríkisendurskoðunar nær ein- ungis til ársins 2000 og var Guðni spurð- ur hvort ekki hefði verið eðlilegt að fara lengra aftur í tímann í þessari skoðun? „Það kom i ljós mjög mikil gagnrýni í skýrsiu Ríkisendurskoðunar 1998. Þvi vom settar nýjar reglur árið 1999 sem hafa gilt alla mina ráðherratíð og ég vildi náttúrlega að Ríkis- endurskoðun færi yflr þann tíma frá því regl- umar vom settar og mæti hvort þeim hafl verið framfylgt. Það kemur í ljós að ríkis- endurskoðandi er sátt- ur við þetta í öllum meginatriðum,“ segir Guðni. Við þessa skoðun lagði Rikisendurskoð- un ekki mat á söluverð þeirra jarða sem seldar vom með heimildum í sérlögum enda vom óháðir utanaðkom- andi sérfræðingar í öllum tilvikum fengn- ir til að meta jarðimar. Fram kemur að við mat á verðgildi jarða er miðað við að ábúandi ætli að stunda þar áffam hefð- bundinn búskap. Segir landbúnaðarráð- herra að ef hafður sé í huga tilgangur jarðalaga, sem sé að vemda landbúnaðar- hagsmuni, hljóti að teljast eðlilegt að við matsgerð skuli að jafnaði miðað við að ábúandi ætli að stunda áfram búskap ef annað liggur þá ekki fyrir. Ljóst er þó að Ríkisendurskoðun telur þetta ekki svo sjálfsagt því stofnunin beinir þeim tilmæl- um til ráðuneytisins að það kanni hvort ekki sé eðlilegt að taka tillit til annarra hugsanlegra nytja við mat á ríkisjörðum. -BG Riv&irrðMKff* toi» lnþiteiOijwi iWnWitai i te Sagði sig fra solu - til bræðra sinna swtvasKs ass Frétt DV 28. nóvember sl. DV-MYND GVA Þar sem menn koma saman Frá blaöamannafundi Guöna Ágústssonar í gær þar sem ráöherra kallaöi menn saman til aö kynna þeim niöurstööu Ríkisendurskoöunar í jaröasölu- málum ráöuneytisins. Óvænt tíðindi í bæjarstjórnmálimum á Akureyri: Oktavía sigraði Ásgeir Ásgeir Magnússon, formaður bæjarráðs og leiðtogi Akureyrar- listans, tapaði nokkuð óvænt í skoðanakönnun um 1. sætið sem gerð var meðal samfylkingar- manna á Akureyri fyrir sveitar- stjómarkosningarnar í vor. Oktav- ía Jóhannesdóttir fékk flest at- kvæði í 1. sætiö en Ásgeir varð i 2. sæti. Jón Ingi Cæsarsson, formað- ur Samfylkingarfélagsins á Akur- eyri, varð í 3. sæti og Sigrún Stef- ánsdóttir í því 4. „Ég get ekki sagt að niðurstaðan hafi komið mér verulega á óvart. Þegar 18 aðilar gefa kost á sér í svona verkefni og tiltölulega fáir taka þátt geta atkvæði dreifst viða. Ef einn eöa tveir einstaklingar fara út í hring- ingar og herferð- ir þá hefur það áhrif,“ sagði Ásgeir í samtali við DV í gær. Hann var þá staddur á spítala í Reykjavik eftir að botn- Ásgeir Magnússon. Oktavía Jóhannesdóttlr. nú að vinna úr langinn sprakk en sagðist heldur vera að braggast. Spurður hvort hann myndi taka 2. sætið ef niöur- staðan yrði sú vildi Ásgeir ekki tjá sig um það enda væri þaö ekki tímabært. Kjörnefndar biði þessari skoðana- könnun. Hún ætti að hafa hana til hliðsjónar við ákvarðanatöku en ef til vill væri það ekki þannig að hún réði í einu og öllu hvernig rað- að yrði á listann. „Mín viðbrögð eru hógvær. Ég er þakklát fyrir þann stuðning og traust sem mér er sýnt,“ sagði Oktavía í samtali við DV i gær. Hún sagðist fyrir fram hafa metið sem svo að úrslitin gætu orðið á hvorn veginn sem var eftir að hún lýsti því yfir að hún sæktist eftir 1. sætinu. Munurinn var nokkuð af- gerandi, að hennar sögn, á milli hennar og Ásgeirs. -BÞ Tillögur Samfylkingarinnar í fjármálum Hafnarfjarðarbæjar: Meirihlutinn vísaði öllu frá „Ég verð að segja að það hafi komið mér á óvart að meirihlutinn skyldi vísa þessari tillögu frá,“ segir Lúðvik Geirsson, oddviti Samfylking- arinnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, en á fundi bæjarstjórnar í vikunni lagði Magnús Gunnarsson bæjarstjóri fram frávísunartillögu á tillögu bæj- arfulltrúa Samfylkingarinnar um að bæjarstjórn tæki til baka þá hækkun fasteignagjalda og sorphirðugjalda á Hafnfirðinga sem meirihluti bæjar- stjórnar samþykkti við afgreiðslu fjárhagsáætlunar bæjarins fyrir rúm- um mánuði. Frávísunartillaga bæjar- stjóra var samþykkt með atkvæðum bæjarfulltrúa Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks. í tillögunni sem felld var sagði m.a: „Bæjarstjóm Hafnarfjarðar samþykkir að leggja sitt af mörkunum til að tryggja hjöðnun verð- bólgu og styðja í verki sam- eiginleg markmið verka- lýðshreyfingar, vinnuveit- enda og stjórnvalda um að halda aftur af hækkunum á þjón- ustu og álögum til að tryggja þá kjarasamninga sem bæjaryfirvöld eru m.a. aðilar að. Því samþykkir bæjarstjórn Hafnarfjarðar að draga Lúðvík Geirsson. til baka hækkun á sorpeyð- ingargjaldi úr 6000 kr. í 8500 kr. og jafnframt að lækka álagningarprósentu fast- eignagjalda af lóðarleigu ibúðarhúsnæðis úr 0,5% af lóðarmati í 0,35%. Með þessum ráðstöfunum er fall- ið frá þeirri hækkun fast- eignagjalda á bæjarbúa sem samþykkt var í bæjarstjórn við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyr- ir árið 2002. Þá samþykkir bæjar- stjórn jafnframt að fela bæjarstjóra í samvinnu við bæjarráð að mæta lækkun tekna bæjarsjóðs sem þess- um breytingum nemur, með auknu aðhaldi og spamaði í rekstri á yfir- standandi ári.“ Lúðvík Geirsson segir að það séu ekki einungis vonbrigði fyrir full- trúa Samfylkingarinnar að tillagan var felld, heldur einnig fyrir alla þá aðila sem væru að vinna að því að berjast gegn verðbólgunni. Eftir að frávísunin hafði verið samþykkt sagði m.a. í bókun Samfylkingar- innar að afgreiðslan veki bæði furðu og undrun og sé síst öðrum til fyrirmyndar, þó hún muni eflaust vekja almenna athygli landsmanna. -gk i 'ui ifþíiJsifsLW REYKJAVIK AKUREYRI Sólariag í kvöld 16.52 16.21 Sóiarupprás á morgun 10.23 10.26 Síbdegisflóð 16.49 11.12 Árdegisflóð á morgun 05.13 09.46 Dregur heldur úr frosti Norðaustlæg átt, 13-18 m/s sunnan og vestantil en heldur hægari á Norðausturlandi. Él austantil og allra nyrst norðvestanlands og á Vestfjörðum en annars skýjaö að mestu. Dregur heldur úr frosti í nótt ,Dálítil él Norðaustan 8-13 m/s en heldur hvassara við suðurströndina. Dálítil él norðan og austan til en annars staöar skýjað. Frost 4 til 14 stig, kaldast inn til landsins. Veörið na Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur ‘W Hiti 1° Hiti 2“ Hiti 5° tii 12“ til 6° tíl 1° Vindtsr: Vineiur: Víndur: 8-13 "*/» 8-12 m/s 6-10 «- kfl' NA 8-13 m/s, A- og NA-átt og S-læg eöa en A 13-18 viö slydda eöa breytileg átt og suðurstrondina. rlgning sunnan- víöa rigning, þó Dálítil él noröan- og austantil, en síst noröantil. og austantil, en úrkomulítiö Fremur milt. annars skýjaö annars staöar. meö köflum. Frost 1 til 12 stig. Hlýnar í veöri. m/s 0-0,2 Logn Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldl 8,0-10,7 Stinningskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviöri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveður 28,5-32,6 Fárviðri >= 32,7 skýjað -17 skýjað -11 hálfskýjaö -5 léttskýjaö -17 léttskýjað -8 skýjað -7 snjóél -13 skýjaö -7 skýjaö 4 snóél -3 rigning 2 háifskýjaö 2 léttskýjaö -3 6 alskýjaö -3 skúr -7 skýjaö 15 skýjaö 6 léttskýjaö 12 skýjaö 5 heiöskírt -3 rigning 10 snjókoma -3 skýjað 7 snjóél 5 skafrenningur -10 rigning 6 skýjaö 5 léttskýjaö 16 alskýjaö -10 léttskýjaö 1 skýjað 5 þokumóða 16 skýjaö 8 skýjaö 7 skýjaö 4 alskýjað -15 AKUREYRI BERGSSTAÐIR BOLUNGARVÍK EGILSSTAÐIR KIRKJUBÆJARKL. KEFLAVÍK RAUFARHÖFN REYKJAVÍK STÓRHÖFÐI BERGEN HELSINKI KAUPMANNAHÖFN ÓSLÓ STOKKHÓLMUR ÞÓRSHÖFN ÞRÁNDHEIMUR ALGARVE AMSTERDAM BARCELONA BERLÍN CHICAGO DUBLIN HALIFAX FRANKFURT HAMBORG JAN MAYEN LONDON LÚXEMBORG MALLORCA MONTREAL NARSSARSSUAQ NEW YORK ORLANDO PARÍS VÍN WASHINGTON WINNIPEG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.