Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Side 19
19 LAUGARDAGUR 26. JANUAR 2002 I>V Helgarblað Blaðamenn DV á vaktinni í tuttugu ár - 7 Eiturbarónar og handrukkarar Hörð og uggvænleg veröld fíkniefn- anna blasir við. Fyrir 30 árum fóru að birtast fréttir af hassi og hassneyslu. Síðan hefur þessi eitraði heimur stig- magnast og forherst á alla lund. Fíkni- efnin eru stór atvinnuvegur. Af þeim hafa margir vinnu, eiturbarónar, burð- ardýr, hasshundar, tollgæsiumenn, fíkniefnalöggan - að ekki sé talað um handrukkara. í litlu landi þar sem ail- ir þekkja alla virðist enginn ráða neitt við neitt. Glæpamenn koma sinu tram þrátt fyrir miklar vamir. Ástandið í þessum málum er með öllu óviðunandi þegar börn eru með fagurgala fengin til að nota fíkniefni, með auglýsingum og dægurlagatextum og tónlist sem án efa efla hag sölumanna dauðans. Fíkniefnavandinn hefur fengið mik- ið rými á síðum DV og áður DB. Allt frá því á áttunda áratugnum hafa fjöl- miðlar barist gegn fikniefnum. Þá voru hassreykingar að breiðast út inn- an vissra hópa fólks. Eflaust hefur bar- átta DV og annarra íjölmiðla bjargað einhverjum. Hitt er svo annað mál að neysla fíkniefna hefur stórlega aukist í tímanna rás og óprúttna innflytjendur skaðlegra efna skortir ekki. Ekki er vitað til að landið hafí nokkru sinni orðið fíkniefnalaust, jafnvel ekki á tím- um þegar aðrar vörutegundir vantaði vegna verkfalla, meðal annars áfengi og tóbak í verkfalli BSRB um árið. Ljóst er að löggæslan hefur aðeins náð í lítið eitt af því magni sem sent var til landsins. Og þetta þýðir að ekki skort- ir neytendur. Lífsframfæri af fíkniefna- bransanum Þegar blaðað er í DV og undanfór- um þess, Vísi og DB, þá má merkja uggvænlega þróun í gegnum árin. Fyrst i stað má lesa um fólk að reykja hass, einhver er tekinn með eitt gramm og svo framvegis. Síðari tíma handtökur lögreglunnar hafa fært í hús mörg kíló af eitrinu. Efnin á eitur- efnamarkaði hafa líka orðið sterkari með árunum, og undirheimamenn hafa harðnað og eru orðnir lífshættu- legir menn sem láta limlesta og jafnvel myrða. Ljóst er að ótrúlegur fjöldi fólks á Islandi hefur beinlinis lifsfram- færi sitt af sölu á bönnuðum og lífs- hættulegum fíkniefnum. Fréttir um ægilegar misþyrmingar hafa orðið tíð- ari með árunum. Sjáifsmorðum vegna fikniefna hefur stórlega fjölgað. Fikni- efnavandinn hefur bæst við annan stóran vanda sem er áfengisvandamál- ið. Það er því ljóst að vandamál okkar er stórt og fangelsin að fyllast af brota- mönnum úr fíkniefnageiranum. Fyrir 11 árum sagði Bjöm Halldórs- son í DV að fíkniefnadeild lögreglunn- ar í Reykjaýík hefði haft afskipti af 439 manns vegna fíkniefna, þar af voru 168 atvinnulausir, 116 verkamenn og 35 sjómenn. Aðrar stéttir sem hlut áttu að máli voru 26 verslunarmenn, 24 skóla- nemar, 7 húsmæður og svo framvegis. Árið 1992, fyrir tíu árum, leit út fyrir að metár yrði hjá fíkniefnalögreglunni og hassið aðalefnið sem fyrr. Áætlaði lögreglan þá að veltan á fíkniefna- markaði á einu ári væri 400 milljónir króna. Við sama tækifæri var frá þvi greint að lögreglan hefði komist yfir 140 kíló af fíkniefnum á árunum 1979 til 1992, langmest af hassi eða 120 kíló. Auk hass var lagt hald á amfetamín, LSD og kókaín. Um þessar mundir var enn eitt eiturefnið að koma á markað og þótti sölumönnum dauðans það passa ungu fólki betur en allt annað - þetta var alsælan sem svo var kölluð, blanda kókaíns og amfetamíns. Tveim- ur árum seinna var talið að fíkniefni að söluverðmæti 500 milljónir króna hefðu verið í umferð árið 1994. Spjótum beint aö lögregl- unni - ekki eiturbarónum Sumariö 1992 gerðust æsilegir at- burðir i Reykjavik sem enduðu með gifurlega hörðurm árekstri á Vestur- landsvegi þar sem ekið er inn í Mos- fellsbæ. Fíkniefnasali á flótta ók beint DV-MYND SVEINN ÞORMÓÐSSON Sjö kíló af eitri Myndir eins og þessi eru til í filmusafninu í mikiu úrvali. Þetta eru 7 kíló af hassi sem voru tekin í september 1999. á lögreglubíl sem lagt var yfir Vestur- landsveginn. Lögreglumaður hlaut af alvarlega áverka. Fíkniefnasalinn var alræmdur í borginni. Hann var hand- tekinn með 1200 grömm af amfetamíni i bílflakinu. Málið þekkja flestir, en lögreglan notaði við handtökuna tál- beitu, setti á svið leikrit sem fljótlega snerist upp í ásakanir gegn lögregl- unni! Fíkniefnasalinn var dæmur í 7 ára fangelsi en mál hans gekk undir nafninu Stóra kókaínmálið. Nokkrum árum síðar stöðvaði yfir- lögregluþjónninn í Kópavogi ill- ræmdasta eiturlyfjabarón landsins þegar hann átti leið um þjóðveginn gegnum bæinn á leið til Hafnarfjarðar. Hann var þá með eiturlyf í bílnum. Málið snerist hins vegar á tíma upp í það hvort lögreglan hefði mátt stöðva bílinn! Manni þessum var kippt úr um- ferð um stundarsakir og fékk hann að dúsa í svartholinu i einhvem tima. Margir fíkniefnaneytendur höfðu látist langt um aldur fram á 13 ára timabilinu frá 1979 til 1992 eða 94 tals- ins. Árið á undan höfðu 10 ungmenni látist, meðalaldur hinna látnu var um 29 ár. Alsælupillumar áttu eftir að auka enn á sjálfsvíg ungs fólks auk þess að valda líkamlegu og andlegu tjóni. Efnið veldur sljóleika og þung- lyndi og neytandinn verður áður en varir sjúklingur hjá geðlækni, oft með ofsóknaræði og haldinn lystarleysi. Auk þess hafa komið fram hjartsláttar truflanir, nýmaeitrun, lækkandi blóð þrýstingur og krampi. Sölumenn dauð ans héldu því hins vegar fram að e-tafl an væri skaðlaus með öllu. Það gera þeir enn í dag. Og unga fólkið trúir DV-MYND HILMAR t Sorgin Aöstandendur óvirkra fikla minna hér á sig og bera líkkistu niður Laugaveg- inn fyrir 5 árum. Margir hafa látið lífið af völdum fíkniefnanna. sölumönnunum sem segja að allir noti töflurnar, miklu frekar en mömmu og pabba, eða blöðunum eða lögreglu eða læknum. Alsælan í leiðara Ellerts DV tekur á alsælunni í leiðara sem Ellert B. Schram skrifar í maílok 1992. Þar segir Ellert meðal annars: „Það er sífellt verið að bjóða og lokka með nýj- DV-MYND SVEINN ÞORMÓÐSSON Fíkniefnabæli í Versló / byrjun október 1988 var rúttað til í fíkniefnabæli sem hafði myndast eftir að gamli Verslunarskólinn flutti úr húsinu viö Grundarstíg. Fíkniefna- bæli voru viöa um höfuðborgarsvæöiö. Nú eru fíkniefni sýnileg á skemmtihúsum borgarinnar. DV-MYND SVEINN ÞORMÓOSSON Stóra fíkniefnamálið Mörg fíkniefnamál hafa fengið nafnið Stóra fíkniefnamálið í gegnum árin. Málið er að innflutningur fíkniefna hefur orðiö djarfari með hverju árinu sem tíður. um efnum. Þá fylgir jafnan sögunni að nú sé komið á markaðinn skaðlaust efni. Fyrst var það hassið, sem átti að vera skaðlaust, síðan var það am- fetamínið, sem var „bara venjulegt læknislyf'. Svo var það kókaínið, sem engan átti að meiða, meðan það var tekið í smáum skömmtum, og nú er það nýjasta efnið með þessu fína nafni, alsæla, sem á að vera meinlaust örvun- arlyf. Þeir deyja ekki ráðalausrir, sölu- menn fíknarinnar og freistingarinn- ar.“ segir Ellert B. Schram. Innflytjendur fíkniefna fóru fyrir allmörgum árum að hallast að því að nota útlendinga sem burðardýr fyrir efnin. Nærri fertug þýsk kona var grip- in af tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli undir jól 1993 með flestar gerðir af fikniefnum og mikið magn. Rétt áður hafði Dani verið gómaður á Hótel ís- landi með nokkur kíló af hassi. Blaöið sagði að fíkniefhabarónar hölluðust að erlendu vinnuafli, tollgæslan áttaði sig frekar á innlendum burðardýrum. Frægastur burðardýra var Kio nokkur Briggs. Hann var sýknaður eftir að hafa setið inni mánuðum saman. Koma fíkniefni til landsins með skipum? var spurt í DV í byijun árs 1994. Leitt var líkum að því að efnin væru send með almennum vörusend- ingum og kæmust gegnum nálarauga tollsins. Bent var á að einungis væri lagt hald á 5-15% af fíkniefnunum sem til landsins kæmu, nær ailt með flugi. En lítið eða ekkert hafði fundist við leit í skipum þar sem leitarhundar voru nýttir. Yfirmaður tollgæslunnar i Reykjavík taldi þá að litil eða engin hætta væri á að fíkniefni bærust til landsins með gámum í þeim mæli sem gerist erlendis. „Við erum blessunar- lega úti í hafi,“ var haft eftir yfirmann- inum í DV. Árið leið og var komið fram í febrú- ar 1995 þegar DV segir frá því að þrír ungir menn hefðu verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald fyrir að flytja inn hass í kílóavis, amfetamín og kókaín í miklu magni í smávörusendinum með skipi í millilandasiglingum. Hasshund- ur hafði fundið efnin. Þama var um að ræða eitt hið stærsta mál sem þá hafði borist á borð Tollgæslu íslands. Annað stórt mál kom upp í fyrra og var ný- lega dæmt í því. Þar var hringur eitur- baróna sendur í fangelsi og sviptur illa fengnum eigum sínum. Þjönusta sem skákar pitsu- stöðunum „Sífellt fleiri ungmenni ánetjast efn- unum ógnvænlegu og oftar en ekki með skelfílegum afleiðingum," skrifar Jónas Haraldsson í leiðara í DV 18. desember 1995. Hann bendir á þá uggvænlegu staðreynd að neytendur eru aö verða yngri og yngri, niður í grunnskólaaldur. „Foreldrar sextán ára drengs, sem svipti sig lífi fyrir skömmu eftir alsæluneyslu, sýndu þann kjark að ræða málið í DV á laugardaginn. Það var gert svo aðrir mættu læra af hörmulegri reynslu þeirra. Þeir hvöttu foreldra og unglinga til að ræða saman og ráðamenn um leið til að reyna aö átta sig á hinum stóra fíkniefnavanda og grípa til ráða sem duga,“ segir Jónas. Fram kemur að hin nýja símatækni auðveldar fikniefnasölu leikinn. Aðeins þarf að hringja í sím- boðanúmer og fíkniefnasalinn hringir til baka. Síðar kom í ljós að afgreiðsla á fíkniefnum var sneggri en hjá pitsubök- urum borgarinnar. -JBP á skautum verð frá kr. 1.990 507S Hokkískautar verð áður kr. 9.338 verð nú kr. 4.590 ÖRNINNP’ STOFNAÐ 1925 Skeifunni 11, Sími 588 9890

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.