Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Síða 23
LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 I>V 23 Helgarblað DV-MYND BRING Nýtt líf Ég hef ekki mætt á fundi hjá Krossinum í nokkra mánuöi, “ segir Páll Rósinkranz söngvari, „það er kominn tími til að gera eitthvað nýtt. “ Hef ekki misst trúna - segir Páll Rósinkranz söngvari Páll Rósinkranz hefur oft verið i sviðsljósinu. Hann átti glæstan feril með hljómsveitinni Jet Black Joe en var mikið á milli tannanna á fólki fyrir meintan drykkjuskap og fikni- efnaneyslu. Það þóttu því tíðindi þeg- ar hann sneri bakinu við rokkinu og gekk í Krossinn. Hann hætti þó ekki að syngja og gaf út eina gospelplötu og fyrir jólin átti Páll söluhæsta geisladiskinn, Your Song, og endur- tók leikinn frá því í fyrra þegar disk- urinn No Turning Back seldist í met- upplagi. Eins og gefur að skilja verður frægt fólk oft fyrir barðinu á kjaftasögum og Páll hefur ekki farið varhluta af því. Undanfarið hafa gengið sögur um að hann hafi ekki höndlað frægðina sem fylgir því að vera á toppnum og að hann sé hættur í Krossinum og dottinn í það af miklum krafti. Deilur í Krossinum Samkvæmt heimildum blaðsins hætti Páll í Krossinum vegna deilna við bróður Gunnars Þorsteinssonar, forstöðumanns kirkjunnar. Einar Þorsteinsson og Guðmundur Haralds- son, bróðir tengdamóður Páls, eru eigendur útgáfufélagsins Landco sem gaf út geisladiskinn No Turning Back í fyrra og mum Páll ekki hafa fengið neinar greiðslur vegna hennar og skulda þeir honum því háa peninga- upphæð. Páll vill ekki staðfesta þessa sögu og hann blæs á þá fullyrðingu að það samrýmist ekki lífi popparans að til- heyra kirkju eins og Krossinum. Hvefull bransi „Það er rétt að ég hef ekki mætt á fundi hjá Krossinum í nokkra mán- uði,“ segir Páll þegar hann er spurð- ur hvort eitthvað sé til í kjaftasögun- um. Hann hlær aftur á móti þegar hann er spurður hvort hann sé dott- inn í það. „Nei, langt frá því, ég er ábyrgur fjölskyldufaðir og hef ekki verið á neinum fylliríum i mörg ár og það stendur heldur ekki til. Ég á það til að fá mér rauðvín með matnum og öl annað slagið en læt það duga.“ Páll segir að tónlistarbransinn sé hverfull. „Eitt árið er maöur „inni“ en „úti“ það næsta og fall af toppnum getur verið hátt, en ég tek þessu með jafnaðargeði og læt það hafa lítil áhrif á mig. Það er einna helst að kjaftasög- urnar særi þá sem standa mér næst. Einu sinni hringdi systir konunnar minnar í 118 til að fá gefið upp gemsa- númerið mitt og heyrði fólk í bak- grunninum vera að tala um hvað ég væri mikill eiturlytjasjúklingur, vondur við konuna mína og beitti hana miklu ofbeldi vegna drykkju- skapar. Þetta er náttúrlega fullkomið rugi en getur komið illa við þá sem vita betur.“ Með trú í hjarta „Ég hef alltaf verið trúaður og það er langt frá því að ég hafi kastað trúnni. Eins og er tilheyri ég engri kirkju en á sterka trú í hjartanu. Á sínum tíma, þegar ég gekk í Kross- inn, gerði ég það með miklum krafti og braut margar brýr að baki mér. Mér fannst ég þurfa að aðskilja mig fullkomlega frá því sem ég hafði ver- ið að gera og Krossinn hjálpaði mér til þess. Núna er kominn tími til að gera eitthvað nýtt.“ Allt getur gerst Páll segir að hann langi til að gefa út einn „Ratpack“-disk eins og hann kallar það og taka gömul lög með Dean Martin, Frank Sinatra og Sam- my Davis Jr. „Ég hef alltaf haft gam- an af þess konar tónlist og langað að spreyta mig á henni, ég á líka nokkur frumsamin lög í farteskinu sem mig langar til að fullvinna og gefa út með hjálp góðra hljóðfæraleikara. Ég er reyndar farinn að hugsa um næsta disk en ég veit ekki hvort það verður jólaplata eða frumsamið efni. Æ, ég er með hugmynd af nokkrum plötum í kolllinum en ég veit ekki hver þeirra verður fyrst.“ Fyrsta febrúar verður frumsýnt á veitingahúsinu Nasa kokkteilshow þar sem Páll syngur dúett ásamt Védísi Hervöru en Margrét Eir syng- ur bakraddir. Undirleikarar eru Guð- mundur Jónsson á gitar, Jóhann Hjörleifsson á trommur og Friðrik Sturluson á bassa en Jón Ólafsson er eins konar tónlistarstjóri. Að lokum er Páll spurður hvort hann sé búinn að fá greitt fyrir Your Song. Hann fer að hlæja og segir að gert verði upp við hann á næstu dög- um. „Ég vona það aö minnsta kosti en reynslan hefur kennt mér að allt get- ur gerst þegar peningar eru annars vegar.“ -Kip ENN MEIRI AFSLÁTTUR Verslanir opnar 11-20 virka daga, 10-18 laugardaga og 12-18 sunnudaga / www.smaralind.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.