Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Qupperneq 47
LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002
DV
íslendingaþættir
55
Sunnudagurinn 27. janúar
85 ára
Rebekka Lúthersdóttir,
Beykihlíð 8, Reykjavík.
Sjötugur
Svavar S. Guðmundsson
fyrrv. kennari
80 ára ___________________________
Gunnar B. Ólafsson,
Skipholti 21, Reykjavík.
Ólafía Sigurðardóttir,
Miðtúni 42, Reykjavík.
Petra Guörún Stefánsdóttir,
Heiöarhrauni 41, Grindavík.
Emilía Stefánsdóttir,
Austurbyggð 21j, Akureyri.
75 ára____________________________
Sigríöur S. Jakobsdóttir,
Álftahólum 8, Reykjavík.
Kristvin Guömundsson,
Valsholti, Borgarnesi.
Baldur G. Bjarnasen,
Skúlabraut 6, Blönduósi.
Sigríöur Pálsdóttir,
Urðarbraut 2, Blönduósi.
70 ára____________________________
Elín Óladóttir,
Kirkjusandi 1, Reykjavík.
Matthildur Friöriksdóttir,
Háholti 12, Hafnarfirði.
60 ára____________________________
Jón Þórarinn Eggertsson,
Eyri, Akranesi.
50 ára____________________________
Ólafur Guömundsson,
Laugarásvegi 47, Reykjavík.
Ragna Bachmann Egilsdóttir,
Kaplaskjólsvegi 29, Reykjavík.
Björn Björnsson,
Fannafold 169, Reykjavík.
ingibjörg Kristín Dalberg,
Nesbala 60, Seltjarnarnesi.
Elsa Tangolamos,
Melgerði 24, Kópavogi.
Tatjana Potapcik,
Njaröargrund 3, Garðabæ.
Stefán Jónsson,
Óðinsvöllum 8, Keflavík.
Krystyna Jadwiga Laskowska,
Hafnargötu 29, Grindavík.
Margrét Bjartmarsdóttir,
Sandhólum, Suður-Þingeyjarsýslu.
Sigfús Sigfússon,
Hlíöargötu 3a, Neskaupstað.
Guömundur Bjarnason Baldursson,
Kirkjuferju, Árnessýslu.
Finnbogi Halldórsson,
Hrauntúni 45, Vestmannaeyjum.
40 ára____________________________
Ólafur Hvanndal,
Hverfisgötu 28, Reykjavík.
Ársæll Aöalbergsson,
Kirkjuteigi 16, Reykjavík.
Ríkaröur Rúnar Ríkarösson,
Heiðarseli 8, Reykjavík.
Jón Einarsson,
Hraunbæ 76, Reykjavík.
Jónína Guöjónsdóttir,
Freyjuvöllum 17, Keflavík.
Haraldur Jón Ásgeirsson,
Skeljatanga 22, Mosfellsbæ.
Ingibjörg L. Sigurðardóttir,
Blikahöfða 8, Mosfellsbæ.
Sólborg Alda Pétursdóttir,
Skeljatanga 28, Mosfellsbæ.
Jarðarfarir
Ólafur Ragnar Eggertsson
rekstrartæknifræðingur, Birkihlíð 36,
Reykjavík, sem lést föstud. 18.1.,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
þriðjud. 29.1. kl. 13.30.
Ríkharöur Kristjánsson, Denni, fýrrv.
kaupmaöur, Vesturgötu 35a, Reykjavík,
lést á heimili sínu miðvikud. 16.1. Útför
hans fer fram frá Áskirkju þriöjud. 29.1.
kl. 15.00.
Smáauglýsingar
Allt til alls
Páll Svavar Schiöth Guð-
mundsson kennari, Birki-
hvammi 14, Kópavogi, verður
sjötugur á morgun.
Starfsferill
Svavar fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp og í Garpsdal í Gils-
firði. Hann lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskóla Austurbæj-
ar 1949, kennaraprófi 1952,
myndmenntakennaraprófi 1953
og fór námsferð til Danmerkur
1952. Hann stundaði dansnám-
skeið við íþróttakennaraskóla
íslands 1962 og 1965, stundaði
enskunám við Georgetown Uni-
versity í Washington DC 1966 og
nám í æfingakennslu og dansi
við University of Nebraska og
Provo School og Utah og víðar í
Bandaríkjunum 1966-67, auk
þess sem hann hefur sótt fjölda
námskeiða hér heima og erlendis.
Svavar var kennari við Miðbæj-
arskólann I Reykjavík 1952-64, við
Æfinga-'og tilraunaskóla KÍ og KÍ
1964-70 og síðan við Æfingaskóla
KHÍ frá 1970.
Svavar var á yngri árum einn af
aðalkennurum Þjóðdansafélags
Reykjavíkur og hefur kennt þar
dans af og til.
Svavar sat í stjórn Kennarafélags
Miðbæjarskólans 1954-56, í stjórn
Stéttarfélags barnakennara í
Reykjavík 1956-58 og í stjórn Þjóð-
dansafélags Reykjavíkur 1953-55 og
1957-59. Hann er einn af stofnend-
um Félags áhugamanna í steina-
fræði og var ritari þess 1983-86 og
einn af stofnendum Steinfróða,
félags áhugamanna um jarðfræði og
steinafræði.
Fjölskylda
Svavar kvæntist 8.9. 1964 Rósu
Guðmundsdóttur, f. 26.9. 1929,
sérkennara. Hún er dóttir Guð-
mundar Magnússonar, bónda á Eyj-
ólfsstöðum í Fossárdal í Berufirði,
og k.h., Margrétar Guðmundsdóttur
húsfreyju.
Dóttir Svavars og Rósu er Mar-
grét Svavarsdóttir, f. 6.4. 1965, BA í
félagsvísindum og kennari í Bergen
í Noregi, gift Guðjóni Steingrimi
Birgissyni, f. 22.6. 1965, einleikara
og tónlistarkennara og eru börn
þeirra Tumi Steingrímsson, f. 13.12.
1987, Viktor Steingrimsson, f. 9.1.
1993, ísak Steingrímsson, f. 9.1.1993,
og Emma Sóley Steingrímsdóttir, f.
7.3. 2001.
Bróðir Svavars var Helgi Guð-
mundsson, f. 25.10. 1936, d. 30.11.
1984, bankaritari og listmálari í
Reykjavík, var kvæntur Hrafnhildi
Maríu Thoroddsen, f. 27.7. 1935,
bókara og eru börn þeirra
Guðmundur Kristinn, f. 1.4. 1955, d.
21.9. 1980, Mjöll, f. 20.11. 1959, M.Sc.
í stjórnun, Helgi Hrafnkell, f. 9.9.
1961, rafeindaverkfræðingur, Atli
Guðjón, f. 7.3. 1967, hdl., Steinar, f.
8.1. 1969, endurskoðandi, og Drífa
Jenný, f. 17.5. 1971, sálfræðingur.
Foreldrar Svavars: Guðmundur
Ingólfur Guðjónsson, f. 14.3. 1904, d.
22.4. 1971, skólastjóri Æfinga- og til-
raunaskóla KHÍ og höfundur fjölda
forskriftarbóka, og f.k.h, Jenný
Schiöth Lárusdóttir, f. 8.5.1909, hús-
móðir í Reykjavík.
Ætt
Guðmundur var sonur Guðjóns,
b. í Arnkötludal, Guðmundssonar,
b. í Arnkötludal í Strandasýslu, Sæ-
mundssonar, b. á Gautshamri,
Björnssonar, pr. í Tröllatungu,
langafa Margrétar, langömmu Sig-
hvats Björgvinssnar, fyrrv. ráð-
herra. Björn var bróðir Jóns í Skál-
holtsvík, forfóður Lýðs Björnssonar
sagnfræðings og Þórs Magnússonar
þjóðminjavarðar. Björn var sonur
Hjálmars, ættfóður Tröllatunguætt-
ar Þorsteinssonar. Móðir Sæmund-
ar var Valgerður Björnsdóttir, syst-
ir Finnboga, verslunarmanns í
Reykjavik, langafa Finnboga Rúts
prófessors, föður Vigdísar Finn-
bogadóttur.
Móðir Guðmundar var Helga Jó-
hannsdóttir frá Svanshóli.
Jenný er dóttir Lárusar, b. á
Hliði, síöast i Selskarði á Álftanesi,
Ásbjarnarsonar, b. og hómópata á
Urriðaá á Mýrum, Magnússonar, b.
í Hamrakoti í Andakíl, Magnússon-
ar. Móðir Ásbjarnar var Kristín Sig-
urðardóttir. Móðir Lárusar var
Guðrún, systir Jóns í Hákoti á
Akranesi, langafa Ásmundar Stef-
ánssonar, fyrrv. forseta ASÍ. Guð-
rún var dóttir Ásmundar, b. i Mið-
vogi, Jónssonar. Móðir Ásmundar í
Miðvogi var Guðrún Ásmundsdótt-
ir, b. á Elínarhöfða, Jörgensen Klin-
genberg, ættfoður Klingenbergætt-
arinnar. Móðir Jörgensen Klingen-
berg var Steinunn Ásmundsdóttir,
systir Sigurðar í Ásgarði, langafa
Jóns forseta og Tómasar Sæmunds-
sonar Fjölnismanns.
Móðir Jennýjar Schiöth var
Helga Guðrún Sigurðardóttir,
steinsmiðs í Reykjavík, þess sem
steypti fyrsta kalksteypuhúsið á
Norðurlöndum að Görðum á Akra-
nesi og fyrsta steinsteypuhúsið á Is-
landi í Sveina-tungu í Norðurárdal,
Hanssonar, í Reykjavik Jónssonar.
Móðir Hans var Karen Schiöth á
Kumbaravogi, ættuð frá Sjálandi.
Móðir Sigurðar var Guðríður Ara-
dóttir. Móðir Helgu Guðrúnar var
Guðbjörg Guðmundsdóttir.
Svavar verður að heiman.
KÁs- Smáauglýsingar
byssur, ferðalög, ferðaþjónusta,
fyrlr ferðamenn, fyrir veíðimenn,
gisting, golfvörur, heilsa, hesta-
mennska, Ijósmyndun, líkamsrækt,
safnarinn, sport, vetrarvörur,
útilegubúnaður...tÓmstundÍr
►I 550 5000
Skoðaðu smáugíýsingarnar á vísir.ís
550 5000
UTBOÐ
F.h. Fasteignastofu Fteykjavíkurborgar (áður Byggingadeild borgar-
verkfræðings) er óskað eftir tilboðum í málun á ýmsum fasteignum
Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn eru seld á skrifstofu okkar á kr. 3.000.
Opnun tilboða: 19. febrúar2002, kl. 11.00, á sama stað.
FAS 09/2
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkírkjuvogi 3-101 Roykjavík-Sími 570 5800
Fax; 562 2616 - Netfang: isr®rhus.rvk.ís
UTBOÐ
F.h. Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðisins er óskað eftir tilboðum í
„Bindivír".
Útboðsgögn, sem eru á ensku, fást á skrifstofu okkar.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Opnun tilboða: 21. mars 2002, kl. 11.00, á sama stað.
SHS 07/2
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í eftir-
farandi verk:
Fóðrun holræsa 2002, 2003 og 2004.
Flelstu magntölur eru:
Fóðrun 6.200 m
Viðgerðir með uppgreftri 260 m
Verkinu skal lokið 30. september 2004.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 29. janúar 2002 gegn
10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 7. febrúar 2002, kl. 14.00 á sama stað.
GAT 08/2
111 INNKAUPASTOFNUN
1B 9 REYKJA VÍKURBORGAR
\B/ Fríkírkjuvegl 3-101 Reykjavtk-Sími 570 5800
Fax 662 2616 - Netfang: lsr©rhus.rvk.ls
Orkuveita
Reykjavíkur
ÚTBOÐ
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í verkið
„Nesjavallavirkjun -Safnæðar og endurbætur gufuaðveitu 1“.
Verkið felst í lagningu DN700 og DN400 safnæða, endurbótum á
DN 1000 gufuaðveitu með tilheyrandi jarðvinnu, framleiðslu steyptra
undirstaðna og tengingu lagna í skiljustöð. Allur ytri frágangur er eins
og á núverandi lögnum og mannvirkjum.
Flelstu magntölur:
Gröftur 6.000 m3Burðarfylling 6.000 m3
Fjöldi forsteyptra undirstaðna 50 stk.
Steypa í staðsteypt mannvirki 410 m3
Stálsmiði, 26 tonn
Pípulagnir, 1100 m
Einangrun og álklæðning 3000 m2
Raflagnir í jörðu 850 m
Sáning með fínjöfnun 15.870 m2
Sáning án fínjöfnunar 13.650 m2
Grasþakning 3.750 m2
Lagnir skulu vera fullfrágengnar og prófaðar fyrir 4. október 2002.
Verkinu skal lokið fyrir 1. nóvember 2002.Útboðsgögn fást á skrifstofu
Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá
og með 28. janúar 2002, gegn kr. 25.000 skilatryggingu.
Opnun tilboða: 19. febrúar 2002, kl. 14.00.
Orkuveita Reykjavíkur býður væntanlegum bjóðendum til
vettvangsskoðunar á Nesjavöllum fimmtudaginn 6. febrúar 2002, kl.
1400.
Orkuveita Reykjavíkur, vegna FHitaveitu Þorlákshafnar, óskar eftir
tilboðum í verkið „Grímsnesveita n borholuhús, dælustöð og
skerpistöðvar".
Um er að ræða 400m3 miðlunartank úr stáli, tvær 50 m2
steinsteyptar skerpistöðvar, 164 m2 steinsteyptadælustöð og tvö
forsteypt 12m2 borholuhús ásamt hluta af jarðvinnu og lögn á
stofnlögnum hitaveitu.
Útboðsgögn fást á skrifstofu Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með 29. janúar 2002, gegn 15.000
kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 14. febrúar 2002, kl. 11.00.