Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Page 55

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Page 55
LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 DV Helgarblað 63 Reykspólað í flórnum Jón Birgir Pétursson skrifar um fjölmiöla. Á laugardagskvöldum horfa margir á Johnny International sletta úr klaufunum á Skjá einum og fórna þá í staðinn konfektmola Rikissjónvarpsins, henni Stein- unni Ólinu. Ég verð að viður- kenna að ég hef lúmskt gaman af honiun nafna mínum alþjóðlega. Hann lætur menn „reykspóla í flórnum“, en það orðtak heyrði ég i fyrsta sinni af vörum þessa bein- skeytta fréttamanns. Þátturinn er eins og amerísk truntureið, ródíó. Framan af bera menn sig vel, síð- an bakka þeir í vörnina og loks stimir á svita á enni. Að lokum færist reiöin yfir andlitið og menn bölva í hljóði fyrir að hafa látið hafa sig í viðtal við Johnny og segja þá með nokkrum þjósti: Ég svara ekki svona bulli. Gunnar í Krossinum og Snorri í Betel, allt að þvi háheilagir menn, létu sig hafa það að svara Johnny á laugardaginn. Ertu í sambandi yið önnur kristin samtök, til dæm- is Ku Kux Klan? spurði Johnny. Og síðar: Var ekki Satan bara finn náungi? Svona lét hann dæluna ganga, sumt ekki prenthæft. Johnny hefur haft áhrif á íslenska tungu. Hann kom inn sagnorðinu að tsjilla. Núna bætir hann í safn- iö orðunum bling-bling og ching- ching sem eflaust verða í orðabók- nm framtíðarinnar. Við notum ekki svona orðbragð, drengurinn ®inn, sagði Gunnar í Krossinum Þegar honum ofbauð Johnny, sem hann taldi að Satan stjórnaði. Tvær íslenskar hjónabands- hrollvekjur voru á skjánum hjá Ríkissj ónvarpinu um og upp úr helginni, báðar nokkuð snjallar þrátt fyrir ýmsa annmarka. f fyrsta lagi var hér um að ræða afar vel heppnað leikrit eftir Jón- inu Leósdóttur og hins vegar stutt- myndina Góð saman eftir Herbert Sveinbjörnsson sem var hrá fram- leiðsla en nokkuð eftirminnileg engu að síður. Báðar myndirnar, gjörólíkar, komust að sömu niður- stöðu. Ungu mennirnir áttu í vændum erfið hjónabönd. Brúður- in á ljósmyndastofunni var óhugn- anlega lík móður sinni. Tinna Gunnlaugsdóttir lék kaldlynda móður af mikilli Ust, hún var frá- hrindandi og hrútleiðinleg frúin sú og hafði flæmt ágætan eigin- mann að heiman. í stuttmyndinni var imgur og saklaus drengur Iát- inn sættast við eins konar unn- ustu sína, orðljóta, háværa, heimska, freka og fráhrindandi unga konu. Saman gengu þau út í vorið og vesenið. Það var óhugn- anleg sjón. Ég gat hlustað á hluta af aí- bragðsskemmtilegum og vel gerð- um þætti Jóhönnu Haröardóttur sem hét að mig minnir íslands óveður. Þar var fjallað um nútíma heiðahrakninga á skemmtilegan hátt. Gamla gufan er frábær - ef maður hefur tíma. /T? 11 á i n I ftffT) Sjóðheitasta mynd ársins er komin. Tom Cruise + Penelope Cruz = Heitasta parið í dag. Ásamt ofurskutlunni, Cameron Diaz. Myndin er hlaðin frábærri tónlist en Sigur Rós flytur 3 lög í myndinni. Frá leikstjóra “Jerry Maguire". Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 3.50 og 7. ★★★ ÓHT Rés 2 Sýnd kl. 1.50 og 3.40. mhi.'.yniiMæ Hringadróttinssaga ★★★★ Þaö er sama hvar kom- iö er niöur í þessum fyrsta hluta af Hringa- dróttinssögu, allt er eins og þaö á aö vera. Sagan er gefandi ævintýri um baráttu ills gegn hinu góöa. Persónur eru hver annarri áhugaveröari. Og álfar, dvergar og tröll eru eins og viö hugsum okkur slíkar verur. Myndin er stórkostlegt ævin- týri þar sem ieikstjórinn Peter Jackson fetar dyggilega í fótspor Tolkiens og end- urskapar veröld hans af mikilli snilld. -HK Enigma ★★★ Fyrir þá sem vilja njósnamyndir meö mörgum dauösföll- um, æsispennandi eltingaleikjum og harösnúnum töffurum er Enigma ekki máliö en ef njósnamyndir meö laglegri fléttu, góöum samtölum og sterkum leik er ykkar tebolli er Enigma eins og sniöin fyrir ykkur. Þaö lýsir vel fjölhæfni leik- stjórans, Michael Apted, aö hann skuli geta gert rólega og margfléttaöa mynd eftir James Bond-hasarinn, The World Is not Enough. -SG Regína ★★★ Heiöurinn af þvf að Regína gengur upp og skemmtir allri fjöl- skyldunni á María _______ Siguröardóttir leik- ini fer sérstaklega vel úr hendi meö efni sem á aö skemmta urshópum. Söng- og dansatriö- pins oe vera ber iangskemmti- dansatriöin fagmannlega útsett og ekki má gleyma vel skrifuöum söngtextunum. Þá er myndin er litsterk, björt og fallega tekin. -SG alony camo a spider mnym ^ CaÍs ? D@GS un ii nuGitsimasroFA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.