Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2002, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2002, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 DV 9 Fréttir stræti og víðar um miðbæinn var þar vissulega verið að gera endurbætui' sem duga munu um ókomin ár. Sömu sögu má segja af uppbyggingu húsa við Tryggvagötu sem fengið hafa nýtt hlut- verk sem menningarsetur, myndlistar og bókmennta. Þar hefur að margra mati verið unnið mjög þarft verkt og til mikilla bóta í þeim tilgangi að efla miðborgina. Hins vegar hefur hringl- andaháttur varðandi umferð bíla í miðbænum á umliðnum áratugum verið ákaflega sérkennilegur. Þar er enn og aftur komið inn á einlitan skilning á orðinu vistvænn. Fallegar hugmyndir duga skammt Hugmyndir sem sóttar eru til veður- sælla miðborga Suður-Evrópu um að bílar skyldu gerðir útlægu af götum miðborga voru kokgleyptar og yfir- færðar á íslenskan veruleika. Þannig var Austurstrætinu t.d. lokað fyrir bílaumferð á sinum tíma og helst átti að loka öllum miðbænum fyrir ágangi „blikkbeljunnar" svokölluðu. Fólk skyldi ganga á fallega útfærðum hellu- lögðum götum. Með slíku átti að hleypa lífl í miðbæinn og gera hann „huggulegan“ fyrir hinn almenna borgara. Á teikniborðinu leit þetta Qarska vel út og farið var í að hrinda þessu í framkvæmd þrátt fyrir hávær mótmæli kaupmanna. - Þeir sögðu ein- faldlega að ef fólk gæti ekki komið til þeirra á bílum þá hætti það að versla í miðbænum. Þrátt fyrir rándýrar fram- kvæmdir og göfug markmið ótal sér- fræðinga með lokun miðbæjarins fyrir bOaumferð kom í ljós að kaupmenn- imir vom líklega þeir einu sem höfðu rétt fyrir sér. Verslanir tóku að veslast upp í bókstaflegri merkingu og kaup- menn flýðu umvörpum. Reynt var að klóra í bakkann eftir að skaðinn var skeður og Austurstræti var opnað á ný fyrir umferð. Þar virðist hins vegar fátt annað geta þrifist í dag en kafii- hús, pöbbar og súlustaðir. Eftir afleita reynslu af lokun Aust- urstrætis og síðan lokun Hafnarstræt- is til austurs á nú einnig að opna bil- um leið þar í gegn. Það var þó ekki ákveðið fyrr en ljóst var að með lokun- inni hafði orðið til „dauður“ botnlangi við austanvert Hafnarstræti. Þar dafn- aði eiturlyfjasala sem aldrei fyrr í skúmaskotum á milli bygginga. Þannig hefur fjölda dýrra lausna verið hrundið í framkvæmd á umliðn- um áratugum, sem þó hafa ekki komið í veg fyrir að miðborgin tapaði frá sér verslunum og þjónustufyrirtækjum. Hugmyndirnar virðast oft á tíðum hafa verið pijónaðar upp úr mjög ólík- um álitum sérfræðinga frekar en heild- stæðri áætlun og skilgreiningu á hvað miðborg á í raun að vera. Á meðan þetta er óljóst heldur miðbænum áfram að hnigna í stað þess að vera lif- andi þungamiðja höfuðborgar Islands. DVWND GVA Noröangarrinn er vandamál Ekki hefur tekist með skipulagi miðbæjarins að girða fyrir þann vindstreng sem gerir Lækjargötuna að veðurfarslega óvistlegustu verslunargötu á ís- landi. Háreist byggð við Skúlagötu hefur þó meðvitað eða ómeðvitað oröið til að brjóta upp vindstrenginn upp yfir Laugaveginn. Bolli í Sautján áfram á Laugaveginum: Hættur við að hætta - ástæöan gjörbreyttar hugmyndir borgaryfirvalda Ásgeir Bolli Kristinsson, eða Bolii í Sautján eins og hann er tíðum kallað- ur, er hættur við að leggja niður versl- un sína Gallery 17 á Laugaveginum. Hann segir að breyttar áherslur borg- arinnar í skipulagi á svæðinu hafi snú- ið dæminu við. Vænta megi skipulags- aðgerða þegar á næstu mánuðum. Bolli situr í miðbæjarstjóm Reykja- víkurborgar og vakti því mikla athygli er hann lét í veðri vaka fyrir stuttu að hann hygðist leggja niður starfsemi sina á Laugaveginum. „Það hefur ýmislegt breyst núna á allra síðustu dögum. Það hefur verið fundað um þetta allt saman upp á nýtt. Fyrir lágu drög að skipulagi Laugaveg- arins og það er nú orðin skýr stefna að byggja upp Laugaveginn og gera það myndarlega. Hugsanlega verða friðuð 2-3 hús en mönnum veitt svigrúm til uppbygginga. Mögulegt verður að koma þar fyrir nýbyggingum upp á 50 til 70 þúsund fermetra. Þetta er þvi allt annað en fyrir lá fyrir að- eins viku eða tiu dögum. Borgin er nú að koma mjög mynd- arlega að þessu. Það verða lækkuð öll nýbyggingagjöld á Laugaveginum og einnig bílastæðagjöld sem hafa verið fjarskalega dýr. Það er komin skýr stefna um hvað á að vernda og einnig hvernig á að aðstoða þá sem vilja byggja þarna upp.“ - Áttu von á að hægt verði að snúa neikvæðri þróun við? „Ég tel það. Laugavegurinn er góð verslunargata, en húsin við hana eru ekki nógu hentug. Þess vegna tóku margar búðir sig upp og fóru í betra húsnæði. Með þessari nýju uppbygg- ingastefnu verður þetta allt öðruvísi. Heildarmyndin er skýr og komin alveg ný hugsun í þetta.“ Bolli segir að samkvæmt nýju hug- myndunum eigi m.a. að byggja stórar bílageymslur við götuna. Við norðan- verðan Laugaveginn er stefnt að því að byggja hátt og þétt til að verjast norð- anvindinum. Við sunnanverða götuna verði húsin hins vegar lágreistari til að gatan geti notið sólarinnar. Þá á að klára upptekt götunnar sjálfrar á næsta ári. Hann segir að allt taki þetta ein- hvem tíma, en vonast til að merki breyttrar áherslu fari að sjást innan tveggja til þriggja mánaða. Bolli Kristinsson. Miðborgin er flutt í Kópavoginn - segir framkvæmdastjóri SVÞ „Reykjavík er búin að tapa mið- borginni til Kópavogs, það verður að horfast i augu við það,“ segir Sig- urður Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Hann tekur undir það að aðgerðir til að halda í verslanir hafi verið ómarkvissar og fálmkenndar. „Það er engin miðborg þama nið- ur frá, það er bara þráhyggja. Versl- unum er alltaf að fækka og í haust hafði þeim fækkað um 22 í miðborg- inni frá árinu áður, þar af um 10 við Laugaveg. Það virðist hafa vant- að heildarsýnina á það hvað ætti að gera. Nú eru þetta bara orðin kaffihús og ein- staka stjómsýslu- byggingar. Landsbankinn í Austurstræti stendur t.d. hálf- tómur. Kannski e Sigurður Jónsson. i við eftir að sjá hann breytast í næturklúbb. Einhvern veginn virðast menn ekki hafa trú á að þessi þróun snú- ist við. Miðborgin er flutt í Kópa- vog. í miðbæ Reykjavíkur eru menn hins vegar að reyna að bjarga því sem eftir er, þ.e. Laugaveginum, og virðast ekki ganga það allt of vel.“ Sigurður segir að sérfræðingar hafi bent á að Laugavegur geti ekki orð- ið alvöru verslunargata nema með verulegum breytingum. DV-MYND E.ÓL Brynjólfur Björnsson, framkvæmdastjóri í Brynju Þaö voru hér að minnsta kosti fjórar járnvörubúðir í næsta nágrenni áður fyrr. Þá voru hér reyndar allt í kring fjöldinn allur af verkstæðum og Völundur starfaði þá niðri á Skúlagötu. Nú er þetta allt farið og járnvöruverslanirnar fóru lika. Hafa lifað af ýmsar byltingar við Laugaveginn rífa hálfa öld: Fólkið vill ekki að við förum - segir framkvæmdastjórinn í Brynju Verslunin Brynja hefur á áttatíu ára ferli lifað af ýmsar byltingar í verslunarháttum við Laugaveginn í Reykjavík. Þar ræður nú ríkjum Brynjólfur H. Bjömsson, en faðir hans, Bjöm Guðmundsson, keypti verslunina árið 1953. í dag starfa þar sjö manns og engan bilbug að flnna á mönnum. „Við stöndum enn, þótt hér hafi fullt af jámvömbúðum hætt starf- semi á liðnum áratugum. Við erum eina búðin af þessum toga hér í mið- bænum. Fólk vill ekki að við hætt- um, enda væri ekki gott ef engin slík búð væri hér á svæðinu. Það þyrfti þá að fara út fyrir miðbæinn til að ná í ýmsa hluti varðandi viðhald og við- gerðir á húsum sínum.“ - Hefur samsetning verslana og þjónustufyrirtækja ekki mikið verið að breytast í miðbænum? „Jú, það hefur verið að gerast og veitingastöðum hefur mikið fjölgað. Þetta á svo sem ágætlega saman í miðbænum, bæði verslanir og veit- ingastaðir. Það voru hér að minnsta kosti fjórar jámvörubúðir í næsta nágrenni áður fyrr. Þá voru hér reyndar allt í kring fjöldinn allur af verkstæðum og Völundur starfaði þá niðri á Skúlagötu. Nú er þetta er allt farið og jámvöruverslanirnar fóru lika.“ - Hefur orðið einhver samdráttur hjá ykkur? „Nei, það fmnst mér ekki. Það hefur verið að fjölga ibúum við Skúlagötuna og fólk sækir áfram í Þingholtin. Þar er viðhald á öllum þessum gömlu húsum hér í kring. Við verðum varir við allt þetta fólk hjá okkur. Svo er mikið ver- ið að breyta til hér á Laugaveginum, ný fyrirtæki koma inn fyrir önnur sem fara. Það kallar á alls konar breytingar. Svo emm við að selja töluvert út á land líka. Við sinnum m.a. skólum mikið og fólk hringir hingað og pantar vörur." - Hvað með hugmyndir manna, m.a. um að yfirbyggja Laugaveginn? „Ég hef ekkert heyrt af því undanfar- ið. Ég veit ekki hvað veldur, en það hef- ur ekkert orðið meira úr því en þessi tilraun sem gerð var hér hjá Vínber- inu. Maður verður þó var við að veðr- ið skiptir miklu máli. Þegar gott er veð- ur eins og á „löngum laugardegi," þá sækir fólk mikið hingað. Á góðum dög- um er hér fuilt af fólki." - Hvemig gengur að keppa í verði við stóm byggingarvömverslanirnar? „Mér sýnist við oft vera með hag- stæðara verð. Þær eru ekkert ódýrari þessar stóru og oft dýrari en við í ýms- um verkfærum. Þá emm við með fullt af vörum sem seljast ekki i miklu magni og stóru búðirnar treysta sér því ekki að vera með. Við flytjum líka þónokkuð inn af vöram sjálfir." - Þið eruð þá ekkert á fómm? „Nei, enda segir fólkið hér í kring að við megum ekki fara. Við erum fastur punktur í tilverunni," segir Brynjólfur H. Bjömsson, framkvæmdastjóri Brynju.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.