Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2002, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2002, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2002 9 DV Tæknin trufiar I dag er þjófavörn í mörgum bílum sem virkar þannig aö ekki er hægt aö ræsa bílinn nema hann sé opn- aöur meö fjarstýringu. En ekki er víst aö lyklar með slíkri fjarstýringu eigi samleiö meö GSM-símanum. Símar og fjarstýringar: Ekki saman í vasa eða veski Maður hafði samband við neyt- endasíðuna og vildi segja frá ófor- um i sambandi við Renault Laguna- bifreið sina. Bifreiðin, sem er af ár- gerð 1997, er búin þjófavamabúnaði sem virkar þannig að í lykli er fjar- stýring sem kveikir á þjófavöminni um leið og bifreiðinni er læst og tek- ur hana af þegar fjarstýringin er notuð til að opna hana. Sé fjarstýr- ingin hins vegar ekki notuð til að opna bifreiðina er þjófavamakerfið enn virkt og er ekki hægt að starta bílnum þótt réttur lykill sé notaður. Það sem hann var ekki ánægður með er að ekki er hægt að gera þessa þjófavörn óvirka en bilanir í henni hafa, á tveggja mánaða tíma- bili, kostað hann á fimmta tug þús- unda. Tvisvar hefur það gerst að kona hans hefur stungið lyklinum í vasann og þegar hún ætlar að opna bílinn virkar fjarstýringin, og þar með bíllinn, ekki. Þá hefur þurft að draga bílinn af vettvangi með til- heyrandi kostnaði og kaupa nýja fjarstýringu sem kostar 14.800 kr. auk vinnu við skiptin sem er seld á 5.124 kr. eða samtals 19.439 kr. Þetta hefur hann þurft að gera tvisvar á þeim stutta tíma sem liðinn er af ár- inu. Hann veltir því fyrir sér hvort það geti verið farsími konunnar sem skemmir fjarstýringuna en hann hefur verið í sama vasanum og fjarstýringin í bæði skiptin sem þær biluðu. Sé sú raunin finnst hon- um að gott hefði verið að fá viðvör- un þar að lútandi svo ekki kæmi til alls aukakostnaðarins. Sem betur fer hafa þessar fjar- stýringar ekki verið að bila mikið en það kemur þó alltaf fyrir,“ segir Atli Vilhjálmsson, þjónustustjóri hjá Bifreiðum og landbúnaðarvél- um. Aðspurður um hvað það sé sem skemmi fjarstýringarnar segir Atli að í lyklunum sé kóði og ef lykillinn sé í sama vasa eða veski og GSM- sími þá geti hann afkóðast. „Ég get þó ekki fullyrt neitt um það því fjar- stýringamar eiga að þola símann en mig grunar að í einhverjum tilfell- um geri þær það ekki.“ Væri þá ekki ráð að láta fólk vita af því? „Það má kannski segja að það mætti upplýsa fólk um að þetta færi ekki saman. En á móti kemur að framleiðandinn segir að lyklarnir eigi að þola nálægð við símana.“ -ÓSB Beint samband við neytendasíðu Lesendur sem vilja ná sambandi við neytendasíðu DV hafa til þess nokkrar leiðir. t fyrsta lagi geta þeir hringt í beinan sima: 550 5821. Faxnúmerið er: 550 5020 og svo er það tölvupósturinn en póstfangið er: osb@dv.is. Tekið er á móti öllu því sem neytendur vilja koma á framfæri, hvort sem það eru kvartanir, hrós, nýjar vörur eða þjónusta - eða spumingar um eitt og annað sem kemur upp á í daglegu lífi. Ólöf Snæhólm Baldursdóttir umsjónarmaður neytendasíöu. Neytendur í hvað fóru allir þessir peningar? - eða margt smátt gerir eitt stórt Nýjustu fréttir herma að um átta þúsund manns séu þegar bún- ir að skila skattskýrslum sínum þetta árið og eflaust margir sem liggja yfir þeim þessa dagana. Þeg- ar tekjur heimilisins eru teknar saman rekur marga í rogastans. Hvert fóru allir þessir peningar, spyrja eflaust margir og af hverju er ekkert eftir af þeim? Undanfarin misseri hafa sést á metsölulistum bækur sem eiga að kenna fólki að verða ríkt. Megin- þemað í þeim öllum er að það skiptir ekki öllu máli hversu mik- ið kemur inn heldur hversu mik- ið fer út. Sem sagt maður þarf að spara til að verða ríkur." Einn stærsti kostnaðarliður fjölskyldna er matarreikningur- inn en honum má halda í skefjum á margan hátt. Hagsýnt fólk fer t.d. ekki svangt út í búð því þá eru mun meiri líkur á að keyptur sé alls kyns óþarfi, eins og snakk og sælgæti. Eins er mikilvægt að vera skipulagður, fara með lista yfir það sem vantar og kaupa að- eins það sem á honum er. Mörg- um finnst kannski í lagi að grípa með sér eitthvert smáræði sem hugurinn girnist þá stundina. Þetta kostar nú ekki nema þrjú- hundruðkall, segja þeir. En það eru ekki margir sem hafa lagt þaö niður fyrir sér hversu stór póstur svona hlutir eru þegar árið er gert upp. Til að gefa lesendum einhverja hugmynd um hvemig margt smátt gerir eitt stórt skulum við skoða fjölskyldu sem eflaust er á svipuðu róli og margar islenskar fjölskyldur. Gos og sælgæti Við skulum byrja á því að skoða gosdrykkina því neysla þeirra er gífurleg hér á landi. Fjölskyldunni finnst gott að fá sér gos- drykk með matnum og gerir það reglulega, auk þess sem meðlimir henn- ar fá sér stundum eitt glas yfir sjónvarpinu. Þannig drekkur þessi fimm manna fjöl- skylda um tvo lítra á dag. Verð gosdrykkja er afskaplega misjafht en gera má ráð fyrir að tveggja lítra flaska af vinsælum gosdrykk kosti um 240 kr. Sé keypt ein flaska á dag kostar það 87.600 kr. á ári. Laugardagskvöldum eyðir þessi fjölskylda fyrir framan sjónvarpið og hefur fyrir sið að maula snakk og gott- erí sem auðvitað Nú sitja margir sveittir viö aö reikna út tekjur og skuldir því skattskil eru á næsta leiti. Mörgum bregður í brún þegar þeir sjá hversu háar upphæöir fóru í neystu á árinu sem var aö líöa en hana má minnka tötuvert meö einföldum aögeröum. á mánuði fyrir áskriftina að Stöð 2 sem gerir 51.480 kr. á ári. Þegar þau bæta Sýn við þá kostar áskriftin að báðum stöðvunum 6.290 kr á mán- uði eða 75.480 kr. á ári. Við þetta bætist að sjálfsögðu áskriftin að RÚV sem kostar 27.000 á ári, en hún er skylda ef horfa á á sjón- varp og því ekki reiknuð sem eitt- hvað sem hægt er að spara hér. Bíóferðir eru ekki oft á dagskrá en þess í staö sér fjölskyldan nýj- ustu myndimar þegar þær koma út á myndböndum. Þau leigja sér spólu tvisvar í viku á 500 kr. stykkið eða 52.000 kr. á ári. Skyndibiti Hjónin vinna bæði úti og kaupa sér yfirleitt eitthvert snarl í hádeg- inu þar sem ekki er mötuneyti á vinnustað þeirra. Hvort um sig eyð- ir þannig 4-600 krónum á dag, eða að meðaltali 1000 kr. samtals. Svona gengur þetta fyrir sig í 220 daga á ári og því eyða þau 220.000 í sjoppur og verslanir i nágrenni vinnunnar árlega. Á fóstudögum koma allir þreyttir heim eftir vinnuvikuna og enginn nennir að elda. Þá er pöntuð pitsa sem kostar 1.800 kr. því þau reyna að versla við pitsufyrirtæki sem er í ódýrari kantin- um. Eig- andi pitsustaðar- ins er ánægður með viðskiptin því frá þessari einu fjöl- skyldu fær hann 63.000 kr. í kassann árlega þótt þau kaupi að- eins 35 pitsur á ári. (Aðrir fóstudagar voru um jól, páska, í smn- arfríi og öðr- um þess háttar dögum þegar flest- ir eru með eitthvað annað en pits- ur í matinn). Tæp hálf milljón í óþarfa Þegar þessi fjölskylda gerir upp fjármálin fyrir árið sér hún að í þessa litlu, en ónauðsynlegu hluti, höfðu farið 461.600 krónur sem hefðu dugað fyrir sumarfriinu í útlöndum sem þau langaði í en höfðu ekki efni á. Auðvitað kæmi kostnaður á móti ef þau hætta að kaupa mat í hádeginu og panta sér pitsur því fjölskyldan þarf jú að borða. En sá kostnaður er mun lægri ef pitsan er búin til heima og allir taka með sér heimasmurða samloku til að borða í hádeginu. Og hafa ber í huga að þetta eru pening- ar sem búið er að greiða skatta og skyldur af. Hjónakomin þurfa þvi að vinna sér inn talsvert hærri upp- hæð til að eiga fyrir þessu öllu. Ef haldið er ítarlegt heimilisbók- hald kemur mjög fljótt í ljós í hvað peningamir fara og hvemig hægt er að minnka útgjöldin með því að skera niður allt hið ónauðsynlega. Og það skrýtna er að eftir smátima án þessara hluta saknar maður þeirra ekki neitt! -ÓSB er emgongu leyfilegt á nammidögum. Þau fá sér kartöfluflögur sem kosta 350 kr., súkkulaðistykki á 200 kr. og ýmislegt annað smálegt fyrir 200 kr. Þetta kostar 750 kr. á viku eða 39.000 á ári. Sjónvarp og myndbönd Þessi fjölskylda er mikið heima og horfir mikið á sjónvarp. Því borga þau skyldu- áskrift að RÚV og eru áskrifendur að Stöð 2. Elsta barnið í fjölskyld- unni og mamman eru miklir fót- boltaaðdáendur og því hefur fjöl- skyldan ákveðið aö kaupa sér aðgang að sjónvarps- stöðinni Sýn sem sýnir leiki í enska boltanum. Núna borga þau 4.290 kr. Meira rymi, meira afl, meira útsýni, meira öryggi, meiri gæði, meira af þvi sem gefur lífinu gildi... - og þar að auki fjórhióladrif! $ SUZUKI SUZUKIBÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. www.suzukibilar.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.