Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2002, Page 28
FRETTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2002
l.'W
i
- segir framkvæmdastjóri Norölenska
Guöni
Ágústsson.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra var ómyrkur í máli á þingi í
gær gagnvart íslenskum útflytjendum
vegna ónógra
merkinga á ís-
lensku lambakjöti
til ESB-landanna.
Hann sagði að
taka yrði „harka-
lega í hnakka-
drambið" á þeim
aðilum sem bæru
ábyrgð á þessu
klúðri. Skömm
væri að því að þeir
hefðu ítrekað farið fram gegn reglum.
Ráðherra gat þess þó að sumir
hefðu staðist merkingaprófið, s.s. Slát-
urfélag Suðurlands. Hlutverk útflytj-
endanna væri skýlaust aö hafa þessa
hluti í lagi fyrir hönd bændanna. Yfir-
dýralæknisembættið myndi eiga
fundi með aðilum vegna málsins.
Þetta kom fram þegar Karl V.
Matthíasson, þingmaður Samfylking-
arinnar, bar upp fyrirspum og lýsti
áhyggjum af málinu. Hann sagði að ef
handvömminni linnti ekki yrðu jafh-
vel einhverjir sauðfjárbænda að
bregða búi. Útlutningur kindakjöts
væri helsti vaxtarbroddur sauðfjár-
ræktar og hundrað milljóna króna
Atlantsál:
Málin í skoðun
„Ég geri fastlega ráð fyrir að við
munum ræða þetta mál mjög fljót-
lega,“ sagði Jón Hjaltalín Magnús-
son, einn eigenda
Altlantsáls, sem
er í tengslum við
rússnesk álfyrir-
tæki - þar á með-
al Russian alu-
minium - og sýnt
hafa álverksfram-
kvæmdum við
Reyðarfjörð
áhuga. Jón
Hjaltalín og fyrir-
tæki hans, Atlantsál, hafa verið að
skoða möguleikana á að koma upp
álveri við Eyjafjörð eða við Húsavík
en telja að Reyðarfjörður sé mjög
áhugaverður kostur opnist þar
möguleikar. „Þetta yrði mjög stórt
verkefni og við þurfum að skoða
það vel hvemig best er að nálgast
það. Og ekki nóg með að það sé
viðamikið heldur er það líka við-
kvæmt þannig að ég vil bíða með
allar nánari yfirlýsingar þar til þar
að kemur,“ segir Jón Hjaltalín
Magnússon. -BG
Jón Hjaltalín
Magnússon.
tekjur væru i hættu.
Norölenska er eitt þeirra fyrir-
tækja sem hafa útflutningsleyfi til
ESB-landanna og sagði Sigmundur
Ófeigsson, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, að menn hefðu sofið á
verðinum og úr því yrði bætt. Hins
vegar yrðu menn að gera sér grein
fyrir aö íslensku fyrirtækin væru
neydd til þessa útflutnings. Helst
vildu sláturleyfishafar vera án
hans. „Þetta snýst bara um þá kvöð
að þurfa að flytja út 21% af öllu
slátruðu dilkakjöti," sagði Sigmund-
ur. Sigmundur bendir á að mikið
hafi verið rætt um Evrópu- og Am-
eríkumarkað en sannleikur málsins
sé sá að í fyrra hafi ekki farið nema
25 tonn til Ameríku og það segi sig
sjálft að ekki séu margir dilkar á
bak við slíka tölu. Heildartekjur
hafi ekki verið nema um 6 milljónir
og kostnaður sé mikill. Því sjái
hann ekki vaxtarsprotana sem
menn séu að ræða um. Nær væri að
peningamir sem færu í markaðs-
starf erlendis færu í að efla söluna á
innanlandsmarkaði. -BÞ
DV4»1YND HIIMAR ÞÖR
Vorlelkur
Geislar vorsólarinnar hafa verið iðnir við að bræða þann litla snjó og ís sem eftir er á höfuðborgarsvæðinu. Þessir
guttar fundu þó klakahröngl í hjólreiðaferð uppi við Kermóafoss í Elliðaánum á dögunum og skemmtu sér við að
kasta brotunum milli sín.
Mistök ráðuneytis sem lögregla og dómstólar vissu ekki um:
••
011 amfetammmal
frá júní í óvissu
Sú fáheyrða staða er upp komin í
réttargæslukerfinu að uppgötvast hef-
ur að frá því i júní á síðasta ári hefur
láðst að sérmerkja amfetamín með
svokallaðri b-merkingu. Hún gefur
amfetamíni sérstöðu meðal annarra
lyfja á þann hátt að refsivert sé að
flytja efnið inn án leyfis og í öðru
skyni en til lækninga.
Þetta þýðir að mikil óvissa ríkir
um hvort það hafi verið löglegt af
hálfu lögreglu, dómstóla og þar með
talið Hæstaréttar að frelsissvipta og
dæma grunað og ákært fólk sem hand-
tekið var fyrir innflutning eða aðOd
að amfetamínmálum frá því í júní.
Sem dæmi má taka 5 kílóa amfetamín-
mál sem upp kom eftir áramót en þá
voru þrír aðilar hnepptir í gæsluvarð-
hald og situr einn þeirra inni enn þá.
.Hæstiréttur hefur staðfest úrskurði
héraðsdóms um að hneppa þá alla í
gæsluvarðhald - teljandi í góðri trú að
heilbrigðisráðuneytið hefði gætt þess
að svokölluð b-merking væri á efninu.
Hér er því um mannleg mistök að
ræða - mistök sem hafa ekki upp-
götvast fyrr en nýlega.
Samkvæmt heimildum DV var það
Ríkissaksóknaraembættið sem upp-
götvaði að b-merkinguna vantaði viö
amfetamín. í apríl á síðasta ári var
gerð breyting á heildarreglugerð um
ýmis lyf (nr. 233-2001), þar á meðal
amfetamín. Hún var gerð þannig að
efhið var b-merkt. Þann 14. júní var
svo gerð smávægileg breyting á þessu
og gekk hún í gildi með reglugerð nr.
490. Þá virðist hins vegar hafa láðst að
b-merkja amfetamín. Þegar Stjómar-
tíðindi birtu hana skömmu síðar
gengu mistökin í gildi. Enginn tók eft-
ir þessu fyrr en nýlega en þá var skað-
inn skeður og það sem nemur tæpu
ári. Á meðan hafa tollgæsla og lög-
regla handtekið tugi einstaklinga fyr-
ir fikniefnamál sem tengist am-
fetamíninnflutningi.
Samkvæmt heimildum DV er gert
ráð fýrir að lögmenn og réttargæslu-
menn þeirra sem hér hafa átt hlut að
máli muni a.m.k. skoða hvort þessi
mannlegu mistök, sem áttu sér stað af
hálfu heilbrigðisráðuneytisins, kunni
að hafa bakað ríkinu skaðabótaábyrgð
gagnvart þeim sem sviptir hafa verið
frelsinu vegna amfetamínmála eftir
að breytingin á reglugerðinni átti sér
stað í júní á síðasta ári. Hins vegar
ríkir óvissa um hvaða áhrif þetta hef-
ur, ekki síst í ljósi þess að með am-
fetamín er eftir sem áður farið sem
ávana- og fikniefhi í samræmi við al-
þjóðasamning frá 1971 sem íslending-
ar eru aðilar að.
-Ótt
Minneapolis:
íslensk kona
sagðist vera
með sprengju
íslensk kona, sem kom með þotu
Flugleiða til Minneapolis á sunnu-
dagskvöldið, brá
fyrir sig gaman-
málum við toll-
verði í flugstöð-
inni þar. Hún
sagði í galsaskap
að sprengja væri
skónum sem hún
var í. Sú yfirlýsing
var tekin trúanleg
og konunni kippt
úr umferð. „Þetta
er enn eitt dæmið um að fólk á að tala
varlega í flugstöðvum og ekki segja
svona ósmekkleg orð,“ sagði Guðjón
Amgrímsson, blaðafulltrúi Flugleiöa,
í samtali við DV. Hann tók þó fram að
atvik þetta tengdist ekki Flugleiðum.
Allar yfirlýsingar um sprengjur eru
teknar alvarlega þótt áður hefði verið
litið á þær sem orðagjálfur. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins mun far-
þega Flugleiða í einu tilviki hafa ver-
ið vísað heim með sömu vél og honum
ekki hleypt inn í landið eftir hafa haft
sprengjutal í flimtingum. -sbs
Guðjón
Arngrímsson.
Erum neyddir
í útflutninginn
Gagnrýnir hægagang í álversmáli
Guðjón Guðmundsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og varaformaður
iðnaðamefndar Alþingis, segir við-
ræður og viðbrögð
við óskum Norður-
áls á Grundar-
tanga hafa tekið
allt of langan tíma
og við hafi legið á
tímabili sam-
kvæmt hans upp-
lýsingum að Norð-
urál hafi ætlað að
hætta viö stækk-
unina vegna
dræmra undirtekta. Hann er ekki til-
búinn að segja að annarleg sjónarmið,
s.s. ofuráhersla á Reyðarálsverkefnið,
hafi ráðið þessu en ef ferlið við að
bregaðst við óskum stórfyrirtækja sé
orðið svona þungt, t.d. varðandi um-
hverfismat og annað, þá sé kominn
tími til að endurskoða það. Þetta sagði
Guðjón í morgun eftir að Davíð Odds-
son hafði lýst því í sjónvarpi í gær að
harm teldi Valgerði Sverrisdóttur
hafa sinnt starfi sínu vel og eftir að
Valgerður sjálf hafði svarað þessari
gagnrýni í löngu máli á heimasíðu
sinni i gær.
Guðjón bendir á að strax 1999 hafi
fyrirtækið byrjað að viðra áhuga
sinn og í september 2000 hafi komið
fram formleg beiðni um raforku-
kaup og ekki hafi verið skipuð við-
ræðunefnd við það fyrr en í apríl
2001 og enn sé ekki komin niður-
staða i málið. „Þetta finnst mér
hægagangur og ákveðið fálæti sem
ég skil ekki því þetta fyrirtæki hef-
ur staðið sig afskaplega vel í því
sem það hefur verið að gera héma,“
segir Guðjón. Aðspurður hvort
hann telji þennan drátt óeðlilegan í
ljósi umhverfismats á raforkukost-
um segir Guöjón: „Ég skil ekki af
hverju þetta þarf að taka 2-3 ár. Ef
það er svo þá er eitthvað mikið að í
þessu ferli okkar og við verðum að
breyta því. Við getum ekki sinnt
mönnum svona.“ Hann tekur fram
að hann telji það gagnrýniverðast
hve langur tími leið frá því að form-
leg beiðni um raforkukaup kom
fram þangað til skipuð var viðræðu-
nefnd.
Sjá einnig bls. 2 -BG
Guöjón
Guömundsson.
Brother PT-2450 merkivélin er komin
Mögnu&véf
sem, með þinnl hjálp,
hefur hlutina í röö
ogreglu.
Snjöll og góð lausn á
óreglunni.
Rafport
Nýbýlavegi 14 • sími 554 4443 • www.raiport.is
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4