Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 22. APRÍL 2002
Fréttir
DV
Skoðanakönnun DV um fylgi framboðslista í Reykjavík:
D-listinn með 44,3%
en R-listinn 51,4%
- staðan 7-8 - D-listinn með meirihluta meðal karlkyns kjósenda
D-listi Sjálfstæðisflokksins hef-
ur saxað mjög á forskot það sem R-
listi Reykjavikurlistans hefur haft
i skoðanakönnunum DV á þessu
ári. Ef kosið yrði nú fengi D-list-
inn 7 borgarfulltrúa en R-listinn 8.
Athygli vekur að D-listinn hefur
nokkurt forskot á R-listann ef ein-
ungis er horft til afstöðu karlkyns
kjósenda. F-listinn nær ekki inn
manni. Þetta eru helstu niðurstöð-
ur skoðanakönnunar DV sem gerð
var í gærkvöld.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns, jafnt skipt á milli kynja.
Spurt var: Hvaða lista mundir þú
kjósa ef borgarstjórnarkosningar
færu fram núna?
Þegar niðurstöður alls úrtaksins
eru skoðaðar er niðurstaðan sú að
36,2 prósent sögðust mundu kjósa
D-lista Sjálfstæðisflokksins, 42 pró-
sent R-lista Reykjavíkurlistans, 3
prósent F-lista Frjálslynda flokks-
ins og 0,5 prósent önnur framboð.
Óákveðnir voru 13,3 prósent en 5
prósent neituðu að svara, þ.e. sam-
tals 18,3 prósent. í könnun DV í
mars voru 12 prósent óákveðin en
5,7 prósent neituðu að svara - sam-
tals 17,7 prósent. Munurinn milli
kannananna er ekki marktækur.
DV-MYND ÍVAR
Beygt af leiö
Rann á sendibílinn án þess aö
skemma hann að ráöi.
Bílvelta við Sæbraut:
Lagði sig utan
í sendibíl
Bill valt si. laúgardagskvöld eftir
að hafa snöggbeygt af Sæbrautinni
inn að Nýju sendibílastöðinni við
Knarrarvog. Hann lenti á flagg-
stöng, braut hana og rann síðan á
hliðinni nokkra metra uns hann
lenti pent á hlið sendibíls án þess að
skemma hann að ráði. Ökumaður-
inn var settur í kraga og fluttur
burt í sjúkrabíl en um meiðsl hans
er ekki vitað. -Gun
Svalbarðsströnd:
Harkaleg bílvelta
Mjög alvarlegt umferðaróhapp varð
á Svalbarðsströnd í Eyjafirði, á móts
við Svalbarðseyri, í gærmorgun.
Karimaður sem þar var á ferð í
jeppabifreið missti stjóm á bifreið-
inni. Sjónarvottur að óhappinu sagð-
ist hafa séð bifeiðina takast á loft, eft-
ir að hafa rekist á barð utan vegar, og
hafi bifreiðin farið marga hringi í loft-
inu áður en hún skall til jarðar um 20
metra frá barðinu. Ökumaðurinn,
sem var einn á ferð, slasaðist talsvert
alvarlega. Hann er grunaður um að
hafa ekið undir áhrifum áfengis. Bif-
reiðin er gjörónýt. -gk
Björn
Bjarnason.
Kjartan
Magnússon.
Þegar einung-
is er horft til
þeirra sem af-
stöðu tóku í
könnuninni
sögðust 44,3 pró-
sent mundu
kjósa D-listann,
51,4 prósent R-
listann, 3,7 pró-
sent F-listann og
0,6 prósent önn-
ur framboð. D-
listinn bætir við
sig 4,8 prósentu-
stigum frá því í
könnun DV í
mars, R-listinn
tapar 5,5 pró-
sentustigum en
F-listinn bætir
við sig 1,1 pró-
sentustigi.
Meirihluti
meðal karla
Þegar niður-
stöðurnar eru
greindar eftir
kynjum kemur i
ljós að 49 pró-
sent karla sögð-
ust mundu kjósa Steinunn Valdís
D-listann, 46,7 Óskarsdóttir.
prósent R-list-
ann og 3,5 prósent F-listann. Þetta
er nokkur breyting frá könnun DV
í mars síðastliðnum þegar D-list-
inn mældist með 44,6 prósenta
fylgi meðal karlkyns kjósenda en
R-listinn 51,6 prósent.
D-listinn bætir við sig 5,1 pró-
sentustigi meðal kvenkyns kjós-
enda en 39 prósent þeirra sögðust
mundu kjósa R-listann. R-listinn
tapar hins vegar 6 prósentustiga
fylgi meða kvenkyns kjósenda en
56,7 prósent þeirra sögðust mundu
kjósa R-listann.
Ekki er marktækur kynjamunur
á stuðningsmönnum F-listans.
Átta - sjö
Þegar fjöldi borgarfulltrúa er
reiknaður út frá fjölda greiddra at-
kvæða í könnun DV fengi R-listinn
8 borgarfulltrúa á móti 7 fulltrúum
D-listans. í könnun DV í mars var
staðan 9-6, R-listanum í hag. Sam-
kvæmt niðurstöðum skoðanakönn-
unar DV í gærkvöld eru borgar-
fulltrúar D-listans eftirtaldir:
Björn Bjamason, Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, Guðrún Ebba Ólafs-
dóttir, Hanna Birna Kristjánsdótt-
ir, Guðlaugur Þór Þórðarson,
Kjartan Magnússon og Gisli Mart-
einn Baldursson. Borgarfulltrúar
R-listans eru: Árni Þór Sigurðs-
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson.
Guðrún Ebba
Ólafsdóttir.
Hanna Birna
Kristjánsdóttir.
Guðlaugur Þór
Þórðarson.
Gísli Marteinn
Baldursson.
Ami Þór
Sigurðsson.
Alfreð
Þorsteinsson.
Stefán Jón
Hafstein.
Anna Björk
Kristlnsdóttir. Vilhelmsdóttir.
Dagur B.
Eggertsson.
Fylgi listanna f Reykjavik 21 apríl 2002
Þeir sem tóku afstööu
3,7% 0,6%
Karlar
3.5% 0,8%
44,3%
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir.
R-listi
■H D-listi
F-listi
■■ Aörir
Konur
3.9% °-4%
51,4%
46.7% ^ 49% 56,7%
39%
Fylgi framboöa í Reykjavík
60
Kosningar '98
Könnun DV jan'02 _
Könnun DV mars '02
Könnun DV apríl '02
D-listi
R-listi
F-listi
Aörir
son, Alfreð Þorsteinsson, Stefán
Jón Hafstein, Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, Anna Kristinsdóttir,
Björk Vflhelmsdóttir,- Dagur B.
Eggertsson og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir. -hlh
Skoðanakönnun DV:
Þetta er áminning
- segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
„í sjálfu sér kemur þetta mér ekk-
ert á óvart. Ég hef alltaf talið að draga
myndi saman með fylkingunum þegar
nær drægi kosningum," sagði Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
um niðurstöður nýrrar skoðanakönn-
unar DV í gærkvöld á fylgi við fram-
boðslista í borgarstjómarkosningun-
um í vor.
„Ég átti því von á því að það kæmi
könnun í þessa veru. Ég tek könnun-
um með fyrirvara en þær sýna alltaf
ákveðna tilhneigingu. Ég lít svo á að
þetta sé áminning til okkar að herða
róðurinn og fara af fullum krafti í
kosningabaráttuna eins og til stendur
eftir sumardaginn fyrsta."
„Þetta sýnir það sem við höfum
fúndið á fúndum okkar í borginni á
undanfómum dögum, að við höfúm
mikinn hljómgrunn fyrir okkar
stefnu," sagði Bjöm Bjamason, borgar-
stjóraeftii D-listans. „Fyrir viku sögð-
um við að við værum búin að snúa
vöm í sókn og það staðfestist í þessari
könnun. Við munum sækja áfram
ótrauð á næstu vikum og stefhum að
því að ná meirihluta í borginni."
Meira fylgi hjá óákveðnum
Ólafur F. Magnússon, efsti maður
á F-lista: „Ég á erfltt með að trúa
því að við höfum ekki aukið fylgið
meira frá því í mars því að viö höf-
um fundið fyrir vaxandi fylgi. Ég
hef sterka trú á því að okkar mál-
staður nái eyrum kjósenda. Hugsan-
lega mælist hlutfailslega meira fylgi
hjá okkur hjá þeim sem ekki tóku
afstöðu en hjá stóru flokkunum þeg-
ar að kjördegi kemur, ekki síst
vegna áherslna okkar á velferðar-
mál. -JSS/GG
Brotist inn í Sögusetrið
Sögusetrið á Hvolsvelli fékk heim-
sókn óprúttinna aðila í fyrrinótt sem
stálu tölvubúnaði og ýmsum fleiri
tækjum. Einnig hurfu munir úr
Kaupfélagssafninu sem er undir sama
þaki.
Bauð Pútín í heimsókn
Forseti íslands,
hr. Ólafur Ragnar
Grímsson, hefur
boðið Vladimir
Pútín, forseta Rúss-
lands, að koma í op-
inbera heimsókn til
íslands. Þessu kom
hann á ffamfæri í
ræðu sem hann hélt við hátíðarkvöld-
verð hjá Pútín í Kreml. Ólafur Ragn-
ar sagði það þjóð sinni mikinn heiður
að fá með slíkri heimsókn tækifæri
til að styrkja samvinnu Rússlands og
íslands enn frekar.
Skuldugir skólar
Raflðnaðarmenn skulda tæpan
milljarð vegna skóla síns sem þó mun
verða rekinn tU vors svo ástandið
mun ekki hafa áhrif á frama þeirra
nemenda sem þar eru nú. Endurskoð-
endur vinna að lausn mála. Fyrrver-
andi skólastjóri er grunaður um að
hafa dregið sér fé og er það mál tU
rannsóknar hjá lögreglu.
Krían komin
Fyrsta krian sást á landinu í gær
austur í Homaflrði. Brynjúifur Brynj-
ólfsson, sérlegur áhugamaður um
fugla, sá þennan vorboða fyrstur þeg-
ar hann var að mynda dvergmáf í Ós-
landinu, sem er friðlýst svæði innan
bæjarmarkanna. í Óslandinu er urm-
uU af kríu á sumrin.
í stjórn Þjóðhátíðarsjóðs
Ríkisstjómin hefur, að tUlögu for-
sætisráðherra, tilnefnt Sigríði Rögnu
Sigurðardóttur kennara í stjóm Þjóð-
hátíðarsjóðs og er hún jafnframt for-
maður sjóðstjómar. Ásamt henni
sitja í stjóminni þau Birgir ísleifur
Gunnarsson bankastjóri, Jónina
Michaelsdóttir rithöfundur, Rannveig
Edda Hálfdánardóttir ritari og Björn
Teitsson, fv. skólameistari. Sjóðurinn
hlúir að varðveislu og vemd verð-
mæta lands og menningar.
Sameiginleg fortíð og framtíð
Forseti íslands,
Ólafur Ragnar
Grimsson, vUl efna
tU sýninga og ráð-
stefna í Rússlandi
sem helgaðar yrðu
túlkun á þeim foma
tíma þegar heims-
mynd norðurslóða
var samfeUd heUd. Hann telur löndin
í norðrinu eiga sameiginleg verkefni
að leysa á nýrri öld.
Vilja rússneskan prest
Ólafúr Ragnar, forseti vor, hitti Al-
exei fl, patríarka rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar, og kom því á fram-
færi við hann að sööiuður þeirrar
kirkju á íslandi óskaði eftir prests-
þjónustu.
Fjallvegir opnast
Samkvæmt upplýsingum á heima-
síðu Vegagerðarinnar er orðið fært
um HeUisheiði eystri og Öxi. Einnig
er orðið fært fjórhjóladrifnum jepp-
um í Mjóafjörð. -Gun
Haldið til haga
Við birtingu
myndar af hjónunum
Auði og HaUdóri KUj-
an Laxness fyrir utan
Gljúfrastein i blaðinu
á laugardagnm láðist
að geta ljósmyndar-
ans sem var Unnur
Guðjónsdóttir. Beðist
er veivirðingar á þeim mistökum.