Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Blaðsíða 24
36
MÁNUDAGUR 22. APRÍL 2002
Tilvera I>V
Flæði
Kristín Þorkelsdóttir hefur
opnað sýningu á nýjum
vatnslitaverkum í Hafnarborg,
menningar-og listamiðstöð
Hafnarfjarðar. Sýningin nefnist
Flæði og er ellefta einkasýning
Kristínar. Náttúran er
höfuðviðfangsefni hennar eða að
minnsta kosti kveikjan að
flestum verkanna.
Leiklist
■ LYKILL UM HÁLSINN Leíkritið
Lykill um hálsinn eftir Agnar Jón
verður í Vesturporti í kvöld kl, 19.
■ LAXNESS í LISTAKLÚBBNtlM
í kvöld verður stefnumót við
aðstandendur Strompleiksins í
Listaklúbbi Leikhússkjallarans.
Leikin verða brot úr verkinu og
umræður verða í umsjá Melkorku
Teklu Ólafsdóttur.
Fundir og fyrirlestrar
■ LESANDINN í ÖNPVEGI Lesandinn
í öndvegi er heiti námskeiðs sem
hefst í dag á vegum Háskóla íslands
og stendur frá 13-17. Kennari er
Rachel Van Riel, stjórnandi
fyrirtækisins Opening the Book ltd.
Fyrirtækið aflar fjármagns og
annarra miðla fyrir lestrarhesta og
þjálfun og ráðgjöf til allra sem
vinna með bækur og lestrarhæfni
svo sem bókasafns-fræðinga,
bóksala, útgefendur, listastofnanir
og ráðuneyti.
■ MÁLSTOFA í FÉLAGSRÁÐGJÖF í dag
kl. 12.05-13.00 heldur Soffía
Egilsdóttir félagsráðgjafi erindi í
fundarherbergi félagsvísindadeild-
ar í Odda. Það nefnist Aðlögun
nýrra heimilismanna: Þróun og
samanburður á störfum samskipta-
fulltrúa á Hrafnistu í Reykjavík og
Hafnarfirði.
■ POKTORSVÖRN í LÆKNISFRÆÐI í
dag ver Hákon Hákonarson,
læknir doktorsritgerð sína við
læknadeild Háskóla Islands. Hún
nefnist „Altered transmembrane
signalling and responsiveness of
asthmatic sensitized airway smooth
muscle” og fjallar um grunn-
rannsóknir á astma. Vörnin fer
fram í Hátíðarsal Háskóla íslands
og hefst kl. 14.00.
Sýningar
■ UÓSMYNPIR OO SKÚLPTÚRAR
Ólöf Nordal hefur sett upp sýningu
á ljósmyndum og skúlptúrum í
gallerí hlemmur.is
■ HRINQPRQT í HAFNARBORO
Leirlistamaðurinn Bjarni Sigurðs-
son er með sýninguna Hringbrot í
Hafnarborg í Hafnarfirði um þessar
mundir. Þar eru vasar og alls kyns
listaverk sem öll eiga það
sameiginlegt að vera byggð á
hringforminu.
■ UNDIR STIGANUM Sara María
Skúladóttir er með sýningu undir
stiganum í i8, Klapparstíg 33.
■ UÓSVÖRP í GALLERÍ FOLP
Þorsteinn Helgason myndlistar-
maður er með sýningu í baksal
GaUerí Foldar, Rauðarárstíg
14-16. Hún nefnist Ljósvörp.
Galleríið er opið daglega frá kl.
10-18.
■ HÓNNUN OG MÁLVERK
Tvær sýningar hafa verið opnað-
ar í Gallerí Skugga, Hverfisgötu
39. Á efri hæð sýnir Kristinn
Páhnason og veltir fyrir sér hinu
„einstaka" í listinni. Gulleik
Lövskar er norskur húsgagnasmið-
ur, hönnuður og innanhússarkitekt
að mennt og á þessari fyrstu einka-
sýningu sinni tekst hann á við að
sameina nýjar tilraunir við gamla
hefð í húsgagnasmíði.
Djammað
með Jarvis
Dansflklar og djammboltar borg-
arinnar fjölmenntu á Gaukinn um
helgina þar sem tvíeykið Jarvis
Cocker og Steve McKay úr popp-
hljómsveitinni Pulp þeyttu skífur af
alkunnri list. Með þeim í för voru
tveir tónlistarhópar, All Seeing I og
White Trash, sem heilluðu gesti
með kraftmikiili og ögrandi rapp- og
pönkblöndu með elektrónískum
undirtóni. Ljósmyndari DV brá sér
inn á Gaukinn þegar leikar stóðu
sem hæst á laugardaginn og festi
stemninguna á fllmu.
Fjör á dansgólfinu
Birgitta Haukdai, söngkona írafárs, geislaöi af gleöi á dansgöifinu eins
og fleiri gestir í tónlistarveislu Jarvis Cockers og fétaga.
DV-MYNDIR EINAR J.
The Desperate Sound System
Steve McKay og Jarvis Cocker stóöu vaktina á Gauki á Stöng um helgina
og léku taktfasta danstónlist fyrir Reykvíkinga og nágranna.
Reiöir ungir menn
Allt ætlaöi aö veröa vitlaust á Gauknum þegar White Trash-flokkurinn frá
Lundúnum steig á sviö, enda er sviösframkoma og tónlist sveitarinnar í
senn kraftmikil og ögrandi.
Vortískan
í Kringl-
unni
Áhugafólk um tísku, hönnun og hollan
lífsstíl lagði leið sína í Kringluna í síðustu
viku en þar fór fram fjölbreytt dagskrá
undir yfirskriftinni Upplifún í Kringlunni.
Meðal annars var boðið upp á snyrtivöru-
kynningar, listsýningar, dans og tónlist. Á
laugardaginn efiidu síðan nokkrar versl-
anir í Kringlunni til glæsilegrar tískusýn-
ingar þar sem glæsilegar fyrirsætur sýndu
það sem þykir finast og flottast í klæðnaði
um þessar mundir. Sérstakur heiðursgest-
ur tískusýningarinnar var spænski há-
tískuhönnuðurinn Estrelia G. en hún
hyggst halda frumsýningu á nýjustu fata-
línu sinni á íslandi og var stödd hér á
landi til að kynna sér aðstæður.
Það nýjasta í herratískunni
Ungir og glæsilegir herramenn í
flottum fötum.
Showtime; ★ ★
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
í lögguleik
DVA1YNDIR EINAR J.
Ásta og Estrella
Ásta Kristjánsdóttir frá Eskimo models ásamt
spænska hátískuhönnuöinum Estrellu G. sem var sér-
stakur heiöursgestur sýningarinnar.
Spáð í tískuna
Fjöimargir áhorfendur voru á sýningunni og létu þeir
sumir álit sitt á flíkunum í Ijós meö svipbrigöunum
einum saman.
Eftirminnilegasta setningin í
Showtime er tvímælalaust sú þegar
William Shatner, í hlutverki leikstjóra
sem má muna sinn fífil fegri, segir um
leik Roberts DeNiros: „Þetta er sá al-
versti leikari sem ég hef nokkum tím-
ann séð.“ Að vfsu segir hann þetta ekki
um DeNiro sjálfan heldur persónuna
sem hann leikur. Það er samt skemmti-
leg kaldhæðni í þessari setningu sem
beint er til eins besta kvikmyndaleik-
ara sem uppi hefúr verið. Það er fleira
sem kemur á óvart í þessari á stundum
bráöskemmtilegu gamanmynd, meðal
annars góður samleikur Eddies
Murphys og Roberts DeNiros sem fyrir
fram hefði mátt ætla að ættu fátt sam-
eiginlegt. Þeir halda myndinni uppi
sem á heildina litið er brokkgeng, með
frekar slökum söguþræði sem þolir
ekki margar dýfúr.
Showtime er ein þeirra kvikmynda
sem hafa góða byrjun, miðlungs
miðkafla og slakan endi. I upphafi er
virkilega skemmtOegt að fylgjast með
því þegar súperlöggan Mitch Preston
(Robert DeNiro) og viðvaningslöggan
Trey Seliars (Eddie Murphy) eru
kynntar til leiks og hvemig leiðir
Olíkar löggur
Haröjaxlinn Mitch Preston (Robert DeNiro) og félagi hans, Trey Sellers (Eddie
vill frekar vera sjónvarpslögga en alvörulögga.
þeirra liggja saman. Murphy, sem hef-
ur kjaftinn á réttum stað, er ekki lengi
að sjá út möguleika þeirra á frægð og
frama sem hann þráir þegar þeir eru
valdir til að vera lögreglur f „raunveru-
leikasjónvarpi". Hann tekur málið í
sínar hendur og leikur löggu frekar en
vera lögga og er strax kominn í mikið
uppáhald hjá framleiðanda þáttarins á
meðan hinn stirðbusalegi DeNiro gerir
allt sem hann á ekki að gera, enda
neyddur til að taka þátt í þessu af yfir-
manni sínum og er sífellt áhyggjuefni
hjá sjónvarpsliðinu. Samstarfið slípast
þó eftir því sem líður á myndina um
leið og húmorinn verður slappari. Þá
er einnig farið að gera meira úr
spennuþættinum sem sögulega séð er
ekki mikils virði. I lokin
er svo allur kraftur horf-
inn úr samleik þeirra
Murphys og DeNiros og
þeir orðnir perluvinir.
Það er greinilegt að
Eddie Murphy og Robert
DeNiro hafa gaman af því
sem þeir eru að gera.
Murphy hefur vinning-
inn hvað varðar skemmt-
anagildi myndarinnar og
DeNiro þarf ekki að hafa
mikið fyrir því að gera
Preston að sannfærandi
ofúrlöggu sem er meira
., . , fyrir að láta athafhir tala
urp y), sem sínu májj en að fara eftir
reglum sjónvarpsins. Þeir
eru stjömumar og það
lendir á öðrum leikurum aö vera að-
eins til uppfyllingar.
Lelkstjórl: Tom Dey. Handrit: Keith Shar-
on, Alfred Gough og Miles Millar. Kvlk-
myndataka: Thomas Kloss. Tónlist: Alan
Silvestri. Aöalhlutverk: Robert DeNiro,
Eddie Murphy, Rene Russo og William
Shatner.