Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2002, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2002, Blaðsíða 10
10 Fréttir MIDVTKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 DV Nú eða aldrei!!!!!! uuiiuui uiaðid Við bjóðum ótrúlegan afslátt 40 - 45% af 4,0 - 6,0 hö B&S sláttuvélum með drifi og án drifs sem og hinum ómissandi bensínhekk-klippum, keðjusögum og orfum. 40% af Flymo rafmagnssláttuvélum, hekkklippum og orfum ____________Aðeins þekkt vörumerki sem tryggja enJingul!!!! iöJHusqvarna Dalvegur16a 201 Kópavogur Sími 544 4656 Fax 544 4657 mhg@mhg.is Leigan i þínu hverfi FRABÆR MYND FRA LEIKSTJORA TRAFFIC! f Mix Exotic \ FYLGIR MEÐ V Occan's Eleven GEORGE CLOONEY IVIATT ANDY BRAD JUUA DAMON GARCIA PITT ROBERTS FRÁ STEVEN SODEP.BERGH OCEANS 'i 1 & jjm ELEVEIM | 11 UÁUNGAR. liUMILUÓN DOILA- AF ^ FRTU TIL&UII !N flp FYRIR GUÍttOIiriNN? iii / TILKYNNING Hér meö tilkynnist að frá og meö fimmtudeginum 1. ágúst 2002 veröa umboðin í Hafnarfiröi, á Álftanesi og í Mosfellsbæ sameinuö afgreiðslu DV, Skaftahlíö 24 Reykjavík. Umboðsmenn í Hafnarfiröi, Álftanesi og Mosfellsbæ vilja þakka blaöberum og áskrifendum gott samstarf. Vertu í beinu sambandi við þjónustudeildir DV sso sooo ER AÐALNUMERIÐ Smáauglýsingar Auglýsingadeild Drei/ing Pjónustudeild Ljósmyndadeild íþróttadeild 5505700 550 5720 550 5740 550 5780 550 5840 5505880 Allt stefnir í mjög gott berjaár á Suður- og Vesturlandi: Berin eru langt á undan áætlun - segir prófessor. Hægt er að fara í berjamó í Breiðholtinu Snemma á ferð Sveinn Rúnar Hauksson meö fullt afbláberjum. Hann segir aö ekki þurfi aö fara lengra en í Elliöaárdal til aö fara í berjamó. „Það hefur áður verið hægt að tina í byrjun ágúst og þá helst fyrir norðan en þetta er óvenjusnemmt í ár,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og mikill áhugamaður um berjatínslu, um berjavöxt á landinu sem virðist vera óvenjugóður i ár og fyrr á ferðinni en venja er. „Ég var nú bara á gangi í Elliða- árdalnum í vikunni og sá hversu vænleg sprettan var orðin þar. Þar er mikið um bláberjagrænjaxla og sumir þeirra eru þegar orðnir bláir. Það þarf sem sagt ekki að fara lengra en í Breiðholtið til að fara í berjamó," segir Sveinn Rúnar. Bjarni Guðmundsson prófessor hefur stundað rannsóknir á aðalblá- berjum í gegnum árin og lagt fram kenningar um berjasprettu sem byggðar voru á þeim. Hann segir það vegna vorgæskunnar og mjög góðrar sprettutíðar það sem af er sumri að allur gróður sé snemma á ferðinni og þar séu berin engin und- antekning. Ástandið kemur honum því ekki á óvart. „Rannsóknimar sýna að það er veðurfarið í kringum blómgun, þ.e. þegar plantan leggur grunn að berjum, vanalega um mán- aðamótin maí/júní, sem skiptir langmestu máli og ef hún sleppur við frost þá boðar það berjaár," seg- ir Bjami en ítrekar að þetta eigi að- eins við í nágrenni hans við Borgar- fjörðinn. Bjarni segir erfitt að tala um með- altíma í þessum efnum en telur að berin séu a.m.k. hálfum mánuði á undan áætlun. „Að vísu hefur maðkur valdið miklum spjöllum í berjalöndum og hefur m.a. raskað mínum rannsóknum töluvert. Hann getur gert góðar horfur að engu,“ segir Bjami. Eitthvað minna er um rannsókn- ir af þessu tagi fyrir norðan en ljóst er að þar er annað uppi á teningn- um þar sem blíðan hefur ekki verið sú sama og á Suðvesturlandi. Einn viðmælenda DV á Akureyri sagði krækiberin komin en ekki eins þroskuð og fólk vill hafa. Aðalblá- berin þar hafa ekki náð jafnmiklum þroska og fyrir sunnan. Berjavöxtur þar er þannig á hefðbundnum tíma en engu að siður litur út fyrir að ef veðurtíðin helst eins og hún hefur verið undanfarið gæti berjasprettan orðið örlítið fyrr á ferðinni en venjulega. -vig Hálendisframkvæmdir Landsvirkjunar: Breytingar á svæðisskipu- lagi hálendis samþykktar Við Kárahnjúka. Skipulagsstofnun krafðist þess að svæðisskipulag miðhálendisins yrði afgreitt af umhverflsráðherra áður en sveitarfélögin Norður-Hérað og Fljótsdalshreppur gæfu út fram- kvæmdcdeyfi til Landsvirkjunar fyr- ir vegagerð milli Laugavalla og Kárahnjúka auk annarra fram- kvæmda á svæðinu. Þessar fram- kvæmdir eru hluti af undirbúningi Landsvirkjunar vegna Kárahnjúka- virkjunar og eiga þær að hefjast í sumar. Svæðisskipulagið er unnið af 18 manna nefnd, skipuð fulltrúum hlutaðeigandi sveitarfélaga, og búist er við að hún ljúki verki sinu á næstunni. Skipulagsstofnun hefur fyrir sitt leyti gefið leyfi fyrir lagn- ingu Ijósleiðara og rafstrengs milli Laugavalla og Kárahnjúka en vildi fá svæðisskipulagið afgreitt áður en lagning vegar hæfist. Nefndin afgreiddi málið frá sinni hálfu í gær og því er ekkert þvi til fyrirstöðu að viðkomandi sveitarfé- lög gefi út framkvæmdaleyfi. Arnór Benediktsson á Hvanná situr í nefndinni fyrir Austfirðingatjórð- ung. Hann segir að breytingar hafi verið samþykktar á vegtengingum inn á Vatnajökul en Kárahnjúka- vegur hafl verið samþykktur óbreyttur. Óskar Bergsson í Reykja- vík, formaður nefndarinnar, segir að svæðisskipulagið hafi gert ráð fyrir orkuvinnslusvæði bæði við Kárahnjúka og á Eyjabökkum en nýja skipulagið geri ráð fyrir nátt- úruverndarsvæöi á Eyjabökkum en stærra orkuvinnslusvæði við Eyja- bakka. Allnokkrar breytingar voru einnig samþykktar varðandi vega- lagningar og aðstöðu fyrir ferða- menn á svæðinu sem ekki var gert ráð fyrir í fyrra skipulagi. „Skipulagsnefnd krafðist þess að nefndin afgreiddi málið og nú liggur sú ákvörðun fyrir. Við auglýstum eftir at- hugasemdum fyrr í sumar og fengum þær frá Náttúruvernd rík- isins og heimamönn- um i Fljótsdalshreppi og aðilum í feröaþjón- ustu. Þær breytingar sem gerðar voru snúa fyrst og fremst að sam- göngumálum. Legan á Vatnajökulsvegi færist til og eilítið á Kára- hnjúkavegi sam- kvæmt afgreiðslu nefndarinnar. Náttúruvemd ríkis- ins gerði athugasemdir um að Háls- lón gengi inn í friðland hreindýra, en það er mál sem kemur til kasta annarra en nefndar um svæðis- skipulag hálendisins. En við gerum okkur grein fyrir því að þetta er mál sem þarf að ganga frá. Lands- virkjun þarf að sækja um breyting- ar á friðlandinu ef þessi athuga- semd verður tekin til greina. Nátt- úruvernd ríkisins og umhverfis- ráðuneyti munu þá leggja fram breytingatillögur að þessu griðar- svæði hreindýranna," segir Óskar Bergsson. -GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.