Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Side 2
2
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002
Fréttir
DV
Björn Kristmann
Leifsson.
Ríkissaksóknari áfrýjar:
Saklausir menn
verði sýknaðir
- segir Björn Leifsson
Eins og fram hefur komið var Björn
Kristmann Leifsson, sem kenndur er
við líkamsræktarstöðina World Class,
sýknaður af þeirri
ákæru að hafa
greitt Áma John-
sen, fyrrum alþing-
ismanni, mútur að
upphæð 600 þús-
und krónur, en
ásamt World Class
rekur Bjöm einnig
Þjóðleikhúskjallar-
ann. Ríkissaksókn-
ari hefur þó áfrýj-
að dómnum til Hæstaréttar og mun þvi
málið verða tekið fyrir að nýju. Bjöm
segir í samtali við DV að hann efaðist
ekki um að verða sýknaður í Hæsta-
rétti. „Ég var sýknaður í héraðsdómi
og ef íslenskt dómskerfi virkar eins og
það á að virka verð ég einnig sýknaður
í Hæstarétti. Ég trúi því að saklausir
menn séu sýknaðir," segir hann.
Bjöm segir óþægilegt að lenda í
stöðu sem þessari og óski það ekki
nokkrum manni. „Ég var hissa á
ákærðunni. Þótt ég reki Þjóðleikhús-
kjallarann kom ég ekki nálægt mál-
inu,“ segir Bjöm. -ss
Brotist inn í bíl-
skúr og smúlað
Sérkennilegt atvik átti sér stað í Bol-
ungarvík í fyrrinótt þar sem brotist var
inn í bílskúr og hann smúlaður að inn-
an með garðslöngu. Eigandi hússins
var á ferðalagi en þegar tengdamóðir
hans kom að í gærmorgun var allt á
floti í bílskúmum. Einhverjar skemmd-
ir urðu á pappakössum og geymsludóti
en engu var stolið. -jtr
Fimmmenningarnir og Búnaðarbankinn draga tilboð sitt í SPRON til baka:
Sneypuför sem olli
báðum miklum skaða
- segir sparisjóðsstjórinn
„Það sem ég velti fyrir mér núna er
hver staða Búnaðarbankans sé eftir
þessa fjandsamlegu yfirtökutilraun. En
auðvitað er þetta tap fyrir báðar banka-
stofnanimar, þvi átök af þessum toga
geta aldrei unnið annað en skaða,“
sagði Guðmundur Hauksson, spari-
sjóðsstjóri SPRON, í samtali við DV i
gærkvöld. Stofnfjáreigendumir flmm,
sem gerðu tilboð í kaup á öllu stofnfé
SPRON með fulltingi Búnaðarbankans,
hafa dregið sig í hlé. Þeir segja að gangi
það eftir að Starfsmannasjóður SPRON
bjóði öllum eigendum stofnfjár að
kaupa það á genginu 5,5 þá sé því náð
sem þeir stefndu að. Fyrir þeim hafi
ekki vakað annað en að tryggja stofn-
fjáreigendum sanngjamt endurgjald
fyrir stofnfé sitt.
Fimmmenningamir segja að við nú-
verandi kringumstæður sé sjáifgeflð að
falla frá tillögu um vantraust á stjóm
SPRON á fundi stofhfjáreigenda sem
haldinn verður nk. mánudag. Þeir
mæla með því að stofhfjáreigendur
samþykki á fundinum tillögu, sem ligg-
ur fýrir, um breytingu á samþykktum í
því skyni að afnema ákvæðið um há-
markseign eins aðila á stofnfé.
Enn fremur segja flmmmenningam-
ir að þeir leggi til grundvallar að
Starfsmannasjóðnum sé full alvara í að
vilja uppfýlla skilyrði Fjármálaeftirlits-
ins til að samningar félagsins við stofn-
fjáreigendur verði virkir. „Komi hins
vegar til þess siðar, aö samningar
Starfsmannasjóðsins verði ekki skuld-
bindandi, vegna afstöðu Fjármálaeftir-
Metsölubók um
merkileat efni
Bókin fjallar um fjölgreinda-
kenninguna sem valdið
hefur byltingu í allri um-
ræðu og viðhorfi til kennslu
og uppeldis. Hún byggír á
að maðurinn búi yfir að
minnsta kosti sjö grunn-
greindum:
• Málgreind
• Rök- og stærðfræðigreind
• Líkams- og hreyfigreind
• Tónlistargreind
• Samskiptagreind
• Sjálfsþekkingargreind
• Umhverfisgreind
TRöKÁS k?.MST80SC
Erla Kristjánsdóttir, lektor vid Kennaraháskóla
Islands, þýddi oq staðfærði.
Thomas Armsirong, útskýrir hér kenningar bandaríska prófessorslns Howard
Gardners og bendir á hvernig uppaiendur og kennarar á öllum skólastigum
geta nýtt sér fjölgreindakenninguna.Thomas Armstrong kom til íslands
árið 1999 og hélt eftírminnilegt erindi á þingi kennara í Reykjavík.
„Gömlu greindarprófin tröllum gefin i
byltíngarkenndu riti þar sem greindarhug-
takið er brotið upp í margar greindir og
hinír siöustu verða fyrstir en þeir fyrstu
síðastlr." man.n
tf
JPV ÚTGÁPA
8r*dfabofqafst{gur 7 • Símí S75 5600
OMISSANDI OLLUM UPPALENDUM
Blaðið í dag
Suður-Ameríka
á barmi
hengiflugsms
Erlent fréttaljós
Það llggur í
loftinu
Dagbjartur
Einarsson
Flökkusnigill
Bjarni Bjarnason
Stelpur í
strákaleik
Rokkslæðan á Gay
Prlde 2002
SPRON við Skólavörðustíg.
litsins eða stjórnar SPRON, munum
við freista þess að taka á ný upp fram-
kvæmd á samningi okkar við Búnaðar-
bankann," segir í yfirlýsingu fimm-
menninganna.
Guðmundur Hauksson minnir á
að upphaflega hafl fimmmenningam-
ir og Búnaðarbankinn lagt upp með
að ná sparisjóðnum undir sig, því
næst hafi stefnan verið sú að ná til
sín meirihluta stofnfjáreigenda, þá
hafi menn ætlað sér að fella stjóm
sparisjóðsins. Hið eina sem eftir
standi sé að Fjármálaeftirlitið hafl
ekki útilokað að selja mætti stofnfé á
yfirverði - en ákvæði þar um væri í
samningi fimmmenninganna og
bankans. „Þetta hefur verið sneypu-
for fyrir Búnaðarbankann sem hefur
lagt mikla fiármuni í þessa baráttu
sem hefur ekki skilað öðru en tjóni,“
sagði sparisjóðsstjórinn. -sbs
Meistarinn mættur
Borís Spasskíj, fyrrum heimsmeistari, við komuna til landsins í gær.
Málþing um Einvígi aldarinnar í dag:
Ánægður með að
vera kominn aftur
- segir Borís Spasskíj
Rússinn Borís Spasskíj, fyrrum
heimsmeistari i skák, lenti á Kefla-
víkurflugvelli í gær og kom hann
frá París. Spasskíj er hér á landi í
tilefni af því að þrjátíu ár eru liðin
frá því að einvígi hans og Banda-
ríkjamannsins Bobbys Fischers í
skák fór fram hér á landi. Spasskíj
er hér, ásamt Lothar Schmid, fyrr-
um yfirdómara í einvíginu, til að
taka þátt í opnu, alþjóðlegu mál-
þingi sem Skáksamband íslands
heldur.
Málþingið verður haldið í dag,
laugardag, í Þjóðmenningarhúsinu
við Hverfisgötu en á sama stað
stendur nú yfir sýningin „Skákarf-
ur íslendinga og Einvígi aldarinn-
ar“.
„Þó svo að ýmislegt hafi verið
rætt og ritað um þetta merka ein-
vígi þeirra Spasskíj og Fischers má
fullyrða að aldrei fyrr hafi komið
saman til umræðna um atburðinn
svona margir þeirra sem voru í að-
alhlutverkum þessa örlagariku daga
árið 1972. Það má því búast við fróð-
legum og skemmtilegum skoðana-
skiptum og e.t.v. verður hulunni
svipt af einhverjum hinna fiöl-
mörgu leyndardómsfullu atburða
sem þá áttu sér stað,“ segir Hrann-
ar Björn Arnarsson hjá Skáksam-
bandi íslands.
Borís Spasskíj sagði í viðtali við
DV að hann væri ánægður með að
vera kominn aftur til íslands en þar
sem dvölin stendur aðeins tvo daga
getur hann ekki gefið sér tíma til að
fara um landið, þó svo að hann vildi
það. Spasskíj kom fyrst hingað til
lands árið 1957 þegar hann keppti i
heimsmeistarakeppni stúdenta. Þá
kom hann aftur árið 1972 þegar
hann keppti við Fischer. 1977 keppti
hann hér á gegn Hort og vann
naumlega. Síðast var hann hér fyrir
tiu árum þegar Heimsmeistaramót
Stöðvar tvö var haldið. Nú er
Spasskíj hingað kominn með konu
sinni en hún heitir Mariana
Spasskíj. Þau hjðn hafa verið búsett
í París undanfarin 25 ár og eiga þau
soninn Borís.
Málþingið byrjar klukkan 13.30
og stendur til 17.30 og er opið öllum
þeim sem áhuga hafa og fer þingið
fram á ensku. -ss
I---------------i------------------------
20 í fótspor föður
dLf sínsí
Jt Ölpunum
f|b Ari Trausti
Guömundsson
»08 Rithöndin er sálarspegill Anna V. Sigurjónsdóttir
45 Síldin í rafmagns- töflunni íslensk sakamál
Búnaðarbankinn í góðum málum
Hagnaður Búnað-
arbanka íslands hf. á
fyrsta ársfiórðungi
var 1.529 m.kr. fyrir
skatta en 1.261 m.kr.,
að teknu tiiliti til
reiknaðra skatta.
Þetta er mun meiri
hagnaður en eftir
sama tímabil í fyrra. í frétt frá bankan-
um segir að hins vegar hafi vanskil
aukist og við því hafi verið brugðist.
Mikil veltuaukning
Gífurleg veltuaukning hefur undan-
farið orðið hjá Sæplasti á Indlandi þar
sem fýrirtækið starfrækir verksmiðju.
Markvisst þróunarstarf í verksmiðj-
unni á Indlandi hefur verið að skfia
henni verulegri aukningu í sölu, meðal
annars á 70 og 150 lítra fiskikerum,
Net á Hornströndum
ísafiarðarlögreglan lagði hald á ólög-
legt net í friðlandinu á Homströndum í
eftirlitsflugi sem farið var með þyrlu
LHG. Þá var fastur fúgl í netinu losað-
ur. Tilgangur ferðarinnar var að at-
huga netalagnir, hvort akstur vélknú-
inna ökutækja ætti sér stað og eins var
umgengni könnuð.
Selur Akureyrina
Samherji hefur
ákveðið að selja Akur-
eyrina EA-110 til dótt-
urfélags síns í Bret-
landi. Akureyrin var
fýrsta skip í eigu Sam-
herjafrændanna og
hefur verið gert út sem
frystitogari frá 1983.
Ekki er búist viö að fólki verði sagt upp
vegna sölunnar og verður sjómönnum
boðið starf á öðrum skipum felagsins.
Keppst við að mála
Norðurlandakeppni í húsamálun
hefst á mánudagsmorgun í Smáralind-
inni og stendur alla vikuna. Fimm bás-
ar verða settir upp í verslunarmiðstöð-
inni, einn frá hverju landi, þar sem
sveinar í málaraiðninni munu standa
átta tíma á dag og mála. Sigurður Geir-
dal, bæjarstjóri Kópavogs, setur keppn-
ina kl. 10 á mánudag og svo fer allt í
gang. Á fóstudag hefst svo þing nor-
rænna málarameistara. Slíkt er haldið
hér á tíu ára fresti. Formaður íslenska
málarameistarafélagsins er Hermann
Finnsson.
Sumarslátrun hafin
Sumarslátrun sauðfiár er hafin hjá
Sláturfélagi Suðurlands og er slátrað
700 til 800 lömbum í næstu viku. Megn-
ið afkjötinu hefur verið flutt út til Dan-
merkur en í næstu viku hefst útflutn-
ingur til Bandaríkjanna, að því er fram
kemur á sudurland.net
Bréf opinberuð
Mikilvægt var að hindra komu
mótmælenda úr Falun Gong-hreyf-
ingunni vegna heimsóknar Kínafor-
seta. Þetta sagði í bréfum dóms-
málaráðuneytis til Flugleiða. I frétt-
um útvarps í gærkvöld voru bréf
þessi birt. -Gun/sbs
í grein um námskeið fyrir efna-
litla einstaklinga á síðu 21 1 fostu-
dagsblaðinu 9. ágúst stendur að
Miðstöðin sé til húsa að Laugavegi
103 en það er ekki rétt. Miðstöðin er
í heimahúsi en námskeiðin verða
haldin á Laugavegi 103, í húsnæði
K-landsins, leikja- og netkaffis. Hlut-
aðeigandi eru beðnir velvirðingar á
þessari rangfærslu.