Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Síða 8
8 Útlönd LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 Allt á flotl í Suöur-Tékklandi. Mannskæð flóð víða í Evrópu Óttast er að allt að þrjátíu manns hafi látið lífið í miklum flóðum sem fylgt hafa geysilegri úrkomu víða um Evrópu á síðustu dögum. Verst mun ástandið á Svartahafsströnd Rúss- lands en þar var tala látinna komin í tuttugu þegar síðast fréttist. Þar gekk öflugur hvirfilbylur yfir fjölmennt svæði ferðamanna í gær og reif hann upp heilu trén með rótum auk þess sem hann feykti bilum og hjólhýsum og öðru lauslegu á haf út. Mikil flóð og skriðufóll fylgdu í kjölfarið og var óttast að tala látinna ætti eftir að hækka verulega, þar sem margra er saknað. í Tékklandi urðu einnig mannskæð flóð og þurftu um 2000 manns að yfir- gefa heimili sín í suðurhluta landsins þegar ár flutu yfir bakka sína. Þá hefur fólk í Króatíu, Búlgaríu, Rúmeníu, Austurríki, Krímskaga, It- alíu og Spáni einnig mátt þola mikil rigningarveður og flóð. Gaf móðir unga- barni eiturlyf? Lögreglan í Buskerud-fyiki í Noregi rannsakar nú hvemig átta mánaða gamalt bam gat orðið meðvitundar- laust eftir eiturlyfjaneyslu. Málsatvik eru þau að í síðasta mánuði kom móð- ir með meðvitundarlaust ungabam á fylkissjúkrahúsið í Buskerud eftir að hafa sótt það úr pössun, en við rann- sókn kom í ljós að barnið hafði neytt eiturlyfs. Lögreglan bíður nú niðurstöðu frekari rannsókna, en vitað er að bæði móðirin og hamapían neyta eit- urlyfja, en ekki vitað hvor þeirra hef- ur gefið baminu lyfið þar sem báðar neita. Lögreglan útilokar þó ekki að barnið, sem nú braggast með hverjum deginum, hafi getað komist í efnið sjálft og sett það upp í sig. Talsmaður bamavemdaryfirvalda í Buskerud segir að í Buskerudfylki einu séu yfir 20 börn sem fæðst hafi síðustu 18 mánuðina sem ekki fái nægilega umönnun vegna eiturlyfja- neyslu foreldranna. Tveir menn myrt- ir í Stavanger Tvö morð voru framin í norska bænum Stavanger í vikunni. í fyrra tilvikinu, í byrjun vikunnar, var um að ræða leigubílstjóra af írönskum uppmna sem hafði verið stunginn banastungu aftan í hálsinn, en ráðist hafði verið á hann þar sem hann sat í leigubíl sínum á bilastæði í bænum. Fleiri stungusár vom á líkinu og því telur lögreglan að komið hafi til heift- arlegra átaka þar sem bílstjórinn hafi þurft að berjast fyrir lífi sínu síðustu mínútumar sem hann lifði. Lögreglan í Stavanger stendur ráðþrota, en segir að augljóslega hafi ekki verið um rán- morð að ræða því fleiri þúsund krón- ur hafi fundist í leigubílnum eftir morðið. Þá var tuttugu og fjögura ára list- málari drepinn í bænum aðfaranótt þriðjudags, en samkvæmt upplýsing- um lögreglu er talið líklegt að morðið á honum tengist fikniefnum, hugsan- lega vegna óuppgerðra skulda. Málar- inn var skotinn i höfuðið á vinnu- stofu sinni þar sem hann fannst skömmu síöar. Sá sem fann listmálar- ann segist hafa séð fjóra menn hlaupa frá morðstaðnum. Tveir menn hafa þegar verið handteknir vegna málsins grunaðir um aðild að því. -GÞÖ Tugir Afgana farast í öflugri sprengingu - ólíklegt að um sprengjuárás hafi verið að ræða „Það eina sem við vitum er að sprengingin varð innan athafna- svæðis ACLA. Hún var svo öflug að það hefur þurft meira en lítið magn sprengi- efnis til að valda slíkum skemmd- um og því ólíklegt að um bil- sprengju hafi verið að ræða,“ sagði talsmaðurinn. Mohammad Asif Qazizada, að- stoðarhéraðsstjóri í Jalalabad full- yrti 1 gær að ekki hefði verið um sprengjuárás að ræða og sagði allt benda til þess að um slys hefði ver- ið að ræða. „Sprengingin varð í byggingu þar sem sprengiefi til vegagerðar var geymt og því örugglega ekki um árás að ræða,“ sagði Qazizada, en útilokaði ekki að um skemmdar- verk hefði verið að ræða. Hann fullyrti einnig að tala látinn ætti eftir að hækka verulega og giskaði á að þeir væru að minnsta kosti fjörutíu, allt afganskir borgarar. REUTERSMYND Elnn yflr Atlantsála Norski ætvintýramaöurinn Stein Hoffer hér á æfmgu fyrir ferö sína yfir Atlantsála, en hann hyggst róa einsamall á þessari smákænu frá Lissabon í Portúgai til Georgetown í Guyana og hefst feröin, sem áætlað er aö taki ÍOO daga, í dag. Að minnsta kosti 26 manns munu hafa látist og tugir slasast þegar öfl- ug sprengja sprakk á athafnasvæði ACLA-verktakafyrirtækis í ná- grenni borgarinnar Jalalabad í austurhluta Afganistans um hádeg- isbil í gær. Sprengingin var svo öfl- ug að hús í hálfs kílómetra fjarlægð skemmdust og var óttast að fleiri látnir ættu eftir að finnast í rústun- um þeirra fjörutíu húsa sem skemmdust. Að sögn talsmanns afganska ut- anríkisráðuneytisins var ekki ljóst hvað olli sprengingunni, en helst talið að sprengjugeymsla fyrirtæk- isins hafi sprungið 1 loft upp frekar en að um bílsprengju hafi verið að ræða. Að sögn talsmanns alþjóðlegu ör- yggissveitanna í Jalalabad varð sprengingin rétt eftir hádegið í um 10 kílómerta fjarlægð frá Jalalabad í nágrenni Darunta-stíflunnar, sem er nálægt þjóðveginum til Kabúl, og Börnin leita skjóls Óttast er að tala látinna eigi eftir aö hækka verulega. var í fyrstu óttast að henni hafi ver- ið ætlað að granda stíflunni. Lögreglan telur að telpurnar séu enn á lífi Lögregluyfirvöld í Cambridge-hér- aði í Englandi, sem fara með rann- sóknina á hvarfi telpnanna tveggja, þeirra Holly Wells og Jessicu Chap- man sem hurfu sporlaust í heimabæ sínum, Soham, á sunnudagskvöldið, telja fullvíst að telpumar séu enn þá á lífi og séu hafðar einhvers staðar í haidi gegn vilja sínum. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem lögregluyfirvöld boðuðu til í gær og sagði David Hankin, yfirmaður rannsóknarlögreglunnar í Cambridge- héraði sem stjómar rannsókninni, að stuðst sé við álit glæpasáifræðinga sem vinni náið með lögreglunni að rannsókn málsins. Lögreglan notaði tækifærið til að dreifa nýjum myndum af Jessicu Chapman sem teknar vora af henni fyrir aðeins einni viku þegar hún var með fjölskyldu sinni í sumarleyfi á Miðjarðarhafseyjunni Menorcu og Holly og Jessica. beindi Hankin máli sínu tii meints ræningja telpnanna og skoraði á hann að sleppa þeim þegar lausum. „Láttu þessar myndir ekki verða síðustu minningu fjölskyldunnar um telpuna," sagði Hankin. Hann talaði einnig um sálarkvölina sem fjölskyld- ur telpnanna gengju nú í gegnum og reyndi allt til að höföa til tilfinninga meints ræningja. Hankin sagði lögregluna nú vinna eftir nýjum mikilvægum upplýsing- um sem fengust við rannsókn tölvu- fræðinga á heimilistölvu Wells-fjöl- skyldunnar, en telpurnar munu hafa verið á Netinu aðeins hálfri kukku- stund áður en þær hurfu og beinist rannsóknin nú að því hvort þær hafi komist í tölvusamband við meinta ræninga sem hafi tælt þær til sín. Einnig er verið að rannsaka notkun Jessicu á farsíma sem hún mun hafa haft með sér þegar þær hurfu. Málið hefur valdiö mikilum óhug í Bretlandi og víðar og hafa ýmsir aðil- ar þar i landi lofað háum peninga- greiðslum fyrir upplýsingar sem leitt gætu til þess að telpurnar fyndust. Ben-Ami segir af sér Shlomo Ben-Ami, fyrrum utanríkisráð- herra ísraels, hefur sagt af sér þing- mennsku vegna óá- nægju með þátttöku flokks síns, Verka- mannaflokksins, í ríkjandi samsteypu- stjórn Ariels Sharons. Hann var frá upphafi mótfallinn þátttöku flokksins í ríkisstjórninni og segir hana skorta allan friðarvilja. Ben-Ami tók virkan þátt í friðarferlinu sem utanríkisráð- herra í ríkisstjómartíð Ehuds Baraks og fullyrðir að eina mögulega leiðin til friðar sé að taka aftur upp þráðinn þar sem frá var horfið í Camp David- viðræðunum. Sádar svara fyrir sig Dagblöð í Sádi-Arabíu hafa að und- anfomu ráðist harkalega gegn því sem þeir kalla kristna öfgastefnu í Bandaríkjunum og sagði í einu þeirra, al-Watan, að kristnir öfgamenn væru alls ekki minni ógnun við heimsfrið- inn heldur en öfgasinnar annarra trú- arbragða. Skrifin eru viðbrögð Sádi- Araba við ummælum sem nýlega láku út frá Pentagon, þar sem Sádi-Arabíu er lýst sem vöggu hins illa í Mið-Aust- urlöndum, en þar mun hafa verið átt við uppruna bin Ladens og samtaka hans. Ummælin urðu til þess að for- ystumenn ríkjanna sáu sig knúna til að gefa út sameiginlega yfirlýsingu um að samskiptin hefðu sjaldan verið betri. Faðirinn handtekinn ^ Simon Slack, 31 I ’ " I töku alsælu um miðj- heimili sínu í Galgate á fimmtudag- inn vegna gruns um að hafa verið eig- andi efnisins sem dóttir hans komst yfir og tók inn. Honum var sleppt gegn tryggingu eftir yfirheyrslur á meðan málið er í frekari rannsókn. Jórdanar sármóðgaðir Utanríkisráðherra Jórdaníu kallaði í gær sendiherra Qatar á sinn fund til að lýsa vanþóknun sinni á ummælum sem fram komu í spjallþætti á al- Jazeera-sjónvarpsstöðinni, sem aðset- ur hefur í Qatar, en þar kom fram gagnrýni á hófsama stefnu Jórdaníu- konungs í málefnum Mið-Austur- landa. I kjölfarið bönnuðu Jórdanar útsendingar stöðvarinnar í Jórdaníu og sagði utanríkisráðherrann að þjóð hans væri „sármóðguð“. Tvíburasysturnar braggast Að sögn lækna við UCLA-sjúkra- húsið í Los Angeles, munu lífslíkur tvíburasystranna frá Mið-Ameríku- ríkinu Guatemala, sem fæddust sam- vaxnar á höfði og aðskildar voru með aðgerð fyrr í vikunni, nú aukast með hverjum deginum. Þær munu báöar hafa opnað augun og hreyft handlegg- ina í gær, í fyrsta skipti eftir aðgerð- ina, sem að sögn lækna lofar góðu eft- ir að strangri lyfjagjöf var hætt. Þær munu þó engan veginn úr lífshættu. Hryðjuverkahreiður Sergei Ivanov, vamarmálaráðherra Rússlands, sagði í gær að Georgía væri nú orðið annað stærsta hryðju- verkahreiður i heiminum, á eftir Af- ganistan. Ivanov lét þessi orð falla eftir að hafa sakað stjómvöld í Geor- giu um að styðja í auknum mæli við bakið á tsjetsjenskum hryðjuverka- mönnum sem að undanfornu hafa haldið uppi árásum á hagsmuni Rússa í Tsjetsjeníu, síðast í gær þegar sex rússneskir hermenn féllu og fjórir særðust þegar sprengja sprakk undir herflutningabifreið þeirra í Tsjetsje- níu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.