Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Qupperneq 12
Erlendar fréttir vikunn; Erlent fréttaljós LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 Helgarblað DV Ófremdarástand í efnahagsmálum breiðist út um Suður-Ameríku: Alþ j óðastof nanir koma til bjargar Lítið gert úr Saddam Bandarlsk stjórn- völd gerðu lítið úr ávarpi sem Saddam Hussein íraiksforseti flutti þjóð sinni á fimmtudag þar sem hann hvatti meðal annars til viðræðna á jafnréttisgrund- velli við Sameinuðu þjóðirnar um vopnaeftirlit. Saddam lagði hins vegar ekkert nýtt fram. Þá sagði hann að allar árásir á land- ið væru dæmdar til að mistakast. Vestan hafs lýstu menn ávarpi Saddams sem ofstopa af hálfu ein- angraðs harðstjóra, eins og það var kaliað, sem hefði enn einu sinni sýnt að stjóm hans ætlaði sér ekki að standa við skuldbindingar sínar, eins og þær væru settar fram í ályktunum Öryggisráðs SÞ. Bændur bregða búi Hundruð hvítra bænda í Simbabve yfirgáfu jarðir sínar fyrir miðnahti á funmtu- < dagskvöid þegarj frestur stjómvalda tii að gera þaö rann út. Margir þeirraf sögðust ætla að bíðaj átekta og sjá hvort | 'þeir gætu ekki snúið aftur Jieim síðar. I Þúsundir bænda fóm hins vegar ekki að fyrirmælum um að bregða búi oé kusu að bíða eftir viðbrögð- um yfirvalda. Ríkisstjóm Roberts Mugabes forseta vill losna við hvítu bændurna svo hægt sé að skipta jörðum þeirra upp og afhenda svört- um bændum. Ekki þjóðaratkvæði Stjórnvöld á Taívan tilkynntu undir vikulok að þau ætluðu ekki að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um formlegt sjálfstæði eyjarinnar. Stuðningsyfirlýsingar Chens Shuis- bians forseta við slíka atkvæða- greiðslu um síðustu helgi ollu miklu fjaðrafoki í Peking þar sem Chen var sakaður um að stefna eyjunni í glötun. Taívanar tilkynntu einnig að þeir hefðu hætt við fyrirhugaðar heræfmgar, ef það mætti draga enn frekar úr spennunni í samskiptun- um við Kína. Cherie Blair missti fóstur Cherie Blair, eiginkona Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, var flutt á sjúkrahús í London í upp- hafi vikunni eftir að hafa misst fóst- ur. Cherie var útskrifuð af sjúkra- húsinu daginn eftir og að sögn lækna heilsast henni vel. Cherie, sem er 47 ára gömul, og hinn unglegi 49 ára gamli forsætisráðherra eiga fjögur börn. Yngstur er Leo, tveggja ára, fyrsta barn sem fæðist starfandi forsætis- ráðherra Bretlands á síðari tímum. Blair-fjölskyldan dvelur þessa dagana í lúxusvillu í suðvestan- verðu Frakklandi, í kærkomnu fríi. Sofnaö á verðinum Stjómvöld vestanhafs hafa vísað á bug ásökunum um að hafa hunsað áætlanir stjómar Bills Clintons, fyrrum forseta, um að ráðast gegn al-Qaeda hryðjuverkasamtökunum í byijun síðasta árs og ekkert aðhafst fyrr en átta mánuðum síðar. Upp- lýsingar þessar koma fram í síðasta hefti tímaritsins Time. Þar segir einnig að nákvæmt mat á samtök- unum og áætlanir um aðgerðir hafi verið kynntar fyrir Condoleezzu Rice, þjóðaröryggisráögjafa Bush forseta. Hafa ráðamenn veriö sakað- ir um að hafa sofið á hryðjuverka- verðinum. Báknið burt Grænlendingar þurfa að draga úr umsvifum stjómsýslunnar, sameina sveitarfélög og leggja önnur niður ætli þeir sér að geta komist af án beinna fjárstyrkja frá ríkissjóði Danmerkur. Þetta kemur meðal annars fram í nýrri skýrslu græn- lensku sjálfstæðisnefndarinnar sem gerð var opinber í vikunni. „Efnahagsmódelið virkar ekki. Ég veit ekki hvernig á að kippa þessu í lag en fólk vill fá vinnu. Við viljum betra líf.“ Ætli megi ekki segja að þessi orð | hins 46 ára gamla Matiásar Lopez frá Argentínu endurspegli vel \ ástandið sem ríkir viða í löndum I ' Suður-Ameríku um þessar mundir, þar ,‘sem efnahagslífið rambar á | barmi hengiflugsins. Þegar Lopez var sagt upp störfum [ hjáland8símæ Argentínu fyrir gllefu | árum vár honum tjáð að það væri landinu fyrir iDestu. Starísnienn f símafélagSins voru *éfniléga allt óf K margir og skilvirknin var lítií. ► „Stjórnvöld sögðu að ef*við færð- ; um fórnir myndi ástandið batna,“ j segir Lopez. t Ekki sannspáir i Ekki reyndust ráðamenn sann- í spáir að þessu sinni. í stað batnandi tíðar með blómum í hága fengu Argentínubúar að kenna á verstu efiiahagskreppu sem þeir hafa nokkru sinni upplifað, í kjölfar tíu. ára tímabils þar sem stjómvöld gripu oft til sársaukafullra umbóía á efnahagslífi landsins. Matias Lopez selur nú papparifr- ildi til að hafa í sig og á óg ásamt þúsundum annarra fer hann i kröfugöngur á hverjum einasta degi ! til krefjast breytinga. Á móti einkavæðingu Svipað er uppi á teningnum víðs vegar um Rómönsku Ameríku þar sem uppþot, íjármálaöngþveiti og vaxandi fátækt setja æ sterkari svip sinn á þjóðlífið. Af þeim sökum hafa margir nú lýst andstöðu sinni við einkavæðingar- og fríverslunar- stefnu undangenginna tíu ára. Skyndileg uppþot almennings í Argentínu í desember í fyrra, fall lýðræðislega kjörinnar stjórnar Fernandos de la Rua í kjölfarið, svo og harkidegar aðgerðir lögreglu sem urðu um þrjátíu manns að bana, eru orðin að tákngervingi fyrir þær ógöngur sem frjálshyggjustefna undanfarinna ára í Rómönsku Am- eríku þykir hafa ratað í. Gera ekki neitt Öngþveitið í Argentínu, sem fram að því hafði verið talið besti læri- sveinn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, varð bara til þess að auka vanda ná- grannaríkja á borð við Úrúgvæ, Paragvæ og Brasilíu. Þar mun vera á ferðinni fyrirbæri sem hagfræð- ingar kalla „smit“ og skýrir það að hluta ríkjandi ófremdarástand. Útbreidd óánægja almennings hefur lamað ríkisstjómir viðkom- andi landa og fælt fjárfesta frá, og þar með gert þennan vítahring enn erfiðari viðureignar. „Margir eru fátækari en þeir voru fyrir tíu árum og nú krefjast þeir með réttu að gripið verði til annars konar aðgerða," segir Nicolas Shumway, forstöðumaður deildar um málefni Rómönsku Am- ! eríku við Texasháskóla í Austin. „En þessi félagslega ólga grefur ! sjálf undan stöðugleikanum af því j að enginn þeirra sem sitja við völd veit hvað gera skal. Það endar þess vegna með því að þeir gera ekki neitt. Þetta aðgerðarleysi gerir að- eins illt verra og dregur enn frekar úr hagvexti. Gríöarleg vandamál þessa heimshluta nú eru að stórum hluta þessu að kenna," segir Shumway enn fremur. Verðbólgan kveðin niður Ríkisstjómir í löndum Rómönsku Ameriku lögðu hart að sér á tíunda áratug tuttugustu aldarinnar að kveða niður óðaverðbólgu og ganga REUTERSMYND Við viljum peningana okkar Viðskiptavinir Viðskipta- og verslunarbankans í Úrúgvæ kröfðust þess í höfuðborginni Montevideo á dögunum aö fá aftur sparifé sitt sem þeir áttu þar á reikningum. Mikill fjármagnsflótti hefur verið úr bönkum í Úrúgvæ að undanförnu. af óhagkvæmum ríkis- og einkafyr- irtækjum dauðum, fyrirtækjum sem höfðu haldið efnahagslíFinu í hlekkj- um í áratugi. En þrátt fyrir framfar- ir fjölgaði mjög í rööum fátæklinga í mörgum landanna og bæði skuldir og atvinnuleysi jukust til muna. Gu&laugur Bergmundsson biaðamaður Risanum bjargað Paul O’Neill, íjármálaráðherra Bandaríkjanna, fór til nokkurra rikja Suður-Ameríku í vikunni. Sið- asti viðkomustaður hans í þeirri ferð var Buenos Aires, höfuðborg Argentínu. Hann bauö stjóm Eduar- dos Duhaldes forseta ekki neina að- stoð til að vinna bug á efnahags- kreppunni. Þess í stað lofaði hann að leggja sitt af mörkum til að jafna ágreining Argentinumanna og Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins til að greiða fyrir skjótri aðstoð. Duhalde forseti hafði sagt O’Neill að Argentínumenn þyrftu bráð- nauðsynlega á aðstoð að halda. Áður hafði O’Neill meðal annars heimsótt ráðamenn í Úrúgvæ þar sem mikil ólga hefur verið að und- anfömu. Úrúgvæ hafði lengi verið líkt við Sviss vegna velsældar og fjármála- legs stöðugleika. Landið stendur þó ekki undir þeirri nafngift lengur og Jorge Battle forseta hefur ekki tek- ist að hafa hemil á miklum fjár- magnsflótta úr bönkum landsins. En Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Alþjóðabankinn komu til bjargar á flmmtudag þegar þeir samþykktu nærri átta hundruð milljóna dollara lán til stjórnvalda. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kom stjórnvöldum í Brasilíu svo til hjálpar undir vikulok með því að lána þeim þrjátíu milljarða dollara. Vonir standa til að með því fé verði hægt að vinna bug á efnahagskrepp- unni þar á bæ, svo og í öðrum lönd- um álfunnar. Bandaríkjamönnum var mjög í mun að koma í veg fyrir hrun efna- hagslífs Brasilíu, risans í Suður- Ameriku, þar sem slíkt myndi hafa alvarlegar afleiðingar, ekki bara í nálægum ríkjum heldur um allan heim. Byggt á efni frá Reuters, Le Monde, Christan Science Monitor og BBC. REUTERSMYND Heimsókn O’Neilis mótmælt Bankastarfsmenn í Buenos Aires í Argentínu hrópuðu slagorð gegn Al- þjóðagjaldeyrissjóönum þegar þeir mótmæltu komu Pauls O'Neiits, fjár- málaráðherra Bandaríkjanna, til Argentínu í vikunni. Þótt hagvöxtur á síðasta áratug hafi verið tvisvar sinnum meiri en á áratugnum þar á undan reyndist hann ekki nægur til að slá á óá- nægju margra í álfunni þar sem bil- ið milli ríkra og fátækra er breiðara en annars staðar i heimi hér. Ótti við hengiflugið Alþjóðabankanum og Alþjóða- gjaldeyrissjóðinum hefur oft verið kennt um hvemig komið er fyrir efnahagsmálum í Rómönsku Amer- íku. Því er haldið fram að stofnanir þessar mælist til þess að stjómvöld framfylgi stefnu sem hafi ekki leitt til meiri hagsældar alls þorra al- mennings. Enn aðrir skammast út í bandarísk stjómvöld fyrir að pré- dika fríverslun en láta svo ekki verkin tala þegar kemur að því að opna eigin markaði fyrir erlendum vörum. Michael Shifter, sérfræðingur í málefnum Suður-Ameríku við stofn- unina Inter-American Dialogue í Washington, segir að menn fmni fyrir þreytu og varfærni í garð efna- hagsumbóta og fríverslunar við Bandaríkin. „En fólk þarf eitthvað til aö halda í þegar það óttast hengi- flugið,“ segir Shifter.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.