Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR IO. AGÚST 2002 Helcjarblað I>V 21 Á Tofana-tindi (3.250 m), frá vinstri: Orri, Ari Trausti, Árni og Kurt. Minningarskildir neðan við norðurvegg Ortlers minna á að leiðin er hættuleg. Árni býr sig undir næstu atrennu á klettahrygg Ortlers. Úr lilíðum Ortlers. þurftum aldrei mannbrodda í mjúkan snjóinn, þar sem við fikruðum okkur framhjá sprungum, upp brattan jökulskallann á fjallinu. Við leituðum að brún til hægri til þess að leiða okkur eftir á tindinn. Það tókst og Slóvakarnir tveir sem eltu okkur gripu óðar farsimana til að segja fréttirnar heim til Brno og Bratislava. Til suðurs sáum við aðeins hamraflug hverfa ofan í þokusúpuna en ekkert af frábæru útsýn- inu. í norðri rann jökullinn saman við skýjabakkana. Hvað um það, ég hafði náð takmarkinu: Að standa í sömu sporum og sá gamli. Hinir áttu sér sínar ástæð- ur. 1 skálanum, þremur stundum síðar, var okkur tek- ið með kostum og kynjum og við spurðir spjörunum úr. Ánægjan leyndi sér ekki á andlitum okkar. Næstu tvo daga var ekki farið á Ortler en við snerum heim á leið snemma morguns, eftir tindadaginn. Neðri hluti klifurleiðarinnar á Tofana-tindinn. Jánileið á stríðsslóðum Ferðin hófst í Múnchen og fyrri hluta timans höfð- um við eytt í að ganga á Drei Zinnen-svæðinu (Tre Croci di Lavaredo) og klífa fallegan, 3.250 metra háan Dólómítatind nokkru vestar; tind sem heitir Tofana di Rozes eða Tofanaspitze; í S-Týról eru öll örnefni höfð bæði á týrólsku og ítölsku og nær allir eru tví- tyngdir. Við kynntum okkur þar klifurtækni sem kennd er við „járnleið“ það er via ferrata eða Klett- ersteig. Þá er komið fyrir litlum járnfleygum með stálkapli við leiðina og menn klífa án línu á milli sin, með tvo stutta spotta í klifurbeltinu sem tengdir eru í kapalinn en leika þó lausir í linulás (karabínu). Fall er í mesta lagi einn til fjórir metrar. Klifrað er til hliðar við kapalinn. Hallist kletturinn yfir sig eru víða hafðir járnstigar. Leiðin okkar - G. Lipella - er gráðuð II til IV+ sem klifurleið (af X) en meðalerfið í heild sem járnleið. Hún er nokkuð strembin enda nærri sjö hundruð hæðarmetrar (fjögurra til sex klukkustunda klifur) og mjög löng vegna þess að hún ■er afar hlykkjótt. Menn þræða sig eftir láréttum bergsyllum til þess að krækja fyrir erfiða klettaveggi. Fyrst þurftum við að fara um gamalt, lítið virki úr fyrri heimsstyrjöldinni og fimm hundruð metra löng göng sem hermenn höfðu sprengt og grafið í fjallið. Fúnar mannvistarleifar, saggalykt og dauðaþögn minnti óþyrmilega á hin hræðilegu átök Austurríkis- manna og ítala sem litlu þokuðu þótt S-Týról hafi að lokum verið úthlutað Ítalíu 1922 til 1923. Þetta voru daprir dagar þegar vinir börðust og fleiri hermenn dóu úr vosbúð, hröpuðu eöa fórust í snjóflóðum en þeir sem féllu fyrir stríðstólum. Hjá Drei Zinnen í Dólómítafjöllunum. Payer-skálinn gnæfir eins og kastali yfir umhverfið. Línionaði og púðluhundar Klettarnir reyndust erfiðastir þar sem leysingalæk- ir gerðu bergið sleipt. Við skröngluðumst áfram á stífu klifurskónum sem henta á hina hærri tinda. Upp komumst við loks á fortindinn og gengum svo sveitt- ir og móðir brattann upp að krossinum á hátindinum, heila tvö hundruð hæðarmetra í viðbót. Útsýnið var frábært, meðal annars yfir hina Tofana-tindana, Cort- ina d’Ampezzo, Cima di Civetta, Marmolada, hæsta tind Dólómíta; Sellaturnana og margt fleira. Hvassir tindar og djúpir dalir Dólómítana eiga fáa ef nokkra sína líka. „Gimsteinar Ítalíu", hafði Guðmundur skrifað í bókina sína Fjallamenn, sem kom út árið 1946. Við klöppuðum hver öðrum á bakið, karlarnir, og sögðum bergheil og svo var myndað. Þriggja klukku- stunda löng niðurferð eftir léttri aðalleiðinni á fjallið var eftir. Hún gekk að óskum og nokkrum tugum manna, sem á móti komu, þurfti að heilsa með virkt- um. í lúnum en stórum skálanum, sem er kenndur viö Locatelli, ítalskan flugforingja frá um 1930, kostar límonaðiglas álíka mikið og meðalmáltíð i dalnum - fimm evrur, og þarna uppi voru tveir púðluhundar með vel klæddum eiganda á sextugsaldri. Þá þegar var hugurinn bundinn við Ortler. Ari Trausti Guðmundsson Myndir eru eftir Árna Áriiason
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.