Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Page 25
t'ÁUCAR'DA'CUR Vó'. ÁcflÓSt'ic/o2
u
H c? Iq ( i r k> l ct ö 33 V'
PtfiÉ
tll- ■
DV-nivndir Hari
DV-myndir Hari
Eftir að deigið hefur lyft sér í
klukkutíma skiptir Sigurður
Már því í átta jafna hluta og
mótar bollur með báðum hönd-
um.
Betra er að þrýsta létt ofan á
bollurnar í forminu áður en
þær eru látnar lyfta sér í hæfi-
lega stærð undir dúk í klukku-
tíma.
Sigurður stráir möndlum og
perlusykri vfir bollurnar eftir
að hafa penslað þær með
hrærðu eggi. Einnig má
skreyta Brioche-brauð með því
að taka bita af deiginu, áður
en því er skipt, bæta aðeins
hveiti út í hann og móta átta
litlar kúlur úr honum. Búa til
lítið hreiður í hverja bollu
ineð því að þrýsta á liana
fingri og leggja litlu kúluna í
hreiðrið.
Ilmur af plómum,
kirsuberjum og kryddi
Ef eitthvað skapar notalega stemningu á síð-
sumarkvöldunum þá er það gott brauð, ostur og
rauðvín. Ekki spillir ef kertaljós eða jafnvel útiar-
inn fylíir upp í myndina! Með franskættuðu
brauði, eins og því sem fjallað er um á síðunni á
móti, fer vel á að dreypa á frönsku víni við slík
tækifæri. Þá kemur Beau-Rivage frá Bordeaux
sterklega til greina, að mati Ingibjargar Eiríks-
dóttur hjá K. Karlssyni. Beau-Rivage er ávaxta-
ríkt vín með plómu- og kirsuberjailmi. Litur þess
er dökkur, bæöi brúnleitur og fjólublár. Bragðið
er stutt en eftirbragðið þægilegt og í mjög góðu
jafnvægi. Ingibjörg segir Beau-Rivage vera tilbúið
til drykkju í dag en þoli líka geymslu í 3-5 ár.
Borie Manoux vínfabrikkan er með þeim
stærstu í Bordeaux og er í eigu einnar fjölskyldu
en í Bordeaux eru 60 tegundir af Medoc-vínum
sem eru talin þau bestu.
Fyrir þá sem eru að leita sér að óhefðbundnara
víni til að drekka með brioche-brauðinu mælir
Ingibjörg með nýjung sem kemur fólki skemmti-
lega á óvart; rauðvíninu Grao Vasco frá Portúgal.
Portúgal er eitt af þessum löndum sem gleymst
hefur talsvert í vínumræðunni en Portúgalar hafa
á síðasta áratug bætt vínframleiðslu sína til
muna. Það eina sem Spánverjamir hafa í raun
umfram Portúgalana er að þeir hafa markaðssett
sig betur. „Grao Vasco er alveg sérstaklega gott
vín til hversdagsdrykkju," segir Ingibjörg og
bætir við. „Það er gert úr mörgum tegundum af
þrúgum þótt torriga nacional sé þar í aðalhlut-
verki."
Grao Vasco er rúbínrautt á lit en þó
glampar á appelsínugult í ákveðnu ljósi.
Þetta er ungt vín og einkar aðlaðandi.
Ilmurinn er mettaður bláberjum og
kryddi með blöndu af karamellu en
plómur og spræk sýra er áberandi í
bragðinu. Ingibjörg segir Grao Vasco eftir-
læti Portúgala þegar kemur að borðvínum
enda einfalt og ferskt í bragði. „Það er gott
með ítölskum pastaréttum, þar sem matar-
afgöngum, s.s. lambakjöti og sterkum pyls-
um, er hent saman í tómatsósu, og líka með
alls konar smáréttum, svo sem brauði og
osti,“ eru hennar lokaorð.
Grao Vasco fæst i ÁTVR og kostar ein-
ungis 990 krónur.
Umsjón
Haukur Lárus
llauksson
+